Fréttablaðið - 16.09.2008, Síða 4
4 16. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
VIÐSKIPTI „Þessi staða er auðvitað
alvarleg,“ segir Magnús Þorsteins-
son, fyrrverandi stjórnarformaður
Eimskipafélagsins og stærsti eig-
andi þess.
Gengi hlutabréfa í Eimskipa-
félagsinu hefur fallið hratt undan-
farna daga. Frá áramótum hefur
gengi bréfanna lækkað um áttatíu
prósent og er markaðsvirðið nú ríf-
lega ellefu milljarðar króna.
Skuldir félagsins námu sem svarar
um 150 milljörðum króna um mitt
árið.
Magnús segir að alvarleg staða
sé ekki bundin við Eimskipafélagið.
Áföll dynji yfir á öllum sviðum í
viðskiptalífi heimsins.
Eimskipafélagið afskrifaði í vor
74 milljónir evra, ríflega níu
milljarða króna, á einu bretti vegna
breska félagsins Innovate. Þá féll
25,5 milljarða króna ábyrgð á
félagið fyrir helgi við gjaldþrot XL
Leisure Group.
Þá ábyrgist félagið sautján millj-
arða skuldir flugfélagsins Atlanta,
en er með veð í ellefu flugvélum.
Fram kom í breskum miðlum um
helgina að stjórnendur XL Leisure
hefðu verið varaðir við ákveðinni
óreglu í fjármálum félagsins fyrir
tveimur árum. Það varð til þess að
KPMG sagði sig frá endurskoðun.
Fjármálaeftirlitið rannsakaði
málið, að því er fram kemur í yfir-
lýsingu. Niðurstaðan varð ljós seint
á síðasta ári, og var sú að stjórn-
endur Avion Group, nú Eimskipa-
félagið, hefðu hvorki tekið þátt í né
vitað nokkuð um málið.
Fram kemur í yfirlýsingu fjár-
málaeftirlitsins að KPMG hafi gert
athugsemdir við færslu tiltekinna
reikninga milli Excel Airways,
síðar XL Leisure. Staða Excel á til-
teknu uppgjörstímabili hefði verið
fegruð.
„Komi fram nýjar
vísbendingar varð-
andi þetta mál verða
þær skoðaðar,“ segir
í yfirlýsingu frá
Fjármálaeftirlitinu.
Magnús Þorsteins-
son segir við Markað-
inn, að hann hafi sjálfur vakið
athygli Fjármálaeftirlitsins á mál-
inu á sínum tíma.
Stjórn Eimskips hefur hafið
rannsókn á tilteknum atriðum sem
tengjast félaginu „frá fyrri tíð“
eins og það er orðað í tilkynningu.
Stjórnendur félagsins tjá sig ekki
frekar um málið. Hvorki Björgólfur
Guðmundsson né Björgólfur Thor
Björgólfsson hafa gefið kost á við-
tali.
Fjármálaeftirlitið íhugar hvort
yfirtökuskylda hafi myndast hjá
Björgólfsfeðgum. Þá hefur eftirlit-
ið enn til rannsóknar hvort Eim-
skip hafi brotið gegn upplýsinga-
skyldu vegna afskrifta á breska
félaginu Innovate.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrotadeildar
Ríkis lögreglustjóra, segir málefni
Eimskips ekki vera til rannsóknar
þar. Engar upplýsingar liggi fyrir
um mál, til að mynda það sem
varðar KPMG, annað en það sem
komið hafi fram um í fjölmiðlum
um helgina.
Ítarlegt viðtal
við Magnús Þor-
steinsson verð-
ur birt í Mark-
aðnum sem
fylgir Frétta-
blaðinu á morg-
un. - ikh, bih
Sjónvarpsþátturinn Sjálfstætt fólk
hefur göngu sína næstkomandi
sunnudag, þegar rokkarinn Eiríkur
Hauksson verður gestur Jóns Ársæls,
en ekki síðastliðinn sunnudag eins og
fram kom í Fréttablaðinu.
