Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 12
12 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 242
3.091 -1,16% Velta: 1.299 milljónir
MESTA HÆKKUN
MESTA LÆKKUN
ATLANTIC PETR. 22,13%
BAKKAVÖR 13,22%
ATORKA 8,75%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,08 -2,09% ... Atorka
3,65 -8,75% ... Bakkavör 15,10 -13,22% ... Eimskipafélagið 3,87
-1,02% ... Exista 4,62 +0,00% ... Glitnir 3,91 +0,00% ... Icelandair
Group 16,05 -5,03% ... Kaupþing 654,00 +0,00% ... Landsbankinn
19,85 +0,00% ... Marel Food Systems 77,00 -5,41% ... SPRON 2,10
+0,00% ... Straumur-Burðarás 7,08 +0,00% ... Össur 84,60 -3,86%
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR: 207,2 +0,29%
Gengi krónunnar féll um 22 pró-
sent í gær, samkvæmt útreikning-
um Markaðarins.
Nær engin viðskipti voru með
íslensku krónuna á millibanka-
markaði í gær. Eftir því sem Mark-
aðurinn kemst næst eru viðskipti
með krónur afar ógegnsæ um þess-
ar mundir og eigi krónuviðskipti
sér stað er það að mestu leyti utan
við hefðbundinn markað, beint á
milli markaðsaðila. Það skili sér
svo í óvirku opinberu meðalgengi
sem Seðlabankinn birtir.
Samkvæmt opinberu meðal-
gengi Seðlabankans lækkaði gengi
krónunnar um rúm 0,5 prósent í
gær og stóð gengisvísitalan í
207,18 stigum í lok dags. Gengi
erlendra gjaldmiðla í krónum talið
var hins vegar mun hærra hjá
erlendum bönkum en hér sem
bendir til að nær enginn vilji sé
hjá erlendum fjárfestum að kaupa
íslenskar krónur nema með rífleg-
um afslætti.
Inn í gengisfallið kann að spila
gjalddagi krónubréfa upp á 29
milljarða króna að nafnvirði í gær
en samtals verða 45 milljarðar á
gjalddaga í mánuðinum.
Eftir gjalddagann eru enn úti-
standandi krónubréf upp á 280
milljarða króna að nafnvirði á
gjalddaga, þar af 30 milljarðar
það sem eftir lifir árs.
Einn Bandaríkjadalur kostaði
112 krónur hér á landi í gær sam-
kvæmt opinberu meðalgengi
Seðlabankans. Á sama tíma þurfti
að punga út 145 íslenskum krón-
um fyrir sérhvern dal sem keypt-
ur var í skiptum fyrir krónur hjá
Kaupþingi í Svíþjóð.
Eftir því sem Markaðurinn
kemst næst stendur gengisvísitala
krónunnar því mun nær því að
vera á bilinu 261 til 265 stig í stað
207,18 stig líkt og Seðlabankinn
sýnir. Hún stóð í 120 stigum við
síðustu áramót og nemur gengis-
fallið því 54 prósentum frá ára-
mótum. jonab@markadurinn.is
Krónan féll um
fimmtung í gær
Gjaldeyrismarkaðurinn hér á landi er þurrkaður
upp og viðskipti nær engin. Krónan virðist seld með
ríflegum afslætti erlendis.
MISGENGI KRÓNUNNAR
Gjaldmiðlar Gengi Ísl. kr.
SÍ í Svíþjóð*
Bandaríkjadalur 115 145
Evra 154,8 197
Breskt pund 200,2 255
Dönsk króna 20,7 26
Japanskt jen 1,1 1,4
* Gengi íslensku krónunnar
samkvæmt Kaupþingi í Svíþjóð.
Greiningardeildir bankanna
segja lítið hægt að segja um
gengi krónunnar. Ásgeir Jóns-
son, yfirmaður greiningardeild-
ar Kaupþings, segir að gjaldeyr-
ismarkaðurinn hafi legið niðri
hér á Íslandi. Edda Rós Karls-
dóttir, yfirmaður greiningar-
deildar Landsbankans, segist
sömuleiðis ekkert geta sagt um
gengi krónunnar: „Það hefur
ekkert eitt verð verið á henni í
dag enda hafa markaðirnir í raun
verið algjörlega óvirkir. Menn
hafa verið að bíða í allan dag
eftir fréttum og aðgerðum.“
Edda Rós segir að bankarnir hér
heima hafi lítil viðskipti átt sín í
milli með gjaldeyri þótt einhver
viðskipti hafi átt sér stað innan
bankanna. - msh
EDDA RÓS KARLSDÓTTIR Forstöðu-
maður greiningardeildar Landsbank-
ans segir ekkert eitt verð hafa verið á
krónunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óvirkur markaður
Virði nokkurra kauphallarfélaga
hefur aukist verulega við gengis-
fall krónunnar samkvæmt verð-
mati greiningardeildar Lands-
bankans. Á þetta meðal annars við
um Marel, Össur og Alfesca.
