Fréttablaðið - 18.04.2008, Qupperneq 4
4 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
LEIÐRÉTTING
Jóhannes Tómasson er upplýsingafull-
trúi samgönguráðuneytisins en ekki
Vegagerðarinnar eins og sagt var í
blaðinu í gær.
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
FJÁRMÁL Ekki þarf að endurskoða
fjárlög fyrir árið 2008 þrátt fyrir
að ríkissjóður verði af verulegum
tekjum miðað við fyrri áætlanir.
Þetta er mat Gunnars Svavars-
sonar, formanns fjárlaganefndar
Alþingis. Stjórnarandstaðan telur
ríkisstjórnina hafa sofið á verðin-
um við fjárlagagerðina; hún sé
óraunsæ og hafi ekki tekið tillit til
samdráttar í efnahagslífinu sem
öllum hafi átti að vera ljóst að
væri yfirvofandi.
Sérfræðingar í þremur háskólum
og hjá greiningardeildum viðskipta-
bankanna, sem Fréttablaðið ræddi
við, telja eðlilegt að áætla að sam-
dráttur næstu þriggja ára muni
verða fimm til tíu prósent miðað við
fjárlög 2008. Þau gera ráð fyrir
tekjum á þessu ári upp á 470 millj-
arða. Tekjutapið nemur samkvæmt
því 75 til tæplega 150 milljörðum
króna á þessum þremur árum.
Gunnar segir endurskoðun koma
til greina þegar fjáraukalög verða
til meðferðar í haust. „Þær spár
sem birst hafa að undanförnu hafa
gert ráð fyrir töluverðum sam-
drætti í efnahagslífinu og fjár-
lagagerðin fyrir árin 2009 og 2010
mun taka mið af henni. Það má svo
minna á það að um miðjan maí
verður birt skýrsla sem er ígildi
ramma fjárlaga frá 2009 til 2012.
Hún byggir á spá efnahagsskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins.“
Spurður hvort gert hafi verið
ráð fyrir fyrirsjáanlegum sam-
drætti í efnahagslífinu við gerð
fjárlaga segir Gunnar að fjárlögin
hafi verið gerð af varfærni. „Hins
vegar er það alveg ljóst að spárn-
ar tala sínu máli og það þarf að
taka tillit til aðstæðna við gerð
fjárlaga.“
Valgerður Sverrisdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins,
segir flokkinn hafa bent á það
lengi að lægð í efnahagslífinu gæti
haft umtalsverð áhrif á starfsemi
ríkisins. „Það er nú komið í ljós.
Það liggur fyrir að ríkið mun hafa
minni tekjur af tekjuskatti og fjár-
magnstekjum í því ástandi sem nú
ríkir. Fjárlögin taka ekki mið af
þessari lægð og því er hún óraun-
sæ að öllu leyti. Það er augljóst að
efnhagslægðin mun hafa gríðar-
lega mikil áhrif og það hefði verið
betra að sýna meira aðhald í fjár-
lagagerðinni.“
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstri grænna, segir ríkis-
stjórnina þurfa að hefjast handa.
„Sofandahátturinn er öllum ljós.
Menn þurfa að vakna og taka á
þessari hörðu lendingu sem nú
þegar er orðin staðreynd en við
höfum margbent á að fjárlögin
voru ekki í takt við þá stöðu sem
uppi er í efnahagslífinu.“
magnush@frettabladid.is
svavar@frettabladid.is
Tekjutap kallar ekki
á endurmat fjárlaga
Formaður fjárlaganefndar segir fjárlög ársins 2008 hafa verið gerð af varfærni
og ekki sé ástæða til að endurskoða þau. Tekjutap ríkisins verður 75 til 150
milljarðar á næstu þremur árum. Stjórnarandstaðan gagnrýnir fjárlagagerðina.
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
GUNNAR
SVAVARSSON
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
FJÁRLÖG 2008
Árni M. Mathiesen
fjármálaráðherra
kynnti fjárlögin í
nóvember 2007.
Efast er um að
forsendur þeirra
hafi staðist, ekki
síst vegna hruns á
hlutabréfamarkaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
9°
9°
8°
9°
10°
10°
16°
14°
17°
9°
22°
20°
17°
12°
23°
26°
27°
16°
4
7
Á MORGUN
Hæg, breytileg átt.
SUNNUDAGUR
Hæg, breytileg átt.
8
8
10
8
10
9
8
8
10
10
5
1
1
2
1
1
2
5
4
3 1
7 10
10
88
10
10
88
BONGÓBLÍÐA
Veðrið í dag gefur
upptaktinn fyrir
veðrið næstu daga.
Eru horfur á mildu
og hægviðrasömu
veðri fram yfi r
helgi. Í dag og á
morgun verður
víðast bjartviðri en
á sunnudag verður
heldur þungbúnara
á landinu sunnan-
og vestanverðu
með þokubökkum
með ströndum.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
SKIPULAGSMÁL Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi, segir
forsjárhyggju hafa náð völdum í
skipulagsmálum á
höfuðborgarsvæð-
inu.
Gunnar
ávarpaði gesti á
ráðstefnu um
skipulagsmál og
fasteignamarkað-
inn í Laugardals-
höll í gær. Hann
lýsti yfir óánægju
sinni með mikil
afskipti ríkisvaldsins af sveitar-
stjórnum í þessum málum og líkti
ástandinu við sögu George Orwell,
1984. „Big brother is watching you.
Nú til dags fer ekkert skipulags-
mál í gegn án þess að starfsmenn
ríkisins séu mættir með stimpl-
ana.“ - kg
Gunnar I. Birgisson:
Forsjárhyggja
náð völdum
GUNNAR I.
BIRGISSON
GRÆNLAND Grænlendingar hafa nú
fengið skjalfest að þeir séu þjóð í
skilningi þjóðaréttar og hafi þar
með rétt til að lýsa yfir sjálfstæði
frá Danmörku. Þetta er meðal
þess sem kveðið er á um í frum-
varpi að nýjum sjálfsstjórnarlög-
um sem undirritað var í gær.
Frumvarpið er afrakstur fjögurra
ára vinnu dansk-grænlenskrar
þingmannanefndar.
Guðmundur Alfreðsson þjóð-
réttarfræðingur sat sem sérfræði-
ráðgjafi í nefndinni. Í samtali við
Fréttablaðið segir hann frumvarp-
ið vera „tvímælalaust mjög stórt
skref“ fyrir Grænlendinga sem
þjóð. Allt líti út fyrir að frumvarpið
verði samþykkt bæði á græn-
lenska landsþinginu og danska
þjóðþinginu. Síðan verði haldin
þjóðaratkvæðagreiðsla um það á
Grænlandi.
„Aðalefnisinnihaldið snýst um
yfirfærslu á fleiri málaflokkum til
landstjórnarinnar í þrjátíu liðum.
Þar á meðal er stjórnun náttúru-
auðlinda, dómstólakerfið, aukin
þátttaka í alþjóðasamvinnu og
fleiri stórir málaflokkar,“ segir
Guðmundur.
Meðal annarra mikilvægra
breytinga sem nýju sjálfstjórnar-
lögin innleiði nefnir Guðmundur
að framvegis verði grænlenska
eina opinbera tungumálið á Græn-
landi, ekki bæði grænlenska og
danska eins og verið hefur. - aa
ÁFANGI Í nýju lögunum, sem koma í stað
heimastjórnarlaga frá 1979, er kveðið á
um rétt Grænlendinga til fulls sjálfstæðis.
Dansk-grænlensk nefnd um ný sjálfstjórnarlög Grænlands skilar af sér:
Sjálfstæðisréttur skjalfestur
UMFERÐ Bæjaryfirvöld í Kópavogi
segjast munu ræða við forsvars-
menn bílaþvottastöðvarinnar
Löðurs í Bæjarlind vegna
umferðarteppu sem myndast á
svæðinu á álagstímum í þvotta-
stöðini.
Þetta kemur fram í svari
bæjarráðs til heildsalans og
verslunarmannsins Vals Heiðars
Sævarssonar, sem kvartað hafði
undan því að bílar kæmust ekki
inn í hverfið og að verslunarfyrir-
tæki þar yrðu af viðskiptum
vegna öngþveitis í nálægum
götum við Löður. Að því er segir í
svarinu til Vals hyggst Kópavogs-
bær óska eftir því við fulltrúa
Löðurs að gerðar verði ráðstafan-
ir til þess að koma í veg fyrir
umferðarteppuna. - gar
Umferðartafir í Bæjarlind:
Löður komi í
veg fyrir teppu
VALUR HEIÐAR SÆVARSSON Er ósáttur
við umferðartruflanir í kringum Löður.
ÞÝSKALAND, AP Kristilegir
demókratar (CDU) í Þýskalandi
og Græningjar hafa myndað
borgarstjórn í Hamborg. Þetta er
í fyrsta sinn sem flokkarnir tveir
standa saman að stjórn.
Kristilegir demókratar misstu
meirihluta í Hamborg í kosning-
um í febrúar, en hófu stjórnar-
myndunarviðræður við Græn-
ingja eftir að hafa sigrað í
þingkosningum á landsvísu. - gb
Stjórnarmyndun í Hamborg:
Samstarf CDU
við Græningja
KENÍA, AP Raila Odinga, helsti
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Keníu, tók í gær við embætti
forsætisráðherra. Fáeinum
stundum síðar hét hópur óeirða-
seggja því að hætta öllu ofbeldi.
Odinga hafði samið við Mwai
Kibaki forseta um að þiggja
forsætisráðherraembætti svo
þeir tveir gætu farið saman með
stjórn landsins.
Óeirðir brutust út í landinu í
kjölfar forsetakosninga sem
haldnar voru í lok síðasta árs.
Odinga hefur haldið því staðfast-
lega fram að kosningatölur, sem
sýna sigur Kibakis, hafi verið
falsaðar. - gb
Sættir í Keníu:
Odinga tekur
við embætti
FISKVEIÐAR Gísli S. Einarsson,
bæjarstjóri á Akranesi, og
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, hafa
fundað með forsvarsmönnum HB
Granda til að fá skýringar á hvað
hafi orðið um tæplega 8.000 tonn
af bolfiski sem fyrirtækinu var
úthlutað.
HB Grandi sagði að eitthvað
hefði verið geymt á milli ára og
hluti farið á skip hjá öðrum
útgerðum sem fiskuðu fyrir þá í
vinnslu. Um 2.000 tonn af ýsu hefði
verið leigð frá fyrirtækinu.
Vilhjálmur segir málið í skoðun.
- kóp
HB útskýrir tilfærslu kvóta:
Kvóti geymdur
og fluttur til
GENGIÐ 17.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
150,6251
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
73,86 74,22
146,17 146,89
117,53 118,19
15,751 15,843
14,870 14,958
12,500 12,574
0,7206 0,7248
121,28 122
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR