Fréttablaðið - 07.10.2008, Síða 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ eru reglulega haldin hjá Ökuskóla
Akureyrar. Námskeiðin eru 80 tímar og helstu námsgreinar eru jarð-
ýtur og gröfur, kranar og stálvírar, vökva- og vélafræði og
öryggi á vinnustað. Næsta námskeið hefst 30. október og
er skráning hafin á okuskoli@simnet.is
„Ég reyni eftir bestu getu að hugsa
vel um heilsuna og hef undanfarið
ár byrjað daginn á næringarríkum
hafragraut, sem gefur góða fyll-
ingu og dugar vel til hádegis án
þess að maður berjist við löngun í
kruðerí á milli mála,“ segir við-
skiptafræðineminn og tónlistar-
maðurinn Jón Sigurðsson, sem
landsmenn muna vel eftir úr
fyrsta versi Idol-Stjörnuleitar.
„Heilsusamlegt líferni hefur
verið lífsstíll síðan ég man eftir
mér og ég drekk alltaf yfir tvo
lítra vatns á dag. Ég er líka svo
heppinn að eiga yndislega konu
sem eldar af ástríðu og er dugleg
að sjá til þess að ég borði hollan og
góðan kost í öll mál,“ segir Jón
sem nú er á öðru ári í Háskólanum
í Reykjavík og hefur þurft að
breyta út af vananum við hreyf-
ingu í samræmi við ástundun
náms og vinnu.
„Árum saman æfði ég hand-
bolta, fótbolta og fleira sport, en
með fullum vinnudegi og fullu
námi með vinnu varð lítill tími
afgangs fyrir skipulagðar íþrótta-
iðkanir,“ segir Jón sem situr lang-
tímum saman við heimalærdóm á
kvöldin.
„Því fylgir mikil vellíðan að
vera í góðu formi, auk þess sem
það gefur kraft og úthald í dag-
legu annríki líka,“ segir Jón sem á
annað ár hefur vaknað klukkan
sex árdegis til að stunda herþjálf-
un hjá Heilsuakademíunni.
„Það er vissulega þrautin þyngri
að vakna svo snemma eftir langar
setur við námsbækurnar á kvöldin
og eitthvað er ég víst sekur um að
hafa slegið slöku við í haust. Her-
þjálfun hentar mér vel því útrás
er mikil og markviss en alls ekki
jafn mikið streð og margir halda.
Hún er kannski erfið fyrir þá sem
ekkert hafa hreyft sig árum
saman, en þá er bara að byrja í ról-
egheitum og finna sinn eigin hraða
sem smám saman eykst,“ segir
Jón sem vill taka vel á því í rækt-
inni úr því verið er að hafa fyrir
því að vakna fyrir allar aldir á
annað borð.
„Ég þarf átök og stuð til að koma
mér í gang og geymi rólegri íþrótt-
ir eins og golf til efri áranna.“
thordis@frettabladid.is
Vill vakna í átök og stuð
Herþjálfun, fullt nám og hundrað prósent vinna er lífsstíll sem skilar Jóni Sigurðssyni árangri í starfi og
leik, en hann hefur frá fyrstu tíð gengið hnitmiðað um fjölbreytta stigu heilnæmis og heilbrigðs lífernis.
Jón Sigurðsson hefur aldrei slegið slöku við að hugsa sem best um heilsuna og telur ekki eftir sér að vakna í hörku herþjálfun
meðan aðrir sofa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BORÐAÐU ÞIG HOLLARI!
Vægttab 30 kilo på 30 uger
Auðveldar
þér að léttast
Losaðu þig við 5 kíló
á 5 vikum
Nýtt og yfirfarið matarprógram,
sem hjálpar þér við að losa þig
við aukakilóin.
Lærðu um það hvernig þú
borðar fjölbreyttar máltíðir með
hollum og góðum mat.
GARÐABÆ
REYKJAVÍK
REYKJANESBÆR
AKUREYRI
NÝTT MA
TAR-
PRÓGRA
M
Léttist um 30 kíló á 30 vikum
865-8407 vigtarradgjafarnir.is