Fréttablaðið - 07.10.2008, Síða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn
7. október, 280. dagur ársins.
7.55 13.15 18.34
7.43 13.00 18.16
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Ferðaskrifstofa
16. og 30. október. Hotel Silken Indautxu. Innifalið: Flug og gisting
í 3 eða 4 nætur, morgunverður, fl ugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
23. október. Hotel Don Paco. Innifalið: Flug og gisting í 3 nætur,
morgunverður, fl ugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
19. nóvember. Movenpick Hotel. Innifalið: Flug og gisting í 5 nætur,
morgunverður, fl ugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
23. október. Ballsbridge Inn. Innifalið: Flug og gisting í 4 nætur,
morgunverður, fl ugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
6. nóvember. Hotel Tryp Gran Via. Innifalið: Flug og gisting í 3 nætur,
morgunverður, fl ugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
Undanfarna daga hef ég verið með óbragð í munninum. Á
þessu kann ég ekki almennilegar
skýringar en ég held að það tengist
lítið þeirri staðreynd að ég er komin
um það bil sjö mánuði á leið. Reynd-
ar átti ég fyrra barn mitt um það
leyti sem bankarnir voru færðir til
einkaaðila. Við maðurinn minn
vorum að útskrifast úr skóla, nýbú-
in að eignast okkar fyrstu íbúð og
lítinn dreng, sumarið var eitt hið
heitasta í Íslandssögunni, fólk
horfði á Innlit/útlit og hlustaði í
andakt á hetjusögur af íslensku
útrásinni – allt leit svona ægilega
vel út.
HETJUSÖGURNAR hafa glumið
á almenningi frá því þá. Sjálfstæð-
isflokknum var þakkað allt gott. Og
eins og ég hef bent á þá var gortað
um gott gengi bankanna á lands-
fundi flokksins í fyrra og sagt: „Því
ber að huga að enn frekari einka-
væðingu á öðrum sviðum s.s. á sviði
heilbrigðis-, mennta- og orkumála.“
Hjúkket! að það var ekki búið að
ráðast í allt þetta einkaframtak. Nú
segir forsætisráðherra að alþjóð-
legt fjármálaumhverfi hafi rústað
bankana. Mér leikur samt forvitni
á að vita hvers vegna aldrei var
sagt að góðærið væri ekki bara til
komið vegna þeirrar stöðu sem þá
ríkti í alþjóðlegu fjármálaum-
hverfi, greiðu aðgengi að lánum og
fasteignabólunni.
ÉG get ekki neitað því að ég er upp-
full af reiði og óbragðið í munni
mér, sem ég nefndi í byrjun, vænt-
anlega vegna þess að maður þarf að
kyngja öllu því sem á undan er
gengið þegjandi og hljóðalaust. Það
er ekki annað í boði en treysta for-
sætisráðherranum sem sagði 31.
mars að botninum væri náð, fjár-
málaráðherranum sem líklega er
enn tilbúinn til að spyrja almenning
hvort hann sjái ekki veisluna, nú
eða treysta orðum forsvarsmanna
þeirra banka sem eftir eru og reyna
að ýta þeirri staðreynd til hliðar að
það er örstutt síðan sagt var að allt
væri í stakasta lagi hjá Glitni.
REYNDAR leið mér þannig í gær
að mér hálfbauð við fólki. Öll gildi
virðast nú á hvolfi, Range Roverar
vekja upp vorkunn, jakkaföt ýta
undir tortryggni og fullyrðingar
um góða stöðu skapa ótta. Það sem
mildaði geðsmuni mína og dró úr
mér mestu gremjuna var ferð inn í
bakarí í gær. Þar inni stóð ung
kona, líklega ættuð frá Póllandi,
sem sagði mér brosandi að sól-
kjarnabrauðið væri sérlega gott.
Þegar hún ætlaði að sneiða það
fyrir mig hljóp til hennar á að giska
fjögurra ára drengur. Hann hafði
átt að sitja hljóður á bak við en þar
sem hann óttaðist svo um hag
móður sinnar nálægt skurðarvél-
inni varð hann að gæta að henni.
Enn er eitthvað gott og fallegt á
sínum stað.
Sólkjarnabrauð