Fréttablaðið - 18.04.2008, Side 10
18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Ómar Benediktsson, formaður
stjórnar Ríkisútvarpsins, sagði í
erindi á aðalfundi félagsins í gær
að með því að fella félagið undir
upplýsingalög hefði ekki verið
hugmyndin að félagið þyrfti að
veita upplýsingar um launamál
einstakra starfsmanna.
Vefmiðillinn Vísir hefur krafist
upplýsinga um laun tveggja
yfirmanna hjá félaginu, Þórhalls
Gunnarssonar, dagskrárstjóra
Sjónvarps og ritstjóra Kastljóss, og
Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrár-
stjóra Rásar 1 og Rásar 2.
Úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál úrskurðaði að upplýsingarnar
skyldu afhentar. Nú fjallar nefndin
um kröfu starfsmannanna tveggja
um að málið verði tekið fyrir
að nýju, þar sem þeir voru ekki
taldir aðilar málsins við umfjöllun
nefndarinnar.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
sagði í samtali við Fréttablaðið
eftir fundinn í gær að hann og
aðrir hefðu skilið upplýsingalögin
þannig að upplýsingar um launa-
kjör einstakra starfsmanna féllu
ekki undir þau.
Það myndi skerða samkeppnis-
stöðu félagsins þyrfti það að gefa
upp launakjör þeirra, segir Páll.
Því verði barist gegn úrskurðinum
og málinu helst vísað til dóm-
stóla, enda hafi það fordæmis-
gildi.
Páll sagði vissulega óheppilegt
fyrir fyrirtækið að liggja undir
ámæli um að kynbundinn launa-
munur fyndist hjá félaginu, skýrt
væri að svo væri ekki.
SKAÐLEGT AÐ GEFA UPP LAUNAKJÖR
FJÖLMIÐLAR Tap af rekstri Ríkis-
útvarpsins ohf. á fimm mánaða
rekstrartímabili í fyrra nam ríf-
lega 108 milljónum króna.
Útvarpsstjóri segir að 38 milljóna
króna gróði hefði orðið á starf-
seminni ef félagið hefði ekki tekið
yfir biðlaunaskuldbindingar frá
því félagið var ríkisstofnun.
Uppgjörið er vegna tímabilsins
1. janúar 2007, þegar Ríkisútvarpið
ohf. varð til, til 31. ágúst 2007,
þegar rekstrarári félagsins lauk.
Uppgjörið var kynnt á aðalfundi
félagsins í útvarpshúsinu við
Efstaleiti í gær.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
sagði niðurstöðuna jákvæða, en
líta yrði til þess að sumarmánuð-
irnir kæmu almennt betur út en
vetrarmánuðir. Hann benti á að
hið nýja félag hefði ekki byrjað á
núlli, það hefði fengið 370 milljóna
króna skuld í arf frá ríkisstofnun-
inni, auk 120 milljóna króna skuld-
bindingar vegna biðlauna starfs-
manna.
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi kvaddi sér hljóðs og
benti á að alltaf hefði staðið til að
Ríkisútvarpið ohf. tæki yfir bið-
launaskuldbindingarnar. Gert
hefði verið ráð fyrir því að þær
yrðu greiddar af framtíðartekjum
félagsins. Staðið hefði verið við
það sem lofað hefði verið, að nýja
félagið fengi afhent 15% eigið fé.
Á fundinum var ákveðið að
greiða eina eiganda félagsins,
íslenska ríkinu, engan arð. Einnig
var samþykkt að laun stjórnar
yrðu óbreytt. Allar tillögur sem
bornar voru upp á fundinum voru
samþykktar samhljóða, enda
aðeins Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra með
atkvæðisrétt fyrir hönd íslenska
ríkisins. brjann@frettabladid.is
Áfram tap hjá
Ríkisútvarpi
Ríkisútvarpið ohf. tapaði 108 milljónum á fimm
mánaða tímabili í fyrra. Hefði orðið 38 milljóna
hagnaður nema vegna biðlauna segir útvarpsstjóri.
FULLTRÚI HLUTHAFA Páll Magnússon útvarpsstjóri ræddi við Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur menntamálaráðherra fyrir fundinn. Hún var eini fulltrúi hluthafa á
aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
4
08
24
0
4/
08
Flugfrakt
Fyrir þá sem vilja vera fyrstir
flugfelag.is
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
Við sækjum og sendum
Þú getur látið okkur sækja sendinguna
í fyrirtækið þitt og koma henni beint til
viðtakanda.
Hagkvæmt verð
Það er hagstætt að senda með flugfrakt
– berðu saman verð á frakt með flugi
og bíl.
Hratt og oft
Flugfrakt er fljótlegasta leiðin til að flytja
vörur og aðrar sendingar. Mikill fjöldi ferða
tryggir að allar sendingar berast hratt og
örugglega.
Til/frá Reykjavík
Akureyri 8-12 ferðir á dag
Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag
Ísafjörður 2-3 ferðir á dag
Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag
Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt.
FÉLAGSMÁL Dagforeldrar í Kópa-
vogi fá 100 þúsund króna styrk
hver úr bæjarsjóði til að efla starf-
semi sína. Þetta samþykkti félags-
málaráð einróma eftir að for maður
ráðsins hafði rætt við fulltrúa dag-
foreldra.
Peningastyrkinn á að nota til
kaupa á kerrum eða öðru sem að
gagni getur komið við reksturinn
hjá dagforeldrum. Styrkurinn er
skilyrtur því að viðkomandi dag-
foreldri starfi í að minnsta kosti
eitt ár. Þá var ákveðið að verja 350
þúsund krónum til að bæta leik-
fangasafn fyrir dagforeldrana. - gar
Dagforeldrar í Kópavogi:
Fá 100 þúsund í
barnakerrurnar
Í KÓPAVOGI Hagur smáfólksins vænkast.