Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 24
7. OKTÓBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR6 ● bleika slaufan
Krabbameinsfélag Íslands tók í
notkun nýtt færanlegt rönt-
gentæki fyrir landsbyggðina
fyrir rúmum mánuði.
„Við byrjuðum að nota tækið á
Egilsstöðum 2. september,“ segir
Anna Dóra Pálsdóttir, deildar-
stjóri á röntgendeild Krabba-
meinsfélags Íslands. „Þetta er
nýtt tæki eins og þau stafrænu
sem verið er að taka í notkun á
leitarstöð Krabbameinsfélags-
ins. Núna eru ekki lengur notað-
ar filmur í röntgentækið held-
ur eru teknar stafrænar myndir
sem settar eru á disk og sendar
til Reykjavíkur.“
Innt eftir þeim breytingum
sem hið nýja tæki hefur í för með
sér segir Anna Dóra að lítið breyt-
ist í raun með tilkomu þess. „Við
munum fara á sömu eða svipaða
staði og við höfum áður gert. Lík-
legt er þó að biðtími muni stytt-
ast vegna þess að vinnsluferlið
tekur minni tíma því ekki þarf
lengur að framkalla röntgen-
myndirnar.“
Anna Dóra segir að hægt verði
að setja tækið upp nánast hvar
sem er og undir það tekur Smári
Kristinsson, framkvæmdastjóri
Rafarnarins, sem hannað hefur
búnað til að flytja tækið á milli
staða. „Tækið getur farið inn um
allar dyr og öll gólf án þess að
skilja eftir för. Á búnaðnum eru
loftpúðar sem notaðir eru til að
fleyta tækinu þangað sem það á
að fara.“
Smári útskýrir að Raförninn
hafi unnið með Krabbameinsfé-
laginu frá árinu 1985 og að félag-
ið hafi verið með fyrstu viðskipta-
vinum fyrirtækisins. „Þessi bún-
aður sem við vorum að hanna
núna er þriðja kynslóð flutnings-
tækja. Fyrsta kynslóðin var tekin
í sundur á milli þess sem tækið
var flutt á milli staða, þannig að
þetta er í raun mikil breyting frá
upphafi.“
Anna Dóra heldur þá áfram og
segir að tiltölulega vel hafi geng-
ið að byrja að nota hið nýja rönt-
gentæki en þó hafi komið upp ein-
hverjir tækniörðugleikar. „Það er
bara eðilegt að eitthvað komi upp
Nýtt tæki til landsbyggðari
Anna Dóra Pálsdóttir yfirgeislafræðingur segir að
hvar sem er.
Smári Kristinsson hjá Raferninum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bleik ljós á bílum Hreyfils/Bæjarleiðar eru til merkis um átak fyrirtækisins í
krabbameinsvernd.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bifreiðastöðin Hreyfill/Bæj-
arleiðir borgar Krabbameins-
félaginu tíu krónur á hverja
pantaða ferð frá símaborði sem
leiðir af sér akstur í október
og nóvember og bílarnir aka
með bleikar hlífar á toppnum
til vitnis um það. „Við erum að
byrja annað árið af fimm í söfn-
unarátaki fyrir Krabbameins-
félagið. Við vildum vera með
í þessu göfuga verkefni því
krabbamein er þekkt í hverri
einustu fjölskyldu,“ segir Sæ-
mundur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri.
Sæmundur segir bílstjórana
líka selja bleiku slaufuna fyrstu
fimmtán dagana í október. „Í
fyrra seldum við 5.463 slauf-
ur fyrir 2,7 milljónir rúmar
og söfnuðum tæplega sextán
hundruð þúsundum á símtölun-
um,“ upplýsir hann og bendir á
að um leið og þeir leggi málefn-
inu lið njóti fyrirtækið góðs af
því með bættri ímynd. „Þess-
ir bleiku hjálmar sem bílarn-
ir aka með vöktu mikla athygli
víða erlendis á síðasta ári því
þetta er einsdæmi í heiminum.“
- gun
Bleik ljós
á leigubílum
Skartgripahönnuðurinn
Hendrikka Waage útfærir útlit
bleiku slaufunnar í ár fyrir
Krabbameinsfélag Íslands. En
lokaátakið til söfnunar á nýjum
stafrænum tækjabúnaði fyrir
leitarstöð Krabbameinsfélags-
ins er nýhafið.
Skartgripir Hendrikku Waage
hafa vakið athygli fyrir glæsi-
legt yfirbragð. Hendrikka hefur
mikið notað steina við hönnun á
skartgripum sínum og það gerir
hún einnig við útfærslu á bleiku
slaufunni í ár.
„Krabbameinsfélag Íslands
hafði samband og fékk mig til
að koma að verkefninu,“ segir
Hendrikka stolt, enda er það
henni mikið ánægjuefni að vera
með í átakinu þar sem allur ágóði
af sölu slaufunnar fer í að ljúka
við greiðslu á nýja stafræna leit-
artækinu. En sala á bleiku slauf-
unni er árlegt átaksverkefni
Krabbameinsfélagsins til að
vekja athygli á brjóstakrabba-
meini.
Hendrikka var nýverið hér á
landi þar sem hún nældi fyrsta
eintakinu af bleiku slaufunni í
Dorrit Moussaieff forsetafrú við
upphaf átaksins 1. október. Tak-
mark átaksins er að selja fjörutíu
þúsund slaufur fram til 15. októb-
er.
„Þetta er verkefni sem snert-
ir okkur öll,“ segir Hendrikka
og vísar til þeirrar staðreynd-
ar að ein af hverjum tólf konum
greinist árlega með brjósta-
krabbamein. En með nýja tæk-
inu er hægt að gera nákvæmari
greiningu en áður. „Það þarf því
stöðugt að minna á hversu mik-
ilvægt er að konur fari í mynda-
töku og koma þeim skilaboðum
áleiðis til komandi kynslóða.“
Hendrikka segist hafa fylgst
með átakinu lengi í Bretlandi og
hefur það verið henni ánægjulegt
að sjá hvernig það hefur þróast
hér á landi. „Það var snyrtivöru-
drottningin Estée Lauder sem
átti frumkvæðið að átaki og vakn-
ingu fólks á brjóstakrabbmeini
og bleika slaufan varð síðan að al-
þjóðlegu merki átaksins.“
Hendrikka segir að hún hafi
fengið góðan tíma til að þróa hug-
myndir sínar. Bleika slaufan í
ár er til í tveimur útfærslum og
verðflokkum. „Silfurslaufan“
sem er dýrari er eigulegur grip-
ur og við hönnun á henni notar
Hendrikka að hluta til bleika sir-
konsteina.
Það er því vel til fundið hjá
Krabbameinsfélagi Íslands að fá
Hendrikku, sem hlotið hefur al-
Bleika slaufan með sirkon
Hendrikka Waage skartgripahönnuður
hannaði tvær útgáfur af bleiku slauf-
unni. Hér heldur hún á skartútgáfunni.
Söfnunar- og árveknisátaki Krabbameinsfélagsins var hleypt af stokkunum í síðustu viku en m
Dorrit Moussaieff forsetafrú og Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, tóku við