Fréttablaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 20
[ ]Reykskynjarar eru nauðsynlegir á hverju heimili. Áður en farið er í frí er ráðlegt að athuga hvort þeir virki ekki, ásamt því að fara yfir alla glugga og hurðir og sjá hvort allt sé ekki örugg-lega lokað og læst.
Flogið verður til Edinborgar
í beinu flugi í haust. Iceland
Express býður upp á eina ferð
dagana 2.-5. október með gist-
ingu og leiðsögn um borgina.
Edinborg, höfuðborg Skotlands
síðan 1437, er ein vinsælasta ferða-
mannaborg Evrópu og af breskum
áfangastöðum fær einungis Lond-
on fleiri heimsóknir. Rétt um 460
þúsund manns búa í Edinborg og
þúsundir stúdenta stunda þar nám,
meðal annars fjöldi Íslendinga, en
Edinborgarháskóli var stofnaður
1583. Borgin var og er oft kölluð
Aþena norðursins vegna leiðandi
stöðu sinnar í menntamálum og
landslags borgarinnar.
Borgin skiptist í Old Town og
New Town. Gamli bæjarhlutinn
hefur staðið frá miðöldum en nýji
bæjarhlutinn var reistur á átjándu
öld. 1766 var haldin samkeppni
um nýtt bæjarskipulag og átti 22
ára arkitekt, James Craig, vinn-
ingstillöguna. Skipulag New Town
þykir enn í dag eitt best heppnaða
borgarskipulag í Evrópu.
Edinborg á sér mikla sögu og
hefur fóstrað mörg fræg skáld og
rithöfunda. Má þar nefna höfund
sögunnar um Dr. Jekyll og Mr.
Hyde, Robert Louis Stevenson. Sir
Arthur Conan Doyle bjó einnig í
Edinborg en hann var höfundur
Sherlock Holmes. Tony Blair
fæddist einnig í Edinborg og gekk
þar í skóla.
Í ferð Iceland Express til Edin-
borgar dagana 2.-5. október verður
farið á söguslóðir og meðal annars
verður Holyrood-höllin skoðuð en
þar bjó María Skotlandsdrottning
á 16. öld. Þar var elskhugi hennar
einnig stunginn til bana. Frá höll-
inni liggur hin konunglega míla að
Edinborgarkastala sem má kalla
tákn Edinborgar. Farið verður að
minnismerki heiðursborgara Edin-
borgar sem var hundur inn Bobby
en hann sýndi húsbónda sínum þá
tryggð að liggja á leiði hans í fjór-
tán ár. Allar ferðirnar verða undir
leiðsögn.
„Við bjóðum upp á gott þriggja
stjörnu hótel í miðborginni,
Mercury Point, og skoðunarferðir
um borgina undir leiðsögn Arnars
Símonarsonar sem þekkir borgina
mjög vel,“ segir Lilja Hilmars-
dóttir, skipuleggjandi ferðarinnar
hjá Iceland Express. „Borgin er
öll eitt ævintýri. Þarna eru fínar
verslanir og veitingastaðir og
skemmtilegar krár og upplagt
fyrir fyrirtæki og hópa að halda
árshátíð í Edinborg.“
heida@frettabladid.is
Aþena norðursinsMillipilsin í HúsinuÍ HÚSINU Á EYRARBAKKA ER ÁHUGAVERÐ SÝNING Á FLÍK SEM LÍTIÐ HEFUR
VERIÐ FJALLAÐ UM ÁÐUR.
„Í dag er mjög athygl-
isverð sýning hér sem
fjallar um þann fatn-
að sem minnsta athygli
hefur vakið hér fyrr á
tímum. Þetta var ekki
yfirflík heldur undir flík.
Þetta eru millipilsin svo-
kölluðu,“ segir Lýður
Pálsson, safnstjóri Húss-
ins á Eyrarbakka. Hann
bætir við að þetta sé flík
sem konur hafi klæðst
undir öðrum skrautlegri
pilsum. „Millipilsin voru
pils sem gerðu yfirpils-
in aðeins vígalegri. Þau
voru líka hlýr fatnaður,“
segir Lýður.
Sýningin, Faldarnir
lyftust og síðpilsin sviptust, var opnuð í Húsinu á Eyrarbakka um miðjan maí
og stendur alveg fram á haust. Hún er sett upp af Hildi Hákonardóttur og Ást-
hildi Magnúsdóttur. Á sýningunni eru um þrettán pils. „Pilsin eru ofin á tímabil-
inu 1880 til 1920 þegar þessi tíska var ríkjandi hér í íslenskri fatagerð. Engin tvö
mynstur eru eins á þeim,“ upplýsir Lýður og segir að fyrir sig karlmanninn sé þetta
áhugaverð sýning. „Þetta er ekki bara kvennasýning heldur sýning fyrir alla.“
- mmf
Hefðbundið millipils, ofið eftir aldamótin 1900.
MYND/LINDA ÁSDÍSARDÓTTIR
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík
S: 511 2200 www.seglagerdin.is
OPNUNARTÍMI:
MÁNUDAGA - FÖSTUDAGA 10.00 - 18.00
LAUGARDAG 11.00 - 16.00
SUNNUDAG 12.00 - 16.00
95
1913 - 2008
STÓRSÝNING
UM HELGINA
Líttu við og kynntu
þér úrvalið!
Frábær tilboð
Landsins mesta úrval
af ferðavögnum
TILBOÐSP
AKKI
ÖLLUM FEL
LIHÝSUM F
YLGIR
ÍSLENSKT
FORTJALD
,
SÓLARSEL
LA MEÐ
ÍSETNINGU
OG GASGR
ILL
TILBOÐSP
AKKI
ÖLLUM HJ
ÓLHÝSUM
FYLGIR
SÓLARSEL
LA, SKYGG
NI OG
SJÓNVARP
MEÐ DVD
100%
FJÁRMÖGNUN
TILBOÐSPAKKI
FULLT VERÐ KR. 801.500.
ÆGISTJALDVAGN OGÍSLENSKT FORTJALDKR. 690.000.
100% FJÁRMÖGNUN
0% VEXTIR
Þú bókar og tryggir
þér sæti og 4 dögum
fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir.
Súpersól til
Salou
27. júní og 4. júlí
frá kr. 29.995
Kr. 29.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára í íbúð. Súpersól tilboð, 27.
júní eða 4. júlí í viku.
Aukavika kr. 15.000.
Kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna saman í
herbergi / stúdíó / íbúð. Súpersól tilboð,
27. júní eða 4. júlí í viku.
Aukavika kr. 15.000.
Horft upp að Edinborgarkastala
sem er tákn Edinborgar.