Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 18. apríl 2008 19
Pappírinn sem Fréttablaðið er prentað
á kemur allur úr nytjaskógum og er að
fjórðungi endurunninn pappír. Ísafoldar-
prentsmiðja sem prentar Fréttablaðið
notar aðeins pappír sem unninn er sam-
kvæmt ströngustu náttúruverndarstöðl-
um að sögn Kjartans Kjartanssonar,
prentsmiðjustjóra Ísafoldarprentsmiðju.
„Trén sem notuð eru í pappírinn sem
við prentum Fréttablaðið á eru sérstak-
lega ræktuð til notkunar á pappírsfram-
leiðslu, sem þýðir að ekki er gengið á
villta skóga við framleiðsluna,“ segir
Kjartan.
Pappírinn er framleiddur í pappírs-
myllum í Kanada og Noregi sem nota ein-
göngu tré úr nytjaskógum. Eins og gefur
að skilja eru nytjaskógarnir gríðarlega
stórir og segir Kjartan að áhersla sé lögð
á að viðhalda náttúrulegu vistkerfi
skógarins.
„Hluti af skóginum er brenndur, eins
og gerist eðlilega í náttúrunni til að við-
halda náttúrulegri bakteríuflóru. Þar að
auki er skógurinn aðeins grisjaður eins
mikið og hann þolir án þess að skaða
hann og er fimmta til tíunda tré skilið
eftir þegar verið er að höggva skóginn og
nýjum trjám plantað reglulega,“ segir
Kjartan.
Pappírsframleiðendur hafa verið gagn-
rýndir fyrir að menga vatnið sem þeir
nota við framleiðsluna, en Kjartan segir
að það sé liðin tíð. Nú orðið hreinsi
pappírsmyllurnar vatnið og sé það í
drykkjarhæfu ástandi þegar því sé skil-
að frá verksmiðjunni.
„Pappírsmyllan Norske Skog, sem við
kaupum pappír af, stendur við flóa og
þar hreinsa þeir allt vatnið. Og nú kvarta
menn í bæjarfélaginu ekki lengur undan
menguðu vatni heldur of hreinu,“ segir
Kjartan og hlær.
Norske Skog er pappírsframleiðandi
sem er leiðandi í náttúruvænni fram-
leiðslu á pappír. Fyrirtækið var meðal
stofnanda Svansmerkisins sem er
umhverfismerki Norðurlandanna og
uppfyllir því alla umhverfisstaðla
merkisins og gott betur. Norskeskog
hefur lagt sig fram við að stíga skrefinu
lengra og mæta harðari kröfum um
náttúru vernd en helstu umhverfismerki
kveða á um. Fyritækið hefur jafnframt
sett sér það markmið að draga úr gróður-
húsalosandi efnum um 25 prósent fyrir
árið 2020.
„Við kaupum ekki pappír nema hann
fylgi ströngustu umhverfisstöðlum og
helst strangari en hefðbundnir umhverfis-
staðlar kveða á um,” segir Kjartan.
Spurður um blekið sem notað er við
prentunina segir hann: „Farvinn er að
hluta til unninn úr jurtaolíu, og sá sem
við notum kemur frá Svíþjóð. Allt sem
fellur til af honum sendum við til baka til
endurvinnslu. Eins er með allan úrgang
frá okkur, við sendum allt til endur-
vinnslu. Allur afgangur af Fréttablaðinu,
bæði afskurður hér í prentsmiðjunni og
þau blöð sem send eru til baka, er bagg-
aður og sendur til endurvinnslu til Hol-
lands. Hér er engu hent.” - keþ
Með tilkomu Sorpu á höfuðborgarsvæð-
inu fór viðhorf almennings til flokkunar
á úrgangi að breytast og ekki þótti
lengur sjálfsagt að henda hverju sem er
á ruslahauga. Sorpa veitir ákveðnar
lausnir í úrgangsmálum enda er það
skylda fyrirtækisins að uppfylla þá
lagaskyldu sem lögð er á sveitarfélögin
að sjá til þess að fyrir hendi séu lausnir
í úrgangsmálum.
„Þær lausnir þurfa að vera í sátt við
umhverfið, skila umhverfislegum
ávinningi og vera sem hagkvæmastar
fyrir eigendur fyrirtækisins, sem eru
allur almenningur á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir Björn H. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu. Hann segir Íslend-
inga vera duglega við að endurvinna, en
endurvinnsluhlutfall þess úrgangs sem
um Sorpu fer er á bilinu 35 til 40 pró-
sent, sem telst nokkuð gott. „En betur
má ef duga skal,“ segir Björn.
Spurður hvort endurvinna megi nán-
ast hvað sem er segir Björn það alltaf
spurningu um hve miklu megi til kosta.
„Það má endurvinna nánast allt, annað
hvort til efnisendurvinnslu eins og
pappír eða pappa eða til orkuvinnslu.
Spurningin snýst því um kostnað og
ekki síður hvaða umhverfislegum
ávinningi hægt er að ná fyrir þann
kostnað.“
Hann segir það jafnframt tvímæla-
laust hagkvæmt að endurvinna pappír,
en samkvæmt gjaldskrá
Sorpu er kostnaður við
móttöku og urðun á
almennum úrgangi,
til dæmis heimilis-
úrgangi, 11,27
krónur á hvert
kíló en fyrir
dagblöð og
tímarit er mót-
tökugjaldið
3,00 krónur
fyrir hvert kíló.
