Fréttablaðið - 07.10.2008, Page 35
ÞRIÐJUDAGUR 7. október 2008 15
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda
okk ur línu og leggja orð í belg um
mál efni líð andi stund ar. Grein ar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Ein göngu er tek ið á móti efni
sem sent er frá Skoð ana síð unni
á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein-
ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni
birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða
í báð um miðl un um að hluta eða
í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
BRÉF TIL BLAÐSINS
UMRÆÐAN
Jóhanna Sigurðardótt-
ir skrifar um ofbeldi
gegn konum
Þessa dagana stendur yfir símakönnun
meðal 3.000 íslenskra
kvenna á aldrinum 18–80
ára til að afla upplýsinga
um ofbeldi gegn konum. Félags-
og tryggingamálaráðuneytið
hefur falið Rannsóknasetri í
barna- og fjölskylduvernd við
Háskóla Íslands að framkvæma
könnunina. Ofbeldi gegn konum
er þekkt vandamál um allan heim,
þjóðfélagslegt mein sem þarf að
uppræta. Að frumkvæði Samein-
uðu þjóðanna var efnt til fjöl-
þjóðarannsóknar og þróaður
spurningalisti um ofbeldi gegn
konum. Hann hefur áður verið
notaður í fjölþjóðarannsókn sem
Danmörk tók þá þátt í, eitt Norð-
urlandanna. Í samræmi við
aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
um ofbeldi gegn konum er nú
komið að Íslandi að gera slíka
könnun.
Ofbeldi á konum um allan heim
Vitað er að umfang ofbeldis er
breytilegt milli landa. Gott dæmi
um það er að fjölþjóðakönnunin
sýndi að hlutfallslega fleiri konur
höfðu orðið fyrir ofbeldi í Dan-
mörku en Sviss, en færri en í Tékk-
landi og Ástralíu. Hins vegar
höfðu dönsku konurnar sjaldnar
verið beittar heimilisofbeldi.
Valdamunur karla og kvenna og
almenn yfirráð karla virðast auka
líkur á heimilisofbeldi. Ofbeldið
virðist þannig tengjast menningu
hvers samfélags.
Könnun á umfangi
Ísland vill í þessum efnum sem
öðrum bera sig saman við önnur
lönd. Ekki er síður mikilvægt að
átta sig á því hvort ofbeldi gegn
konum hefur aukist eða
breyst. Svo vel vill til að
hér á landi gerði dóms-
málaráðuneytið könnun á
umfangi og eðli ofbeldis
fyrir tólf árum. Þess vegna
er hægt að sjá hvaða
breytingar hafa orðið frá
því sú könnun var gerð.
Í áðurnefndri aðgerða-
áætlun ríkisstjórnarinnar
um ofbeldi gegn konum
kemur fram að gera skal könnun á
ofbeldi karla gegn konum. Fyrsti
þáttur þeirrar könnunar er að
hefjast eins og áður sagði. Til þess
að stjórnvöld geti aðstoðað konur
þarf þekking á umfangi og eðli að
vera til staðar. Þess vegna er afar
mikilvægt að góð svörun fáist við
símakönnuninni.
Viðamikil rannsókn hafin
Auk símakönnunarinnar er félags-
og tryggingamálaráðuneytið að
undirbúa næstu skref í rannsókn-
inni til að dýpka þekkingu á
umfangi og eðli vandans og helstu
úrræðum. Gerðar verða
viðtalskannanir meðal starfs-
manna félagsþjónustu, barna-
verndar, leikskóla, grunnskóla,
heilbrigðiskerfis, félagasamtaka
og lögreglu. Þessum þætti rann-
sóknarinnar er ætlað að varpa
ljósi á hvaða aðstoð og úrræði
þessir aðilar hafa fram að færa,
hvernig sé hægt að efla núverandi
þjónustu og hvaða nýrra úrræða
sé þörf til að styrkja og aðstoða
konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi.
Í könnuninni verður hugað sér-
staklega að erlendum konum sem
eru beittar ofbeldi.
Enda þótt könnunin beinist að
konum er vitað að aðstoð við kon-
urnar kemur börnum sem alast
upp við ofbeldi að miklu gagni.
Stundum þarf að koma á fót sér-
stakri aðstoð við börn sem búa við
ofbeldi á heimilum sínum. Þess
vegna nær rannsóknin einnig til
barnaverndar, leikskóla og grunn-
skóla þar sem viðtöl verða tekin
við starfsfólk.
Góð svörun lykill að árangri
Með aðgerðaáætluninni hófu
stjórnvöld markvissa baráttu
gegn því böli sem fylgir ofbeldi
gegn konum og er símakönnunin
mikilvægur þáttur í því. Góð svör-
un við símakönnuninni gefur
traustari niðurstöður og auðveld-
ar stjórnvöldum að koma með
úrbætur sem nýtast konum og
börnum. Ég hvet því allar konur
sem lenda í úrtaki könnunarinnar
til að taka þátt og leggja með þeim
hætti baráttunni gegn ofbeldi á
konum lið.
Höfundur er félags- og
tryggingamálaráðherra.
Berjumst gegn ofbeldi á konum
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Hins vegar höfðu dönsku
konurnar sjaldnar verið beittar
heimilisofbeldi. Valdamunur
karla og kvenna og almenn
yfirráð karla virðast auka líkur
á heimilisofbeldi.
Kjóstu besta knattspyrnumann
Íslands frá 1946–2008
Stöð 2 Sport í samvinnu við KSÍ stóð fyrir vali á 10 bestu knattspyrnumönnum
Íslands frá 1946–2008 þar sem almenningur gat tilnefnt sína uppáhalds
knattspyrnumenn. Nú standa eftir 10 frábærir knattspyrnumenn og þú getur
haft áhrif á það hver verður valinn besti knattspyrnumaður Íslands.
Úrslitin verða í beinni útsendingu þriðjudaginn 14. október á Stöð 2 Sport og Sport 2.
Farðu inn á visir.is og hafðu áhrif!
Albert Guðmundsson
Arnór Guðjohnsen
Atli Eðvaldsson
Ásgeir Sigurvinsson
Eiður Smári Guðjohnsen
Guðni Bergsson
Pétur Pétursson
Ríkharður Jónsson
Rúnar Kristinsson
Sigurður Jónsson
...ég sá það á visir.is
Bréf til iðnaðarráðherra
Kristinn Þórisson iðnaðarmaður
skrifar:
Háttvirtur iðnaðarráðherra, Össur
Skarphéðinsson, er eitthvað að mis-
skilja hlutverk sitt sem ráðherra iðnaðar
í landinu. Hann hleypur undan í flæm-
ingi og vísar á nefndir og ráð þegar
hann er spurður um virkjanaáform og
stórframkvæmdir. Hann veit upp á sig
skömmina, búinn að mótmæla öllu
sem gert hefur verið síðustu ár. Ragnar
Reykás myndi skammast sín.
Ráðherra iðnaðar á að mínu mati að
hlúa að og byggja upp iðnað í landinu
og veitir ekki af því iðnaður í þessu
landi er ekki öflugur sem slíkur. Við
þurfum að hafa stóriðju í öllum lands-
hlutum og þá byggist upp viðhaldsiðn-
aður þar í kring. Þetta vita Hafnfirðingar
þótt það sé ekki móðins í dag að nefna
orðið „stóriðja“.
Íslendingar þurfa að selja meira út úr
landinu það eitt er víst. Við þurfum að
virkja sem mest af jökulvatni og frelsa
Sogið og Laxá í Aðaldal. Það væri fínt
verkefni fyrir „fiskifræðinginn“ Össur því
þar er mjög lítil framleiðsla af rafmagni
og miklum náttúruperlum fórnað.
Eins þarf að lyfta grettistaki í vega-
gerð þessa lands. Þetta er til háborinn-
ar skammar hvernig menn fá að dútla
hér við vegagerð. Þjóðvegur 1. á að
verða 2 + 2 vegur. Þetta er bæði stór-
hættulegt og engan veginn ásættanlegt
hvað allt þarf að taka langan tíma. Mín
skilaboð eru: Össur, annaðhvort ferð
þú að standa með iðnaði í þessu landi
og láta verkin tala eða finna þér aðra
vinnu.