Fréttablaðið - 07.10.2008, Page 41
ÞRIÐJUDAGUR 7. október 2008 21
Bandaríska söngkonan Pink hafði
betur í einvígi sínu við bresku
rokkarana í Oasis á breska
smáskífulistanum um helgina.
Nýjasta smáskífa hennar, So
What, náði efsta sætinu og ýtti
hún þar með hljómsveitinni Kings
of Leon úr efsta sætinu. Oasis,
sem var einnig að gefa út nýja
smáskífu, The Shock of the
Lightning, náði einungis þriðja
sætinu. Hlýtur það að vera mikið
áfall fyrir Oasis því hljómsveitin
er vön því að hrifsa til sín öll
toppsæti í Bretlandi þegar út
koma ný lög eða plötur. Á breska
breiðskífulistanum hélt plata
Kings of Leon, Only By the Night,
efsta sætinu þrátt fyrir komu
Wills Young inn á listann.
Pink vinsælli
en Oasis
PINK Bandaríska söngkonan Pink er
vinsælli en Oasis í Bretlandi um þessar
mundir.
Framhald
teiknimynd-
arinnar
vinsælu
Kung Fu
Panda er í
undirbúningi
og verður
hún í þetta
sinn gefin út
þrívídd.
Kung Fu
Panda sló
rækilega í gegn víða um heim í
sumar.
Kung Fu Panda 2 er væntanleg
sumarið 2011 og hefur Jack Black
þegar samþykkt að ljá pöndunni
Po rödd sína. Vonir standa til að
Angelina Jolie, sem talaði fyrir
tígrisdýrið, verði einnig með.
Framhald
í þrívídd
KUNG FU PANDA Fram-
hald er væntanlegt
sumarið 2011.
Beverly Hills Chihuahua var
vinsælasta kvikmyndin vestan-
hafs um helgina og námu tekjur
hennar 29 milljónum dollara, eða
um 3,3 milljörðum króna. Myndin
fjallar um hundinn Papio sem
verður yfir sig ástfanginn af
hundinum Chloe. Þegar Chloe
týnist í Mexíkó fer Papi yfir
landamærin til að bjarga ástinni
sinni. Um ekta fjölskyldumynd er
að ræða en skortur hefur verið á
slíkum myndum í Norður-
Ameríku undanfarið. Í öðru sæti
yfir vinsælustu myndirnar var
tryllirinn Eagle Eye með Shia
LaBeouf í aðlhlutverki og í því
þriðja var Nick & Norah.
Hundamynd
á toppnum
BEVERLY HILLS CHIHUAHUA Hunda-
myndin gamansama var vinsælasta
myndin vestanhafs um síðustu helgi.
Elskumst í efnahagsrústunum er
yfirskrift tónleikaferðar hljóm-
sveitanna Skáta og Bloodgroup
sem hefst á miðvikudag. Tón-
leikaferðin er hluti af verkefninu
Innrásin sem styrktarsjóðurinn
Kraumur kom á fót í vor.
Leiðir Skáta og Bloodgroup
lágu fyrst saman á styrktartón-
leikum fyrir systursamtök Stíga-
móta á Akureyri, Aflið, í júní í
fyrra. Hljómsveitirnar spiluðu
einnig saman í Bræðslunni á
Borgarfirði eystri og í Valaskjálf
á Egilsstöðum í sömu ferð við
góðar undirtektir. Hljómsveitirn-
ar Sykur, Dlx Atx og Skakkam-
anage koma einnig við sögu í tón-
leikaferðinni.
Elskast í rústunum
SKÁTAR Hljómsveitin Skátar er á leiðinni
í tónleikaferð ásamt Bloodgroup.
