Tíminn - 11.10.1981, Qupperneq 10

Tíminn - 11.10.1981, Qupperneq 10
10 Sunnudagur 11. október 1981 SÆTIR STRÁKAR — kafli úr nýrri skáld- sögu eftir Magneu J. Matthíasdóttur ■ Hús Skáldsins er litib, varla nægilegt olnbogarúm þar fyrir þau fjögur, Skáldiö, konu hans og börnin tvö. En SkáldiB er veí gift. Kona hans er verklagin, dugleg, út- sjónarsöm og gædd rikulegri skipulags- gáfu. Hún hefur komiö öllu svo haganlega fyrir á heimilinu sem veröa má, viöar- klæddi i hólf og gólf, afsýröi húsgögn, lakk- aöi önnur i skærum litum, saumaöi glugga,- tjöld úr óbleiktu lérefti meö blúndu- kanti og milliverki, smiöaöi furuhillur undir bækur, plötur og skrautmuni, bætti viö þær, þegar litasjónvarp hélt innreiö sina á heimiliö, hengdi upp myndir af fádæma smekkvisi, klæddi aflóga gjafasófasett snoturlega mynstruöum striga, lagöi teppi upp á hæöina, vegg- fóöraði svefnherbergin tvö björtum blóma- myndum, lakkaöi baöherbergiö, heklaöi eldhúsgardinur og fyrir gluggann i útihuröinni, raöaöi pottaplöntum hvarvetna og lagöi sit yfirleitt alla fram um aö skapa heimili, sem dönsku vikublööin heföu sleg- ist um aö fá aö kynna á siöum sinum. Allt þetta geröi hún i frlstundum frá vinnu og barnastússi og Skáldiö þurfti hvergi nærri aö koma, en gat helgaö sig sköpunarstarfi sinu. En Skáldiö var óánægt. Skáldiö þreifst ekki — hann skorti mannsæmandi vinnuaöstööu. Þetta var allt of þröngt, of litiö, of borgaralegt, of andlaust til aö hann gæti skrifaö. Hvernig átti hann aö geta skapaö ódauöleg meistaraverk i þessu altfordamerneumhverfi? spuröi hann. Höföu þeir mikla ónafngreindu meistarar sungiö sinn svanasöng fyrir framan sjónvarpsskerminn meö bila- brautir barnanna einsog vafningsviö uppeftir leggjunum á sér? Skáldiö reifst en konan hans dó ekki ráöalaus fremur en fyrri daginn. Hún tjaldaöi fyrir eitt stofuhorniö, blúndulausum óbleiktum lér- eftstjöldum i stil viö gluggana.setti skrif- borö Skáldsins inn fyrir tjöldin, stól og rit- vélina hans, lampa og stóran pakka af vél- ritunarpappir, hengdi upp plakat meö freistingu heilags Antoniusar teymdi Skáldiö siöastan þangaö inn og sagöi hon- um aö þegja. Þarna væri fullgóö vinnuaö- staöa fyrir hann. Og Skáldiö maldaöi ekki frekar i móinn, nöldraöi rétt þegar hann var fullur eöa ef honum gekk illa aö semja en þá hlustaöi heldur enginn á hann. En nú er stofan öll á öörum endanum. Stóra málverkiö yfir sófanum er horfiö, sömuleiöis allar bækur úr hillum og afrisku trégrfmurnar tvær. Meira aö segja ræktar- lega gúmmiplantan I gluggahorninu er horfin. Ég litast agndofa um. Hvaö er eigin- lega á seyði? „Hvar eru bækurnar?” spyr ég Skáldið þegar hann kemur inn eftir aö hafa gert upp bflinn. „Eruö þið aö flytja?” „Nei, langt frá þvi”, segir hann Ibygginn. „Þannig er mál meö vexti, aö ég er búinn aö fá nóg af aö vera annars flokks borgari á eigin heimili. Ég er alltaf sniögenginn, alltaf látinn sitja á hakanum. Hvar á ég aö vinna? Hvernig á ég aö geta skapaö lista- verk, þegar ekkert er gert til aö hlú aö mér? Þaö eru ómanneskjulegar kröfur