Fréttablaðið - 16.09.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Mænan er ráðgáta
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
16. september 2008 — 252. tölublað — 8. árgangur
AUÐUR INGIBJÖRG KONRÁÐSDÓTTIR
Gerðist grænmetisæta
og endurheimti orkuna
• heila • nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég tók eftir því að ég var alltaf
svo þreytt, kornung manneskjan.
Mér fannst þetta ekkert eðlilegt,“
rifjar Auður upp. Á þeim tíma
stundaði hún nám í kokkafræð-
um og vann með strák
grænmetismat hjá mér. Þau eru
forvitin að vita hvað ég er að gera
og mjög dugleg að smakka og
borða matinn.“Auð
syndi og geng mikið og það er
alltaf hægt að plata mig í gönguren ekki mikið
Kornung og alltaf þreytt
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir gerðist grænmetisæta fyrir fimmtán árum þegar hún var við matreiðslu-
nám. Þá var hún alltaf þreytt og lúin og sætti sig ekki við ástandið.
Auður Ingibjörg sérhæfir sig í matreiðslu grænmetisfæðis en hún gerðist grænmetisæta fyrir fimmtán árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DALE CARNEGIE -námskeið fyrir unglinga hefjast á næst-
unni og er skráning þegar hafin. Námskeiðin eru sögð henta
unglingum sem vilja efla sjálfstraustið og ná árangri í lífinu. Allar
nánari upplýsingar um námskeiðin, innihald og umsagnir er að
finna á www.naestakynslod.is.
BORÐAÐU ÞIG HOLLARI!
Vægttab 30 kilo på 30 uger
Auðveldar
þér að léttast
Losaðu þig við 5 kíló á 5 vikum
Nýtt og yfirfarið matarprógram,sem hjálpar þér við að losa þig við aukakilóin.
Lærðu um það hvernig þú borðar fjölbreyttar máltíðir með hollum og góðum mat.
GARÐABÆ
REYKJAVÍK
REYKJANESBÆR
AKUREYRI
NÝTT MATAR-
PRÓGRAM
Léttist um 30 kíló á 30 vikum
MÆNAN ER RÁÐGÁTA
Landssöfnun Mænu-
skaðastofnunar Íslands
Sérblað um Mænuskaðastofnun Íslands
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÞÓRARINN INGI JÓNSSON
Sprengjulist
sögð heimskuleg
Fékk skilorðsbundinn dóm í Kanada
FÓLK 24
Mikill heiður
Björgvin Halldórs-
son er Gaflari
ársins 2008.
FÓLK 22
TÓNLIST „Þetta kom svo sem
ekkert á óvart. Ég var búinn að
spá því í vor að þetta yrði gert,“
segir Jónatan Garðarsson
Eurovision-sérfræðingur.
Ákveðið hefur verið að dóm-
nefndir frá þátttökuþjóðunum í
Eurovision muni á nýjan leik taka
þátt í að velja sigurlag keppninn-
ar, sem verður haldin í Moskvu
næsta vor.
Dómnefndirnar fá núna að
dæma í úrslitunum en almenning-
ur kýs áfram í símakosningu
þjóðirnar sem komast upp úr
undanúrslitunum. Ekki hefur
verið ákveðið hvert vægi dóm-
nefndarinnar verður.
- fb / sjá síðu 30
Breytt skipulag í Eurovision:
Dómnefndir
fá aukið vægi
EUROBANDIÐ Eurobandið náði fjórtánda
sæti í síðustu úrslitakeppni, sem var
haldin í Belgrad.
Mikilmennis minnst
Fyrirlestur í minn-
ingu franska
land könnuðarins
Jean-Baptiste
Charcot verður
fluttur í dag.
TÍMAMÓT 18
Fjötur eða frelsi
„Stundum villumst við á skoðun-
um og staðreyndum og íklæðumst
þeim til frambúðar. Festumst inni
í þeim,“ skrifar Jónína Michaels-
dóttir.
Í DAG 16
ROK OG RIGNING Í dag verður
vaxandi sunnan átt, 10-18 m/s,
hvassast vestan til með kvöldinu.
Mikil rigning sunnan og vestan
þegar líður á daginn en lengst af
bjart austan til. Hiti 10-16 stig.
VEÐUR 4
13
13
12
12
12
Ekki af baki dottinn
Knattspyrnukappinn
Haukur Ingi Guðnason
ætlar að halda áfram í
fótbolta á meðan
enn er gaman í
boltanum.
ÍÞRÓTTIR 26
VIÐSKIPTI „Í ljósi þeirra atvika sem
átt hafa sér stað síðustu daga vegna
málefna Hf. Eimskipafélags Íslands
mun möguleg yfirtökuskylda í
félaginu verða könnuð,“ segir
Hákon Már Pétursson, lögfræðing-
ur hjá Fjármálaeftirlitinu.
Eftir gjaldþrot XL Leisure
Group fellur 280 milljóna Banda-
ríkjadala ábyrgð á Eimskipafélag-
ið, vegna láns Landsbankans til
stjórnenda XL. Sú upphæð jafn-
gildir ríflega 25,5 milljörðum
króna. Fram hefur komið að Björg-
ólfsfeðgar ætla að ábyrgjast þessa
fjármuni. Komið hefur til tals að
þessu verði breytt í hlutafé í Eim-
skipafélaginu.