Meirihluti starfsemi þessara
félaga er erlendis en hlutaféð í
íslenskum krónum. Þar sem tekj-
ur þeirra eru að miklu leyti í
erlendri mynt eykst virði þeirra
við veikingu krónunnar.
Veiking krónunnar hefur einnig
haft jákvæð áhrif á virði Bakka-
varar, þótt hún hafi veikt eigin-
fjárhlutfall. Greiningardeildin
telur þó að verðmæti félagsins sé
meira en markaðsvirðið gefur til
kynna. - hhs
Veiking krónu
eykur virðið
ÍSLENSKIR PENINGAR Erlendir fjárfestar virðast engan áhuga hafa á því að kaupa
íslenskar krónur nema með ríflegum afslætti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hlutabréfaverð beggja vegna Atlantshafs
hrundi í gær. Dow Jones-hlutabréfavísitalan
endaði í 9.955, féll um 3,58 prósent, eða 370
punkta. Hlutabréfaverð féll fram yfir hádegi
og náði lægsta gildi rétt fyrir klukkan þrjú,
þegar vísitalan náði lægsta gildi sínu um
daginn og hafði þá fallið um 795 punkta, eða
7,6 prósent. Hlutabréf verð hækkaði nokkuð
fyrir lokun, og endaði í fyrsta sinn undir
10.000 punktum síðan í október 2004.
Hlutabréfaverð í Evrópu féll sömuleiðis í
lægsta gildi í fjögur ár. Séfræðingar sem
Reuters ræðir við segja að hlutabréfamark-
aðir virðist í „frjálsu falli“ og engir kaup-
endur séu að hlutabréfum. Hlutabréfaverð
féll um 7,9 prósent í London, 9 prósent í
París og 7,1 í Frankfurt. Markaðir í Asíu
féllu einnig, og hafa ekki verið lægri í fjögur
ár. Nikkeivísitalan japanska féll um 4,25
prósent.
Hrun gærdagsins er talið til marks um að
hlutabréfamarkaðir geri nú ráð fyrir því að
óumflýjanlegt sé að fjármálakreppan þróist
í alþjóðlega efnahagskreppu og að það muni
hægja mjög á hagvexti um heim allan. - msh
KAUPHÖLL NYSE Hlutabréfaverð hefur fallið um nærri
8,4 prósent síðan Bandaríkjaþing samþykkti 700
milljarða dollara neyðaraðgerðir. MARKAÐURINN/REUTERS
Hrun á erlendum mörkuðum
Fjármálaeftirlitið setti hlutabréf í
Glitni, Kaupþingi, Landsbankan-
um, Straumi, Spron og Existu, sem
jafnframt er stærsti hluthafi
Kaupþings, á athugunarlista í
gærmorgun og stöðvaði viðskipti
með bréfin í kjölfarið.
Í tilkynningu Kauphallarinnar
sagði að ákvörðunin hefði verið
tekin til að vernda jafnræði fjár-
festa vegna umtalsverðrar óvissu
varðandi verðmyndun hlutabréf-
anna.
Áður en ákvörðunin lá fyrir
hafði gengi bréfa í Kaupþingi, sem
skráð eru í Stokkhólmi í Svíþjóð,
fallið um rúm sjö prósent.
Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni
lækkaði talsvert strax eftir að
viðskiptadagurinn rann upp.
Gengi Century Aluminum, móður-
félags álversins á Grundartanga,
féll um 22,78 prósent og Færeyja-
banka um 22,13 prósent. Þá féll
gengi Bakkavarar mest íslensku
félaganna, eða um 13,22 prósent.
Gengið endaði í 15,1 krónu á hlut
og hefur ekki verið lægra síðan í
ágúst árið 2003. - jab
HAUSTAR AÐ Í KAUPHÖLLINNI Hlutabréf
fjármálafyrirtækjanna voru sett í salt í
gær vegna óvissuástandsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
Bréf fjármálafyrir-
tækja söltuð í bili
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna lýstu því yfir á mánudag að
„öll nauðsynleg skref yrðu tekin“
svo tryggja megi fjármálastöðug-
leika Evrópu. Hingað til hafa rík-
isstjórnir Evrópu tekist á við fjár-
málakreppuna hver í sínu lagi.
Samkvæmt fréttum mun Seðla-
banki Evrópu veita frekara lausa-
fé inn á fjármagnsmarkaði, þá
muni innistæður tryggðar og
bönkum veitt neyðaraðstoð. Seðla-
banki Evrópu veitir 50 milljörð-
um dollara í skammtímalánum
inn á markaði, Englandsbanki
veitir 10 milljörðum dollara inn
og Seðlabanki Svíþjóðar tilkynnti
að hann hygðist auka útlán sín um
14,5 milljarða dollara. Stefan Ing-
ves, seðlabankastjóri Svíþjóðar
sagði, þegar tilkynnt var um þessa
ákvörðun, að „hin alþjóðlega fjár-
málakreppa væri augljóslega
farin að hafa áhrif á fjármálakerfi
Svíþjóðar“. - msh
Björgunarað-
gerðir í Evrópu