Fréttablaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 17
SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS er ný
stofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðherra og
annast framkvæmd sjúkratrygginga auk þess að
semja um og greiða fyrir heilbrigðisþjónustu.
„Við höfum vísbendingar um að
meira en helmingur fullorðinna
Íslendinga hreyfir sig ekki í sam-
ræmi við lágmarks viðmið um
hreyfingu, sem eru þrjátíu mínút-
ur á dag og samsvarar miðlungs
erfiðri göngu. Níu ára börn og
yngri virðast flest ná sínu lág-
marki, sextíu mínútum á dag, en
eftir það fer hreyfing mjög hall-
oka og á framhaldsskólaaldri virð-
ast ungmenni hreyfa sig sama og
ekki neitt,“ segir Gígja Gunnars-
dóttir, íþróttafræðingur og verk-
efnisstjóri hreyfingar hjá Lýð-
heilsustöð.
Í nýja bæklingnum er lykilhug-
tökum um hreyfingu safnað
saman, bent er á þætti sem hafa
áhrif á hreyfingu, hvernig auka
má hreyfingu á mismunandi svið-
um daglegs lífs og spurningum
svarað um hreyfingarþörf barna,
unglinga, fullorðinna, roskinna og
kvenna á meðgöngu.
„Áherslur okkar eru í takti við
niðurstöður nýjustu rannsókna á
heilsu og hreyfingu, en þar kemur
fram að mikill heilsuávinningur
felst í lágmarkshreyfingu. Mann-
eskjan er lífvera af holdi og blóði,
gerð úr vöðvum, beinum og boð-
efnum sem þurfa lífsnauðsynlega
á hreyfingu að halda. Við gerum
því líkamanum illt með kyrrsetu-
lífi og fyrsta skrefið er að hreyfa
okkur reglulega yfir daginn,“
segir Gígja sem talar út frá sjón-
armiðum lýðheilsu þar sem heil-
brigði almennings er undir og
mestu skiptir að fækka í hópi
kyrrsetufólks.
„Hjartað er vöðvi sem þarfnast
áreynslu eins og aðrir vöðvar lík-
amans. Þess vegna er nauðsynlegt
að láta það slá hraðar á degi hverj-
um, þannig að okkur hitni og við
finnum fyrir mæði. Ekki er mælt
með kyrrsetu lengur en í klukku-
stund í einu, en víst er að stór hluti
þjóðarinnar situr samfleytt átta
tíma vinnudag. Því er mikilvægt að
taka hléæfingar, standa upp og
koma blóðinu á hreyfingu en það
hjálpar líkamanum að taka inn súr-
efni og losa sig við úrgangsefni
sem annars safnast saman. Vöðva-
bólga ekkert annað en skortur á
hreyfingu og uppsafnaður úrgang-
ur í líkamanum,“ segir Gígja.
Í bæklingi Lýðheilsustöðvar er
börnum og unglingum í fyrsta
sinn ráðlagt að verja ekki meira
en tveimur tímum í afþreyingu
við skjá. Einnig er lögð rík áhersla
á mikilvægi hreyfingar burtséð
frá holdafari og andlegan ávinn-
ing daglegrar hreyfingar.
„Kyrrseta er mannskemmandi
fyrir alla og ef lífsstíllinn er
þannig að maður fer í gegnum
daginn og vikuna sitjandi eða útaf-
liggjandi, köllum við yfir okkur
bæði andlega og líkamlega sjúk-
dóma. Ávinningur daglegrar
hreyfingar snýst því um miklu
meira en ofþyngd og holdafar því
hún minnkar líkur á mörgum lang-
vinnum sjúkdómum. Dagleg
hreyfing hjálpar okkur við að losa
um streitu og tryggir þann and-
lega styrk sem við öll þurfum á að
halda til að takast á við daglegar
skyldur, einkalíf og frítíma.“
Ráðleggingar um hreyfingu eru
aðgengilegar á www.lydheilsu-
stod.is, en bæklinginn má líka
nálgast hjá Lýðheilsustöð eða fá
sendan heim.
thordis@frettabladid.is
Mannskemmandi kyrrseta
Lýðheilsustöð hefur gefið út myndarlegan bækling sem inniheldur ráðleggingar um hreyfingu í ítarlegri
mynd og er hvatning þeim sem lifa kyrrsetulífi að standa upp og hreyfa sig til betra lífs og lífsgæða.
Íþróttafræðingurinn Gígja Gunnarsdóttir er verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð sem á dögunum gaf út aðgengilegar, hvetj-
andi, fróðlegar og gagnlegar ráðleggingar um hreyfingu; öllum landsmönnum til handa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
Næstu fyrirlestrar og námskeið
07. okt. Mataræði fyrr og nú - Næring í víðari skilningi
Haraldur Magnússon osteópati
08. okt. Ævintýralíf
Benedikta Jónsdóttir heilsuráðgjafi
09. okt. Heilsukostur - Matreiðslunámskeið
Auður I. Konráðsdóttir heilsukostur
11. okt. Farðu alla leið, þína leið
Arnbjörg Finnbogadóttir
15. okt. Hvað á ég að gefa litla barninu mínu að borða?
Ebba Guðný Guðmundsdóttir
16. október Kökur og eftirréttir
Auður I. Konráðsdóttir heilsukosturwww.madurlifandi.is
Original Arctic Root
Ein vinsælasta lækningajurt heims
Original Arctic Root öðru nafni Burnirót er ein vinsælasta lækningajurtin í
heiminum í dag. Klínískar rannsóknir hafa leitt í ljós að hún eflir einbeitingu,
úthald og vinnur gegn streitu og álagi.
Vinnur gegn streitu og álagi
Original Arctic Root er fljótverkandi og þeir sem nota hana finna jákvæða
breytingu á einbeitingu og úthaldi á skömmum tíma. Original Arctic Root hefur
svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi og nýtur nú mikilla vinsælda.
Fæst í apótekum og heilsubúðum.
Heilsuvara ársins
í Svíþjóð
2003, 2004 og 2005
Mánudaga og mmtudaga