sem til min eru gerðar.” „Þú hefur vinnuherbergi er þaö ekki?” spyr ég ánalega. „Virxnuherbergi?” Hann hnussar fyrirlit- lega. „öllu má nú nafn gefa! Vinnuher- bergi! Það var þá! Nei én ég er búinn aö bæta úr þvi. Komdu, ég skal sýna þér þaö.” Skáldiö leiöir mig bakvið tjaldið fyrir hinu allra heilagasta, skotinu sinu. Hann er búinn aö endavenda öllu þar inni. Skrif- boröiö er komiö framá mitt gólf, afrisku grimurnar blasa viö þvi og málverkiö hangir á endaveggnum og nýtur sin engan- veginn i þrengslunum. Aftan viö stólinn gnæfa risavaxnar dökkar og fornfálegar bókahillur, troönar af bókunum úr stofunni. Gúmmiplantan hirist viö hliö þeirra, lasleg meö lafandi blöö. Aö venju er skrifboröiö þakiö pappir og blaö I ritvélinni. Ég segi þaö sem mér kemur fyrst I hug: „Ertu ekki hræddur um aö fá skápinn i hausinn einhvern daginn?” Skáldiö hlær, djúpum og þekkilegum hlátri sinum. , Þaö hefur hvarflaö aö mér”, játar hann. „En >vernig list þér á? Er þetta ekki allt annaö lif? Þetta er miklum mun andlegra umhver'fi, þú getur ekki neitaö þvi. Ég sat hérna i gær, gjörsamlega fastur i erfiöum kafla strandaöur, andlega stiflaöur og ekk- ert gekk. Hvaö er aö? hugsaði ég. Hvers vegna get ég ekki skrifað? Er ég oröinn gamall, uppþornaöur, andlega geldur — eöa er þaö eitthvaö annaö? Og þá rann upp fyrir mér ljós. Hvernig átti ég lika að geta skapaö I þvi spartanska umhverfi sem mér var búiö? Þaö heföi enginn getaö — Hómer heföi fengiö harölifi, Shakespeare lagst 1 of- drykkju, Blake skoriö sig á háls. Ég er viö- kvæm sál, listamaöur, ég þarf hlýju og inn- blástur. Þaöereitthvaö svona sem vantaði. Nú er ekkert eftir nema finna þægilegan stól fyrir blaöamanninn. Sjálfur sit ég auö- vitaö viö skrifboröiö.” „Blaöamanninn?” át ég upp eftir honum og skil nú allt betur. „Varstu aö þessu fyrir blaöamenn?” „Nei, alls ekki ”, segir Skáldiö. „Af hverju helduröu þaö? — Eiginlega var ég miklu frekar aö þessu fyrir ljósmyndara. Þú hlýtur aö hafa séö viötölin viö öll stór- skáld þjóöarinnar, Tómas, Laxness, alla þá gúbba. Hrúgur af bókum og listmunum upp um alla veggi þar. Kúltúr, ef svo má segja. — Hvernig á ég aö geta boðiö hingaö blaöa- mönnum og ljósmyndurum og ekki haft kúltúr I kringum mig?Nú er þaö komiö. Þeir eru velkomnir hvenær sem er — auö- vitaö eftir aö ég er búinn aö finna hæginda- stólinn. Ég verö aö skapa mér rétta imynd útáviö, I augum þjóöarinnar.” „Nú, ertu aö biöa eftir blaöamönnum?” spyr ég. „Ekki I svipinn. En þaö kemur. Ef ekki fyrr, þá i haust. Mörg viötöl, blööin, viku- ritin, sjónvarp og útvarp, þaö fer ekki hjá þvi. Bókin min slær i gegn. Hún verður meistaraverk — er þaö þegar, þó hún sé enn I buröarliönum.” „Hvaö ertu aö skrifa? Ljóöabók?” „Skáldsögu”, segir Skáldið hreykinn. „Mina fyrstu. Meistaraverk — hún veröur gerbylting i islenskri skáldsagnagerö. Hennar á eftir aö veröa minnst um aldir I bókmenntasögu þjóöarinnar.” „Ég efast ekki um þaö”, segi ég og hverf fram fyrir tjaldiö. „Þaö eina sem fyllir mig efasemdum”, segir Skáldiö áhyggjufullur og eltir mig