Fréttablaðið - 20.09.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
20. september 2008 — 256. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON FRÉTTASTJÓRI
Uppáhaldsorðið er skúbb
24
TÆKNI „Ég veit að stjórnendum stendur oft ekki á
sama um hvað starfsmenn þeirra eru að gera á
Facebook og ég veit til þess að umsækjendur hafi
verið útilokaðir vegna niðurstaðna á Google,“ segir
Hjörtur Smárason ráðgjafi, sem sérhæfir sig í
námskeiðum um hvernig fólk getur verndað orðspor
sitt á Netinu. Tæplega sextíu þúsund Íslendingar eru
með Facebook-síðu.
„Það hafa ýmsir lent í vandræðum, sérstaklega
ungt fólk sem hefur verið að sprella eitthvað á
Netinu og ætlar svo að finna sér virðulega vinnu. Þá
er fólk oftast „gúgglað“ til að kanna bakgrunn þess
en þá kemur stundum eitthvað í ljós sem hæfir alls
ekki því starfi sem það er að sækja um, til dæmis
fyllirísmyndir eða eitthvað annað sem getur þótt
óviðeigandi,“ segir Hjörtur.
Margir eru ragir við að skrá sig á Facebook en
Hjörtur mælir samt með því. „Hver sem er getur sett
inn myndir af þér og texta um þig hvort sem þú ert á
Facebook eða ekki. Því er mikilvægt að þú farir
sjálfur inn á Netið og búir til prófíl ef þú vilt hafa
einhverja stjórn á því sem þar er inni.“ - amb / sjá síðu 22
Sérfræðingur segir mikilvægt að gæta orðspors síns á Netinu:
Sextíu þúsund Íslendingar á Facebook
SJÓNVARP „Já, þetta er samráð. En
löglegt og siðlegt samráð. Áhorf-
endur græða,“ segir Þórhallur
Gunnarsson,
dagskrár-
stjóri á
Ríkissjón-
varpinu.
Fréttablað-
ið hefur
fylgst með
væringum
milli Stöðvar
2 og RÚV að
undanförnu
en einhverra
hluta vegna
var því
þannig stillt
upp að helstu
tromp stöðvanna, Dagvaktin og
Svartir englar, voru á dagskrá á
sama tíma. Nú hafa Þórhallur og
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, rætt saman og
orðið sáttir um dagskrárbreytingu
þannig að Svartir englar eru á
dagskrá RÚV klukkan 19.40, strax
á eftir fréttum, en Dagvaktin er,
eins og upphaflega stóð til,
klukkan 20.30.
- jbg / sjá síðu 42
Samráð dagskrárstjóra:
Svartir englar
ekki á Dagvakt
SKRIÐJÖKLAR
SNÚA AFTUR
Hljómsveitin
Skriðjöklar snýr
aftur á KA-balli á
Akureyri.
FÓLK 42
ÚRKOMUSAMT Í FYRSTU Í dag
verða suðvestan 5-13 m/s, stífast
með ströndum norðvestan til. Víða
rigning fyrir hádegi. Eftir hádegi
verða skúrir vestan til en úrkomu-
lítið á austurhluta landsins.
VEÐUR 4
8
8
13
12
10
ALLIR BÍLAR Á EINUM
STAÐ - Á KLETTHÁLSIRÁS 2
FYRST OG
FREMST Í
HLUSTUN
VIÐSKIPTI Íslensk stjórnvöld hafa
nú til skoðunar að fylgja dæmi
yfirvalda í Bandaríkjunum og
Bretlandi og banna, í það minnsta
tímabundið, skortsölu á hlutabréf-
um í fjármálafyrirtækjum. Mark-
aðurinn hefur heimildir fyrir því
að fundað hafi verið í vinnuhópi
Fjármálaeftirlitsins, Samtaka
fjármálafyrirtækja, Kauphallar
Íslands og lífeyrissjóðanna og er
jafnvel búist við að tilkynnt verði
fyrir opnun markaða á mánudag
um breytingar á reglugerð.
Heimsmarkaðir tóku talsvert við
sér í gær í kjölfar þess að ráðist
var til atlögu gegn skortsölum, en
Bush Bandaríkjaforseti sagði þá
beinlínis hafa það að markmiði að
hagnast á því að koma fyrirtækj-
um á kné. Á vegum Fjármálaeftir-
litsins hefur að undanförnu verið
unnið að breytingum á reglum um
skortsölu í verðbréfaviðskiptum,
en innan ríkisstjórnarinnar og á
fjármálamarkaði er vilji til þess að
flýta breytingum. Er það af ótta
við að þeir skortsalar, sem nú hafa
verið útilokaðir frá viðskiptum
beggja vegna Atlantshafsins, leiti
annað með viðskipti sín og þá geti
íslensk fjármálafyrirtæki orðið
fyrir barðinu á þeim.
Þær upplýsingar fengust hjá
Fjármálaeftirlitinu í gær að ekki
væri fyrir hendi almenn heimild til
að banna skortsölu. Þó er fyrir
hendi heimild til þess að stöðva
viðskipti með tiltekna fjármála-
gerninga en þá þyrfti að stöðva öll
viðskipti, ekki bara skortsölu.
Skortsala kallast það þegar selj-
andi verðbréfa á þau ekki en fær
þau lánuð gegn skuldbindingu um
að kaupa þau aftur og skila þeim.
Lækki verð bréfanna í millitíðinni
fæst hagnaður af viðskiptunum
þar sem bréfin eru keypt aftur á
lægra verði en þau voru seld á upp-
haflega. Vegna þessa geta skort-
salar beinlínis haft hagsmuni af
því að keyra verð á hlutabréfum
fyrirtækja niður og geta í ákveðn-
um tilvikum hagnast gríðarlega á
hruni fyrirtækja, meðan flestir
aðrir bíða af því mikið tjón.
- bih / sjá síðu 10
Bregðast við hættu
af árásum skortsala
Bresk og bandarísk stjórnvöld hafa bannað skortsölu með hlutabréf í tilteknum
fjármálafyrirtækjum. Unnið um helgina að slíkum breytingum hér á landi.
ÞÆR BESTU MÆTAST
Valur og KR mætast í
úrslitaleik bikarkeppni
kvenna í dag
SLAKAÐ Á FYRIR FRUMSÝNINGU Kristján Jóhannsson stórsöngvari var í góðum höndum Svanhvítar Valgeirsdóttur og Dagbjartar
H. Óskarsdóttur förðunarmeistara fyrir frumsýningar á Cavalleria Rusticana og Pagliacci í Íslensku óperunni í gær. Stórsöngvarinn
þáði slakandi höfuðnudd hjá Svanhvíti enda nauðsynlegt að vera rétt stemmdur fyrir sýningarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞÓRHALLUR
GUNNARSSON
LÖGREGLUMÁL Um hundrað grömm
af hassi fundust við húsleit í
Reykjanesbæ í gærkvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni var hassið í ætluðum
söluumbúðum.
Húsleitin var gerð í kjölfar
þess að sérsveitarmenn lögregl-
unnar á Suðurnesjum tóku
ökumann um klukkan sex
síðdegis fyrir akstur undir
áhrifum fíkniefna.
Hassið fannst svo við leit heima
hjá manninum. Maðurinn var
færður á lögreglustöð til yfir-
heyrslu og sleppt seint í gær-
kvöld. Maðurinn kom fyrir
dómara í gær. Málið telst upplýst.
- ovd
Fíkniefnafundur á Reykjanesi:
Fundu hundrað
grömm af hassi
38