Fréttablaðið - 19.07.2008, Page 12
19. júlí 2008 LAUGARDAGUR
Þinghóls
braut 45
200 Kópa
vogur
Jarðhæð m
eð verönd
Stærð: 7
4,8 fm
Fjöldi he
rbergja:
3
Bygginga
rár: 1980
Brunabó
tamat: 13
.200.000
Bílskúr:
Nei
Verð: 22
.500.000
Rúmgóða
3ja herb.
íbúð á jar
ðhæð í sn
yrtilegur o
g góðu 5í
búða fjölb
ýli, með ú
tgengi á h
ellulagða v
erönd
og vel gró
inn garð.
Sér bílastæ
ði fylgir íb
úð. Stór s
érgeymsla
sem er ek
ki inní fm
íbúðar. Hú
sið var má
lað
fyrir 2árum
og lítur m
jög vel út
.Fallegt m
ahogony
parket á
gólfum. S
tofa og e
ldhús eru
í opnu rý
mi,
eldunarey
ja með ke
ramikhellu
borði og
háf, vegg
ofn og in
nbyggður
ískápur.
Gott íbúð
arlán fylgi
r með
4,15@
Eignastýrin
g
Erlendur D
avíðsson
Lögg. fast
eignasali
Svana
Ingvaldsdó
ttir
Sölufulltrú
i
elli@remax
.is
svana@re
max.is
Rólegt o
g gott um
hverfi
RE/MAX
Eignastý
ring - Sí
ðumúli 7
- 105 Re
ykjavík -
Sími: 534
4040 - w
ww.rema
x.is
534 4040
8669512
Lyngmóa
r 6
210 Garða
bær
Íbúð með
útsýni
Stærð: 8
9,5 fm
Fjöldi he
rbergja:
2
Bygginga
rár: 1978
Brunabó
tamat: 14
.700.000
Bílskúr: J
á
Verð: 21
.500.000
Björt og s
kemmtileg
a 2ja herb
,íbúð með
bílskúr, b
úið er að
endurnýja
íbúðina a
ð mestu.
Mikið og
flott
útsýni úr
stofu og
herb. Yfirb
yggðar sv
alir sem t
engjast e
ldhúsi. St
ofa og el
dhús í op
nu rými.
Nýleg
eldhúsinnr
étting me
ð keramik
helluborði
og háfi,flí
sar á milli
skápa. Fa
llegt parke
t, hvíttaðu
r askur á
gólfi í
stofu,eldh
úsi og her
b. Innbygg
ður bílskúr
17,5fm Y
firtakanleg
t áhvílandi
lán með 4
,15@ vöx
tum.
Eignastýrin
g
Erlendur D
avíðsson
Lögg. fast
eignasali
Svana
Ingvaldsdó
ttir
Sölufulltrú
i
elli@remax
.is
svana@rem
ax.is
Opið
Hús
Opið hús
Mánuda
ginn 14 j
úlí kl19-1
9.30
RE/MAX
Eignastý
ring - Sí
ðumúli 7
- 105 Re
ykjavík -
Sími: 53
44040 -
www.rem
ax.is
534 4040
8669512
vip@365.is S. 512 5426
hrannar@365.is S. 512 5441
Matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]Júlí 2008
SAMKOMUSTAÐUR SÆLKERA NEFND EFTIR E
HUNDURINN LÍKA SÁTTUR GJAFIR
Valentína Björnsdóttir
Kjötsúpa fyrir krakka
Nanna Rögnvaldardóttir skrifar
Neyðaráætlun í farteskinuEldað uppi á fjöllum
Glóðarsteikt lúða og
gómsætt meðlæti
M
ikill
styr
hefur
staðið
um
skipulagstillögur
bæjaryfirvalda á
Kársnesi í Kópavogi.
Mótmæli samtak-
anna Betri byggð á
Kársnesi urðu til
þess að bæjaryfir-
völd drógu tillögur
sínar til baka í fyrra.
Í vikunni lagði
Kópavogsbær fram
nýjar tillögur. Arna
Harðardóttir,
formaður Betri
byggðar, segir að
þær gangi enn lengra
en þær fyrri og
gagnrýnir yfirvöld
fyrir skeytingarleysi
gagnvart íbúum á
Kársnesi. Arna er
maður vikunnar.
Kappsöm, klár,
skemmtileg,
glaðlynd, traust og
fylgin sér eru hugtök
sem vinir og
vandamenn Örnu
grípa til þegar þeir
eru beðnir að lýsa
henni.
Arna ólst upp á
Siglufirði til fjögurra
ára aldurs, flutti þá
til Reykjavíkur þar
sem hún bjó þangað
til hún var ellefu ára
en þá flutti hún í
Kópavog. Þar hefur
hún búið með hléum
síðan. Þótt hún hafi
flutt ung frá
Siglufirði ber hún
enn taugar til
staðarins; átti þar
ömmu og afa sem nú
eru fallin frá en
vitjar æskustöðv-
anna reglulega.
Arna þótti rólegt
barn og meðfærilegt.
Henni hefur ávallt
gengið vel að læra og
sinnt námi sínu vel í
gegnum tíðina,hún
þótti sérstaklega
talnaglögg. Það hefur
kannski ráðið því að
hún ákvað að fara í
Verzlunaskóla
Íslands að loknum
grunnskóla. Henni
gekk alltaf vel í
viðskiptagreinum og
Verzlunarskólinn átti
vel við hana. Að
loknu stúdentsprófi
lagði hún land undir
fót og lærði hagfræði
við háskólann í
Reading á Englandi.
Þegar heim var
komið tók hún þátt í
að setja Landsbréf
Landsbankans á
laggirnar, ásamt
Gunnari Helga
Hálfdánarsyni, en
Landsbréf var eitt af brautryðjendafyrirtækjum á
sviði verðbréfaviðskipta hér á landi. Síðar fór hún
út í eigin rekstur á verðbréfamarkaði. Nokkrum
árum síðar skráði hún sig í MBA-nám við Háskól-
ann í Reykjavík, þegar það var að ryðja sér til
rúms. Þar lágu leiðir hennar og Höllu Tómasdóttur
saman, en sú síðarnefnda var lektor við HR. Þær
hafa verið nánar samstarfskonur síðan. Halla var
líka stjórnarformaður hugbúnaðarfyrirtækisins
Calidris og réði Örnu sem framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. Arna
söðlaði síðar um og
gerðist fjármálastjóri
Viðskiptaráðs árið 2007
en Halla gerði sér lítið
fyrir og nældi aftur í
Örnu og fékk hana yfir
til Auðar Capital.
Arna er sögð mikil
félagsvera og á sér
mörg áhugamál, þar á
meðal er bridds en
faðir hennar er
margfaldur Íslands-
meistari. Hún er alin
upp við spilamennsku
og í hverri viku koma
konurnar í fjölskyld-
unni saman og taka í
spil. Hún hefur mikið
keppnisskap og þó hún
sé ekki tapsár er
engum blöðum um að
fletta að það liggur
betur á henni þegar hún
hefur yfirhöndina. Auk
spilamennskunnar
finnst henni gaman að
fara í veiði, ferðast og
leggja rækt við
heimilið og fjölskyld-
una. Hún er afar
söngglöð, nýtur sín vel í
eldhúsinu og þykir
höfðingi heim að sækja.
Arna er viðskipta-
kona fram í fingur-
góma; hennar helsti
styrkleiki er sagður sá
að hún á auðvelt með að
koma auga á heildar-
myndina en á líka létt
með að setja sig inn í
smáatriði. Hún er
fæddur leiðtogi,
óhrædd við að hafa
frumkvæðið og er
ósjálfrátt falin forysta í
flestum þeim verkefn-
um sem hún tekst á
hendur. Hún velur sér
fyrst og fremst
verkefni sem hún trúir
á. Sumir kalla hana líka
„raunsæja hugsjóna-
konu“, hún er reiðubúin
að berjast fyrir því sem
hún trúir á en er
jafnframt rökföst og
með fæturna á jörðinni.
