Fréttablaðið - 19.07.2008, Síða 26

Fréttablaðið - 19.07.2008, Síða 26
 HEIMILISHALD MIKAEL MARINO RIVERA ● heimili&hönnun K arlmenn setja sér yfirleitt sínar eigin reglur hvað frágang hluta varðar, sem hefur aftur á móti fengið margar konur til að fórna höndum í uppgjöf í gegnum aldirnar. Þegar land var að byggj- ast sneru margir karlar heim úr bardögum, æddu inn um dyrnar skítugir upp fyrir haus og fleygðu frá sér vopnum út í næsta horn hús- freyjunum til mikillar gremju. Eða ætli Ásgerði Björnsdóttur og Hall- gerði langbrók hafi verið sérstaklega skemmt yfir umgengni manna sinna? Karlmönnum í þessum hópi hefur yfirleitt staðið nokk á sama þótt hlutirnir séu ekki bein- línis í röð og reglu heima fyrir. Telja golfsett- ið eða veiðistöngina fínasta stofustáss og vel til þess fallið að spjalla um þegar gesti ber að garði, enda sögur úr veiði og golfi vísar með að brjóta ísinn og vekja kátínu. Því miður er kven- peningurinn ekki alltaf á sama máli og því fá golfsettin og veiðistangirnar oft að dúsa inni í koldimmum kompum. Ég bý hins vegar yfir þeim eiginleika að koma alltaf auga á pláss og finnst alveg ótrúlegt hvað hægt er að troða miklu undir rúm, upp á skápa, á bak við hurðir og þar fram eftir götum. Enda þekki ég ekki marga sem færu hvort eð er að kíkja upp á skápa og undir rúm. Og jafnvel þótt það væri tilfellið ræki maður upp stór augu þegar draslið kæmi í ljós og þættist ekki kannast við neitt. Flestar konur sem ég þekki hata plássleysi og sumar fella hreinlega tár ef vissir hlutir komast ekki fyrir inni í skáp. Jafnvel eru dæmi um að þær hafi breytt heilu herbergjunum í kompur, í stað þess að sjá alla möguleikana sem eru fólgnir í því stafla hlutum hér og þar. Því er gott að temja sér hóflegt kæruleysi og opna augun fyrir nýjum möguleikum. Byrja til dæmis á að fjárfesta í veggfestingum, eins og al- gengt er að hafðar séu í bílskúrum, og skella upp á stofuvegg undir golf- sett og töskur og setja punktinn yfir i-ið með flottri veiðistöng. Allir þurfa sitt pláss Þegar land var að byggjast sneru marg- ir karlar heim úr bardögum, æddu inn um dyrnar skítugir upp fyrir haus og fleygðu frá sér vopnum út í næsta horn húsfreyjunum til mikillar gremju. ● Forsíðumynd: Auðunn Níelsson tók mynd í garði Auðar Ottesen Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@ frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlits- hönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. „Sófinn minn sem ég keypti í Seat- ing Consept er uppáhaldshlutur- inn á heimilinu. Ég fékk hann fyrir þremur árum og það sér ekki á honum,“ segir Jane brosandi og bætir við að þó sé hann vinsælasta húsgagnið á heimilinu. „Þetta er gráyrjóttur tungu- sófi,“ upplýsir Jane. Hún segir að hægt sé að draga út sessurnar sem ekki séu tungur og þá sé hann eins og hjónarúm. „Þannig að þetta er líka svefnsófi.“ Sófinn er að sögn Jane mjög vinsæll, bæði við sjónvarpsáhorf á kvöldin og einnig þegar gest- ir kíkja í heimsókn á daginn. „Við gestirnir tyllum okkur í sófann og spjöllum en hann er þó notaður mest á kvöldin því mikið er horft á sjónvarp á heimilinu enda erum við með lítið barn þannig að við erum bara heima á kvöldin.“ Jane segir að sófinn hafi alltaf verið jafn vinsæll. „Mér finnst oft eins og ég hafi bara verið að eignast hann því ég er svo hrifin af honum.“ „Ég var búin að leita mér að sófa í um ár,“ segir Jane þegar hún er innt eftir því hvað hafi heillað hana við sófann. „Það er svo góður litur á honum en það er númer eitt, tvö og þrjú að sófinn sé flottur. Og svo var hann líka þægilegur,“ út- skýrir hún með dreymandi tón. Heimili Jane bendir til þess að hún sé listakona því á veggjum hanga abstrakt landslagsmyndir og aðspurð segist hún hafa málað þær. „Ég hef málað alveg frá því að ég man eftir mér. Ég fór svo að gefa mér tíma í myndlistina þegar ég byrjaði í fæðingarorlofi fyrir þremur árum og í kjölfarið hélt ég fyrstu sýninguna mína.“ „Fjölskyldan mín segir að ég sé svakalega ofvirk,“ segir Jane þegar hún er innt eftir því hvernig hún geti stundað myndlistina, unnið á fyrirtækjasviði SPRON og annast barnið sitt. „Mér finnst ég slaka rosalega á við að mála.“ Jane segist nýlega hafa sett upp myndlistarsýningu á Sólon og svo hanga verk eftir hana á hár- greiðslustofunni Eplinu. -mmf Sófi sem eldist vel ● Jane María Sigurðardóttir listakona á vinsælan tungusófa í sjónvarpsherberginu sínu. Jane María segir sófann þægilegan og myndlistin minni á sig þegar hún situr undir einni af abstrakt landslagsmyndum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN 19. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.