Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.10.2008, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 20.10.2008, Qupperneq 32
20 20. október 2008 MÁNUDAGUR MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI! NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 16 16 L 14 16 L L L L MAX PAYNE kl. 8 - 10 HOUSE BUNNY kl. 6 - 10 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 8 SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 6 16 L 14 L MAX PAYNE kl. 5.45D - 8D - 10.15D MAX PAYNE LÚXUS kl. 5.45D - 8D - 10.15D HOUSE BUNNY kl. 5.45 - 8 - 10.15 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8 - 10.10 BURN AFTER READING kl. 8 - 10.15 MAMMA MIA kl. 5.30 SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 3.45 GRÍSIRNIR 3 kl. 3.45 LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 3.45 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI 50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ KAUPIR BÍÓMIÐANN Á L 16 7 14 L THE WOMEN kl. 5.30 - 8 - 10.30 MAX PAYNE kl. 5.45 - 8 - 10.15 HAMLET 2 kl. 10.15 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40 - 8 - 10.10 MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 5% 5% SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000 16 L 16 16 12 L BANGKOK DANGER kl. 5.30 - 8 - 10.20 HOUSE BUNNY kl. 6 - 8.20 - 10.30 BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15 PINAPPLE EXPRESS kl. 8 - 10.30 STEP BROTHERS kl. 5.45 550kr. fyrir börn 650kr. fyrir fullorðna ÁLFABAKKA SELFOSS AKUREYRI KEFLAVÍK KRINGLUNNI FRÁ HÖFUNDI „THE NOTEBOOK” SEX DRIVE kl. 8 - 10:10 12 SMART PEOPLE kl. 8 L BURN AFTER READING kl. 10 16 PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 16 BABYLON A.D. kl. 10:10 16 REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 14 SEX DRIVE kl. 8 - 10 12 RIGHTEOUS KILL kl. 8 16 PATHOLOGY kl. 10 16 SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP MAX PAYNE kl. 5:50 - 8 - 10:10 16 NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8 - 10:10 L PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 16 WILD CHILD kl. 8 L GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 L TROPIC THUNDER kl. 10:20 16 SVEITA BRÚÐKAUP kl. 5:50 L SEX DRIVE kl. 6 - 8:10 - 10:20 12 NIGHTS IN RODANTHE kl. 8:10 L HAPPY GO LUCKY kl. 8 12 QUEEN RAQUELA kl. 10:20D 12 DEATH RACE kl. 10:20 16 JOURNEY 3D kl. 6 L WILD CHILD kl. 5:50 L SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE Á 100 Km hraða! DIGITAL-3D TOPP GRÍNMYND! MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI! MARK WAHLBERG - bara lúxus Sími: 553 2075 THE WOMEN kl. 5.50, 8 og 10.10 L SKJALDBAKANN OG HÉRINN kl. 6 (650)- ÍSL.TAL L RIGHTEOUS KILL kl. 6, 8 og 10 16 REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 og 10 12 ATH! 650 kr. Feitasta dagskráin á Air- wav es-hátíðinni hefur yfirleitt verið á laugardags- kvöldinu og árið í ár var þar engin undantekning og eins og oft áður var ljóst að nú þyrfti að velja og hafna. Kvöldið byrjaði samt ekki vel. Ég var mættur tímanlega eins og nokkrir tugir annarra gesta til að hlusta á þýsku tónlistarkonuna Gudrunu Gut á Tunglinu. Húsið var opnað og áður auglýst dag- skrá hékk á hurðinni en ekkert gerðist og salurinn beið og beið. Seinna kom í ljós að Gudrun hafði ekki komið til landsins. Auðvitað geta listamenn alltaf forfallast, en það er lágmarkskurteisi að láta tónleikagesti vita. Ekki flókin aðgerð að hengja upp auglýsingu eða tilkynna í hljóðkerfi. Manni finnst nú að eftir tíu ár ætti Air- waves að ráða við svo einfalt verkefni. Á Nasa var hins vegar allt sam- kvæmt áætlun. Þar fóru strákarn- ir í Sudden Weather Change á kostum. Frábært band sem minnti svolítið á Sonic Youth með þriggja gítara framlínu. Á Tunglinu hélt hinn þýski Thomas Fehlmann uppi fínu stuði með dub-skotna teknóinu sínu, en eftir nokkur lög hjá honum var stefnan tekin aftur á Nasa til að hlusta á Singapore Sling. Sú sveit starfar í sínum eigin útúrsvala afkima og lætur strauma og stefnur ekkert slá sig út af laginu. Henni tekst einhvern veginn að halda sér síferskri og skilaði fínum tónleikum á laugar- dagskvöldið. Á Tunglinu var Svala Björgvins skrýdd gylltum vængjum og hljómsveitin hennar Steed Lord á fínu flugi. Rafpoppið hennar er að verða hrárra og villtara. Það var heljarinnar biðröð fyrir utan Hafnarhúsið sem virtist þó ganga nokkuð hratt fyrir sig. Inni voru færeysku drengirnir í Boys in a Band með salinn á valdi sínu. Margir tónleikagestir hrópuðu „Færeyjar! Færeyjar!“ út í eitt og urðu ofsa glaðir þegar sveitin dreifði færeyskum fánum yfir salinn fyrir lokalagið. Ágætt rokk- band. Næst var komið að brasilísku sveitinni CSS. Ég ákvað að færa mig fram að sviði til að sjá þau betur. CSS er greinilega mjög vel smurð tónleikasveit. Settið þeirra var sérstaklega vel upp byggt og söngkonan Lovefoxxx er greini- lega ein af þessum stjörnum sem hefur þetta auka eitthvað sem skilur alvöru poppstjörnur frá okkur hinum. CSS var hreint frá- bær, 50 fullkomnar mínútur sem náðu hámarki með lokalögunum Let’s Make Love and Listen to Death From Above og Alala. Á eftir þeim tók New York-sveitin Vampire Weekend við. Hún er svolítið „bragð mánaðarins“ og á eina af bestu plötum ársins. Það er í raun aðdáunarvert hvað þeir félagar ná að búa til flotta tónlist með einföldum aðferðum. Bassa- leikarinn er lykilmaður í bandinu. Það var greinilegt að salurinn gjörþekkti lögin og söng glaður með. Skemmtilegt. Á Tunglinu var allt stappað þegar hin franska Yelle steig á svið með aðstoðarmanni. Sérlega dansvænt og fjörlegt rafpopp þar á ferð sem féll vel í kramið. Ég endaði svo kvöldið með FM Bel fast á Nasa. Eitt stórt sveitt partí og 15 manns hoppandi og hlæjandi á sviðinu þegar ég yfir- gaf staðinn. Viðeigandi lokapunkt- ur á fínu kvöldi. Hápunktur: CSS Trausti Júlíusson Magnað laugardagskvöld ALVÖRU POPPSTJARNA Söngkonan Lovefoxxx fór fyrir CSS í Hafnarhúsinu. Þeir tónleikar voru hápunktur laugardagskvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FLOTTIR FÆREYINGAR Boys in a Band dreifðu færeyska fánanum til áheyrenda sem kunnu vel að meta. SKEMMTILEGIR Vampire Weekend var vel tekið, áheyrendur þekktu lögin og sungu með.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.