Tíminn - 21.01.1982, Síða 3
Fimmtudagur 21. janúar 1982
3
fréttir
Alþjóðlega unglingamótið
í Rio de Janero:
KARLVANN
EINVÍGIÐ!
® Karl Þorsteins sigraöi á al-
þjóðlega unglingaskákmótinu
sem fram hefur fariö i Río De
Janero aö undanförnu. Eftir
fimmtán umferöir voru Karl og
Zuning frá Perú efstir og jafnir
með 11 vinninga og var þvi ákveð-
ið að þeir tefldu fjögurra skáka
einvi'gi um fyrsta sætið. Þegar
jyemur einvigisskákum varlokið
hafði Karl unnið tvær skákir, en
einni lyktaði með jafntefli og varð
Karl þvi sigurvegari mótsins.
Verðlaunaafhending fór fram i
gær, en Karl og Egill bróðir hans,
sem verið hefur Karlitil aðstoðar
á mótinu, eru væntanlegir heim á
laugardag.
-Sjó.
B Karl Þorsteins, sigurvegari á
alþjóðlega unglingaskákmótinu I
Rio De Janero.
■ Eltingaleikurinn endaði með þvi að stolni billinn valt upp á gangstétt á gatnamótum Kaplaskjólsveg-
ar og Hringbrautar. Billinn er stórskemmdur. MyndSverrir Vilhelmsson.
SEX LÖGREGLUBÍLAR í
ELHNGALEIK VIÐ BÍLÞJÓF
Borgarráðsmenn á fundi með
kaupmönnum við Laugaveg:
„Lofuðu bót
og betrun”
— segja kaupmenn
■ ..Borgarráðsmenn lofuðu bót
og betrun, þvi eins og Sigurjón
Pétursson, forseti borgarstjórnar
sagði, þá væri það ekki hygginna
bænda háttur að slátra bestu
mjólkurkúnni sinni og að enginn
af borgarfulltrúum Reykjavikur
hefði nokkru sinni látiðsér detta I
hug að fara að þrengja eitthvað
að kaupmönnum eða öðrum fyrir-
tækjum við Laugaveginn, sem
borgi öllum öðrum hærri fast-
eignagjöld”, sagði Jón t. Bjarna-
son, blaðafulltrúi Kaupmanna-
samtaka tslands. En samtökin
efndu til fundar i gær með 60
kaupmönnum við Laugaveg I gær
og buðu þangað öllum borgar-
ráðsmönnum i Reykjavik.
Konum fjölgar
á ASþingi
■ Heldur vænkaðist hagur
kvenna á Alþingi í gær. Tveir
varaþingmenn tóku þar sæti og
eru báðir konur. Sigurlaug
Bjarnadóttir tók sæti Péturs
Sigurðssonar, sem er erlendis, og
Guðrún Hallgrimsdóttir kemur i
stað Guðmundar J. Guðmunds-
sonar, sem liggur á sjúkrahúsi.
Eru þvi ökonurá þingi núna, en
aðeins þrjár náðu kosningu og
sitja þar að staðaldri. Þær eru
Guðrún Helgadóttir, Jóhanna
Sigurðardóttir og Salome Þor-
kelsdóttir.
OÓ.
Að sögn Jóns voru málin rædd
málefnalega, enda ekki flokks-
pólitisk, þvi kaupmenn við
Laugaveg hafi verið i vörn gegn
árásum borgaryfirvalda allt frá
árinu 1963. 1 samþykkt fundarins
var gerð krafa til borgarstjórnar
Reykjavikur, að hún breyti
ákvörðun sinni um að fjarlægja
stöðumæla við Laugaveg neðan
Klapparsti'gs.
Kaupmenn við Laugaveg benda
á að þessi aðgerð komi ekki að
neinum notum fyrir Strætisvagna
Reykjavikur, en hún muni hugsuð
sem áfangi i þá átt að gera
Laugaveg að hraðbraut. Sérak-
rein S.V.R. á Laugavegi myndi
gera kaupmönnum ókleift að
sækja og senda frá sér vörur og sé
þvi óframkvæmanleg.
Tilúrbóta benda kaupmenn aft-
ur á móti á ýmis atriði: Aukna
löggæslu á Laugavegi, fjölgun
stöðumæla við neðanverðan
Laugaveg, að borgin taki á leigu
eða geri stórtbi'lastæði á lóö Eim-
skips við Skúlagötu, að fé það er
kemur inn i' stöðumæla verði allt
notað til að leigja eða kaupa lóðir
fyrir bilastæði, og að gangstéttir
við Laugaveg verði lagfærðar og
lögð i þær snjóbræðsla.
Að sögn Jóns upplýsti Sigurjón
Pétursson á fundinum að verið
væri að vinna að þvi að taka
gömlu Kveldúlfslóðina við Skúla-
götu undir bilastæði.
— HEI
■ Sex lögreglubilar lentu i gifur-
legum eltingaleik við ungan
mann sem tók splúnkunýjan
BMW traustataki i porti Guð-
mundar Jónassonar við Borgar-
tún i fyrrakvöld.
Það var um klukkan 23 að lög-
reglunni barst tilkynning um að
bilnum hefði verið stolið Ur port-
inu. Lögreglan fór þegar á stúf-
ana og sást billinn fyrst á mikilli
ferð á Skúlagötu. Þaðan barst
eltingaleikurinn uppá Frakkastig
þar sem lögreglunni tókst að króa
þjófinn af um stund, en þaö dugði
ekki til þvi þjófurinn slapp Ur
greipum lögreglunnar og hófst þá
eltingaleikurinn að nýju. Þjófur-
inn gaf alltibotn, virtiengar um-
ferðarreglur, ók upp á gangstétt-
ir, fór öfugu megin inn i ein-
stefnuakstursgötur og á gatna-
mótum Kalkofnsvegar og SkUla-
götu ók hann á umferðarskilti og
við það urðu talsverðar skemmd-
ir á bilnum. Eftir það barst
eltingaleikurinn vestur i bæ um
Hringbraut, Kaplaskjólsveg,
Nesveg og vestur á Seltjarnames
og þaöan til baka inn á Kapla-
skjólsveg á nýjan leik. Þar ók
þjófurinn upp á gangstéttarbrún
og við það valt billinn. Þjófurinn
og 14 ára bróðir hans sem var
með honum i bilnum sluppu
ómeiddir.
Eldri bróðirinn var þegar hand-
tekinn og fluttur i fangageymslur
lögreglunnar. Þar viðurkenndi
hann að hafa reynt aö stela þrem-
ur bilum áður en honum tókst að
stela BMW-bilnum.
BMW-billinn er i eigu ungs
manns sem aðeins ætlaði að
leggja bilnum iportinu um stund.
Þjófunum tókst að setja bi'linn i
gang og aka á brott.
Billinn er stórskemmdur, en
hann er þó ekki talinn ónýtur.
— Sjó.
Stórmarkaðsverð
Krafttómatssósa400gr. kr. 6.25 Blönduð sulta Bulgaria 500 gr. 11.20 Hunangrússneskt540gr. ” 14.85 Vexþvottalögur2.2l ” 18.35 Vexþvottaeíni3kg. ” 45.55 Leni eldhúsrúllur 2 i pakka ” 10.00 Leni WCrúllur4 ipakka , ” 13.25 Handklæði margar gerðir og litir verð frá kr.40.- Barnagallabuxur str. 2,3,4,5 og 6 verð frá kr.122.- Barnainniskór str. 20-29 verð frá kr.34.- Gúmmistigvél á góðu verði flestar stærðir frá kr. 128.-147.
Opiö til kl. 22 föstudaga og til hádegis laugardaga
Stórmarkaðurinn Skemmuvegi 4 A Kópavogi
Prófkjör framsóknarflokksins f Reykjavík
dagana 23. og 24. janúar
Kosningin fer fram að Rauðarárstíg 18 laugardag kl. 12-19 og sunnudag kl. 10-19
Kosningarétt hafa flokksbundnir framsóknarmenn 16 ára og eldri, sem búsetu eiga í Reykjavík
Inntökubeiðnir í félögin á skrifstofu flokksins
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla að Rauðarárstíg 18, daglega kl. 18-19