LEIÐRÉTTING
Rangt var farið með verð á H.C.
Andersen-bókahillu frá Tekk Comp-
any í blaðinu í gær. Hillan kostar 120
þúsund krónur.
SKOÐANAKÖNNUN Alls 55,4 prósent
segjast vera mjög eða frekar
hlynnt því að taka upp evru sem
gjaldmiðil á Íslandi í stað íslensku
krónunnar, samkvæmt könnun
Capacent Gallup fyrir Samtök iðn-
aðarins sem gerð var í ágúst.
30,3 prósent eru mjög eða frek-
ar andvíg því að taka upp evru í
stað krónunnar. 14,3 prósent segj-
ast vera hvorki hlynnt né andvíg
slíkum gjaldmiðilsbreytingum.
Í sambærilegri könnun Capac-
ent í janúar fyrir Samtök iðnaðar-
ins sögðust 47,8 prósent vera því
fylgjandi að taka upp evru í stað
krónunnar.
Afgerandi fleiri karlar en konur
eru hlynntir upptöku evru. 62,6
prósent karla eru hlynntir upp-
töku evru, en 48,4 prósent kvenna
eru sama sinnis.
Stærstur hluti kjósenda allra
stjórnmálaflokka styðja nú upp-
töku evru í stað krónu. 45,4 pró-
sent framsóknarfólks segist því
hlynnt, 48,8 prósent kjósenda
Vinstri grænna, 49,7 prósent Sjálf-
stæðisflokks og 79,0 prósent sam-
fylkingarfólks. Minnstur er stuðn-
ingurinn við upptöku evru meðal
þeirra sem segjast ekki myndu
kjósa eða skila auðu, 39,4 prósent.
43,9 prósent þeirra segjast hins
vegar andvíg því að leggja niður
krónuna. - ss
Könnun Capacent fyrir Samtök iðnaðarins um stuðning við evru:
Rúm 55 prósent vilja evru
28,9%
26,4%14,3%
16,8%
13,5%
Mjög
hlynnt(ur)
Frekar
hlynnt(ur)
Frekar
andvíg(ur)
Mjög and-
víg(ur)
Hvorki né
Skv. könnun Capacent í ágúst 2008
STUÐNINGUR VIÐ UPPTÖKU
EVRU SEM GJALDMIÐILS Á
ÍSLANDI Í STAÐ KRÓNU
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
15°
15°
12°
13°
17°
19°
16°
12°
16°
28°
29°
16°
17°
27°
22°
32°
17°
10
12
Á MORGUN
10-20 m/s, hvassast
austast á landinu.
FIMMTUDAGUR
10-15 m/s. Úrkomulítið.
10 13
15
1211
9
13
13
13
14
12
12
12
12
7
10
10
6
6
6
6
6
10
12
10
10
13
12
1212
VINDASÖM
VINNUVIKA Fátt
er meira þreytandi
en hvass vindur.
Nú ber svo við
að í dag hvessir
smám saman og í
kvöld verður komið
hvassviðri víða um
land og það með
mikilli rigningu,
einkum sunnan til
og vestan. Sé rýnt í
næstu daga verður
stífa vindur vikuna
á enda og það um
mest allt land.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
Þú getur alltaf treyst
á prinsinn
Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200
Reykjavíkurvegi 68 • 220 Hafnarfirði • s: 5557220
www.hafid.is
ÍRAK, AP Robert Gates, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
segist sjá fyrir sér að bandaríski
herinn í Írak dragi á næstu
mánuðum úr því hlutverki sínu að
taka þátt í bardögum.
Hann sagði þó varhugavert að
þröngva íröskum hermönnum og
lögreglumönnum, sem notið hafa
þjálfunar Bandaríkjahers, til að
taka að sér aðalumsjón öryggis-
mála í landinu. Fyrst þurfi þeir að
vera tilbúnir til þeirra verka.
