Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.07.2008, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 19.07.2008, Qupperneq 8
8 19. júlí 2008 LAUGARDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 225 4.163 +0,13% Velta: 2.640 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,91 +0,73% ... Atorka 5,65 +0,00% ... Bakkavör 24,95 +1,01% ... Eimskipafélagið 14,30 +0,00% ... Exista 6,36 +0,47% ... Glitnir 15,10 +0,00% ... Icelandair Group 16,70 +0,91% ... Kaupþing 718,00 +0,00% ... Landsbankinn 23,05 +0,22% ... Marel 86,50 -0,35% ... SPRON 3,05 -1,61% ... Straumur- Burðarás 9,59 +0,74% ... Teymi 1,54 -1,28% ... Össur 86,90 -0,34% MESTA HÆKKUN FÆREYJA BANKI +4,26% EIK BANKI +2,50% BAKKAVÖR +1,01% MESTA LÆKKUN CENTURY ALUM. -4,57% SPRON -1,61% TEYMI -1,28% Markaðsvirði félaga í Kauphöll Íslands er nú tæplega 1.600 millj- arðar króna en var tæplega 3.800 milljarðar fyrir ári síðan. Virði félaga í Kauphöllinni er því um 2.200 milljörðum króna minna nú en þegar Úrvalsvísitalan náði hæðarmeti í 9.016 stigum fyrir ári. Rúmlega 30 prósent lækkunar- innar skýrist af afskráningum félaga. Félög í Kauphöllinni eru 25 í dag samanborið við 30 á sama tíma fyrir ári. Þau félög sem hafa verið afskráð á síðustu tólf mánuðum eru Acta- vis, FL Group, Icelandic Group, Skipti, Flaga og Tryggingamið- stöðin. -bþa Félögum fækkar og virði rýrnar Polar hjólhýsi Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Alde gólfhitakerfi, galvaníseruð grind, iDC stöðugleikakerfi og ríkulegur staðalbúnaður. 19˝ LCD skjár Séstakur vínkælir DVD spilari 44mm einangrun -40 °C iDC stöðugleikakerfi iDC Evrópskar þrýstibremsur Rockwood fellihýsi Sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum með galvaníseraðri grind, fjöðrum fyrir akstur á erfiðum vegum og upphituðum lúxusdýnum. Fjöðrun f. ísl. aðstæður Vatn tengt heitt/kalt CD spilari/ útvarp Upphitaðar lúxusdýnur 12 cm Evrópskar þrýstibremsur Sumarg jöf Sólar rafhla ða, fortja ld og gasgr ill fylgir öllum fellih ýsum Tilbo ðið g ildir ti l 30. júlí Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla, fylgihluti og margt fleira. Fossháls 5-9 110 Reykjavík Sími 551 5600 Fax 551 5601 www.utilegumadurinn.is Þægindi um land allt „Rekstur og afkoma af kjarna- starfsemi Nýherja var ágæt og einnig af starfsemi Applicon erlendis. Slök afkoma af fjárfest- ingum í nýrri starfsemi íþyngir rekstrinum,“ segir Þórður Sverris- son, forstjóri Nýherja. Nýherji birti í gær uppgjör fyrir annan ársfjórðung. Félagið tapaði 90 milljónum á tímabilinu saman- borið við 104 milljóna króna hagn- að á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Það samsvarar 0,29 króna tapi á hvern hlut. Eiginfjárhlutfallið er 28 prósent á öðrum fjórðungi sam- anborið við 31,2 prósent í lok síð- asta árs. Í uppgjörinu eru óefnislegar eignir þrefalt meiri en fyrir ári. Þórður segir að það megi rekja til kaupa á TM software auk þess sem hluti viðskiptavildar fyrir- tækisins sé í erlendum gjaldmiðli sem hefur hækkað umtalsvert vegna gengisfalls krónunnar. Þórður segir að afkoma félags- ins af nýrri starfsemi erlendis hafi verið undir væntingum. „Við skuldsettum okkur mikið við kaup- in á TM software og með háum fjármagnskostnaði og gengisfalli krónunnar er afkoman af því ekki það sem við væntum,“ segir Þórð- ur. -bþa Nýherji tapar 90 milljónum króna UPPGJÖR NÝHERJA Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, segir margt jákvætt í uppgjöri félagsins þar sem mörg fyrir- tæki horfa í auknum mæli til tæknifram- fara til að hagræða í rekstri. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. 850 veðköll hafa verið á samstæðugrunni fyrirtækja síðustu þrjár vikurnar að því er Fjármálaeftirlitið segir. Þetta er í fyrsta skipti á þessu ári sem Fjár- málaeftirlitið tekur saman lista yfir fjölda veðkalla. Í nóvember í fyrra voru 600 veðköll og 750 í desember. Veðkall er þegar virði hlutabréfa sem lán hefur verið tekið fyrir fer niður fyrir ákveðin mörk. Þá krefjast lánadrottnar aukinna veða. Fjármálaeftirlitið telur að tryggingastaða fyrir- tækjanna sé ásættanleg. Hún sé þó misjöfn á milli fjármálafyrirtækja. Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, telur mikilvægt að fjármálafyrirtæki gæti vel að útlánagæðum og nauðsynlegt sé að grípa fljótt inn í ef vandræði eru í uppsiglingu og leggja strax til hliðar á afskriftareikning. Efasemdir hafa verið um það að fjármálafyrirtæki hafi verið nógu dugleg við að leggja til hliðar á afskriftareikninga. Talið er að mörg fyritæki og einstaklingar séu nú í þeirri stöðu að lánadrottnar ráði yfir eignum þeirra. Má þar nefna félög eins og Gnúp, Nýsi og félög í eigu Hannesar Smárasonar. „Miðað við hvernig ástandið er núna ætti það ekki að koma á óvart að afskriftir myndu aukast töluvert umfram spár greiningaraðila,“ segir Árni Tómasson, endurskoðandi og fyrrverandi bankastjóri Búnaðar- bankans. Hann telur að það verði aukning á afskriftum í væntanlegum uppgjörum bankanna. Þær verði síðan ennþá meiri í uppjörum þriðja ársfjórðungs og um áramót. „Þetta helst að vísu í hendur við það hvernig þróunin á gengi krónunnar verður. Ef það snýst við mun það hjálpa þeim sem illa standa,“ segir Árni. Markaðurinn sagði frá því fyrir viku síðan að greiningar Glitnis og Kaupþings hefðu spáð því að afskriftir Landsbankans, Kaupþings og Glitnis myndu þrefaldast á þessu ári og því næsta. -as Afskriftir munu aukast enn meira JÓNAS FR. JÓNSSON, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hann telur mikilvægt að fjármálafyrirtæki leggi strax til hliðar á afskrifta- reikninga. Efasemdir eru um að fjármálafyrirtæki hérlendis hafi sinnt þessu nógu vel. MARKAÐURINN/HEIÐA Fræðingaflóð í forsætisráðuneyti Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og for- stjóri Aska Capital, er annar bankastjórinn sem á skömmum tíma er ráðinn til forsætisráðu- neytisins. Tryggvi verður efnahagsráðgjafi í sex mánuði en í febrúar var Finnur Sveinbjörnsson fyrrum forstjóri Icebank, ráðinn til að samræma aðgerðir með fjármálafyrirtækjum vegna alþjóðlegu lausafjárkrísunnar og bæta ímynd bæði bankanna og efnahagslífsins hér. Ætti því ekki að vanta hagspekingana í ráðu- neytið til að takast á við aðsteðjandi vanda, enda bæði Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri og Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hagfræðingar að mennt. Ísland glatar fyrsta sætinu Seðlabanki Tyrklands hækkaði undir lok vikunn- ar stýrivexti um 0,50 prósentustig og eru þeir því nú 16,75 prósent. Þetta er í annað skiptið í röð sem Seðlabanki Tyrklands hækkar vexti og frekari vaxtahækkanir ekki útilokaðar á komandi mánuðum. Með þessu ber meira í milli Íslands og Tyrklands í þessum efnum, en líkt og Greining Glitnis benti nýlega á nutum við þess vafasama heiðurs um tíma að verma fyrsta sætið, en erum nú með næsthæstu stýrivexti meðal þróaðra hagkerfa, 15,5 prósent. Hér hafa stýrivextir aldrei verið hærri. Brasilía er í þriðja sæti með 12,25 prósenta stýrivexti. Peningaskápurinn ...

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.