Tíminn - 11.10.1981, Blaðsíða 21

Tíminn - 11.10.1981, Blaðsíða 21
Sunnudagur 11. október 1981 slw i» —'*'• -*->- iVvV.vPwffplflP* íillOiJI SfT Iönin og sjálfsaginn ræöur úrslitum „Snilligáfa eins og Bach haföi er I ætt viö guðlega hluti. Hún veitir innsýn inn i heima sem venjulegir menn geta ekki lokið upp. Er aö þvl leyti af guðlegum uppruna.” t framhaldi af þessu spyr ég Gunnar hvort hann eigi sér ein-. hverja lifsspeki? „Ég á helst þá von heitasta að geta látið gott af mér leiöa. Ég hef margt til að vera þakklátur fyrir. Virðing min gagnvart lifinu og hjargföst trúá kærleika guðs eru fastir punktar i minu lifi.” En hefurðu.þá lagt stund á ein- hverja ákveöna trúarspeki? „Ég get ekki sagt það. Ég hef á- huga á allri heimspeki, austrænni sem vestrænni, en ég hef aldrei iðkað hana eftir kerfisbundinni metóðu, ekki nema þá likamlegt jóga mér til heilsubótar.” Að hafa sálina meðferðis Hverjir eru mestir sellistar i dag? „Þeir eru margir mjög góðir, þar á meðal ungir menn sem hafa komið fram á siðustu árum. Af viðurkenndum meisturum er hægtaðnefna Rostropovich, Tor- telier, Navarra, Fornier, og hvaö hét hann nú aftur Ungverjinn.. Janos Starker. Þessir heyra frekar eldri kynslóðinni til, en margir yngri mannanna eru stór- kostlegir hljóðfæraleikarar.” Heldurðu að sellistar hafi sér- staka skapgerð, aðra en t.d. fiðlu- leikarar. „Ég er ekki frá þvi að hægt sé að flokka hljóðfæraleikara niður i týpur, manngerðir, eftir þvi hvaö þeir spila á. Ég held að ég gæti t.d. þekkt söngvara á færi, séö á manni hvorthann er söngvari eða ekki. Þaö er erfiðara með hljóð- færin, en þó er ég ekki frá þvi að vissir hlutir skini I gegn.” Nú eru margir góðir tónlistar- menn ásakaðir um að spila af mikilli tæknilegri fullkomnun en litilli innlifun — hinir svokölluðu virtúósar. Er þetta vandamál til staðar? „Ég játa að ég hef mikið velt þessu fyrir mér. Ég hef oftsinnis heyrt heimsfræg nöfn spila, hina svokölluðu virtúósa, gera verkun- um fullkomin tæknileg skil án þess aö það komi við hjartaö á mér. Ég er ekki frá þvi að vand- inn liggi i þvi að heimurinn er orðinn minni, samgöngurnar örari. Þessir frægu spilarar þjóta úr einu heimshorni i annað, i stað þess að vera kannski vikur á leið yfir heimshöfin eins og áður var, og það er alvanalegt að þeir haldi upp undir 200 hljómleika á ári. Hér er hætta á að þeir hafi ekki tima til að lifa, heldur einangrist i þessu starfi, missi sambandið við lifiö fyrir utan. Þá fara þeir eöli- lega að spila hluti sem manni koma ekki við, höföa ekki til hjartans, kannski til heilans, en alls ekki til manneskjunnar i manni. Þaö eru til menn i dag er þessi hætta ljós, t.d. Swatoslav Richter, sem aldrei heldur meira en 40 hljómleika á ári og feröastmeð skipum og lest- um I stað flugvéla. Það má segja að hann hafi sálina meðferðis. Þetta minnir mig á sögu sem ég heyrði einhverju sinni um trú- boða eða landkönnuð i Afriku sem lagði upp i gegnum frumskóginn. Eftir nokkurn tima settust burðarkarlarnir niður og neituðu að fara lengra. Landkönnuðurinn, gott ef þaö var ekki Stanley sjálfur, spuröi túlkinn hverju sætti. Hann sagði að þeir væru að biða eftir þvi að sálin næði þeim. Þetta er vandamál sem að vissu leyti á við alla okkur vesturlanda- búa.” En allur tónlistarbarningurinn i kringum okkur, grammófónar, útvörp gæti hugsast að hann væri óhollur? Boltaleikur „Það er allt i lagi og gott ef maður kann með þessi tæki að fara, grammófóna og grammó- fónplötur. En það er reginfirra ef menn imynda sér að slikt geti komið i staðinn fyrir tónlist sem er flutt á staðnum. Það er I eðli tónlistarinnar að verða til i núinu. Aðvísu skjátlaðistmönnum lika ef þeir reikna meö að geta farið i tónleikasal og fundiö þar tækni- lega fullkomnun á borð við grammófónplötur. En það er andrúmsloftið, stemmningin sem þar er sem vegur þyngst á metun- um. Og ekki nóg með þaö. Ef tón- leikar heppnast vel eru áhorf- endur meðskapandi, taka þátt i þessari sköpun i núinu. Mér dettur i hug að líkja þessu við boltaleik milli flytjenda og áheyr- enda. Boltanum er varpaö út til