Fréttablaðið - 18.04.2008, Qupperneq 20
20 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
BLAÐBERINN: Endurvinnslutaska Fréttablaðsins
BLAÐBERI Þegar Blaðberinn er orðinn fullur
af blöðum er tími til að koma honum í endur-
vinnslu. Er þá um nokkrar leiðir að velja.
Hvað verður
um pappírinn?
GRENNDARGÁMUR
Hægt er að fara með
pappírinn í grenndar-
gáma Sorpu sem eru
í öllum hverfum á
höfuðborgarsvæðinu.
ENDURVINNSLUSTÖÐ Pappírinn er hægt að
fara með á endurvinnslustöðvar Sorpu, í sér-
merkta gáma; annars vegar græna gáma sem
eru undir sléttan pappa og hins vegar bláa
gáma sem eru undir laus blöð og tímarit.
FLUTNINGUR Pappír sem endar
hjá Sorpu er fluttur til móttöku- og
flokkunarstöðvar Sorpu í Gufunesi þar
sem hann er pressaður saman og vír-
bundinn í 500 kílóa bagga. Pappírinn
er síðan sendur til Svíþjóðar í fjörutíu
feta gámum þar sem fyrirtækið Il
recycling tekur við honum.
AFURÐ Il recycling sendir
pappírinn meðal annars
áfram til SCA í Lille Edet, þar sem fram-
leiddur er salernispappír og eldhúspappír
undir vörumerkjunum Edet og Tork.
TUNNUR Hægt er að
panta bláa tunnu hjá
Reykjavíkurborg, græna
tunnu hjá Íslenska
gámafélaginu og endur-
vinnslutunnuna hjá
Gámaþjónustunni sem
má setja pappírinn í.
Pappír úr bláu tunnunni
er fluttur til Sorpu.
Umhverfismál eru afar mikilvægur liður í fræðslustarfi Sorpu. Fyrirtækið
býður meðal annars upp á vettvangsferðir grunnskólabarna, fræðslu fyrir
nemendur vinnuskóla á eigendasvæði Sorpu, heimsóknir leikskólabarna,
almannatengsl og náms- og fræðsluefni til að dýpka skilning barna og
ungmenna á umhverfis-
málum og endurvinnslu. Að
sögn Rögnu Halldórsdóttur,
deildarstjóra gæða- og þjón-
ustusviðs Sorpu, sækja árlega
2.500 til 3.000 manns slíka
fræðslu til Sorpu.
„Í svokölluðu Turnherbergi
í höfuðstöðvum Sorpu í Gufu-
nesi er tekið á móti leikskóla-
og grunnskólahópum. Þar fer
fram fræðsla eftir þörfum og
getu hvers aldursstigs. Um er
að ræða fjörutíu mínútna fyrir-
lestra og svo er hópnum ekið
í rútu í gegnum endurvinnslu-
stöðina. Þannig fá hóparnir að
sjá hvernig endurvinnslan á
sér stað og farið er í leiki þar
sem flokkun er kynnt,“ segir
Ragna, til að ítreka hversu
mikið fyrirtækið leggur upp
umhverfissjónarmiðum við
úrgangsmeðhöndlun.
„Sorpa hefur að sama skapi sent fræðsluefni til leikskóla þar sem leið-
beinendur og leikskólakennarar eru uppfræddir um hvernig hægt sé að
miðla endurvinnsluferli til barnanna,“ bendir Ragna jafnframt á og bætir
við að starfsmenn fyrirtækisins hafi einnig flutt fyrirlestra um umhverfis-
mál fyrir nemendur á hönnunarbraut við Listaháskóla Íslands.
„Markmið fræðslunnar gengur út á að sýna að úrgangur þurfi ekki alltaf
að enda í ruslinu heldur megi hæglega endurnýta hann. Verið er að vekja
fólk til vitundar um umhverfi sitt og brýna fyrir því mikilvægi endurvinnslu.
Skoðað er hvernig hægt er að lágmarka úrgang sem verður til á heimilun-
um og nýta frekar hráefni með því að flokka og skila.“ -mmr
Fræðsla mikilvægur þáttur
Þegar blaðberinn er orðinn fullur
af vel lesnum dagblöðum er
komið að því að koma blöðunum í
endurvinnslu. Til þess eru ýmsar
leiðir, sem allar miðast að því
endurvinna pappírinn sem er afar
verðmætt hráefni, en á árinu 2007
voru send utan til endurvinnslu
6.884 tonn af pappír, en það magn
dugar til framleiðslu á yfir þrjá-
tíu milljón klósettrúllum!
Á höfuðborgarsvæðinu finnast
í öllum hverfum grenndargámar
Sorpu, en einnig má skila pappír á
endurvinnslustöðvar Sorpu, í sér-
merkta gáma.
Grenndarstöðvar á höfuðborgar-
svæðinu eru um áttatíu talsins, en
á hverri stöð eru tveir gámar sem
í má setja flokkaðan úrgang: Laus
dagblöð og tímarit í þann bláa, en
umbúðir úr sléttum pappa í þann
græna.
Þá er hægt að panta endur-
vinnslutunnur í sorpgeymsluna
heima, en slíkar tunnur útvega
þrír aðilar gegn vægu mánaðar-
gjaldi. Það eru Reykjavíkurborg
með Bláu tunnunna (eingöngu
fyrir pappír), Íslenska gáma-
félagið með Grænu tunnuna og
Gámaþjónustan með Endur-
vinnslutunnuna, en í þær tvær
síðastnefndu má setja sjö flokka
endurnýtanlegs úrgangs. Sjá
www.sorpu.is, gamur.is og www.
gamar.is - þlg
Hvert á að fara með
dagblöð í endurvinnslu?
Göngutúrar með blaðberann, endurvinnslupoka Fréttablaðsins, geta bæði
verið örstuttir í blaðatunnuna heima, eða lengri til heilsubóta í næsta
grenndargám.
ENDURVINNSLUSTÖÐ Blaðagámur á endurvinnslustöð Sorpu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISVITUND Börn fá fræðslu hjá
Sorpu. NORDICPHOTOS/GETTY