TÓNLEIKAFERÐIN
8. október - Menntaskólinn, Egilsstaðir m. Mini-Skakkamanage
9. október - Hraunsnef, Borgarfirði m. Dlx Atx
10. október - Edinborgarhúsið, Ísafirði m. Dlx Atx
11. október - Græni hatturinn, Akureyri m. Dlx Atx
14. október - Flensborg, Hafnarfirði m. Sykri & Dlx Atx
15. október - Paddy’s, Keflavík m. Sykri & Dlx Atx
17. október – Iceland Airwaves
18. október – Live Pub m. Mammút, Dlx Atx o.fl.
Þursarnir hafa nú fengið sam-
keppni í Bresku Kólumbíu í
Kanada því þar er komin út platan
Journey to Jotunheim með
hljómsveitinni Thursar. Kanadísku
Þursarnir eru gríðarlega leyndar-
dómsfullir og engin ljósmynd er til
af þeim. Liðsmenn sveitarinnar
komu úr sveitunum Xynfonica og
Gluttony. Tónlist Thursanna er
sambland gítarhljóðgervla og
hefðbundinna hljóðfæra frá
Austur-Asíu. Yfir þessa blöndu eru
svo rumdir textar í dauðarokksstíl
um víkingatímabilið. Lögin heita
til dæmis „Thorkel‘s Arrival“ og
„King Godmund‘s palace“.
Þursar fá
samkeppni
í Kanada
NÝALDAR-VÍKINGA-DAUÐAROKK Thursar
frá Kanada.
„Auðvitað er gengið að bögga okkur eins og alla
aðra, en að öðru leyti erum við bara helvíti fínir,“
segir Egill Tómasson, einn af umsjónarmönnum
Iceland Airwaves. Tónlistarhátíðin er nú haldin í
tíunda skipti og hefst á miðvikudaginn í næstu
viku. Hún stendur að vanda fram á sunnudag
og á meðan verður borgin hljómandi af
framsækinni tónlist, innlendri og
erlendri. „Það er engin paník á okkur,“
heldur Egill áfram. „Það hefur selst
meira af miðum en í fyrra og við
búumst við svipaðri aðsókn erlendis
frá og vanalega, ef ekki meiri, enda
gengið hagstætt útlendingum.
Auðvitað vonar maður svo að það
gerist eitthvað og gengið þróist til
baka.“
Egill var einn þeirra Íslendinga
sem var fulltrúi þjóðarinnar í grein
Guardian um helgina. Greinin fjallaði
um hrun íslenska efnahagslífsins og
þar sló Siggi Hall kokkur því fram að
„krútt-kynslóðin“ þurfi nú að fara að
óhreinka á sér hendurnar. „Tja,
eigum við ekki bara að vona að
krútt-kynslóðin sé endanlega
búin að vera,“ segir Egill. „En
það er ljós við enda gang-
anna,“ bætir hann við. „Ég
myndi segja að Iceland
Airwaves sé það ljós.
Maraþon músikveisla sem
fólk getur gleymt sér í.“
Boðið verður upp á
fjörutíu og níu erlend atriði
og yfir hundrað innlend.
Endanleg dagskrá með stað-
og tímasetningum verður
birt mjög fljótlega.
- drg
Við erum bara helvíti fínir
ÞAÐ ER LJÓS VIÐ ENDA GANGANNA
Egill Tómasson hjá Iceland Airwaves.
Amy Winehouse er sögð hafa
reynt að binda enda á líf sitt.
Samkvæmt heimildum breska
dagblaðsins Daily Star hélt
söngkonan hníf við bringu sína
þegar vinir hennar komu að henni
og spurði: „Hver er tilgangurinn
með því að lifa?“
Vinir Amy vakta hana nú allan
sólarhringinn til að koma í veg
fyrir að hún fremji sjálfsmorð en
hún segist ekki óttast dauðann.
Þeir segja söngkonuna ekki ráða
við tilfinningar sínar þar sem hún
sé gjarnan undir áhrifum
eiturlyfja og hún vilji fyrirkoma
sér því hún telji það vera örlög
sín að deyja ung.
Amy í sjálfs-
morðshug-
leiðingum
VILL DEYJA UNG Amy telur það sín örlög
að deyja ung og segist vilja binda enda
á líf sitt.
Yfir eitt hundrað hljómsveit-
ir víðs vegar að úr heimin-
um hafa lifibrauð sitt af því
að spila lög til heiðurs Abba,
þar á meðal hin heims-
þekkta Björn Again og svo
Arrival, sem spilar í Voda-
fone-höllinni 8. nóvember.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
Arrival kemur hingað til lands og
hlakkar söngkonan Vicky mikið
til. „Ég hef heyrt marga góða hluti
um Ísland og mér hefur verið sagt
að ég yrði að koma þangað og núna
er loksins komið að því,“ segir
Vicky.
Arrival, sem hefur haldið Abba-
sýningar víða um heim í tæp fjór-
tán ár, fór í tónleikaferð um Banda-
ríkin í sumar og spilaði fyrir
framan tuttugu til þrjátíu þúsund
manns á hverju kvöldi. „Þeim
finnst mjög merkilegt að við séum
frá Svíþjóð og spyrja okkur alls
konar spurninga, hvort það sé ekki
mikill snjór í Svíþjóð og hvort
Kaupmannahöfn sé höfuðborgin.
Þeir vita ekki mikið um Skandin-
avíu en þeir eru frábært fólk og
enn betri áhorfendur,“ segir hún.
Arrival hefur að undanförnu
verið í hljóðveri að ljúka við upp-
tökur á óútgefnu Abba-lagi sem
nefnist Just a Notion. Fékk sveitin
lánað gamalt Abba-hljómborð við
upptökurnar. „Ég sendi Björn og
Benny lög sem við höfðum tekið
upp og spurði hann um þetta lag
og hann sagði já. Ég veit að þeir
eru mjög strangir varðandi svona
lagað og þess vegna varð ég undr-
andi þegar þeir sögðu já.“
Vicky segist aldrei verða þreytt
á því að spila sömu lögin kvöld
eftir kvöld. „Tónlistin er frábær
og síðan er alltaf jafngaman að sjá
fólkið í salnum brosa og gleðjast
yfir lögunum. Við skemmtun
okkur alltaf vel á sviðinu.“
Til að vera góð Abba-hljómsveit
segir Vicky nauðsynlegt að hafa
góða tónlistarmenn innanborðs
auk þess sem sænskur uppruni sé
mikilvægur. „Það er sjarminn við
þetta. Við berum orðin ekki rétt
fram og útlendingarnir elska það,“
segir hún. freyr@frettabladid.is
Sjarmi við sænskan framburð
ARRIVAL Abba-hljómsveitin Arrival heldur tónleika í Vodafone-höllinni 8. nóvember.
Á vefnum Metacritic.com má sjá
að nýjan platan hennar Emilíönu
Torrini fær mjög góða dóma víð-
ast hvar. Netsíðan tekur saman
dóma hvaðanæva og ef allir dóm-
arnir sem liggja til grundvallar
eru teknir saman kemur í ljós að
platan fær 7,4 í einkunn af 10
mögulegum. Meðal annars segir
tónlistarbiblían All music guide
að platan höfði bæði til bókaorma
og strandpía, heimakærra og
heimsferðalanga, dansara jafnt
sem þeirra sem læðast með
veggjum. MusicOHM segir að
platan sé slípaðri en síðasta plata
Emilíönu og muni höfða til fleiri
og Slant segir að lagið „Gun“ sé
kynþokkafyllsta blóðbað sem
heyrst hafi á plötu. Þá segir hið
víðlesna enska tímarit Q Magaz-
ine að Me & Armini sé ekki plata
sem hlustendur nái strax – til
þess sé hún of torskilin og var-
færnisleg – en um leið og hún
gefi upp leyndarmál sín þá læðist
hún að heila hlustandans og setj-
ist þar að.
Góðu dómarnir
hlaðast á Emilíönu
ME & ARMINI Fær góða dóma.