Tíminn - 11.10.1981, Blaðsíða 30

Tíminn - 11.10.1981, Blaðsíða 30
30 Sunnudagur 11. október 1981 ■ Hinn ungi Sadat, nýskriðinn lir herskóla áriö 1938. ■ Sadat og leiötoginn Nasser. ,E6, ANWAR EL l m,,Ég, Anwar e!-Sadat, bóndi,fæddur og uppalinná bökkum Nilar..." Þannig hóf Sadat Egyptalands- forseti ævisögu sína sem hann ritaði og gat út fyrir nokkrum árum. Sadat er nú fallinn fyrir morð- ingjahendi. Hvernig svo sem mönnum hefur fallið Sadat# stefna hans í málum Austurlanda nær eða þá innan- lands í Egyptalandi/ þá er varla umdeilt að með honum féll einn merkasti stjórnmálamaður heims# maður sem þorði að ganga sínar eigin leiðir til að vinna að langþráðum friði. Og það þótt hann kæmi upp á móti sér öllum bræðrum sínum í hinum ara- bíska heimi. Eiginleika sem hann hafði höfum við lært að virða/ þar með var ekki hægt annað en virða Anwar el-Sadat, bónda af Nílarbökkum... ■Við gripum niður i ævisögu hans. „Sírópið er komið,” hrópar kallari þorpsins yfir hiisasund og torg. Amma min flýtir ser út, og dregur mig með sér, hún hleypur i átt að skipaskurðinum þar sem skip hlaðið sirópi hefur lagst að bryggju, nýkomið frá Kafr Zirqan. Leiðin er ekki löng en hvert skref fyllir mig gleði og stolti. Menn rísa á fætur er við förum framhjá og heilsa ömmu minni. Þó hún kunni hvorki að lesa né skrifa er hún hverjum manni náma: hún leysir vanda- mál og græðir hina sjúku með eldgömlum arabiskum jurta- smyrslum og það slær enginn henni við i okkar þorpi né i' þeim sem næst liggja. Við kaupum stóra dós af sirópi og snúum siðan heim á leið. Ég tritla á eftir henni — smávaxinn, dökkur drengur, berfættur i sið- um arabi'skum kufli yfir hvitri skyrtunni — og augu min vikja ekki af 'hinni dýrmætu siróps- krukku. Hvað sirópið var bragðgott blandað saman við mjólk. Ég var yfir mig hamingjusamur — ekkertfærði mér meiri hamingju. Raunar færði þorpið allt mér mikla hamingju: þegar ég fór Ut að ná i gulrætur, ekki i næstu matvörubúð, heldur út á akurinn: þegar ég smeygði lauk inn i ofn- inn okkar og steikti hann meðan fjölskyldan bakaði brauð og fór svo með hann út i sólarlagið til að borða hann.leikir okkar drengj- anna i tunglskininu og skemmt- anirnar sem voru haldnar á opnu svæði i hjarta landsins með alla náttúruna umhverfis og heiðan himininn fyrir ofan. Og sólarupp- rás — þegar ég fór út með hópi af körlum og drengjum, ungum sem gömlum og við rákum húsdýrin okkar út á beitilöndin: þegar bændurnir hófu vinnu á landi ótakmarkaðra gæða sem teygði sig að þvi er virtist, út i hið óendanlega. Ég taldist til landsins Hvaðeina færði mér hamingju i Mit Abul-Kum, litla friðsæla þorpinu djúpt inni i óshólmum Nilar, jafnvel kalda vatnið á vet- urna þegar við urðum að fara i dögun að sérstökum skurði sem fylltist af vatni á aðeins tveimur vikum, jafnvel sá timi er veita varð vatni á hverja landspildu i þorpinu okkar. Það var nauðsyn aö gera það fljóttog i sameiningu. Við unnum saman á einni landar- eigninni i heilan dag, færðum okkur siðan yfir á þá næstu og notuðum hverja dælu sem við fundum, burtséð frá þvi hver átti hana. öllu skipti að landið fengi vatn. Svona samvinna —- meðog fyrir aðra menn, án nokkurar ábata- vonar eða launa — færði mér vissu um að ég taldistekki aðeins til fjölskyldu minnar heima, og heldur ekki til hinnar stóru fjölskyldu þorpsins, heldur taldist ég til þess em stærra var og mikilvægara: landsins. Á leiðinni heim á kvöldin er sólin settist fylgdistég með sólarlaginu fullur hlýhug og vissi að ósýnilegt band- kærleika og vináttu batt mig við allt i kringum mig — reykinn sem steig upp af þorpinu og lofaði dásamlegum kvöldverði, og full- komin kyrrð og friður var i hjört- um allra. Þetta stóra, skuggsæla tré var gjört af guði: hann skapaði það og það varð til. Þessar nýgrænu plöntur sem viö höfðum sjálfir sáð fyrir væru þarna ekki ef guð hefði ekki mælt svo fyrir. Landið sem ég gekk á, vatnið i skurðin- um, já, allt umhverfis mig var skapað af alsjáandi guði — mátt- ugri veru sem íylgist með og elur önn fyrir öllum, og mér þar á meðal. Trén sæðið og ávextirnir voru þvf félagar minir — við vor- um öll til af landinu og gætum ekki þrifist án þess. Landið var þétt og hart, þvi hlaut allt sem þvi tilheyrði að vera álika hart. ( Við höfum séö, aths. Timans, að Sadat var innst inni, og i upp- vexti sinum, rómantiskur hug- sjónamaður með einlæga trú á hin fornu gildi: guð og landið. Þessi siðasta setning benti til þess sem siðar varð, þvi Sadat var einnig raunsær maður og sem forseti Egyptalands var hann umfram allt „real-pólitikus”, án þess að missa nokkurn tima sjónar á hugsjón sinni: friði.) Ast á lærdómi og hinni sönnu trú Jafnvel þó hið mesta sem þorpsbúi gat vonast eftir að verða var þjónn moskunnarþá hafði afi minn ( sem kunni að lesa og skrifa en það var sjaldgæft á þessum tima) aðrar hugmyndir fyrir föður minn. Hann sendi hann til mennta.en það var mikil- vægt.þvi bresk herseta í Egypta- landi var enn ung og kennsla fór fram á ensku. Þarsem faðir minn varð fyrstur manna i þorpinu til að taka próf þá var hann alltaf kallaður „effendi” en siðar hafa fleiri þorpsbúar lokið námi og orðið læknar, verkfræöingar og háskólaprófessorar. Er ég var að vaxa upp i þorpinu var faðir minn langdvölum i burtu þvi hann var með hernum i Sudan.ogþað var þvi ammamin, „móðir effendis” var hún jafnan kölluð, sem var höfuð fjölskyld- unnar. Hún vildi að ég færi sömu leið og faðir minn og fyrst setti hún mig i Koranskólann i þorpinu þar sem mér var kennt að lesa og skrifa og ég var látinn læra Kóraninn utan bókar. Siðar setti hún mig í Kopta-skóla iToukh, en Kqitar eru hin kristna kirkja Egyptalands. Þar var ég ekki lengi en ég get enn séð Kóran- skólann fyrirméri huganum, rétt eins og ég hefði farið þaðan i gær. Ég á hinum alúðlega kennara þar, Sheikh Abdul-Hamid heitn- um, skuld að gjalda en hann var fyrstur manna tilaðfylla mig ást á lærdómi og hinni sönnu trú. Ég man hvernig ég sat með skólafélögum minum á gólfinu, hélt á skriftöflu og sefpenna — en það voru einu skólatækin. 1 ara- bisku skykkjunni minni var stór og djúpur vasi og þar geymdi ég þurran ost og brauðmylsnu sem ég nartaði i i kennslustundum eða milli þeirra. En þó ég gerðist æ þyrstari i fróðleik þá tókst mér aldrei að slita mig frá li'finu i þorpinu. Þar leið mér alltaf vel. Ég losnaði heldur aldrei við þá tilfinningu að allt það sem ég gerði eða sá i þorpinu væri á einhvern hátt nýtt. Það gladdi mig mjög. Ekkert var gamait, ekki einu sinni sögurnar sem amma min og móðir sögðu mér þegar ég átti að fara að sofa. Þó það væru alltaf sömu sögurnar hlustaði ég á þær i hvert sinn eins og ég hefði aldrei heyrt þær áður. Þessarsögur voru heldur ekki um gömlu, rómanti'sku striöshetjurn- ar, eins cg al-Shatir Hassan eða Abu Zayd