Þetta sagði Gates í Írak í gær,
þar sem hann var í heimsókn. - gb
Bandaríkjaher í Írak:
Dregur sig í hlé
frá bardögum
ROBERT GATES Varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Vestnorræna ferðakaup-
stefnan er haldin í 23. sinn í
Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í
dag frá klukkan 8.30 til 18.
Kaupstefnan er haldin á vegum
ferðamálayfirvalda á Íslandi,
Grænlandi og í Færeyjum.
Í tilkynningu kemur fram að
gert er ráð fyrir allt að 560
þátttakendum á ráðstefnunni að
þessu sinni. Ríflega 300 ferða-
þjónustuaðilar frá vestnorrænu
löndunum þremur muni eiga
stutta fundi með ferðaheildsölum,
hvaðanæva að úr heiminum, til að
ganga frá samningum vegna
ferðamannavertíðarinnar á næsta
ári. - kg
Vestnorræn ferðakaupstefna:
560 þátttakend-
ur á ráðstefnu
Alvarleg staða Eimskips
Fyrrverandi stjórnarformaður segir alvarlega stöðu uppi hjá Eimskipafélaginu.
Gengi hlutabréfa félagsins hefur fallið hratt síðustu daga og um 80% frá ára-
mótum. Fjármálaeftirlitið kann að rannsaka hugsanlegt bókhaldsmisferli.
FYRRVERANDI STJÓRNENDUR EIMSKIPS Baldur Guðnason og Magnús Þorsteinsson. Magnús segir stöðu Eimskips alvarlega.
Fjármálaeftirlitið hefur farið yfir ýmislegt í rekstri félagsins og heldur rannsóknum áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ALMENNINGSSAMGÖNGUR Sveitar-
stjórn Djúpavogshrepps hefur
neitað ósk um að borga í strætó
fyrir framhaldsskólanemendur úr
hreppnum í námi fjarri heima-
byggð.
Sveitarstjórnin furðar sig á því
að stærstu sveitarfélög landsins,
sem njóta allra margfeldisáhrif-
anna af staðsetningu menntastofn-
ana af því tagi er um ræðir, skuli
gera upp á milli nemenda eftir
búsetu. Samþykkt var samhljóða
„að sveitarfélagið niðurgreiði ekki
þjónustu af þessu tagi“ segir í
bókun sveitarstjórnarinnar. - gar
Sveitarstjórnin á Djúpavogi:
Hissa á stóru
sveitarfélögum
MANNLÍF „Það er gott að búa í
Breiðholti, það veit ég sem hef
búið hér í nær þrjátíu ár,“ sagði
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
forseti borgarstjórnar, við opnun
Breiðholtsviku í gær.
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, setti hátíðina í
Félagsmiðstöðinni Árskógum og
Dorrit Moussaieff ræddi þar við
viðstadda. Um leið opnaði hann
málverkasýningu með verkum
eftir heyrnarlausa listamenn.
Markmið með Breiðholtsdögum,
sem standa fram á laugardag, er
að auka samheldni, samveru og
hverfisvitund Breiðhyltinga. - jse
Breiðholtsvika hófst í gær:
Þrjátíu ár í
Breiðholtinu
FORSETAHJÓNIN KÍKJA Á SPILIN Spila-
vist var í fullum gangi þegar forsetahjón-
in komu í heimsókn í Árskóga.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ákærðir fyrir 33 brot
Ákærur gegn tveimur karlmönnum á
þrítugsaldri sem grunaðir eru um að
hafa staðið fyrir afbrotahrinu í Reykja-
vík voru þingfestar í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Alls eru um 33
mismunandi brot að ræða. Öll voru
framin á þessu ári nema tvö sem
framin voru í desember í fyrra.
DÓMSMÁL
GENGIÐ 15.09.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
170,9641
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
91,3 91,74
163,39 164,19
129,64 130,36
17,381 17,483
15,827 15,921
13,539 13,619
0,8675 0,8725
141,52 142,36
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR