Fréttablaðið - 20.10.2008, Síða 34

Fréttablaðið - 20.10.2008, Síða 34
22 20. október 2008 MÁNUDAGUR Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Kynntu þér tæmandi lista yfir ferðir á leiki á www.expressferdir.is 5.–6. nóvember Arsenal Fenerbahce 5.–7. desember Arsenal Wigan 28.–30. október Arsenal Tottenham F í t o n / S Í A Boltinn er hjá okkur! Verð á mann í tvíbýli: 60.000 kr. Innifalið: Flug m/sköttum og hótel með morgunmat í 2 nætur. Verð á mann í tvíbýli: 55.000 kr. Innifalið: Fug m/sköttum, Club level miði á leikinn og hótel í eina nótt. Verð á mann í tvíbýli: 70.900 kr. Innifalið: Flug m/sköttum, Club lever miði á leikinn, hótel m/morgunmat í 2 nætur. TILBOÐ TILBOÐ sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Guðmundur Steinarsson frá Keflavík og Valskonan Dóra María Lárusdóttir voru útnefnd bestu leikmenn í Landsbanka- deildinni á lokahófi KSÍ á laugardagskvöldið. Guðmundur fór mikinn í silfurliði Keflavíkur í sumar, skoraði mörk og lagði upp fjölda annarra fyrir félaga sína. Dóra María var í lykilhlutverki í Íslandsmeistaraliði Vals og átti frábært sumar. Þá voru Blikarnir Jóhann Berg Guðmundsson og Hlín Gunn- laugsdóttir útnefnd efnilegustu leikmennirnir. Akureyringurinn Jóhannes Valgeirsson fékk síðan verðlaun sem besti dómarinn en Garðar Örn Hinriksson hafði einokað þau verðlaun undanfarin ár. Þjálfari ársins í Landsbanka- deild kvenna var Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavík- ur, en Valsþjálfararnir Elísabet Gunnarsdóttir og Freyr Alexand- ersson voru þjálfarar ársins í Landsbankadeild kvenna. - hbg Lokahóf KSÍ: Guðmundur og Dóra María best BEST Dóra María Lárusdóttir þótti bera af hjá konunum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM > Guðjón Valur vann Íslendingaslaginn Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik í gær þegar lið Guðjóns Vals Sigurðssonar, Rhein- Neckar Löwen, lagði Minden, 27-36, en með Minden leika Íslendingarnir Gylfi Gylfason og Ingimundur Ingimundarson. Guðjón Valur skoraði fimm mörk fyrir Löwen í leiknum og þar af fjögur úr vítaköstum. Gylfi og Ingimundur komust ekki á blað hjá Minden í gær. Flest bendir til þess að miðvörðurinn sterki, Gunnlaugur Jóns- son, verði spilandi þjálfari hjá Selfossi næsta sumar. Zoran Miljkovic, sem hefur gert frábæra hluti með Selfossliðið, verður ekki áfram við stjórnvölinn hjá félaginu og það leitaði í kjölfarið til Gunnlaugs og nú vantar lítið upp á að Gunnlaug- ur skrifi undir hjá félaginu. „Þetta kom upp í byrjun síðustu viku. Ég gaf þessu ekki mikinn gaum til þess að byrja með en svo hugsaði ég málið betur og í kjölfarið leist mér bara vel á dæmið. Þetta gæti orðið afar spennandi,“ sagði Gunnlaugur við Fréttablaðið í gær en hann var þá á leiðinni til Selfoss í samninga- viðræður. „Ég hef alltaf haft hug á að fara í þjálfun. Kannski ekki þetta snemma en maður verður að grípa gæsina þegar tækifærin koma. Ég er með UEFA B-próf og mér skilst að ég þurfi tvö stig til viðbótar svo ég verði löglegur þjálfari. Það er hægt að taka þau stig í vetur og því ætti ég að vera löglegur áður en næsta tímabil byrjar. En ef liðið fer í úrvalsdeild þá þarf ég eitthvað meira. Við sjáum hvað setur,“ sagði Gunnlaugur léttur og vitnaði til þess að Selfoss fari í úrvalsdeild fari svo að Fram og Fjölnir sameinist. „Ég átti smá samtal við KR eftir bikarúrslitaleikinn og var tjáð að þar væru öll mál í skoðun. Ég veit ekki meir og því ákvað ég að skoða aðra hluti. Ef þetta gengur upp þá er þetta rökrétt skref á mínum ferli,“ sagði Gunnlaugur sem verður 35 ára á næsta ári. Gunnlaugur segist ætla að setja þrýsting á Sævar Þór Gíslason til að halda áfram fari svo að hann taki við liðinu. Einnig muni hann leggja áherslu á að halda hópnum sem er fyrir en einhver lið hafa verið að krukka í efnilega leikmenn liðsins sem sló svo rækilega í gegn í sumar. „Ég hafði ekki hugsað mér að flytja strax til Selfoss en þegar strípurnar og tribal-tattooið er komið er aldrei að vita nema maður taki slag- inn,“ sagði Gunnlaugur og hló dátt en hann er nú ekki með mikið hár til að setja strípur í eins og fólk ætti að vita. „Það er smá í hliðunum. Við verðum að láta það duga.“ GUNNLAUGUR JÓNSSON: TEKUR LÍKLEGA VIÐ LIÐI SELFOSS FLJÓTLEGA OG ÆTLAR AÐ SPILA LÍKA Flyt kannski á Selfoss þegar strípurnar koma FÓTBOLTI Tveir leikir fóru fram í enska boltanum í gær. Í fyrri leik dagsins lagði spútnik-lið Hull City Íslendingafélagið West Ham, 1-0, með marki frá Michael Turner. Hull stökk upp í þriðja sæti deild- arinnar með sigrinum. Þessi byrjun Hull í deildinni er sú besta hjá nýliðum í ensku úrvalsdeildinni í heil 115 ár. Það var aðeins Sheff. Utd sem hefur byrjað betur en það var leiktíðina 1893–94 en þá sigraði Sheff. Utd í sjö af fyrstu átta leikjum sínum. „Frammistaðan var mögnuð, menn leggja sig alla fram og sýndu enn og aftur frábært hugarfar. Strákarnir neita að leggjast niður og deyja og það er frábært fyrir stjóra að hafa slíkan mannskap. Ég tek hatt minn ofan fyrir þess- um drengjum en mun fara fram á meira af slíku,“ sagði Phil Brown, stjóri Hull, eftir sigurinn. Stoke City skellti síðan Totten- ham á Brittania, 2-1, þar sem Spurs lék manni færri nánast allan leikinn í kjölfar þess að Gareth Bale fékk að líta rauða spjaldið eftir 17 mínútna leik. Danny Higginbotham og Rory Delap sáu um markaskorun hjá Stoke en Darren Bent skoraði mark Spurs í leiknum. - hbg Ævintýri Hull heldur áfram og ógöngur Tottenham ætla engan endi að taka: Besta byrjun nýliða í 115 ár ÓTRÚLEGIR Hull City er nánast óstöðvandi þessa dagana og skellti West Ham í gær. NORDIC PHOTOS/AFP Meistaradeild Evrópu: Haukar-Fotex Veszprém 27-26 (16-10) Mörk Hauka: Freyr Brynjarsson 8 (10), Kári Kristján Kristjánsson 5 (8), Andri Stefan 4 (11), Sigurbergur Sveinsson 4/2 (12/2), Elías Már Hall- dórsson 2 (4), Gunnar Berg Viktorsson 2 (4), Einar Örn Jónsson 2 (5/1), Arnar Agnarsson (3). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 14/1 (32/3 43,8%), Gísli Guðmundsson 4 (13/1 30,8%) Hraðaupphlaup: 8 (Freyr 3, Elías 2, Einar, Andri, Gunnar) Fiskuð víti: 3 (Kári 2, Gunnar) Utan vallar: 14 mínútur Mörk Veszprém: Nikola Eklemovic 9 (12), Marko Vujin 6/2 (12/3), David Korazija 5/1 (7/2), Ferenc Ilyés 2 (4), Marian Cozma 1 (1), Gyula Gál 1 (3), Pérez Reinaldo 1 (5), Zarko Markovic 1 (5), Ivan Lapcevic (1), Zarko Sesum (1) Varin skot: Dejan Peric 23/1 (50/3 46%) Hraðaupphlaup: 4 (Eklemovic 2, Korazija, Vujin) Fiskuð víti: 5 (Eklemovic 2, Markovic, Sesum, Korazija) Utan vallar: 14 mínútur HANDBOLTI Íslandsmeistarar Hauka gerðu sér lítið fyrir og sigr- uðu ungverska stórliðið Veszprém, 27-26, á Ásvöllum. Haukar hafa þar með sigrað í báðum heima- leikjum sínum í meistaradeildinni til þessa og eru með fjögur stig úr þremur leikjum. Haukar léku frábærlega í fyrri hálfleik og náðu að byggja upp sex marka forskot, 16-10, fyrir leik- hlé. Birkir Ívar varði 12 skot í hálfleiknum og var frábær fyrir aftan sterka vörnina. „Við vorum virkilega áræðnir í varnarleiknum og sýndum mikið frumkvæði og ætluðum að slá þá út af laginu með framliggjandi vörn. Við náðum að sleppa dýrinu í okkur og komum af krafti í þetta. Birkir varði ótrúlega vel og við keyrðum í bakið á þeim. Það var mikill kraftur í þessu,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, um fyrri hálfleikinn. Haukar mættu af krafti til leiks eftir hlé og voru níu mörkum yfir þegar 10 mínútur voru liðnar af hálfleiknum, 23-14. Þá féllu Haukar í þá gryfju að verja for- skotið og gestirnir minnkuðu mun- inn jafnt og þétt þar til aðeins munaði einu marki. Blessunarlega fyrir Hauka kom síðasta mark Veszprém þegar 35 sekúndur voru eftir af leiknum og náðu Haukar að halda boltanum út leiktímann og tryggja góðan sigur á einu sterkasta félagsliði Evrópu. Allt annað var að sjá til Hauka en í deildarleiknum gegn Val á miðvikudag þegar Haukar voru rassskelltir illilega. „Við spiluðum fínan handbolta í dag og áttum þetta fyllilega skilið. Það var til skammar hvernig við spiluðum á miðvikudaginn og það var yfir alla línuna. Menn vissu upp á sig skömmina og komu hingað til að leggja sig alla fram,“ sagði Arnar Pétursson, fyrirliði Hauka, að leik loknum. „Allt liðið spilar frábærlega. Við spilum skynsamlega í sókninni og boltinn flaut betur en hann hefur gert áður á tímabilinu. Við erum mjög góðir þegar allir leggja sig 100 prósent fram en erum líka jafnlélegir þegar menn gera það ekki. Við vorum ekki smeykir í lokin en auðvitað nálguðust þeir okkur og eru mjög sterkir. Við kláruðum þetta og brotnuðum ekki,“ sagði Arnar. Aron Kristjánsson sagði ekki vera erfitt að gera leikmenn til- búna í leikina í meistaradeildinni. „Stóru leikirnir eru í Meistara- deildinni en við þurfum samt sem áður að sýna af okkur meiri fag- mennsku en við gerðum á móti Val en það var allt annað að sjá okkur í dag. Við spiluðum af svipuðum krafti og við gerum á móti Flens- burg á útivelli. Við vorum mjög ákveðnir og einbeitingin var til fyrirmyndar,“ sagði Aron sem vildi sjá fleira fólk á vellinum. „Ég verð virkilega vonsvikinn ef það verður ekki fullur kofi þá,“ sagði Aron. - gmi Haukar keyrðu Veszprém í kaf Haukar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar ungverska stórliðið Fotex Veszprém kom í heimsókn á Ásvelli. Haukar lönduðu eins marks sigri, 27-26, og hafa þar með unnið báða heimaleiki sína í meistaradeildinni. ÖFLUGUR Birkir Ívar varði vel í Hauka- markinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÍNUSENDING Gunnar Berg Viktorsson reynir hér að lauma boltanum inn á línuna til Gísla Jóns Þórissonar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.