Tíminn - 21.01.1982, Page 4
4
Fimmtudagur 21. janúar 1982
« í©)^<
-sx.Q i 9 £?
t£h f'j >r
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trún-
aðarmannaráðs fyrir árið 1982.
Tillögur skulu vera um formann, varafor-
mann, ritara, gjaldkera og þrjá með-
stjórnendur, ásamt þremur varamönnum.
Og um tólf aðalmenn i trúnaðarmannaráð
og átta til vara, auk þess um tvo endur-
skoðendur og einn til vara.
Tillögum ásamt meðmælum hundrað full-
gildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu
félagsins að Skólavörðustig 16, eigi siðar
enkl.ll f.h. fimmtudaginn 28. janúar 1982.
Stjórn Iðju
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir desember-
mánuð 1982, hafi hann ekki verið greiddur
i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft-
ir eindaga uns þau eru orðin 20%, en siðan
eru viðurlögin 4,5% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með
16. febrúar.
Fjármálaráðuneytið,
18. janúar 1982
Auglýsið i Tímanum
SAUÐFJARMERKI
Bændur, sauðfjáraektarfélög,
búnaðarfélög
Sauðfjármerkin frá Reykjalundi eru framleidd í
samráði við bændur og sauðfjárveikivarnir rík-
isins. Merkin eru framleidd eftir samræmdu
litakerfi og áprentuð með bæjar-, hrepps- og
sýslunúmeri annars vegar en raðnúmerum að
óskum bænda hins vegar.
Skriflegar pantanir þarf að gera með góðum
fyrirvara til að tryggja afgreiðslu fyrir
sauðburð.
REYKJALUNDUR
Söludeild -270 VARMÁ
Mosfellssveit.
f réttir
Guörún Helgadóttir
Friöjón Þórðarson
Steingrimur Hermannsson
EFNAHAGSMALI
■ Þing kom saman á nýjan leik í gær, að loknu jólaleyfi.
Tímamenn brugðu sér niður í Alþingishús i eftirmiðdag-
inn í gær og tóku þar nokkra þingmenn tali. Voru þing-
mennirnir spurðir hver þeir teldu að stærstu málin yrðu
á Alþingi, nú seinnihluta vetrar og um horfur stjórnar-
samstarfsins. Bar öllum viðmælendum Tímans saman
um að lánsfjáráætlunin og efnahagsmálin ættu eftir að
setja mikinn svip á störf Alþingis nú á næstunni, þótt
mjög væru skiptar skoðanir um framvindu þeirra mála,
og mótaðist afstaða hvers og eins að sjálfsögðu mjög af
því hvar í flokki menn standa.
„Eki hrædd um að
stjórnarsamstarfið sé í
hættu í augnablikinu"
Guörún Helgadóttir, alþingis-
maöur: „Þaö fer náttúrulega
ekkert á milli mála, aö efnahags-
málin verða auövitaö mál þings-
ins og þessi eiliföarbarátta okkar
aö reyna aö draga úr veröbólg-
unni. Þess utan eigum viö eftir aö
afgreiöa lánsfjáráætlun. Þaö eru
ýmis stórmál sem hafa verið og
veröa lögð fram á þinginu, eins og
nýtt frumvarp um Lánasjóö is-
lenskra námsmanna. Ennþá eru
óafgreidd i þinginu, liklega eitt-
hvaö á annað hundraö mál, þann-
ig aö þaö er ekkert verkefnaleysi
framundan. Nú, þá eiga orkumál-
in örugglega eftir aö setja svip á
þingstörfin.
Varöandi stjórnarsamstarfið,
þá er ég ekki hrædd um aö þaö sé i
neinni hættu nú i augnablikinu.
Ég held aö menn séu sammála
um aö reyna að finna sameigin-
lega lausn á málum og tel aö fáir
myndu græöa á þvi hér yröi allt i
einu þingrof og nýjar kosningar.
Ég held aö enginn hugsi til þess i
neinni alvöru. Þaö veröur vist nóg
aö glima viö sveitarstjórnarkosn-
ingar aö vori.”
„Höfumekki þingflokkinn
á bak við okkur"
Friöjón Þóröarson, dómsmála-
ráöherra: „Stærsta máliö veröur
auövitað efnahagsmálin, sem
hafa veriö i umræöu og athugun
aö undanförnu.”
— Nú hefur litiö heyrst um til-
lögur sjálfstæöismanna i rikis-
stjórn varöandi efnahagsmálin.
Getur þú greint frá helstu hug-
myndum ykkar?
„Þaö eru eölilegar ástæöur fyr-
ir þvi. Bæöi finnst mér aö ekki
eigi aö leysa þessi mál 1 fjölmiöl-
um og á hinn bóginn höfum viö þá
sérstööu aö viö höfum ekki þing-
flokkinn á bak viö okkur, og þurf-
um þvi ekki aö láta hann dæma
um þær tillögur sem viö höfum
fram aö færa. Vitanlega erum viö
ekki skoðanalausir um þessi mál
— þaö þarf enginn aö halda þaö,
en þar sem þrir flokkar starfa
saman, þá er þaö deginum ljós-
ara aö miöla þarf málum.”
— Hvenær litur svo efnahags-
málapakkinn dagsins ljós?
„Hann litur dagsins ljós innan
tiöar, svona ööru hvorum megin
viö helgina.”
„Efnahagsmálin i loka-
undirbúningi hjá ríkis-
stjórninni"
Steingrimur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra: „Það er
enginn vafi á því aö stærstu málin
veröa efnahagsmálin, og þau eru
i lokaundirbúningi hjá rikis-
stjórninni. Ég þykist viss um aö
það veröi hægt aö gefa út tilkynn-
ingu um þau, ekki siöar en nk.
mánudag, og eftir það veröa þau
örugglega mjög til umræðu hér á
Alþingi.
Okkaraögerðir verða náttúru-
lega áframhaldandi aögerðir
gegn verðbólgunni, og ætlunin er
að halda áfram þvi sem verið hef-
ur meginstefnuatriði rikis-
stjórnarinnar, aö fá hana til að
hjaöna.”
— Er von á viöbótargengisfell-
ingu?
„Menn veröa náttúrulega aö ■
gera sér grein fyrir þvi aö i 35 til
40% veröbólgu, þá hlýtur gengiö
aö falla annað slagiö.”
— Ertu þeirrar skoöunar aö nú
sé aö nást samstaða innan rikis-
stjórnarinnar varöandi aðgeröir i
efnahagsmálum?
„Já, það er veriö aö vinna þar i
ýmsum viökvæmum málum, en
ég vona aö þetta náist saman i
dag eöa á morgun.”
„Hraði verðbólgunnar
vaxið yfir 20% frá því að
vísitalan var síðast mæld."
Sighvatur Björgvinsson, formaö-
ur þingflokks Alþýöuflokksins:
„Þaö er ljóst aö umræöan um
efnahagsmál setur svip á þingiö
þaö sem eftir er. I fyrsta lagi á
rikisstjórnin enn eftir aö afgreiða
lánsfjáráætlun sina, sem hún
hætti við aö afgreiöa fyrir jól, og i
ööru lagi hefur rikisstjórnin þeg-
ar tilkynnt aö hún muni rifa aftur
upp fjárlögin, sem voru sam-
þykkt sama dag og þingiö fór i
jólaleyfi og i þriöja lagi biöa
menn nú eftir þvi aö heyra frá
rikisstjórninni hvaö hún hyggist
gera i sambandi viö þann efna-
hagsvanda sem nú er viö aö fást.
Hraöi verðbólgunnar hefur vaxiö
um yfir 20% frá því aö visitalan
var siöast mæld. Eftir þeim
fregnum sem viö höfum, þá er
liklegt aö veröbólgan 1. febrúar
mælist 12.2%, sem þýðir aö hraö-
inn á henni á árs grundvelli, er þá
kominn upp í 58%. Þetta veröur
auövitaö meginviöfangsefni Al-
þingis, en umræöan fer auövitaö
ekki i gang fyrr en tillögur rikis-
stjórnarinnar eru tilbúnar.
í annan staö þá hljóta orkumál-
in að koma mjög fljótt til umræöu
hér i þinginu, en það er sama sag-
an þar, eins og meö efnahagsmál-
in, aö þaö sem tefur fyrst og
fremst fyrir þvi er að rikisstjórn-
in hefur ekki komiö sér saman um
það hvernig hún ætlar að standa
aö þessum virkjanamálum.”
//Hætt við að allir verði
ekki sammála".
Eggert Haukdal, aiþingismaður:
„Vafalaust veröa efnahagsmálin
efst á baugi, nú seinni hluta vetr-
ar, og hætt er við að allir veröi
ekki sammála. Aö öðru leyti er ég
ekki tilbúinn til þess aö tjá mig
um efnahagsmálin, þvi ég held aö
enn liggi ekkert nógu bitastætt
fyrir i þeim.”
— Attu von á þvi að þú persónu-
lega veröir ánægöari með
stjórnarsamstarfiö á þessu vori,
en þú hefur verið að undanförnu?
„Þaö dreg ég i efa. Ég tel þaö
ekki liklegt aö ég veröi neitt
hressari meö stjórnarstarfiö, en
ég hef veriö aö undanförnu. Mér
sýnist aö það sé ekki alltof fallegt
framundan.”
— I hvaða málum helst?
„Orkumálin eru náttúrulega si-
gild, en efnahagsmálin geta einn-
ig átt eftir aö vekja óánægju
mina, þvi ef ekki á aö taka á þeim
málum og það verulega, meö
samræmdum aögerðum, þá list
mér einfaldlega ekki á hlutina og
hálfkák dugar ekki.”
//Það hriktir svolítið í".
Tómas Arnason, viöskiptaráö-
herra: „Þaö er fyrst og fremst
fjárfestingar- og lánsfjáráætlun-
in, sem á eftir aö móta störf
þingsins á næstunni. Hún liggur
nú fyrir þinginu og er i fjárhags-
og viöskiptanefnd neöri deildar
nú. Þá eru það auövitaö efna-
hagsráðstafanir rikisstjórnarinn-
ar, sem nú eru i burðarliönum.”
— Veröur það erfiö fæðing?
„Sjálfsagt veröur þaö nú. Ég
vona að samstaöa um efnahags-
■ Efnahagsnefndarmennirnir Guömundur G. Þórarinsson og ólafur
Ragnar Grimsson virtust ekki vera alltof ánægöir hvor meö annan þeg-
ar þeir ræddust viö i þinginu I gær. Timamynd: Ella