Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 6
6 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Kringlunni • sími 568 1822
www.polarnopyret.is
RV
U
N
IQ
U
E
03
08
04
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Glerfínar gluggafilmur
- aukin vellíðan á vinnustað
3M gluggafilmur fyrir skóla, sjúkrahús, skrifstofur,
verslanir og aðra vinnustaðiFagmenn frá RV sjá um uppsetningu
FJÁRMÁL Heildarskuldir þeirra
sem leituðu til Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna jukust um tæp
fimmtán prósent á milli áranna
2006 og 2007 og vanskil hafa hækk-
að um 33,5 prósent á sama tíma.
Vanskil lána með raðgreiðslu-
samningi og bílalán jukust mest.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
Ráðgjafarstofu en hún var kynnt í
gær.
„Því miður eru blikur á lofti því
bæði í mars og apríl höfum við
þurft að setja fólk á biðlista en það
gerðist síðast í júní í fyrra,“ segir
Ásta S. Helgadóttir, forstöðu-
maður Ráðgjafarstofu. Á síðasta
ári voru 612 umsóknir afgreiddar,
sem eru 15 umsóknum fleiri en
árið þar á undan. „Nú hafa hins
vegar þegar borist um 300
umsóknir, það eru mun fleiri en
bárust á fyrstu fjórum mánuðum
síðasta árs. Og umfangið er ekki
minna, það er mikið af ungu fólki
sem fengið hefur lán, jafnvel frá
mörgum lánastofnunum, og er því
með langan skuldahala.“
Hlutfall fólks á aldrinum 20 til
30 ára er svipað og þeirra í aldurs-
hópnum fyrir ofan. „Áður var það
venjulega fólk á aldrinum 30 til 40
ára sem var hvað skuldsettast en
það eru venjulega einstaklingar
sem eru búnir að læra og búnir að
koma undir sig fótunum. En það er
umhugsunarvert hvernig fyrir
okkur er komið þegar ungt fólk
sem er að hefja lífið er komið með
svona mikinn skuldahala,“ segir
hún.
Vegna þessa hefur Ráðgjafar-
stofa bent á mikilvægi þess að
auka fræðslu um fjármál í fram-
haldsskólum. „Það kemur meðal
annars fram í ársskýrslunni að
vankunnátta í fjármálum er næst-
algengasta ástæðan sem fólk
gefur fyrir því af hverju það eigi í
greiðsluerfiðleikum,“ segir hún.
Flestir nefndu hins vegar veikindi
sem helstu ástæðu.
„Það er einnig athyglisvert að af
þeim sem leita til okkar hefur
þeim fjölgað sem búa í leiguhús-
næði og er hlutfall þeirra nú 54
prósent,“ bæti Ásta við.
jse@frettabladid.is
Fjöldi ungs fólks með
langan skuldahala
Um þrjú hundruð manns hafa leitað til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
það sem af er þessu ári. Allt árið í fyrra leituðu um 600 manns til stofunnar.
Vanskil vegna raðgreiðslusamninga og bílalána aukast mest.
DÆMI UM ÁHRIF GENGISLÆKKUNAR KRÓNUNNAR Á
AFBORGANIR LÁNA
Myntkörfulán vegna bílasamnings Lýsingar. Helmingur greiddur í íslenskum
krónum, 1/4 í japönsku jeni og 1/4 í svissneskum franka.
Febrúar 2008 Síðustu mánaðamót
Höfuðstóll 1.460.019 1.906.212
Afborgun 20.974 28.203
Tölur í íslenskum krónum.
Heimild: Neytendastofan
ALDURSDREIFING HJÁ VIÐSKIPTAVINUM
RÁÐGJAFARÞJÓNUSTU UM FJÁRMÁL HEIMILANNA
Aldur Fjöldi 2007 Hlutfall 2006 2005
<20 2 0,3% 0,4% 0,2%
21-30 221 29,5% 31,1% 30,6%
31-40 232 31,0% 31,8% 29,1%
41-50 151 20,2% 23,1% 25,2%
51-60 103 13,8% 8,3% 10,1%
61-70 28 3,7% 3,4% 3,3%
>71 11 1,5% 1,9% 1,5%
Samtals 748 100% 100% 100%
REYKJAVÍKURBORG Engin ákvörðun var tekin á
fundi borgarráðs í gær um frágang sölunnar á
Fríkirkjuvegi 11 til Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar.
Á fundinum í gær var bæði rætt um fasteign-
ina á Fríkirkjuvegi 11 og Hallargarðinn þar
umhverfis. Eins og kunnugt er var húsið boðið til
sölu ásamt lítilli lóð umhverfis það í ársbyrjun í
fyrra. Björgólfur bauð hæst allra, 600 milljónir
króna, en kvaðst vilja borga allt að 200 milljónir
til viðbótar fengi hann umráð yfir nærri fjórfalt
stærri hluta af Hallargarðinum en upphaflega
stóð til. Eins og áður hefur komið fram í
Fréttablaðinu myndi Björgólfur með þessu móti
fá nálega helming Hallargarðsins þótt almenn-
ingur myndi áfram eiga þar greiðan aðgang.
Hugmyndin er meðal annars sú að tryggja
athafnasvæði fyrir bíla beggja vegna hússins.
Allar götur síðan hefur verið unnið að lausn þess
máls.
Á borgarráðsfundinum í gær lögðu fulltrúar
Samfylkingar og Vinstri grænna fram tvær
tillögur í málinu. Annars vegar var lagt til að
ekki yrði samþykkt ósk Björgólfs um viðhafnar-
aðkomu að húsinu frá Fríkirkjuvegi þar sem það
gengi of nærri Hallargarðinum. Hin tillagan var
sú að núverandi leiksvæði barna austan við húsið
yrði áfram til afnota fyrir börn og ungmenni í
miðbænum.
Afgreiðslu þessara tillagna var frestað í
borgarráði. - gar
Borgarfulltrúar minnihlutans vilja takmarka afsal lóðar í Hallargarði:
Fresta enn ákvörðun um Fríkirkjuvegi 11
HALLARGARÐURINN Rauðu línurnar sýna lóðina sem
fylgdi Fríkirkjuvegi 11 samkvæmt útboði en gula línan
afmarkar skikann sem síðan hefur verið ætlað að fylgja
eigninni. MYND/LOFTMYNDIR EHF.-FRÉTTABLAÐIÐ
700
600
500
400
300
200
100
0
2004 2005 2006 2007
FJÖLDI AFGREIDDRA UMSÓKNA 2004-2007
HEIMILD: RÁÐGJAFARSTOFA UM FJÁRMÁL HEIMILANNA
703
597 597 612
FJÖLSKYLDUSTAÐA UM-
SÆKJENDA 2004-2007
Hjón/sambúð
með börn 17%
Hjón/sam-
búð 5%
Einstæður
faðir 2%
Einstæð
móðir 34%
Einhleypur
karl 23%
Einhleyp
kona 23%
HEIMILD: RÁÐGJAFARSTOFA UM FJÁRMÁL HEIMILANNA
BANKAVIÐSKIPTI Þeim fjölgar sem eiga í fjárhagskröggum. Mest voru vanskilin vegna bílalána og raðgreiðslusamninga.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Hefur þú hætt við kaup á fast-
eign á síðustu sex mánuðum?
Já 30,5%
Nei 69,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú búið annars staðar en
á Íslandi?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN