Fréttablaðið - 19.07.2008, Qupperneq 32
● heimili&hönnun
Þ essar skemmtilegu húsaklukkur eru hannaðar af listakonunni og
guðfræðinemanum Sigríði Sigurðar-
dóttur. Hún segist hafa fengið
hugmyndina fyrirvaralaust og útfært
hana þar til hún var orðin sátt með
verkið. „Þetta fannst mér sniðugt að
gera, því klukkurnar eru bæði nytja-
hlutur og skraut.“ Klukkurnar eru til í
ýmsum litum og hægt að sérpanta í
þær öðrum lit sé þess óskað. Þær fást
í Handverkshúsi Mosfellsbæjar, sem
Sigríður rekur ásamt sex listakonum.
Í Handverkshúsinu eru vinnustofur
listakvennanna, verslun og nám-
skeið á þeirra vegum á veturna. „Við
erum til skiptis í versluninni þegar
hún er opin og sjáum þannig alfarið
um þetta,“ segir Sigríður brosandi
og bætir við að starfið sé mjög
skemmtilegt. Sjá www.glerkunst.
com og www.handmoso.com. -mmf
19. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR
Sigríður Sigurðardóttir listakona hannar
húsaklukkurnar. MYND/ÚR EINKASAFNI SIGRÍÐAR.
EGGIÐ HÁLFRAR ALDAR GAMALT Nú eru liðin 50 ár frá því að danski húsgagnahönnuðurinn Arne Jacobsen kynnti
Eggið til sögunnar. Stóllinn hefur átt miklum vinsældum að fanga frá því hann kom fyrst á markaðinn en hann var upphaflega
hannaður fyrir móttökusvæði Radison SAS-hótelsins í Kaupmannahöfn. Í tilefni afmælisins hefur hönnuðurinn Tal R
hannað Egg-stóla í takmörkuðu upplagi. Aðeins 999 stólar eru til sölu og eru þeir til í 50 útgáfum. Stólarnir eru gerðir
úr efnisbútum sem hönnuðurinn safnaði hvaðanæva úr heiminum, en meðal staða má nefna Istanbúl, Berlín, New York,
Ísrael og Danmörku. „Hugmyndin var að gera stóla sem segja margs konar sögur, þess vegna urðu efnisbútarnir að vera
fullir af lífi. Ég vildi að stólarnir litu dálítið út eins og þær væru heimagerðir,“ útskýrði Tal.
P eter Sipos er hönnuður frá Slóvakíu sem hefur sérhæft sig
í glerhönnun. Hann mun taka þátt
í The European Glass Context 2008
sem haldin verður á dönsku eyjunni
Bornholm í september, þar sem stór
hópur listamanna mun koma saman
og sýna hönnun sína.
Verk Sipos er meðal annars til
sýnis á vefsíðunni designeast.eu,
sem var nýverið sett á laggirnar til að
koma hönnuðum frá Mið- og Austur-
Evrópu á framfæri. Gefur þar meðal
annars að líta á verk eftir hönnuði
frá Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi,
Rússlandi, Ungverjalandi og Serbíu.
Þar er líka að finna upplýsingar um
sýningar og uppákomur sem tengj-
ast hönnun á þessum slóðum.
Áhugasömum er bent á http://
designeast.eu. Til að sjá hvaða gler-
listarsýningar verða í haust er hægt
að kíkja á www.glass08.com. -kka
Glervasar eftir Peter Sipos.
Nytjahlutir og
fínasta punt
Fáguð hönnun
10