fram, „er hvernig konunni veröur viö, þeg- ar hún kemur heim og sér aö ég er búinn aö breyta.Sjálfsagt veröur hún spólandi vit- laus — það er meira skapiö sem hún hefur. Það má ekki hreyfa viö neinu án þess aö hún sleppi sér. Stundum hvarflar þaö aö mér, aö hún elski þessa stofu meira en mig. En ég ætla ekki að gefa mig i þessu efni — ekki haggast. Ég er nógu lengi búinn að láta i minni pokann. Alltof lengi. Konan á aö vera manni slnum undirgefin. Það sagöi Páll postuli og hann vissi hvaö hann var að segja. Maöurinn er höfuö konunnar sagöi hann. Ég las um daginn grein eftir ein- hverja kellingu i Mogganum, sem benti á þetta sama — man ekki hvaö hún hét, enda skiptir þaö engu máli. En hún kryddaði þetta þvers og kruss meö röksemdum úr Bibliunni.” „Ég vissi ekki aö þú værir trúaöur”, segi ég áhugasöm og sest I sófann. Kannski Skáldiö fari aö sýna á sér nýja og spennandi hlið. Ég horfi yfir viöurstyggö eyöilegging- arinnar, sem blasirglögglega viö sæti minu og vonast hálft I hvoru eftir eldheitri trúar- játningu. Vonandi predikar hann samt ekki of lengi. En Skáldið er ekki á þeim buxun- um. „Ég er ekki trúmaöur”, segir hann og sest hjá mér I sófann, „en þaö breytir samt ekki þeirri staðreynd aö staöa konunnar er lóörétt I eldhúsinu og lárétt i svefnherberg- inu. Komdu aö riöa”. Hann leggur hand- legginn um axlir minar og reynir aö kyssa mig á hálsinn. „Láttu ekki svona”, segi ég. „Þú ert full- ur.” „Auðvitað er ég fullur”, segir Skáldið. „Hvaö get ég veriö annaö? Þetta er sama gamla sagan um mýsnar og kettina skil- uröu? Vissiröu aö konan min er ljón? Sjálf- ur er ég naut. Nautin eru frábærir elskhug- ar, ertu viss um aö þú viljir ekki riða? Kannski seinna. Nautin eru menn lifs- nautnanna. Viltu I glas? Þú þarft. aö slappa svolitiö af svo getum viö fært okkur upp. Auövitaö viltu i glas. Hvar er svo glasiö mitt?” Hann sprettur á fætur og hefur leit. Skömmu siöar sest hann svo aftur hjá mér, nú vopnaöur tveim glösum og annaö ætlaö mér. „Hvaö er þetta?” spyr ég og þefa af glas- inu. Þaö leynir sér raunar ekki af lyktinni. „Viski”, svarar Skáldiö. „Ég drekk ekki annaö. öll mikilmenni drekka viski — Hemingway stútaöi minnst tveim flöskum á dag. Eöa var þaö Churchill?” Hann grip- ur enn þéttingsfast um axlir minar dregur mig nær sér og gerir nýja tilraun til aö kyssa mig. Þaö fer ekki fjarri þvi, aö Tán- ingurinn hafi haft á réttu aö standa. Viniö leitar niöur i likama hans. Ég þekki gang mála héðan — best aö koma honum til að hugsa um annað. „Un hvaö ertu aö skrifa núna?” spyr ég og fitja þar uppá kærasta umræöuefni Skáldsins ef persóna hans' er undanskilin. Þaö hrifur. „Um lifið”, segir hann og réttir sig upp. Hann sýpur hugsandi á glasinu sinu. „Um lifiö og ástina.” Ég er engu nær. „Einhver nánari lýsing?” spyr ég hik- andi, þegar hann gerir sig ekki liklegan til að halda áfram. Venjulega þarf ekki aö ýta undir frásagnargleöi hans. Hann gæti auð- vitaö veriö að búa sig undir meiriháttar fyrirlestur. Likast til best að leyfa honum sjálfum aö ráöa feröinni. Enda reynist þaö vera. Eftir drykklanga stund hefur Skáldiö upp raust sina: „Hefuröu einhverntima hugleitt þaö, hve áfengið leiöir mikiö böl yfir mannkyniö? Hvernig þaö brýtur niöur fólk, lif þess og heimili, hamingjuna, sálina, aleiguna — allt sem einhvers er viröi?” Nei, ekki get ég nú kannast viö slikar hugleiöingar minar. „Þaö er ef til vill ekki aö furöa”, segir Skáldiö vorkunnlátt. „Þorri manna er bundinn á klafa áfengisbölsins, blindur á bölvunina sem fylgir þvi. Mig langar til aö opna augu þessa fólks, sýna þvi hvaö raun- verulega á sér staö á heimili drykkju- mannsins.leiöa þaö i allan sannleika um þær fórnir og þá neyö, sem drykkjunni eru samfara, opna fyrir mönnum hjörtu og sál- ir þeirra, sem eiga i daglangri baráttu viö Bakkus, ýmist beint eöa óbeint. Ég vii fá fólk til aö afneita vinugjöfunum og vim- unni”, segir Skáldiö og er mikið niöri fyrir. Þaö munar ekki um þaö! Er hann aö æfa sig fyrir blaöamanninn strax? En hann er auövitaö nýkominn af Freeport. Þaö er sjálfsgt ekki viö ööru aö búast. Hann er enganveginn búinn aö ljúka sér af. „Ég er aö skrifa um fólk”, segir Skáldiö, „venjulegt fólk, verkafólk, sem veröur á- fengisófreskjunni aö bráö. Þau eru ung, full af björtum vonum, byggja sér heimili og ala börn. Þá dynur ólániö yfir — hann hefur alltaf veriö heldur gefinn fyrir flöskuna.það keyrir um þverbak og hann missir alla stjórn á drykkjunni, heimilið hrynur i rúst- ir, hann kemur fullur heim öll kvöld nema útborgunardaginn, þá kemur hann ekki fyrr en næsta dag ofurölvi, ber hana og börnin og brýtur húsgögnin .Égermeðeina svolitiö góöa senu þar sem hann kyrkir köttinn. — Þau skilja. Hann er vonlaus drykkjusjúklingur sem ekkert biöur nema ræsiö, hún útslitin og taugaveikluð skúring- arkona og lifir aöeins fyrir börnin, sem hún reynir að koma til manns við litil efni, þó sálarlif þeirra sé stórlega skaddaö. Elsti drengurinn er bliölyndur og tilfinninga- næmur draumhugi — ég er aö hugsa um að gera hann aö homma, ég er ekki viss — hann hefur aldrei borið sitt barr eftir nótt- ina hræöilegu, þegar faöir hans myrti kött- inn. Hugurinn stendur til mennta, en móðir hans getur ekki hjálpaö honum og hann er tilneyddur að fá sér vinnu viö höfnina innan um rustamenni sem hæöa hann og niöur- lægja á allan veg. Eöa finnst þér að ég ætti frekar að senda hann á togara? Þaö gefur ef til vill minni möguleika á ástarlifslýsing- um hans — eöa hvaö finnst þér? Er lifið ekki miskunnarlausara á togurum?” Ég er ekki viss. „Jæja, hvaö um þaö — hin börnin eru engu betur heppnuö. Einkadóttirin — hún er næstelsta barniö, þau eru þrjú — hún slæst i félagsskap meö þjófapakki kornung — þrettán eöa fjórtán ára, leggst I drykkju- skap og eiturlyf einsog faöirinn og er nauögaö á endanum. Hún kemur ólétt heim til móöur sinnar, lætur sér samt ekki segj- ast, þó hún beri nú ábyrgð á þessu litla lifi, sem hún fæddi I heiminn, strýkur aö heim- an svo aö segja i blóöböndunum og kastar sér aftur i hringiöuna og sukkiö en lætur

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.