Ekkert mun þó vera ákveðið um
það enn sem komið er. Stjórnend-
ur Eimskips hafa sagt að litið verði
á ábyrgð feðganna sem lán. Það
víki fyrir öðrum lánum en gangi
framar hlutafé.
Björgólfur Guðmundsson á um
þriðjungshlut í Eimskipafélaginu,
en yfirtökuskylda myndast við
fjörutíu prósenta hlut.
Vangaveltur hafa verið um
hvort Magnús Þorsteinsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður Eim-
skips, eigi í raun þriðjungshlut í
félaginu. Magnús segir svo vera, í
samtali við Markaðinn. Staða Eim-
skips sé alvarleg.
- ikh, bih / sjá síðu 4
Ábyrgð Björgólfsfeðga á skuldum Eimskips vekur athygli Fjármálaeftirlitsins:
Björgólfsfeðgar kannski yfirtökuskyldir
ANGIST Á MARKAÐI Alþjóðlegir hlutabréfamarkaðir tóku dýfu í gær með gjaldþroti Lehman Brothers-fjárfestingarbankans og
kaupum Bank of America á Merrill Lynch. Fjármálafyrirtæki urðu einna verst úti og hér á landi fór úrvalsvísitalan niður um
3,7 prósent þegar verst lét. Óhætt er að segja að uppi hafi orðið fótur og fit í kauphöllinni í Sao Paulo en þar féll hlutabréfa-
markaðurinn um fjögur prósent. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐRIÐ Í DAG
VIÐSKIPTI Erfiðleikar í rekstri
margra af stærstu fjármálafyrir-
tækjum heims eru líklegir til að
flýta fyrir því sem ýmsir telja
nauðsynlegan samruna íslenskra
fjármálafyrirtækja.
Markaðurinn hefur heimildir
fyrir því að töluverður gangur sé
kominn í samrunaviðræður Glitnis
og sparisjóðsins Byrs, sem nýlega
var breytt í hlutafélag. Þá er einnig
til alvarlegrar skoðunar meðal
stórra eigenda í Landsbankanum
og Straumi að félögin tvö gangi í
eina sæng á næstu dögum eða
vikum.
Samkeppniseftirlitið hefur sam-
runa Kaupþings og SPRON enn til
skoðunar og hefur haft um nokkurt
skeið. Heimildir Markaðarins
herma að óánægja sé með það
hversu lengi sú skoðun hefur tekið,
því öll óvissa sé óþægileg á við-
kvæmum tímum.
Einn heimildarmanna Markaðar-
ins bendir á að samruni risafyrir-
tækjanna Bank of America og
Merrill Lynch hafi verið keyrður í
gegn á 48 klukkustundum og án
athugasemda frá eftirlitsstofnun-
um. Hér taki það hins vegar margar
vikur að fá skorið úr mun smærri
málum. Slíkar tafir geti verið afar
kostnaðarsamar.
Búist er við að Fjármálaeftirlitið
leggi blessun sína yfir hlutafjár-
væðingu Byrs í þessari viku. Eig-
endur sparisjóðsins hafa átt í
óformlegum viðræðum við stærstu
hluthafa í Glitni um samruna og
munu þær viðræður vera langt
komnar.
Mikil tengsl eru milli stærstu
hluthafa í Landsbankanum og fjár-
festingarbankanum Straumi. Björg-
ólfur Guðmundsson er formaður
bankaráðs Landsbankans, en sonur
hans Björgólfur Thor er stjórnar-
formaður Straums. Bæði félögin
sjá fram á auknar afskriftir, meðal
annars vegna málefna Eimskipa-
félagsins, og er talið að sameinað
félag yrði mun sterkara á eftir, með
ágætt eiginfjárhlutfall og dreifðari
áhættu.
Heimildarmenn Markaðarins
segja að mikið verði um samruna á
fjármálamarkaði á næstu dögum
og vikum. Það sé einnig alþjóðleg
þróun, því víða hafi lokast á aðgengi
að fjármagni og það bitni einkum á
smærri fjármálafyrirtækjum, til
dæmis sparisjóðunum. - bih, óká
Flýta viðræðum um
samruna bankanna
Líkur eru á að einhver íslensk fjármálafyrirtæki verði sameinuð á næstunni.
Töluverður gangur er kominn í samrunaviðræður Glitnis og sparisjóðsins Byrs.
Þá er einnig til alvarlegrar skoðunar að Landsbankinn og Straumur sameinist.
EFNAHAGSMÁL „Ísland býr að
óvenju sterkum auðlindum. [...]
Við erum því kannski betur búin
en margar aðrar þjóðir til þess að
mæta sviptivindum í viðskipta-
kerfum heimsins,“ segir Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
um þá vá sem steðjar að í efna-
hagslífinu. „Það er mikilvægt
að tapa ekki áttum þótt einhver
áföll verði í hinum alþjóðlega við-
skiptageira.“
Ólafur Ragnar segir að sveiflur
séu kjarninn í frjálsu markaðs-
kerfi. Einnig verði að hafa í huga
að þungamiðjan í hagkerfi heims-
ins sé að færast til. Þróun í Banda-
ríkjunum og Evrópu hafi því ekki
sömu grundvallaráhrif og áður.
- jse / sjá síðu 10
Ólafur Ragnar Grímsson:
Stöndum betur
að vígi en aðrir