Hún á líka auðvelt með
að skilja á milli vinnu
og tómstunda. Fæstir
hafa svör á hraðbergi
þegar spurt er út í lesti
Örnu. Þó er tínt til að
hún geti verið fljótfær,
óþarflega lítillát og
gangi stundum dálítið
nærri sjálfri sér í þeim
verkefnum sem hún
tekur sér fyrir hendur.
Arna hefur aldrei
haft sérstakan áhuga á
stjórnmálum, að
minnsta kosti ekki í
hinum flokkspólitíska
skilningi. Þess vegna
kom það sumum á óvart
þegar hún tók forystu í
hagsmunasamtökum í
skipulagsmálum. Aðrir
segja að það sé einmitt
dæmigert fyrir Örnu. Þarna hafi verið mál sem
brann á mörgum íbúum á svæðinu og framtíð
hennar nánasta samfélags í húfi. Framganga
bæjaryfirvalda hafi ofboðið réttlætiskennd hennar
en í stað þess að hugsa þeim þegjandi þörfina tók
hún málin í sínar hendur. Áhugaleysi hennar á
pólitík geri líka málstað hennar trúverðugan; hún
hefur ekki áhuga á framapoti heldur helgast
barátta hennar af einlægri trú á að í tillögum
bæjaryfirvalda sé margt sem megi betur fara.
MAÐUR VIKUNNAR
Raunsæ, rökföst, lífsglöð
ARNA HARÐARDÓTTIR
ÆVIÁGRIP
Arna Harðardóttir er fædd á Siglufirði, 6. október 1965.
Foreldrar hennar eru Hörður Arnþórsson og Gréta Elín Guð-
mundsdóttir.
Arna bjó á Siglufirði til fjögurra ára aldurs, flutti þá til
Reykjavíkur þar sem hún bjó til ellefu ára aldurs en flutti
þá til Kópavogs og hefur búið þar með hléum síðan. Arna
útskrifaðist með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands
árið 1985. Þaðan lá leiðin til Englands þar sem hún lauk
BA-prófi í hagfræði frá Háskólanum í Reading og er löggiltur
verðbréfamiðlari.
Þegar heim var komið tók Arna þátt í að koma Lands-
bréfum á laggirnar áður en hún hóf rekstur á eigin fyrir-
tæki á verðbréfamarkaði. Eftir að hafa lokið MBA námi frá
Háskólanum í Reykjavík var Arna ráðin framkvæmdastjóri
hugbúnaðarfyrirtækisins Calidris frá 2003 til 2006. Árið
2007 var hún ráðin fjármálastjóri Viðskiptaráðs Íslands en
er nú forstöðumaður hjá Auði Capital. Hún er líka formaður
samtakanna Betri byggð á Kársnesi sem vinna að bættum
skipulags- og umhverfismálum í Vesturbæ Kópavogs.
Með manni sínum, Jóni Guðna Ægissyni, á Arna tvö börn,
þau Grétu og Viktor.
VANN SÉR TIL FRÆGÐAR
Skipulagði mótmæli íbúa við skipulagstillögum á Kársnesi.
Efir að um 2000 athugasemdum hafði verið komið á fram-
færi drógu bæjaryfirvöld í Kópavogi tillögurnar til baka.
HVAÐ SEGJA AÐRIR?
„Hún er ótrúlega rökföst, hún hefur afgreitt allar rökræður
sem ég hef heyrt hana taka þátt í um Kársnesið.“
Halla Tómasdóttir, samstarfskona hjá Auði Capital.
HVAÐ SEGIR HÚN?
„Þær deilur sem risið hafa upp um skipulagsmál Kársnessins
snúast ekki um atorkusaman bæjarstjóra og afturhaldssama
íbúa, heldur um afturhaldssamar skipulagsbreytingar og
áhyggjufulla íbúa.“
Í Fréttablaðinu, 1. september 2007.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki