Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.04.2008, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 18.04.2008, Qupperneq 78
38 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is SINNEP Atli Ingólfsson Leikarinn Bjarni Haukur Þórsson og leikstjór- inn Sigurður Sigurjónsson hafa á undan- förnum árum slegið í gegn með hnyttnum einleikjum þar sem tekist er á við íslenskan nútíma. Fyrsta verk þeirra sem sló í gegn var Hellisbúinn, en í því var fjallað um samskipti kynjanna í ljósi breyttra kynjahlutverka. Í rökréttu framhaldi kom svo Pabbinn þar sem föðurhlutverkið var krufið til mergjar. Sýningarnar nutu báðar mikilla vinsælda og mæddi því mikið á Bjarna Hauki, sem stóð einn á sviðinu og brá sér í allra handa hlutverk. Þannig reyndi hann bæði á eigin leikhæfileika og kitlaði hláturtaugar áhorf- enda í leiðinni. Í kvöld verður svo frumsýnt þriðja verkið sem þeir Bjarni og Sigurður hafa unnið saman, en stykkið hefur að þessi sinni hlotið nafnið Hvers virði er ég? Sem fyrr er viðfangsefni sýningarinnar fengið úr íslenskum samtíma. Umræða um fjármál Íslendinga hefur sjaldan eða aldrei verið umfangsmeiri hér á landi en á síðustu misserum. Þessi nýi veruleiki fjármagnsins hlýtur að teljast verðugt viðfangsefni fyrir metnaðarfull gamanskáld og rúmlega það. Það þarf því ekki að koma á óvart að þeir Bjarni Haukur og Sigurður skoði í nýjustu grínsýningu sinni þá bráðsmitandi efnis- hyggju sem hrjáir íslensku þjóðina um þessar mundir og hlífa engum, hvorki almenningi né auðmönnum í þeim spéspegli af sam- tímanum sem sýningin bregður upp. Þessa athyglisverðu nálgun tvinna þeir svo saman við þá vaxandi áherslu á heilsusam- legt líferni sem dynur á almenningi öllum stundum, svo að úr verður ærslafull rannsókn á þeim gildum sem skipta okkur raunveru- lega máli varðandi fjármál okkar og heilsu. - vþ Grínast með efnishyggju FJÁRMÁLAHJAL Bjarni Haukur Þórsson í leik- ritinu Hvers virði er ég? Skynfæri manna eru víst fimm. Boð þeirra allra fara þó inn í sömu símstöð. Þar eru móttökuskilyrði misgóð og iðulega lekur á milli rása. Ótal rannsóknir sýna hvernig það sem berst inn um eitt skynfæri hefur áhrif á annað. Tilraunir með THX-hljóðkerfi í kvikmyndahúsum sýndu til dæmis að þegar sama mynd var sýnd hópi áhorfenda fyrst með eldra hljóðkerfi og svo með því nýja, þótti þeim sem horfðu myndgæð- in snöggtum betri í seinna skiptið. Ekki er nóg með að skynfærin hafi áhrif hvert á annað heldur ræður ástand heilans miklu um hvaða blæ skynjunin fær. Maður sem þjáist af þunglyndi sér ekki sömu litina og heilbrigður maður og maður í annarlegu ástandi ruglar saman skynjun og hugarórum. 1) Oft er talað um hljómburð eins og eðlisfræðin sé eini mælikvarði hans. En hljóðið er fyrir manneskjur. Salurinn er í raun á milli eyrnanna á hlustendum. 2) Ímyndum okkur að gamni vísindalega útfærðan „bragðburð“, rými þar sem bragð matarins á að njóta sín ótruflað. Er víst að við nytum þess þar? 3) Jafnt innra sem ytra ástand allt ræður því hvernig við grípum tónlistina: Skapið, eftirvæning, minni, þekking, félagsskapur, stemn- ing, hreyfing, lýsing, hljómur. Til dæmis mundi hljómburður Háskóla- bíós batna talsvert með betri lýsingu. Grínlaust. 4) Því má segja að þótt hljómburður salar skipti máli sé best að gleyma ekki hljómgrunninum, jarðveginum. Þetta veit rokkarinn: Það skiptir hann miklu að sem flestir áheyrenda séu sannfærðir áður en á tónleik- ana er komið. Síðan eru spurningar eins og „Eru ekki allir í stuði?“ til að hreinsa loftið, stilla eyrun og bæta móttökuskilyrðin. 5) Það er mikilvægt starf að hanna tónleikasali þar sem órafmögnuð tónlist heyrist vel. Þeir eru hins vegar ekki nauðsynlegir allri tónlist og ekki nægilegir sumri tónlist. Enginn salur er góður í sjálfum sér, óháð innihaldinu: útsendingunni og móttökunni. Oft hefur svo góður hljómgrunnur fyllilega bætt fyrir illa hljómandi sal. 6) Hljómburður eru lífsgæði hljóðsins. Það er hin lifandi umgjörð sem býr hann til. 7) Kannski má skýra þetta með litlu dæmi: Á Rás 1 er þátturinn Hlaupanótan. Hann er umgjörð þar sem forvitni, fordómaleysi, opnar hlustir, næmi og glaðværð stjórnendanna smita hvern þann sem heyrir. Enda er sama hvernig mér líkar sú tónlist sem þar er leikin, alltaf skal ég heyra hana undravel. Jafnvel úr útvarpsgarmi. 