Tíminn - 10.12.1981, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.12.1981, Blaðsíða 5
■ „Þetta er eina skiptiO sem ég hef veriö tekinn til fanga! ” er ekki aöeins starf prestsins, heldur er fólkiö kirkjan. Þaö er þvi ánægjuleg þróun sem átt hef- ur sér staö á undanförnum árum, aö fólkiö sjálft, eöa þeir sem hafa veriö nefndir leikmenn, taka stööugt meiri þátt i starfi kirkj- unnar. A þessu ári, kristniboösár- inu, hefur þetta komiö skýrt fram, hve þátttaka fólksins er al- menn i kirkjulegu starfi.” ,/í kristindómnum er lífs- hamingja sem maður þarfnast" — 1 framhaldi af þessu, hvaö finnst biskupnum yfir Islandi um sértrúarsöfnuöi hér á landi? „I stjórnarskránni okkar er á- kvæöi sem er þess efnis aö mönn- um sé frjálst aö hafa þá trú sem þeir kjósa, svo framarlega sem hún brjóti ekki i bága viö al- mannareglu eöa gott siöferöi. Þannig markar stjórnarskrá okk- ar trúarlegan ramma. Mennirnir eru auövitaö svo ó- likir, og geta séö sama hlutinn i svo óliku ljósi, aö ekki er aö undra aö sértrúarhreyfingar geti risiö upp. Oft er þó ekki mikiö sem á milli ber. og látlausa sem gefur okkur mesta gleöi.” „Sterkur strengur í lifi okkar" — Sakniö þiö hjónin Akureyr- ar, eftir 34 ár ykkar þar i bæ? „Auövitaö kemur maöur til meö aö sakna margs, en ég lit þó einkum á flutning okkar suöur nú, sem framhald á þvi sem viö höf- um gert fyrir noröan. Viö fundum þaö hve fólkiö fyrir noröan er sterkur strengur i lifi okkar. Þaö var alveg ógleymanlegt aö kveöja söfnuöinn. Viö fundum hvernig hlýhugurinn og vináttan streymdi til okkar.hvaö viö áttum mikiö, og hvaö mikiö fylgdi okkur, þvi þótt viö séum nú farin frá Akureyri, þá fylgir þessi vinarhugur okkur, hvert sem viö förum.” —Þessi stund meö biskupshjón- unum er oröin verulega miklu lengri, en til stóö, þegar til viö- talsins var stofnaö. Blaöamaöur gerir sér grein fyrir þvi aö öllu lengur getur hann ekki tafiö bisk- upshjónin. Þó svo aö ekki merki hann nein þreytumerki á hjónun- um eftir þessar löngu samræöur, þá telur blaöamaöur þaö ljóst aö biskupshjónin hafi ótal öörum verkefnum aö sinna. Þakkar hann þvi biskupshjónunum viö- taliö og hverfur út i noröangarr- ann á nýjan leik. — AB Texti: Agnes Myndir: Ella ■ „Finnst ég vera nokkuö einn, þegar hún kemst ekki meö”, segir Pétur þegar hann er aö lýsa þvi hve þýöingarmikið sé aö eiginkonur presta taki virkan þátt i starfi þeirra. I ööru lagi eru svo til sértrúar- hreyfingar sem ekki eru af kristi- legum toga. Þessar hreyfingar tel ég varhugaveröar. t kristindómnum, þar sem maöur lifir fyrir aöra, fórnar fyrir aöra og gefur öörum, hlýtur maöur aö göfgast, en i a.m.k. sumum af þessum sértrúarhreyf- ingum gengst maöurinn upp i ó- eðlilegri sjálfsdýrkun. //Við erum komin út i jóla- hald sem eru hreinar öfgar" — Nú eru deildar meiningar um nútimajólahald á tslandi. Hvaö vilt þú segja um þaö? „Þaö fer vel á þvi, aö saman fari hátiö ljóssins og fæöingarhá- tiö frelsarans. Hann er auövitaö kenndur viö ljósiö, þvi Ijósiö á jól- um er tákn þess sem sigrar i bar- áttunni i heiminum. Hins vegar veröur þaö aö segjast eins og er aö viö erum komin út i kaupskap á jólum, sem eru hreinar öfgar. 1 neysluþjóöfélagi er hætta á aö á- róöur auglýsingaflóösins fyrir jólin veröi eins og dans i kringum gullkálfinn. Ég held aö fyrr eöa siöar komi aö þvi aö fólkiö finni aö þaö er hiö einfalda, hófsama OPSÖGUM SAGT eftir Þórarin Eldjárn. Hver á element í Bestfrend ef umboðið er ekki til? Getur hákarl drepið íslenska menn- ingu? Hvað áforvörður aðforverja? Getur son- ur Gauja i Þresti hafið sjálfstæðisbaráttu á White Star og Reykjavikurbar? Hvaða lif er 'i tuskum? Hver var hinn dularfulli Tilbury sem skóp ýsfirsk örlög? Eru töskumál yðar i lagi? Þetta eru aðeins örfáar af þeim ótalmörgu spumingum sem hér er varpaðfram i tíu smá- sögum eftir Þórarin Eldjám. Þetta em áleitnar spumingar, en þó eru svörin enn áleitnari, segja þeir sem hafa þau. Eruð þér einn af þeim? Það er ekki ofsögum sagt af Þórarni Eldjárn Hann er ekki einungis mest lesna og vin- sælasta Ijóðskáld sem nú yrkir, revíuskáld, rimnaskáld og hver veit hvað, heldur hefur hann nú samið óvenjuskemmtilegt smásagna- safn. Hér sýnir hann.á sér nýja hlið, enfyndn- in og skopið er samt við sig. Það er sama hvort hann segirfráferð með KFUM i Vatnaskóg eða rannsóknaræfingu hjá islenskufræðingum, Upplausninni Miklu i Ýsvfirði eða orðræðum kúnna á þrettándanótt. Aldrei bregst honum það að geta búið til bráðskemmtilega og beitta sögu. Það er ekki OFSÖGUM SAGT af því. Ljóðabækur Þórarins, Kvæði, Disneyrímur og Erindi eru allar fáanlegar — ennþá. IÐUNN Ofsögum sagt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.