Fréttablaðið - 19.07.2008, Qupperneq 50
30 19. júlí 2008 LAUGARDAGUR
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son, landsliðsmaður í handknatt-
leik, leikur tímamótaleik gegn
Spánverjum í Vodafonehöllinni í
dag. Þá verður hann vígður inn í
200 landsleikjaklúbbinn og verður
fimmtándi landsliðsmaðurinn í
handknattleik til að ná þeim
áfanga að leika 200 landsleiki.
Guðjón Valur klæddist lands-
liðsbúningnum fyrst í leik gegn
Ítalíu í Haarlem í Hollandi 15.
desember 1999 og hefur hann
verið einn af lykilmönnum lands-
liðsins frá Evrópumóti landsliða í
Króatíu 2000. Hann hefur leikið
síðustu 64 landsleiki Íslands á tíu
stórmótum, eða alla nema tvo
fyrstu af sex á EM í Króatíu.
Einar Þorvarðarson, núverandi
framkvæmdastjóri HSÍ, var fyrsti
leikmaðurinn til að ná 200 lands-
leikja markinu. Hann lék sinn 200.
landsleik gegn Tékkum í Laugar-
dalshöllinni 21. janúar 1989. Á
eftir Einari komust þeir Jakob
Sigurðsson, 1990, Júlíus Jónasson,
1994, og Valdimar Grímsson, 1995,
í 200 leikja klúbbinn.
Guðmundur Hrafnkelsson er sá
leikmaður sem hefur leikið flesta
landsleiki, eða 396 leiki. Aðeins
einn annar leikmaður hefur leikið
yfir 300 leiki. Það er Geir Sveins-
son, sem lék 328 landsleiki.
Ólafur Stefánsson kemst upp í
þriðja sætið á landsleikjalistanum
í dag er hann leikur sinn 271.
landsleik.
Eins og staðan er í dag eru mest-
ar líkur á að Snorri Steinn Guð-
jónsson og Róbert Gunnarsson
verði næstu leikmennirnir til að
komast í 200 leikjaklúbbinn.
Snorri Steinn hefur leikið 132
landsleiki og Róbert 130 lands-
leiki.
- egm
Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson er á leiðinni í myndarlegan hóp:
Guðjón í 200 leikja klúbbinn
200 LEIKJA MAÐUR Guðjón Valur spilar tímamótalandsleik í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTALANDSLEIKIR
Hér gefur að líta lista yfir þá leik-
menn sem hafa leikið 200 landsleiki
eða fleiri. Fyrir aftan leikina eru árin
sem viðkomandi var í landsliðinu.
396 (1986-2005) Guðmundur Hrafnk.
328 (1984-1999) Geir Sveinsson
270 (1992- 2008) Ólafur Stefánsson
270 (1984-1999) Júlíus Jónasson
259 (1985-2000) Valdimar Grímsson
238 (1980-1992) Kristján Arason
236 (1983-1992) Jakob Sigurðsson
236 (1981-1990) Þorgils Ó Mathiesen
236 (1976-1995) Sigurður Sveinsson
233 (1990-2005) Patrekur Jóhannes.
226 (1980-1990) Einar Þorvarðarson
226 (1980-1990) Guðmundur Þ. Guð.
217 (1987-1999) Bjarki Sigurðsson
216 (1992-2005) Dagur Sigurðsson
199 (1999-2008) Guðjón V. Sigurðs.
Vináttulandsleikur í handb.
Ísland-Spánn 34-35 (16-16)
Mörk Íslands (skot): Snorri Steinn Guðjónsson
8/5 (13/5), Róbert Gunnarsson 5 (5), Arnór
Atlason 5 (9), Ásgeir Örn Hallgrímsson 4 (5),
Guðjón Valur Sigurðsson 4 (6), Logi Geirsson 3
(7), Ólafur Stefánsson 2 (3), Alexander Petterson
2 (5), Sigfús Sigurðsson 1 (1).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 21/4 (53/8
39,6%), Hreiðar Guðmundsson 1/1 (4/2 25%)
Hraðaupphlaup: 11 (Guðjón 4, Logi 2, Ásgeir 2,
Arnór, Sigfús, Alexander)
Fiskuð víti: 5 (Snorri, Arnór, Guðjón, Róbert,
Sverre)
Utan vallar: 8 mínútur
Mörk Spáns (skot): Juan Garcia 6/2 (9/3),
Cristian Malmagro 5/2 (6/2), Carlos Prieto 4 (6),
Alberto Entrerrios 3 (3), Iker Romero 3 (5/1),
Victor Tomas 3/1 (4/2), Albert Rocas 3 (4/1), Ion
Belaustegui 2 (4), David Davis 2 (5), Demetrio
Lozano 2 (1), Ruben Garabaua 1 (3), Carlos
Ruesga 1 (4/1),
Varin skot: Jose Javier Hombrados Ibanez 15
(47/4 31,9%), David Barrufet Bofill (1/1 0%)
Hraðaupphlaup: 10 (Prieto 2, Davis 2, Garcia 2,
Rocas 2, Tomas, Lozano)
Fiskuð víti: 10 (Prieto 4, A. Entrerrios 3, Romero,
Rocas, Garabaua)
Utan vallar: 10 mínútur
ÚRSLIT
Fyrsti leikurinn í seinni umferð
Landsbankadeildar karla í fótbolta
fer fram í dag þegar topplið Kefla-
víkur heimsækir Íslandsmeist-
ara Vals á Vodafone-völlinn
á Hlíðarenda og hefst
leikurinn kl. 14.00. Kefl-
víkingar komu flestum
á óvart með því að
skella Valsmönnum
5-3 í fyrstu umferð
Íslandsmótsins á
Sparisjóðsvellin-
um en Íslandsmeistar-
arnir höfðu vart stigið
feilspor á öllu undirbún-
ingstímabilinu. Guðmundur Stein-
arsson, fyrirliði Keflvíkinga, er hvergi banginn
fyrir leikinn í dag og telur að Keflvíkingar
þurfi bara að einbeita sér að þeim hlutum
sem liðið hefur verið að vinna í undanfarið.
„Ég veit að Valsmenn koma alveg
dýrvitlausir í þennan leik og vilja eflaust
launa okkur lambið gráa, en við verð-
um bara að einbeita okkur að okkur
sjálfum. Það hefur sýnt sig að þegar
Keflavíkurliðið er að leika sem ein
liðsheild, þá náum við árangri og
ef við ætlum að fá eitthvað út
úr þessum leik þá verðum við að
standa saman sem eitt lið,“ sagði
Guðmundur sem er ánægður
með hvernig deildin er að
þróast í sumar.
„Það virðist vera þannig
að liðin sem þora að
sækja og koma í leikina til
þess að skora mörk og
vinna að þeim gengur vel og það er
jákvæð þróun,“ sagði Guðmundur.
Húsvíkingurinn Pálmi Rafn Pálma-
son, miðjumaður Vals, leikur kveðju-
leik með Hlíðarendaliðinu í dag þar
sem hann er á leiðinni til norska
liðsins Stabæk og hann vill vitanlega
enda á sigri.
„Ég ætla að gera allt sem í mínu
valdi stendur til þess að enda þetta á
sigri. Við brotlentum líka harkalega í
Keflavík í fyrstu umferðinni þannig að
við eigum harma að hefna gegn þeim.
Það hefur ef til vill ekki farið mikið fyrir
okkur í sumar en leikur okkar hefur
verið að lagast jafnt og þétt og við
erum bara í ágætri stöðu til þess að gera
atlögu að toppbaráttunni,“ sagði Pálmi.
LANDSBANKADEILD KARLA: KEFLVÍKINGAR OG VALSMENN HEFJA SEINNI UMFERÐINA Í DAG KL. 14
Valur á harma að hefna gegn Keflavík
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands
> Ólöf komst í gegnum niðurskurð
Ólöf María Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, komst
auðveldlega í gegnum niðurskurð í gær á Opna ítalska
BMW-mótinu sem fram fer í Toskana héraði á Ítalíu
þessa dagana. Ólöf María lék fyrsta hringinn í fyrradag á
73 höggum en bætti um betur í gær þegar hún lék á 72
höggum og er sem stendur í 21.-25. sæti þegar keppnin
á mótinu er hálfnuð. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni
og þar er Ólöf María í 130. sæti á peningalistanum en
hún þarf að vera í einu að 90 efstu
sætunum á þeim lista til þess
að halda keppnisréttinum á
næsta tímabili Evrópumótarað-
arinnar.
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Ísland beið lægri hlut
gegn Spáni, 34-35, í vináttulands-
leik í Vodafone höllinni að Hlíðar-
enda í gærkvöldi í spennandi leik.
Spánverjar byrjuðu betur og
komust í 5-1 á fyrstu fimm mínút-
unum. Íslenska liðið vaknaði þá til
lífsins, besti maður Íslands í leikn-
um Björgvin Gústavsson fór að
verja og liðið náði að jafna metin
fyrir leikhlé, 16-16.
Ísland hélt uppteknum hætti
framan af síðari hálfleik og náði
mest þriggja marka forystu, 23-
20, og 25-22 þegar korter var eftir
af leiknum. Þá fór að hægjast á
sóknarleik íslenska liðsins og
Spánverjar jöfnuðu metin, 32-32,
þegar þrjár mínútur voru eftir.
Endaspretturinn var æsispenn-
andi en Spánverjar höfðu að lokum
betur, 35-34. Mörg batamerki var
að sjá á leik Íslands frá því í
umspili HM gegn Makedóníu og
greinilegt að æfingar liðsins eru
að skila sér.
Björgvin Gústavsson fór á kost-
um í markinu og var maður leiks-
ins. Hann varði ófá dauðafæri auk
þess að verja þrjú vítaköst á fyrstu
sjö mínútum síðari hálfleiks en
Spánverjar áttu greiða leið á víta-
punktinn í leiknum.
Björgvin segist lítið velta því
fyrir sér hvort hann verði valinn í
lokahópinn sem fer til Peking en
hann segist vera í toppformi.
„Ég er allur að komast á flug. Ég
var úti með þýska liðinu mínu í
Hong Kong þar sem við spiluðum
fimm leiki og ég er með ákveðið
forskot að vera í mjög góðri leik-
æfingu.“
„Spánverjar eru með hrikalega
sterkt lið. Við erum að púsla okkur
saman og það var margt gott í
leiknum sem við getum unnið á en
það eru líka nokkur atriði sem við
getum lagað sem er gott að eiga
inni,“ sagði Björgvin um leik
Íslands gegn Spáni. -gmi
Naumt tap gegn sterkum Spánverjum
Slakur lokasprettur varð þess valdandi að íslenska landsliðið beið eins marks ósigur, 34-35, gegn öflugu liði
Spánverja í fyrsta leik sínum í undirbúningi fyrir Ólympíuleikana í Peking. Liðin mætast á nýjan leik í dag.
HARÐFYLGI Snorri Steinn Guðjónsson stekkur hér upp og lætur vaða að marki Spánverja og skorar eitt af átta mörkum sínum í
vináttulandsleik þjóðanna í Vodafone-höllinni í gærkvöld. Spánverjar fóru að lokum með sigur af hólmi 34-35. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON