Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 46
18. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● brúðkaup
Brúðarterta hefur þótt ómissandi
við brúðkaup allt frá tímum Róm-
verja þegar þunn hveitikaka var
mulin yfir höfuð brúðarinnar til
að tryggja henni frjósemi.
Í dag erum við of siðmenntuð til að
leika þann sið eftir, en í stað þess
skera brúðhjón fyrstu tertusneið-
ina saman, auk þess að geyma
topp tertunnar þar til á eins árs
brúðkaupsafmælinu.
Fyrsta sneiðin skal skorin fyrir
augliti veislugesta. Brúðgumi
leggur hægri hönd yfir hægri
hönd brúðar sinnar og saman
skera þau sneið af neðsta lagi
tertunnar. Síðan mata þau hvort
annað, sem tákn um vilja þeirra
til að deila heimili. Að lokum sker
brúðurin sneiðar fyrir foreldra
sína og fylgir brúðguminn á eftir
með sneiðum handa foreldrum
sínum. Afganginn mega svo gest-
ir borða, en í gamalli hjátrú boðar
ógæfu að yfirgefa samkvæmið án
þess að smakka á kökunni. Einn-
ig ku það ráð fyrir einhleypa að
setja kökubita undir koddann sinn
því þá birtist framtíðarmakinn í
draumi. - þlg
Hamingjubitar
Dísæt brúðarterta fyllt trú, von og kærleika. MYND/GETTY
Með vorinu vill fólk fara að gifta sig. Brúð-
kaupsdagurinn er stór dagur í lífi fólks og öllu
til tjaldað í mat, drykk og brúðarfatnaði.
Oft er talað um að allra augu beinist að brúðinni
þegar hún gengur inn kirkjugólfið.
Brúðguminn fær þó ekki minni athygli
þar sem hann stendur stressaður og hneig-
ir sig meðan gestirnir tínast inn. Brúðgum-
inn þarf því ekki síður en brúðurin að huga
að klæðaburðinum við þetta tækifæri og úr
mörgu er að velja. Fallegt og einfalt er að
næla rós í hnappagat en fyrir þá sem vilja
meira skraut er ýmislegt til. - rat
Slifsi og slaufur fyrir
brúðgumann
Mikilvægt er að vanda valið á hringum sem
bera á til æviloka.
Giftingarhringurinn er dýrmætasti og mest not-
aði skartgripur flestra og því mikilvægt að eigandi
hans sé ánægður með hann. Lengi vel gengu flestir
fráteknir Íslendingar með gyllta en frekar látlausa
hringa en síðustu ár hefur fjölbreytnin aukist. Hvíta-
gull er orðið mjög vinsælt þar sem mörgum fellur
silfraði liturinn betur en sá gyllti og útfærslurnar eru
ýmiss konar. Kvenhringarnir eru oftar en ekki dem-
antskreyttir og hringarnir því ekki alveg eins sem
gerir þá enn þá flottari og sérstakari. - eö
Ástir og eðalsteinar
Silfurgrátt og
munstrað slifsi með
nælu frá Brúðarkjóla-
leigu Dóru má leigja
stakt á 800 krónur.
Græn slaufa frá Brúðarkjóla-
leigu Dóru fæst leigð fyrir
500 krónur.
Mittislindi og slaufa í sama lit
er stílhreint og einfalt. Bæði
lindann og slaufuna er hægt
að leigja hjá Brúðarkjóla-
leigunni Tvö hjörtu á
1.000 krónur hvort.
Pípuhatt-
ur gerir alla
menn að herra-
mönnum en hann má
leigja hjá Brúðarkjólaleig-
unni Tvö hjörtu á 3.300 krónur.
Ermahnapparnir
koma svo frá
Brúðarkjólaleigu
Dóru og er hægt
að leigja þá staka
á 500 krónur.
Ýmiss konar hálstau og
bindi í fallegum lit getur
brúðguminn borið á
brúðkaupsdaginn. Bleika
bindið er frá Brúðarkjóla-
leigunni Tvö hjörtu og
má leigja það stakt á
1.000 krónur.
Gullkúnst Helgu.
6 mm silkimattað
hvítagull með 7
stk. 0,20 karata
demöntum.
180.000 krónur.
Gullkúnst Helgu.
Mattað hvítagull
með bláum tópas.
160.000 krónur.
Jón & Óskar. Hvítagull
með 7 punkta demanti.
71.000 krónur.
Gull og silfur. 5,2 mm breiðir hvíta-
gullshringar með samtals 10 punkta
demöntum. 140.700 krónur.
Jens. 14 karata hvítagull
með 0,91 karata wesselton
demanti. 753.000 krónur.
Gull og silfur. 4
mm hvítagulls-
hringar með
3,5 punkta
demanti. 88.800
krónur.