„Magn dag-
blaðapappírs um
endurvinnslu-
stöðvarnar og
grenndargáma hefur
verið um 2.000 til 3.000 tonn
undanfarin ár. Um fjörutíu pró-
sent úrgangs koma frá heimilun-
um og samkvæmt könnunum sem
hafa verið framkvæmdar hjá Sorpu
undanfarin ár er magn dagblaða, tíma-
rita og dreifipósts um 21 til 27 prósent
af þeim heimilisúrgangi sem safnað er
á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann. - keþ
Betur má ef duga skal
Það er tvímælalaust hagkvæmt að endurvinna pappír að mati Björns H. Halldórssonar
framkvæmdastjóra Sorpu. Hann segir Íslendinga duglega að endurvinna en telur að þeir
gætu engu að síður staðið sig betur.
SORPA framkvæmir rannsóknarverkefni sem kallast
flokkun heimilissorps í nóvember á hverju ári. Starfsmenn
Sorpu fara þá í gegnum 100 kíló af húsasorpi úr hverju
póstnúmeri á höfuðborgar-
svæðinu. Markmiðið með
verkefninu er að skoða sam-
setningu heimilissorpsins og
þróun í mismunandi efnis-
flokkum milli ára. Niðurstöð-
ur þessarar könnunar gefa
fyrirtækinu nákvæmustu
hugmynd um magn hvers
flokks heimilissorps. Matar-
leifar hafa til dæmis verið
stærsti flokkurinn síðustu ár
en árið 2006 tóku dagblöð,
tímarit og auglýsingapóstur
forystuna og voru þá 26,6
prósent af heimilissorpi.
Árið 2007 voru þau komin niður í 21 prósent. Í ársskýrslu
SORPU sem er að finna á heimasíðu fyrirtækisins er greint
frá verkefninu. Sjá www.sorpa.is/user/publication/19.
I’m not a plastic bag, eða ég er ekki
plastpoki, var áletrunin á taupoka
sem fólk stóð í allt að þrjá klukku-
tíma í biðröðum til að eign-
ast síðasta sumar. Anya
Hindmarch er þekktur tísku-
hönnuður í London og er
meðal annars þekkt fyrir
töskur sem hún kallar Be
a bag eða vertu taska
með áprentuðum ljós-
myndum úr fjölskyldu-
albúmum.
Ljósmyndir náðust af
frægu fólki úti á götum
með töskuna I’m not a
plastic bag, sem jók töluvert á vinsældirnar.
Markmiðið var að fá fólk til umhugsunar um notkun
sína á plastpokum og hvetja það til að nota poka, tuðrur
eða töskur sem hægt er að nota aftur við innkaup. Olíu
þarf til að framleiða plastpoka og eru þeir mjög lengi að
brotna niður í náttúrunni. Kæmi minnkandi notkun á þeim
umhverfinu því til góða.
Taskan var framleidd í takmörkuðu upplagi og seldist
fljótt upp. Aftur á móti tóku menn fljótt við sér þegar þeir
sáu hversu vinsæl taskan var og hófu að framleiða eftir-
líkingar sem fást meðal annars hjá götusölum í London.
Verslanir sem sérhæfa sig í sölu á lífrænni matvöru hafa
þó lengi selt taupoka sem hægt er að nota við innkaup og
má til dæmis fá einn slíkan í versluninni Yggdrasil.
Frekari upplýsingar um kosti þess að nota endurnýtan-
lega poka í stað plastpoka má fá á þessari vefsíðu: www.
reusablebags.com.
Óþægindi eru talin ein helsta ástæða þess að fólk kemur
ekki úrgangi til endurvinnslu. Á síðustu árum hefur fólki
verið gert auðveldara fyrir að flokka úrgang til endur-
vinnslu með tilkomu bláu og grænu tunnunnar og allra
þeirra endurvinnslugáma sem hefur verið komið víða fyrir.
Helsta hvatningin er þó að vera vel upplýstur um mikil-
vægi endurvinnslu. Gagnlegar upplýsingar má finna á
þessum vefsíðum:
SORPA.IS ● NATTURAN.IS ● GREEN-NETWORLD.COM
● BLUEEGG.COM ● NRDC.ORG/GREENLIVING
Þægindi við flokkun úr-
gangs alltaf að aukast
Ég er ekki plastpoki
EITT OG ANNAÐ
Flokkun heimilissorps
Prentað á umhverfisvænan pappír
UMHVERFISVERND „Við kaupum ekki pappír nema hann fylgir ströngustu umhverfisstöðlum og
helst strangari en hefðbundnir umhverfisstaðlar kveða á um,“ segir Kjartan Kjartansson prent-
smiðjustjóri Ísafoldarprentsmiðju sem prentar Fréttablaðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSLENDINGAR DUGLEGIR AÐ ENDURVINNA Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri
Sorpu, segir Íslendinga duglega að endurvinna sorp en þó megi alltaf gera betur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VISSIR ÞÚ
að talið er að hver
meðalfjölskylda
á Íslandi hendi
árlega pappír sem
gerður er úr um
það bil sex trjám?
BLAÐBERINN: Endurvinnslutaska Fréttablaðsins