Fréttablaðið - 07.10.2008, Síða 42
22 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Sigurður Ragnar hafnaði HK
Sigurður Ragnar Eyjólfsson ætlar að einbeita sér að starfi
sínu sem þjálfari A-landsliðs kvenna og var því ekki til-
búinn til að taka við 1. deildarliði HK þegar félagið leitaði
til hans á dögunum. „Þeir buðu mér starf um daginn en
ég hafnaði því,“ sagði Sigurður Ragnar sem sagðist einn-
ig hafa hafnað HK í sumar. „Ég ætla að einbeita mér að
þessu mikilvæga verkefni með kvennalandsliðinu. Mér
finnst það vera spennandi og krefjandi verkefni,“ sagði
Sigurður Ragnar og bætti við: „Það
er heiður að vera boðin þjálfara-
staða bæði í efstu deild og 1.
deild og þá hlýtur maður að
vera að gera eitthvað rétt.“
Íslenska kvennalandsliðið dróst í gær gegn Írlandi í tveimur umspil-
sleikjum um sæti í lokakeppni EM næsta sumar. Landsliðsþjálfarinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson var bara sáttur við væntanlega
mótherja þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær.
„Ég var hálffeginn að sleppa við Tékkland því þær voru
hæst skrifaðar af þessum þremur liðum. Þær voru með
flest stig af öllum liðunum í 3. sæti, þangað var lengsta
ferðalagið og það var fínt að losna við þær,“ sagði
Sigurður Ragnar en Ísland átti möguleika á að mæta
Tékklandi, Skotlandi eða Írlandi.
„Ég held að þetta séu samt áþekk lið. Írland er kannski
góður kostur af þeirri ástæðu að við þekkjum það
betur en hin liðin,“ segir Sigurður Ragnar en
Ísland hefur mætt Írlandi í Algarve-bikarn-
um síðustu tvö ár. „Báðir þessir leikir á
móti þeim hafa verið jafnir,“ sagði Sig-
urður Ragnar en Ísland vann Írland 4-
1 í vetur. Írska liðið er að ná sínum
besta árangri með því að komast
í umspilið. „Þær hafa verið á stöðugri uppleið. Á þessum heimslista
sem ég hef verið að halda saman eru þær að bæta sig þriðja mest
allra þjóða og eru þar rétt á eftir okkur,“ segir Sigurður en Brasilía er
þar í efsta sæti yfir þær þjóðir sem hafa bætt sig mest frá því í jan-
úar 2007. „Þær hafa verið að ná fínum úrslitum,“ segir Sigurður.
Í liðinu eru meðal annars fjórir leikmenn í enska liðinu Arsenal
þar á meðal aðalmarkvörður liðsins, Emma Byrne.
„Við eigum að vera sterkara liðið og við ætlum að fara báða
leikina til að vinna þá. Við verðum síðan að sjá hvernig það
gengur,“ segir Sigurður Ragnar sem er bjartsýnn á möguleika
kvennalandsliðsins eins og áður
„Við eigum betri möguleika en nokkurt annað A-landslið
hefur átt á að komast í úrslitakeppnina. Ég held að
það verði stórt atriði fyrir okkur að fá góðan og
öflugan stuðning í seinni leiknum á Laugardals-
velli. Það verður alltaf úrslitaleikurinn sama
hvernig fyrri leikurinn fer. Vonandi fyllum
við völlinn.“
SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON, LANDSLIÐSÞJÁLFARI KVENNA: ÍSLAND MÆTIR ÍRLANDI Í UMSPILINU
Var hálffeginn að sleppa við Tékkland
FÓTBOLTI Skagamaðurinn ungi er
eftirsóttur þessa dagana. Hann
greindi frá því í Fréttablaðinu á
dögunum að hann ætlaði sér ekki
að spila með ÍA í 1. deildinni sem
og að hugurinn stefndi út.
Hann er þegar farinn að skoða
sína möguleika og að því er Vísir
greindi frá í gær er Björn hjá
norska liðinu Lilleström og
heldur aftur heim í dag.
Í sömu frétt kemur fram að ÍA
eigi í kjölfarið von á tilboði í
framherjann.
Félög víða um Evrópu hafa sýnt
Birni áhuga og ekki loku fyrir það
skotið að hann skoði aðstæður hjá
fleiri félögum. - hbg
Björn Bergmann:
Í skoðun hjá
Lilleström
BJÖRN BERGMANN Kemur heim frá
Noregi og hugsanlega á leiðinni til fleiri
félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Nokkur meiðsli eru í
landsliðshópi Hollands fyrir
leikinn gegn Íslandi á laugardag.
Þeir Arjen Robben og Jan
Vennegor of Hesselink hafa nú
dregið sig út úr hópnum vegna
meiðsla.
Robben meiddist með Real
Madrid um helgina í leiknum
gegn Espanyol en Hesselink
meiddist í leik með Celtic.
Tvímenningarnir munu ekki
bara missa af leiknum gegn
Íslandi heldur einnig af leiknum
gegn Noregi fjórum dögum síðar.
Bert van Marjwik, landsliðs-
þjálfari Hollendinga, hefur ekki
valið aðra menn í hópinn í stað
þessara tveggja. - hbg
Meiðsli hjá Hollendingum:
Robben frá
gegn Íslandi
ARJEN ROBBEN Fjarri góðu gamni gegn
Íslandi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Kvennalið Vals er á leið-
inni til Svíþjóðar á morgun þar
sem liðið berst við meistarana frá
Svíþjóð, Ítalíu og Kazakstan um
tvö laus sæti í átta liða úrslitum
Evrópukeppni kvenna.
Valskonur keppast að því að
jafna árangur sinn frá 2005 þegar
þær komust áfram en þær voru
aðeins hársbreidd frá því að leika
það eftir í fyrra. Valsliðið fékk
góðan meðbyr í gær frá Orkuveitu
Reykjavíkur sem styrkti Valskon-
ur um eina milljón sem kemur sér
vel enda fjárfrekt að taka þátt í
keppni sem þessari.
Elísabet Gunnarsdóttir, annar
þjálfara Valsliðsins, segir stefn-
una hafa verið sett á að komast
áfram en hún veit að verkefnið
hefur líklega aldrei verið erfiðara.
„Þetta er sterkasti riðillinn sem
við höfum farið í hingað til. Ef við
förum yfir riðlana þá er þetta að
mínu mati sterkasti riðillinn. Við
vitum að það væri mikið afrek
fyrir okkur að fara upp úr þessum
riðli,“ segir Elísabet.
Umeå hefur tvisvar orðið Evr-
ópumeistari félagsliða, ítalska
liðið Bardolino komst í undanúr-
slitin í fyrra og Alma frá Kazak-
stan hefur bætt sig mikið frá því
að Valur vann það 8-0 árið 2005.
Valsliðið mætir sænsku meist-
urunum í Umeå í fyrsta leik en
fyrirfram er álitið að þar fari
sterkasta lið riðilsins. „Það er
kannski fínt að mæta þeim núna,
þær eru nýorðnar meistarar í Sví-
þjóð og kannski líkur á því að þær
vanmeti okkur. Við höfum undir-
búið okkur vel og höfðum engu að
tapa í þessum leik,“ segir Elísa-
bet.
Í fyrra munaði engu að Valsliðið
skellti þýska stórliðinu Frankfurt
í fyrsta leik en þýska liðið tryggði
sér sigurinn með tveimur mörk-
um í lokin. „Við vorum nálægt því
að vinna fyrsta leikinn á móti
Frankfurt og ég tel að trúin sé svo
sannarlega til staðar í liðinu. Við
vorum alveg vissar um að ef við
skipulegðum okkur vel, spiluðum
með aga og með hjartanu þá
gætum við náð góðum úrslitum á
móti hverjum sem væri,“ segir
Elísabet.
Valsliðið spilaði á föstudags-
kvöldið æfingaleik við kvenna-
landsliðið og Elísabet var mjög
ánægð með hann. „Leikurinn við
landsliðið hjálpaði okkur mjög
mikið því við áttum í ákveðnum
erfiðleikum í bikarúrslitaleiknum.
Það voru hlutir sem við þurftum
að laga og taka í gegn. Við gátum
lagfært þá hluti og því var mjög
nauðsynlegt að fá þennan leik,“
segir Elísabet.
Hún segir Valsliðið hafa tekið
miklum framförum í líkamlega
þættinum undanfarin ár en eftir
langt tímabil er það annað sem
hún hefur meiri áhyggjur af.
„Það er alltaf erfitt að halda
andanum ferskum þegar komið er
svona langt fram á tímabil. Nú
erum við komin fram í október og
tímabilið er búið að vera langt. Ég
hef mestar áhyggjur af því hvort
andinn og ástríðan verði áfram til
staðar í október,“ segir Elísabet
sem segir undirbúninginn hafa
tekið mið af þessu. „Við höfum
verið að reyna að gefa þeim frí-
daga en þær eiga erfitt með það og
mæta samt,“ segir Elísabet kímin.
Fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir er
ein af þessum leikmönnum sem
mæðir mikið á á mörgum víg-
stöðvum. „Beta var sniðug því hún
gaf okkur smá frí þegar við
komum úr landsliðsferðinni.
Maður er búinn að ná að hvílast
vel og er tilbúinn í þetta. Þetta er
orðið mjög langt en við erum í
þessu af því að þetta er mjög
gaman og okkur langar til að ná
árangri. Það eru virkilegir mögu-
leikar á að ná árangri núna þannig
að maður tekur bara pásuna þegar
þetta er búið,“ segir Katrín. Hún
var eins og Elísabet mjög ánægð
með að fá æfingaleikinn á móti
landsliðinu. „Það var mjög skrítin
stemning þarna en þetta var mjög
fínt fyrir okkur. Við erum að fara
að mæta sterkum andstæðingum
þarna úti og það var gott að fá að
spila við svona góðan andstæðing
áður en við förum út,“ segir Katr-
ín.
Katrín ætlar ekki að velta sér of
mikið upp úr því hvaða stórstjörn-
ur skipi lið Umeå sem verður
fyrsti mótherji Vals á fimmtudag-
inn. „Við verðum að spila okkar
leik og það er mjög mikilvægt að
við einblínum ekki alltof mikið á
einstaka leikmenn hjá þeim. Þær
eru hæst skrifaðar og ég held að
það sé bara fínt að fá þær í fyrsta
leik því þær vita ekki alltof mikið
um okkur,“ segir Katrín að lokum.
ooj@frettabladid.is
Mikið afrek ef við komumst áfram
Orkuveita Reykjavíkur styrkti kvennalið Vals um milljón í gær en Valskonur eru á leið til Svíþjóðar þar
sem eitt besta lið Evrópu bíður þeirra í fyrsta leik á fimmtudaginn. Valskonur eru í erfiðasta riðlinum.
UMEÅ BÍÐUR Margrét Lára Viðarsdóttir, Katrín Jónsdóttir og Elísa-
bet Gunnarsdóttir eru á leiðinni til Svíþjóðar á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÖRFUBOLTI Formenn félaga í Ice-
land Express-deildinni hittust með
forráðamönnum KKÍ í Laugar-
dalnum í gær. Þar var farið yfir
stöðu mála í ljósi efnahagsástands-
ins og menn skiptust á hugmynd-
um. Eins og fram hefur komið
hafa ÍR-ingar ákveðið að leika án
erlendra leikmanna í vetur en þeir
segja að forsendur fyrir rekstri
meistaraflokks séu brostnar í ljósi
hamfara í íslensku efnahagslífi.
„Þessi fundur gekk ágætlega.
Menn ræddu málin vítt og breitt í
ljósi þeirrar stöðu sem er í samfé-
laginu. Það sem kom út úr þessum
fundi er að menn ætla að skoða
sína stöðu á næstu forsendum,“
sagði Friðrik Ingi Rúnarsson,
framkvæmdastjóri KKÍ, en hann
staðfestir að fleiri félög en ÍR séu
að íhuga að fækka útlendingum
eða hreinlega sleppa því að spila
með útlendinga. „Svo gerist það
líka kannski, hvort sem mönnum
líkar betur eða verr, að menn hafi
ekkert val í þessu máli. Það verð-
ur tíminn bara að leiða í ljós. Félög
á fundinum sögðust vera að skoða
sín útlendingamál og sögðu það
koma til greina að fara í frekari
aðgerðir.“
Heyrst hefur að einhver félög
vilji keyra í gegn reglugerðar-
breytingar sem annað hvort banni
erlenda leikmenn í deildinni eða í
það minnsta fækki þeim. Slíkar
reglugerðarbreytingar er aðeins
hægt framkvæma á ársþingi. For-
menn félaga geta þó farið fram á
aukaþing en þar myndu aðeins
forráðamenn þeirra félaga sem
sátu síðasta ársþing hafa atkvæð-
isrétt. Að sögn Friðriks Inga var
það þing ekki vel sótt og því ekki
margir með atkvæðisrétt í mál-
inu.
„Menn ætla að sýna þá ábyrgð
að fara yfir stöðu mála sem er
eðlilega erfið. Þetta var góður
fundur, góður andi í mönnum og
mjög hollt að hittast til að fara yfir
stöðuna,“ sagði Friðrik Ingi.
- hbg
Formenn félaga í Iceland Express-deildinni héldu „kreppufund“ með KKÍ í gær:
Fleiri félög íhuga að fækka útlendingum
HVAÐ SKAL GERA? Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri KKÍ, og Hannes Jóns-
son, formaður KKÍ, sjást hér á fundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON