Fréttablaðið - 19.07.2008, Side 8
8 19. júlí 2008 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 225
4.163 +0,13% Velta: 2.640 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,91 +0,73% ... Atorka 5,65
+0,00% ... Bakkavör 24,95 +1,01% ... Eimskipafélagið 14,30 +0,00%
... Exista 6,36 +0,47% ... Glitnir 15,10 +0,00% ... Icelandair Group
16,70 +0,91% ... Kaupþing 718,00 +0,00% ... Landsbankinn 23,05
+0,22% ... Marel 86,50 -0,35% ... SPRON 3,05 -1,61% ... Straumur-
Burðarás 9,59 +0,74% ... Teymi 1,54 -1,28% ... Össur 86,90 -0,34%
MESTA HÆKKUN
FÆREYJA BANKI +4,26%
EIK BANKI +2,50%
BAKKAVÖR +1,01%
MESTA LÆKKUN
CENTURY ALUM. -4,57%
SPRON -1,61%
TEYMI -1,28%
Markaðsvirði félaga í Kauphöll
Íslands er nú tæplega 1.600 millj-
arðar króna en var tæplega 3.800
milljarðar fyrir ári síðan. Virði
félaga í Kauphöllinni er því um
2.200 milljörðum króna minna nú
en þegar Úrvalsvísitalan náði
hæðarmeti í 9.016 stigum fyrir
ári.
Rúmlega 30 prósent lækkunar-
innar skýrist af afskráningum
félaga. Félög í Kauphöllinni eru 25
í dag samanborið við 30 á sama
tíma fyrir ári.
Þau félög sem hafa verið afskráð
á síðustu tólf mánuðum eru Acta-
vis, FL Group, Icelandic Group,
Skipti, Flaga og Tryggingamið-
stöðin. -bþa
Félögum fækkar
og virði rýrnar
Polar hjólhýsi
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Alde gólfhitakerfi, galvaníseruð
grind, iDC stöðugleikakerfi og ríkulegur staðalbúnaður.
19˝ LCD
skjár
Séstakur
vínkælir
DVD
spilari
44mm
einangrun
-40 °C
iDC
stöðugleikakerfi
iDC
Evrópskar
þrýstibremsur
Rockwood fellihýsi
Sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum með galvaníseraðri
grind, fjöðrum fyrir akstur á erfiðum vegum og upphituðum lúxusdýnum.
Fjöðrun f.
ísl. aðstæður
Vatn tengt
heitt/kalt
CD spilari/
útvarp
Upphitaðar
lúxusdýnur
12 cm
Evrópskar
þrýstibremsur
Sumarg
jöf
Sólar
rafhla
ða,
fortja
ld og
gasgr
ill
fylgir
öllum
fellih
ýsum
Tilbo
ðið g
ildir ti
l 30.
júlí
Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft
til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla,
fylgihluti og margt fleira.
Fossháls 5-9 110 Reykjavík Sími 551 5600
Fax 551 5601 www.utilegumadurinn.is
Þægindi um land allt
„Rekstur og afkoma af kjarna-
starfsemi Nýherja var ágæt og
einnig af starfsemi Applicon
erlendis. Slök afkoma af fjárfest-
ingum í nýrri starfsemi íþyngir
rekstrinum,“ segir Þórður Sverris-
son, forstjóri Nýherja.
Nýherji birti í gær uppgjör fyrir
annan ársfjórðung. Félagið tapaði
90 milljónum á tímabilinu saman-
borið við 104 milljóna króna hagn-
að á öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Það samsvarar 0,29 króna tapi á
hvern hlut. Eiginfjárhlutfallið er
28 prósent á öðrum fjórðungi sam-
anborið við 31,2 prósent í lok síð-
asta árs.
Í uppgjörinu eru óefnislegar
eignir þrefalt meiri en fyrir ári.
Þórður segir að það megi rekja til
kaupa á TM software auk þess
sem hluti viðskiptavildar fyrir-
tækisins sé í erlendum gjaldmiðli
sem hefur hækkað umtalsvert
vegna gengisfalls krónunnar.
Þórður segir að afkoma félags-
ins af nýrri starfsemi erlendis
hafi verið undir væntingum. „Við
skuldsettum okkur mikið við kaup-
in á TM software og með háum
fjármagnskostnaði og gengisfalli
krónunnar er afkoman af því ekki
það sem við væntum,“ segir Þórð-
ur. -bþa
Nýherji tapar 90
milljónum króna
UPPGJÖR NÝHERJA Þórður Sverrisson,
forstjóri Nýherja, segir margt jákvætt í
uppgjöri félagsins þar sem mörg fyrir-
tæki horfa í auknum mæli til tæknifram-
fara til að hagræða í rekstri.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
850 veðköll hafa verið á samstæðugrunni fyrirtækja
síðustu þrjár vikurnar að því er Fjármálaeftirlitið
segir. Þetta er í fyrsta skipti á þessu ári sem Fjár-
málaeftirlitið tekur saman lista yfir fjölda veðkalla. Í
nóvember í fyrra voru 600 veðköll og 750 í desember.
Veðkall er þegar virði hlutabréfa sem lán hefur
verið tekið fyrir fer niður fyrir ákveðin mörk. Þá
krefjast lánadrottnar aukinna veða.
Fjármálaeftirlitið telur að tryggingastaða fyrir-
tækjanna sé ásættanleg. Hún sé þó misjöfn á milli
fjármálafyrirtækja.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins,
telur mikilvægt að fjármálafyrirtæki gæti vel að
útlánagæðum og nauðsynlegt sé að grípa fljótt inn í
ef vandræði eru í uppsiglingu og leggja strax til
hliðar á afskriftareikning.
Efasemdir hafa verið um það að fjármálafyrirtæki
hafi verið nógu dugleg við að leggja til hliðar á
afskriftareikninga.
Talið er að mörg fyritæki og einstaklingar séu nú í
þeirri stöðu að lánadrottnar ráði yfir eignum þeirra.
Má þar nefna félög eins og Gnúp, Nýsi og félög í eigu
Hannesar Smárasonar.
„Miðað við hvernig ástandið er núna ætti það ekki
að koma á óvart að afskriftir myndu aukast töluvert
umfram spár greiningaraðila,“ segir Árni Tómasson,
endurskoðandi og fyrrverandi bankastjóri Búnaðar-
bankans.
Hann telur að það verði aukning á afskriftum í
væntanlegum uppgjörum bankanna. Þær verði síðan
ennþá meiri í uppjörum þriðja ársfjórðungs og um
áramót.
„Þetta helst að vísu í hendur við það hvernig
þróunin á gengi krónunnar verður. Ef það snýst við
mun það hjálpa þeim sem illa standa,“ segir Árni.
Markaðurinn sagði frá því fyrir viku síðan að
greiningar Glitnis og Kaupþings hefðu spáð því að
afskriftir Landsbankans, Kaupþings og Glitnis
myndu þrefaldast á þessu ári og því næsta. -as
Afskriftir munu aukast enn meira
JÓNAS FR. JÓNSSON, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hann telur
mikilvægt að fjármálafyrirtæki leggi strax til hliðar á afskrifta-
reikninga. Efasemdir eru um að fjármálafyrirtæki hérlendis hafi
sinnt þessu nógu vel. MARKAÐURINN/HEIÐA
Fræðingaflóð í forsætisráðuneyti
Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og for-
stjóri Aska Capital, er annar bankastjórinn sem
á skömmum tíma er ráðinn til forsætisráðu-
neytisins. Tryggvi verður efnahagsráðgjafi í sex
mánuði en í febrúar var Finnur Sveinbjörnsson
fyrrum forstjóri Icebank, ráðinn til að samræma
aðgerðir með fjármálafyrirtækjum vegna
alþjóðlegu lausafjárkrísunnar og
bæta ímynd bæði bankanna
og efnahagslífsins hér.
Ætti því ekki að vanta
hagspekingana í ráðu-
neytið til að takast á við
aðsteðjandi vanda, enda
bæði Bolli Þór Bollason
ráðuneytisstjóri og
Geir H. Haarde,
forsætisráðherra,
hagfræðingar að
mennt.
Ísland glatar fyrsta sætinu
Seðlabanki Tyrklands hækkaði undir lok vikunn-
ar stýrivexti um 0,50 prósentustig og eru þeir
því nú 16,75 prósent. Þetta er í annað skiptið í
röð sem Seðlabanki Tyrklands hækkar vexti og
frekari vaxtahækkanir ekki útilokaðar á komandi
mánuðum. Með þessu ber meira í milli Íslands
og Tyrklands í þessum efnum,
en líkt og Greining Glitnis
benti nýlega á nutum við þess
vafasama heiðurs um tíma
að verma fyrsta sætið, en
erum nú með næsthæstu
stýrivexti meðal
þróaðra hagkerfa,
15,5 prósent. Hér
hafa stýrivextir
aldrei verið hærri.
Brasilía er í þriðja
sæti með 12,25
prósenta stýrivexti.
Peningaskápurinn ...