al-Hilali: heldur voru þærnærokkur i timanum og fjöll- uðu um nútimamenn. Zahran, hetjan frá Denshway Ein þessara sagna var um Mustafa Kamil — einn pólitiskra leiðtoga okkar— oghvemig Bret- ar eitruðu fyrir hann en hann haföi barist þrotlaust gegn her- setu þeirra i Egyptalandi. Ég vissi hvorki hver Mustafa Kamil var néað hann hefði látist i blóma lifs sins. Ég vissi bara, á þessum viðkvæma aldri, að til voru fram- andi öflsem hétu „Bretar” og að þessi öfl væru slæm vegna þess að þau eitruðu fyrir fólk . Amma min fór einnig með fyrir mig ballöðuna um Adham al- Sharqawi og hetjuskap hans i baráttunni við Breta en það sem hafði mest áhrif á mig var sagan um Zahran, hetjuna frá Denshway. Ég man að móðir min sagði mér þessa sögu þar sem ég lá hálfsofandi á ryðgaöa ofninum okkar en bræður minir voru sofn- aðir — og kaninurnar okkar sömuleiðis). Denshway var aöeins þrjár milur frá þorpinu minu og ságan var sönn. Breskir hermenn höfðu verið að skjóta fugla þegarein byssukúlan lenti i hveitigeymslu og kveikti i henni. Bændurnir flykktust að og bresku hermennirnir skutu á þá og lögðu siðan á flótta. Bændurnir ráku flóttann og i hamaganginum sem á eftir fylgdi lét breskur her- maður lifið. Margir voru hand- teknir og leiddir fyrir herrétt á stundinni. Gálgi var reistur áður en búið var að kveða upp dóma, nokkrir bændur voru húðstrýktir, aðrir hengdir. Zahran var hetja dagsins og sá fyrsti sem var hengdur. Sagan sagði frá hug- rekki Zahrans i bardaganum og æðruleysi hans þegar hann var leiddur i gálgann, stoltur yfir þvi að hafa snUist gegn kúgurum sin- um og drepið einn þeirra. Ég hlustaði á þessa sögu kvöld eftir kvöld, hálfvakandi, hálfsof- andi, og hún siaðist inn i undirmeðvitund mi'na. ímyndunarafl mitt flaug um geiminn. Mig dreymdi Zahran og ég óskaði þess að ég væri Zahran. Þarna ofan á ofninum gerði ég mér grein fyrir þvi að sitthvað væri athugavert við lif okkar. Löngu áöur en ég sá Breta i fyrsta sinn hafði ég lært að hata kúgar- ana sem húðstrýktu og drápu fólk okkar. Það var ekki hið eina sem ég lærði i Mit Abul-Kum. Þvi ég lærði annað sem hefur fylgt mér allt li'fið: að hvert sem ég fer, hvar sem ég kann að vera, þá mun égætið vita hvar ég á heima. Ég mun aldrei villast af leið vegna þess að ég á lifandi rætur hér, djúpt i jarðvegi þorps mins, i landinu sem ég óx upp af, 'eins og trén og plönturnar. Fyrstu árum minum var öllum eytt i þorpinu. Þá fluttumst við skyndilega til Kairó vegna þess að faðir minn var að þvi er mér var sagt kominn heim frá Súdan. Hversu gamall var ég? Ég hafði ekki hugmynd um það. Það var ekki fyrr en siðar að ég skildi að mikilvægir atburðir i lifi mi'nu hafa jafnan orðið um sama leyti og merkilegir, jafnvel sögulegir, atburðir hafa orðið i landi mi'nu. Svo virðast örlögin hafa ákveðið. (Þarna birtist, aths. Timans, annar riáur þáttur i skapgerð Anwars el-Sadats, að hann væri með einhverjum hætti kjörinn til að hafa forystu fyrir þjóð sinni sem hann elskaði. Hann efaðist aldrei um að það sem hann áleit að væri réttværi einmitt það sem kæmi egypsku þjóðinni best.) Að snerta eign konungs þýddi dauðann Ég fluttist til Kairó árið 1925 en árið áður hafði yfirmaður breska hersins í Egyptalandi, Sir Lee Stack, verið myrtur. Ein af refs- ingum Breta var að egypski her- inn var kallaður frá Súdan og fað-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.