Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 30
[ ]
Nemendur í MK standa fyrir
fatamarkaði í samstarfi við
Rauða krossinn til styrktar
nauðstöddum í Mósambík.
Nemendur í áfanganum Sjálf-
boðið starf í Menntaskólan-
um í Kópavogi verða með
fatamarkað í samstarfi
við Kópavogsdeild Rauða
kross Íslands í dag og á
morgun. Allur ágóði af
fatasölunni rennur til nauðstaddra
barna og unglinga í Mósambík.
Fatamarkaðurinn, sem er til
húsa í sjálfboðamiðstöð Kópavogs-
deildar Rauða krossins í Hamra-
borg 11, verður opinn frá 14 til 18
í dag og 11 til 17 á morgun. Þar
verða barna-, unglinga- og fullorð-
insföt til sölu og kosta flíkurnar
frá 300 til 1.500 krónur.
Fatamarkaðurinn er einn af
mörgum liðum í áfanganum en
auk þess að sjá um hann fá nem-
endur fræðslu um sjálfboðið starf
og starfa til dæmis með ungum
innflytjendum, öldruðum eða geð-
fötluðum.
Sunna Kristín Óladóttir er ein
þeirra sem völdu áfangann og seg-
ist hún nú hafa betri hugmynd um
það hvað felist í sjálfboðastarfi.
Henni finnst vinnan í kringum
fatamarkaðinn skemmtilegust en
segir fyrirlestra og fræðslu um
ástandið í þróunarlöndunum
einnig mjög fræðandi. „Ég gæti
jafnvel hugsað mér að vinna sjálf-
boðastörf í framtíðinni. Ég held að
það sé mjög gefandi,“ segir Sunna
Kristín.
Að markaðnum koma allir nem-
endur í áfanganum og byrja þeir á
því að flokka föt frá Rauða kross-
inum. Þeir sjá síðan um kynn-
ingu, uppsetningu og frágang á
markaðnum sem og alla
afgreiðslu.
Unglingar styrkja
aðra unglinga
Mjúk
barnaflíspeysa
Töff kúreka-
skyrta.
Smart
kápa.
Sunna Kristín Óladóttir, sem er hér önnur frá vinstri, segir sjálfboðastörf mjög gef-
andi og hefur gaman af vinnunni í kringum fatamarkaðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hjólatúrar eiga vel við í blíðviðrinu um helgina. Smyrðu
ryðgaðar keðjur og hjól og smyrðu svo nesti.
Bindi í
úrvali.
Sætir
barna-
skór.
Á markaðnum
má meðal
annars finna
þessar flottu
gallabuxur.
Sætt púffpils
úr þægilegu
teygjuefni.
Opið hús verður í Myndlista-
skólanum í Reykjavík á
morgun frá klukkan 14 til
17.
Nemendur Myndlistaskólans í
Reykjavík sýna afrakstur vetr-
arins á opnu húsi skólans sem
verður á morgun frá klukkan
14 til 17. Boðið verður upp á
vöfflukaffi og gestir fá að
spreyta sig á hreyfimynda-
gerð, skuggaleikhúsi og leir-
rennslu á rennibekk.
Kennarar og nemendur
verða á staðnum og veita upp-
lýsingar um fullt nám og stök
námskeið við skólann.
- eö
Vöfflukaffi
og vídeó
Gestir fá meðal annars að spreyta sig
á hreyfimyndagerð og leirrennslu á
morgun.
! " !
"!
!" #"$!!%$
Einar Lárusson
opnar listsýningu
í Salt sksetrinu
Allir til Grindarvíkur í
Menningar og sögutengda
1-2 tíma gönguferð
frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
www.saltfi sksetur.is Saltfi sksetur Íslands/Upplýsingamiðstöð Grindavíkur sími 4201190 og 6607303
19. april kl: 14:00
Þiggið léttar veitingar
og njótið lifandi tónlistar.
Sýningin stendur til
4. mai 2008
Ekkert þátttökugjald
Grindavík góður bær...
Laugardaginn 19 apríl.
Gangan hefst við Staðarkirkjugarð kl: 11:00
Gangan er í tengslun við vígslu á nýju
söguskilti fyrir Staðarhver .
Við endum gönguna í fjarhúsunum þar sem krakkarnir fá
að fylgjast með þegar kindunum er ge ð.
Heitt á könnunni.
Salt sksetrið er opið alla daga frá 11- 18