Fréttablaðið - 19.07.2008, Qupperneq 26
HEIMILISHALD
MIKAEL MARINO RIVERA
● heimili&hönnun
K
arlmenn setja sér yfirleitt sínar eigin reglur hvað frágang hluta
varðar, sem hefur aftur á móti fengið margar konur til að fórna
höndum í uppgjöf í gegnum aldirnar. Þegar land var að byggj-
ast sneru margir karlar heim úr bardögum, æddu inn um dyrnar
skítugir upp fyrir haus og fleygðu frá sér vopnum út í næsta horn hús-
freyjunum til mikillar gremju. Eða ætli Ásgerði Björnsdóttur og Hall-
gerði langbrók hafi verið sérstaklega skemmt
yfir umgengni manna sinna?
Karlmönnum í þessum hópi hefur yfirleitt
staðið nokk á sama þótt hlutirnir séu ekki bein-
línis í röð og reglu heima fyrir. Telja golfsett-
ið eða veiðistöngina fínasta stofustáss og vel
til þess fallið að spjalla um þegar gesti ber að
garði, enda sögur úr veiði og golfi vísar með að
brjóta ísinn og vekja kátínu. Því miður er kven-
peningurinn ekki alltaf á sama máli og því fá
golfsettin og veiðistangirnar oft að dúsa inni í
koldimmum kompum.
Ég bý hins vegar yfir þeim eiginleika að
koma alltaf auga á pláss og finnst alveg ótrúlegt
hvað hægt er að troða miklu undir rúm, upp á skápa, á bak við hurðir og
þar fram eftir götum. Enda þekki ég ekki marga sem færu hvort eð er að
kíkja upp á skápa og undir rúm. Og jafnvel þótt það væri tilfellið ræki
maður upp stór augu þegar draslið kæmi í ljós og þættist ekki kannast
við neitt.
Flestar konur sem ég þekki hata plássleysi og sumar fella hreinlega
tár ef vissir hlutir komast ekki fyrir inni í skáp. Jafnvel eru dæmi um
að þær hafi breytt heilu herbergjunum í kompur, í stað þess að sjá alla
möguleikana sem eru fólgnir í því stafla hlutum hér og þar.
Því er gott að temja sér hóflegt kæruleysi og opna augun fyrir nýjum
möguleikum. Byrja til dæmis á að fjárfesta í veggfestingum, eins og al-
gengt er að hafðar séu í bílskúrum, og skella upp á stofuvegg undir golf-
sett og töskur og setja punktinn yfir i-ið með flottri veiðistöng.
Allir þurfa sitt pláss
Þegar land var að
byggjast sneru marg-
ir karlar heim úr
bardögum, æddu inn
um dyrnar skítugir
upp fyrir haus og
fleygðu frá sér
vopnum út í næsta
horn húsfreyjunum
til mikillar gremju.
● Forsíðumynd: Auðunn Níelsson tók mynd í garði Auðar
Ottesen Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105
Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@
frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlits-
hönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
„Sófinn minn sem ég keypti í Seat-
ing Consept er uppáhaldshlutur-
inn á heimilinu. Ég fékk hann fyrir
þremur árum og það sér ekki á
honum,“ segir Jane brosandi og
bætir við að þó sé hann vinsælasta
húsgagnið á heimilinu.
„Þetta er gráyrjóttur tungu-
sófi,“ upplýsir Jane. Hún segir að
hægt sé að draga út sessurnar sem
ekki séu tungur og þá sé hann eins
og hjónarúm. „Þannig að þetta er
líka svefnsófi.“
Sófinn er að sögn Jane mjög
vinsæll, bæði við sjónvarpsáhorf
á kvöldin og einnig þegar gest-
ir kíkja í heimsókn á daginn. „Við
gestirnir tyllum okkur í sófann og
spjöllum en hann er þó notaður
mest á kvöldin því mikið er horft
á sjónvarp á heimilinu enda erum
við með lítið barn þannig að við
erum bara heima á kvöldin.“ Jane
segir að sófinn hafi alltaf verið jafn
vinsæll. „Mér finnst oft eins og ég
hafi bara verið að eignast hann því
ég er svo hrifin af honum.“
„Ég var búin að leita mér að
sófa í um ár,“ segir Jane þegar hún
er innt eftir því hvað hafi heillað
hana við sófann. „Það er svo góður
litur á honum en það er númer eitt,
tvö og þrjú að sófinn sé flottur. Og
svo var hann líka þægilegur,“ út-
skýrir hún með dreymandi tón.
Heimili Jane bendir til þess að
hún sé listakona því á veggjum
hanga abstrakt landslagsmyndir
og aðspurð segist hún hafa málað
þær. „Ég hef málað alveg frá því
að ég man eftir mér. Ég fór svo að
gefa mér tíma í myndlistina þegar
ég byrjaði í fæðingarorlofi fyrir
þremur árum og í kjölfarið hélt ég
fyrstu sýninguna mína.“
„Fjölskyldan mín segir að ég
sé svakalega ofvirk,“ segir Jane
þegar hún er innt eftir því hvernig
hún geti stundað myndlistina,
unnið á fyrirtækjasviði SPRON og
annast barnið sitt. „Mér finnst ég
slaka rosalega á við að mála.“
Jane segist nýlega hafa sett
upp myndlistarsýningu á Sólon og
svo hanga verk eftir hana á hár-
greiðslustofunni Eplinu. -mmf
Sófi sem eldist vel
● Jane María Sigurðardóttir listakona á vinsælan tungusófa í sjónvarpsherberginu sínu.
Jane María segir sófann þægilegan og myndlistin minni á sig þegar hún situr undir
einni af abstrakt landslagsmyndum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
19. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR2