Fréttablaðið - 07.10.2008, Side 36
16 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
VLADÍMÍR PÚTÍN, FORSÆT-
ISRÁÐHERRA RÚSSLANDS,
ER 56 ÁRA Í DAG.
„Enginn ætti að binda
vonir sínar við það að
kraftaverk muni eiga
sér stað.“
Pútín var kosinn for-
seti Rússlands 26. mars
árið 2000 og endurkjör-
inn 14. mars 2004. Hann
er nú forsætisráðherra
landsins.
Lífið, samtök um líknandi meðferð, heldur á laugardag mál-
þing í tengslum við alþjóðadag líknar og tíu ára afmæli
samtakanna. Þar verða flutt erindi um líknandi meðferð en
meðal fyrirlesara eru Dagny Faksvåg Haugen, læknir á há-
skólasjúkrahúsinu í Bergen í Noregi. Hún fjallar um stefnu
þarlendra stjórnvalda í málaflokknum.
Rósa Kristjánsdóttir, djákni á Landspítalanum við Hring-
braut, var ein þeirra sem stofnuðu Lífið á vormánuðum
1998. „Aðalmarkmið samtakanna er að bjóða upp á nám-
skeið og að halda framförum í líknandi meðferð að félags-
mönnum. Í ár höfum við haldið námskeið sem beinir sjón-
um að sjúkdómsflokkum eins og hjarta-, lungna- og tauga-
sjúkdómum en hingað til hefur meðferðin helst verið notuð
í krabbameins- og öldrunargeiranum,“ segir Rósa.
Alþjóðadagur líknar eða World Hospice and Palliative
Care Day var haldinn í fyrsta skipti árið 2005. Í ár er yfir-
skriftin Hospice and Palliative care – a Human Right. „Það
er réttur hverrar manneskju að geta notið líknandi með-
ferðar ef veikindin eru komin á það stig,“ segir Rósa. Líkn-
andi meðferð getur staðið yfir í viku, mánuði eða ár allt eftir
eðli sjúkdómsins. „Þetta er einkennameðferð sem byggir á
því að horfa á einkenni sem sjúkdómur veldur og reyna að
lina þjáningar. Þá þarf að horfa á manneskjuna sem heild og
veita líkamlega, andlega og félagslega meðferð.“
Rósa segir mikilvægt að halda uppi opinni umræðu um
líknandi meðferð og að sífellt þurfi að endurskoða aðferð-
irnar. Hún segir að ítrekað hafi verið kallað eftir heildrænni
stefnu stjórnvalda í málaflokknum en með litlum árangri.
Hún vonast til þess að málþingið opni augu fólks en það
hefst í Hringssal Landspítalans klukkan 9.30.
Í tengslum við afmælið og alþjóðadaginn verður gefinn út
bæklingur sem heitir Að leiðarlokum en hann verður kynnt-
ur á laugardag. Hann er ætlaður aðstandendum þeirra sem
þiggja líknandi meðferð.
vera@frettabladid.is
ALÞJÓÐADAGUR LÍKNAR: LÍFIÐ TÍU ÁRA
Málþing um
líknarmeðferð
RÓSA KRISTJÁNSDÓTTIR segir mikilvægt að halda uppi opinni umræðu
um líknandi meðferð og að sífellt þurfi að endurskoða aðferðirnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
timamot@frettabladid.is
Öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og
styrk við fráfall ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og stórfrænku,
Kristínar E. Jónsdóttur
læknis,
viljum við færa okkar innilegustu þakkir. Sérstaklega
viljum við heiðra starfsfólk 11E á Landspítalanum
við Hringbraut fyrir nærgætni, blíðu og einstaka
hugulsemi. Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Bergljót Elíasdóttir
Ester Auður Elíasdóttir Snorri Hrafnkelsson
Nicolas Ragnar Muteau
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Agnar Gústafsson
Hæstaréttarlögmaður,
Eiríksgötu 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 26. september síðastliðinn.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 10. október kl. 15.
Inga Dóra Hertervig
Snorri Agnarsson Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir
Margrét Hlín Snorradóttir Agnar Óli Snorrason
Inga Dóra Gústafsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Marta Gunnlaug
Guðmundsdóttir
frá Markholti í Mosfellsbæ, til heimilis í
Hlaðhömrum,
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðinesi laugardaginn
4. október. Jarðarförin auglýst síðar.
Lára Haraldsdóttir Sigurður E. Sigurðsson
Hilmar Haraldsson Helga Jónsdóttir
Ragnar Ingi Haraldsson
Guðjón Haraldsson Nína H. Leifsdóttir
Schjetne
Kolfinna Snæbjörg Haraldsdóttir
Friðþjófur Haraldsson Sigríður Ármannsdóttir
Guðmundur Birgir Haraldsson Margrét Jóhannsdóttir
Garðar Haraldsson Sólveig Ástvaldsdóttir
Helga Haraldsdóttir
Jón Sveinbjörn Haraldsson Sigrún A. Kröyer
og ömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og af,
Hörður Karlsson
Háaleitisbraut 109, Reykjavík,
lést að heimili sínu þriðjudaginn 30. september. Útför
hans fer fram frá Grensáskirkju fimmtudaginn 9. okt-
óber kl. 13.00.
Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir
Björg Harðardóttir Erpur Snær Hansen
Stefán Karl Harðarson
Úlfur Alexander Hansen
Eldur Antoníus Hansen
Sveinfríður Sigrún Stefánsdóttir
Okkar elskulegi
Hermóður Sigurðsson
setjari,
sem lést á Landakotsspítala laugardaginn 27. septemb-
er, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
í dag, 7. október, kl. 13. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarsjóð Félags aðstandenda
Alzheimerssjúkra, www.alzheimer.is
Inga Huld Hermóðsdóttir Jóhannes Kristinn Kristinsson
Daði Þór Hermóðsson
Hávarr Hermóðsson
Bergljót Hermóðsdóttir
barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför hjartkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Giselu Halldórsdóttur
Gunnarsbraut 11b, Búðardal,
fyrrum húsfreyju á Hríshóli í
Reykhólasveit.
Reynir Halldórsson
Reinhard Reynisson María Kristjánsdóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Pálsdóttir
Ægisgötu 17, Akureyri,
lést sunnudaginn 28. september á gjörgæslu-
deild Landspítalans. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 9. október kl. 13.30.
Páll Baldursson Erla Hrund Friðfinnsdóttir
Erla Baldursdóttir Steindór Sigursteinsson
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær eiginkona, móðir, amma, dóttir,
systir, mágkona og frænka,
Kolbrún Kjartansdóttir
Geithamrar 10, Reykjavík,
lést sunnudaginn 28. september á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Þökkum starfsfólkinu
fyrir góða umönnun og hlýhug og starfsfólki á 11 E
við Landspítala Hringbraut kærar þakkir fyrir allt.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey, föstudaginn 3. október,
að ósk hinnar látnu. Þökkum ættingjum og vinum fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug.
Sigurbergur Hansson
Elín Sigurbergs
Ingibjörg Sigurbergs
Sigurbergur Magnússon
Kjartan Guðmundsson
Auður Kjartansdóttir Guðmundur Sigurjónsson
Gunnar S. Kjartansson
og systkinabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og fósturafi,
Haraldur Stefánsson
Hlégerði 23, Kópavogi,
lést að heimili sínu þriðjudaginn 30. september.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 9. október kl. 15.00.
Guðrún Ólafía Haraldsdóttir Olav Ingvald Olsen
Ólöf Fjóla Haraldsdóttir Halldór Óskar Arnoldsson
Stefán Már Haraldsson
Elísa Sjöfn Reynisdóttir
Ragnar Harald Reynisson
Steinunn Lilyan Reynisdóttir
Þurí Ósk Elíasdóttir Morten Stokkenes
Lelíta Rós Ycot
Arnold Halldórsson
Jökull Halldórsson
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir og amma,
Sigrún Eiríksdóttir
Víkurbraut 30, Höfn, Hornafirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Hornafirði, þriðju-
daginn 30. september 2008. Útför hennar fer fram frá
Hafnarkirkju laugardaginn 11. október kl. 14. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á gjafa- og minning-
arsjóð Skjólgarðs.
Guðmundur Jónsson
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir Guðjón Pétur Jónsson
Jón Guðmundsson Elín Guðmundardóttir
Eiríkur Guðmundsson Auður Axelsdóttir
Sigrún, Helga Rún, Guðlaug, Guðmundur Hrannar
Höskuldur, Una, Dagrún og Guðmundur.