áheyrenda og ef tekst að skapa stemmningu og fá heyrendur með i leikinn, taka flytjendur aftur við boltanum frá áheyrendum og siðan koll af kolli. Þeta er ólýsan- leg tilfinning, sem reyndar á ekki eingöngu við um tónlist, heldur allt sem fer fram á þennan hátt, leiklist og fleira.” Hvað með popptónlistina sem nú virðist hafa flest völd? ":i$*íP flttlp Mm/í p *kJl i •; 1 “ • '11 n v »£■ í? * Hí M f Æi I ^ ” ^'11 ’ fi 'tg£i |ij m \ Ijjfe* ■ Stórkostlegt aö koma heim og sjá að heil ný kynslóð hefur vaxið úr grasi. „Sjálfur iðka ég ekki popptón- list eins og er og fylgist litiö með henni. En ég hef ekkert á móti henni, hún hefur sinn rétt og sinn tilgang og er náttúrulega misjöfn eins og hin svokallaða seriösa tónlist”. Aldrei ætlað að verða stjarna... Vikjum talinu aftur að sjálfum þér. Hvar hefur þú haldiö tón- leika? „Ég hef aöallega leikið á Norðurlöndum og svo haldiö fá- eina tónleika utan þeirra, i Þýskalandi, Frakklandi og Bandarikjunum”. Það er væntanlega enginn hægðarleikur að komast áfram á þessum markaöi. „Það rikir gifurleg. samkeppni og það er ógrynni af frábæru tón- listarfólki sem reynir að komast áfram. En ég hef aldrei álitið mig stjörnu eöa ætlað að verða stjarna. Ég er fyllilega sáttur við mitt lifsform, hér eru verkefni sem ég hef gaman af að takast á við og ennfremur góðir mögu- leikar á að halda tónleika erlendis. Island er alls ekki jafn einangrab og hér áður fyrr, hingað kemur mikið af góöu tón- listarfólki og nú orðið eru nokkur brögð aö þvi að islenskir tónlistarmenn fari út I lönd og sýni listir sinar”. Ætlarðu þá að ilendast hér eftir rúmlega 15 ár i Kaupmannahöfn? „Mér þykir margt benda til þess, ekki hvað sist með tilliti til kennslu. Mér finnst vera þörf á minni reynslu og kunnáttu hér, það er bæði ánægjulegt og upp- lifgandi aö lita yfir þau verkefni sem biða min hér.” En er ekki eftirsjá að heims- borginni Kaupmannahöfn? „Dönsk tónlistarhefö hvilir á gömlum merg, en heföir þurfa ekki alltaf aö vera til góðs. Fast- mótuð form geta staðiö i veginum og verið eðlilegri þróun til traf- ala. Það er skemmtilegt til þess að hugsa aö hér er engin hefö sem hægt er að tala um, að minu viti getur það veriö jákvætt. Það vekur hjá mér vonir að hér megi skapast tónlistarlif á mjög háu stigi ef rétt er staðið aö málum”. Tónleikahöll Einhverjir vankantar hljóta þó aö vera á islensku tónlistarlifi? „Það er einna helst vöntun á tónleikahöll sem háir tónlistarlifi hér á landi, einkum er aðstaða Synfóniuhljómsveitarinnar bág- borin. Ýmsir ágætir aðilar hafa vakiö máls á þvi að eitthvað verði gert til úrbóta. En það hefst ekki nema meö sameiginlegu átaki. Nú er tslenska óperan loks að komast á laggirnar og þaö er eðli- legt að hún, Synfónian, allir þessir stóru kórar, Tónlistar- félagið, Kammermúsikklúbbur- inn, Mucica nova og fleiri gengju i bandalag um að skapa þetta hús. Tónleikahöllin yrði að vera myndarleg með 3-4 sölum, helst ætti þar aö vera aðstaða til tón- leikahalds fyrir megnið af islensku tónlistarfólki og auk þess fast aðsetur synfóniunnar og óperunnar. Tónlistarskólinn og Tónmenntaskólinn sem báöir eiga við húsnæðisvanda að striöa ættu lika að geta fengiö þar inni. Þetta er mjög aðkallandi fyrir allt okkar tónlistarlif og ætti aö takast með sameiginlegu átaki”. Tónleikar á Lpgalandi í kvöld Aö lokum Gunnar, hvar eigum viö von á að heyra I þér á næst- unni? „1 vetur held ég ýmsa tónleika hér heima. Um helgina leik ég út á landi ásamt vini minum, Gisla Mágnússyni pianóleikara. A laugardaginn Uta verðum við á Logalandi I Borgarfiröi og á sunnudaginn I Stykkishólmi. 1 næsta mánuöi leik ég á vegum Kammermúsikklúbbsins trió á- samt Arna Kristjánssyni pianó- leikara og Laufeyju Siguröar- dóttur. Svo er afráðið að ég leiki með Synfóniuhljómsveitinni með vorinu verk eftir Jón Nordal og Mz Bruchnes. 1 vor langar mig svo að halda einleikshljómleika og leika verk eftir Bach og Vagn Holmboe, danskt tónskáld”. eh WM&jSmk mgmm Sfiilll •viw ■ ...að þeir væru að biða eftir að sálin næði þeim.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.