8) Og gríp hana jafnvel betur en stundum er á tónleikum við „bestu“ skilyrði. Hugar- og hljómburður Kl. 12.15 Júlían M. D‘Arcy, prófessor í enskum bókmenntum, flytur fyrirlestur um amerískar fótboltabókmenntir tuttugustu aldarinnar í dag kl. 12.15. Hann mun fjalla um skáldsögur frá því um aldamótin 1900 allt til sjónvarpsþátta eins og Friday Night Lights og Heroes sem nutu mikilla vinsælda nýverið. Fyrirlesturinn, sem verður fluttur á ensku, fer fram í stofu 207 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Ljósmyndarinn Einar Falur Ing- ólfsson gengur í hádeginu í dag með gestum um sýningu sína Staðir – Úr dagbók 1988-2008 sem nú stendur yfir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Viðfangsefni sýning- arinnar kemur úr dagbók ljósmynd- arans sem hann hefur haldið frá árinu 1988 en sem skrásetningar- tæki notar hann þar myndavél í stað penna. Einar Falur hefur vegna starfs síns sem blaðaljósmyndari ferðast víða og á því orðið safn ljós- mynda af margbreytilegum stöð- um víðs vegar um heiminn. Þrátt fyrir að myndirnar séu teknar á ólíkum stöðum þá gengur rauður þráður gegnum sýninguna, þar sem listræn sýn, metnaður og ekki síst ævintýraþráin renna saman og mynda eina heild. Einar Falur lauk MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York og hefur lengi unnið hjá Morgunblaðinu sem fréttaritari, menningarblaðamaður og bókmenntarýnir auk þess sem hann gegndi starfi myndstjóra þess um tólf ára skeið. Hann hefur verið stundakennari við Listaháskóla Íslands frá árinu 1997 og hefur kennt á ýmsum ljósmyndanám- skeiðum, haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Ljósmynda- safn Reykjavíkur er til húsa í Grófar húsi, Tryggvagötu 15. Leið- sögn Einars Fals hefst kl. 12.10. Einar Falur um Staði EINAR FALUR INGÓLFSSON Sýnir ljósmyndadagbók sína í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þau leiðu mistök áttu sér stað í Fréttablaðinu í gær að rangt var farið með dagsetningar á sýningum danssmiðju Íslenska dansflokksins þar sem dansað verður til styrktar ABC barna- hjálp. Í grein sem birtist á menningarsíðum blaðsins var því haldið fram að sýningarnar færu fram kl. 20 annað kvöld og á sunnudagskvöld. Hið rétta í málinu er hins vegar að sýning- arnar fara fram kl. 20 í kvöld og annað kvöld. Aðstandendur danssmiðjunnar eru hér með beðnir velvirðingar á þessari rangfærslu. - vþ Danssmiðja leiðrétt Málþing um íslenskukennslu erlendis, þýðingar, bókmennta- kynningu og norræna málstefnu fer fram í Þjóðarbókhlöðunni í dag á milli kl. 14 og 17. Íslensk málnefnd, Bókmenntasjóður og Landsbóka- safn Íslands – Háskólabókasafn standa að þinginu, en á meðal þess sem þar verður rætt er kennsla íslenskra barna erlendis og tví- tyngi, þýðingar á íslensk- um bók- menntum á önnur tungumál, íslenskt mál og norræn málstefna. Á meðal frummælenda eru Annette Lassen, dósent í dönsku við Háskóla Íslands, Philip Roughton þýðandi og rithöfundur- inn Sjón. Úlfar Bragason, rann- sóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, setur þingið. Fundarstjóri verður Njörður Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri Bókmenntasjóðs. Almennar umræður fara fram að loknum framsöguerindum. Málþingið er öllum opið. - vþ Íslenska erlendis SJÓN Rithöfundurinn geðþekki tekur þátt í málþingi um íslensku erlendis í dag. ÁRSHÁTÍÐ STANGAVEIÐIFÉLAGS REYKJAVÍKUR 2008 Turninn, 20. Hæð – glæsilegasta veiðihús landsins Besti veiðitíminn – 23. apríl Fordrykkur á 19. hæð áður en rennt er í hylinn Tina Turner tryllir veiðihópinn Leiðsögumaður kvöldisins er Freyr Eyjólfsson Bjarni Haukur Þórsson (kann ekki að veiða en er rosalega fyndinn) Humar, naut, uxi, súkkulaði (engin fluga í súpunni) Veiðiverðlaunaafhending Happahylurinn gefur vel að vanda Ein besta ballhljómsveit landsins – Sóldögg Heiðursgestur Guðni Ágústsson Allir gestir fá veiðigjöf Takmarkaður fjöldi veiðileyfa Veiðileyfið aðeins kr. 12.500 á mann Tryggðu þér veiðileyfi í bestu veiðiferð ársins! Pantaðu miða á skrifstofu SVFR – Sími 568 6050
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.