Fréttablaðið - 02.11.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
2. nóvember 2008 — 300. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Opið 13–18
FÓLK Rúnar og Arnar Halldórssynir skipuðu barna-
dúettinn The Boys fyrir meira en áratug. Nú er poppið
í aftursætinu hjá bræðrunum og þeir nema ný lönd.
Á föstudaginn var tilkynnt með viðhöfn um úrslit í
einni stærstu arkitektasamkeppni sögunnar í Dan-
mörku. Rúnar er í sigurliði arkitektarstofu Stevens
Holls í New York, sem hannaði tvo skýjakljúfa sem
munu rísa á Nordhavn og verða eins konar hlið að
Kaupmannahöfn. „Við unnum fimm saman að þessu á
stofunni en Steven Holl gekk svo sjálfur frá verkinu,
eins og vaninn er,“ segir Rúnar. „Steven Holl er einn af
frægustu arkitektum heims í dag og ég fór á stofuna
hans í verknám eftir að ég hafði verið í skóla í Dan-
mörku. Eftir verknámið réði hann mig í vinnu og ég er
búinn að vera hér í ár.“
Vinningstillaga Rúnars og félaga verður hæsta
íveru-byggingin í Danmörku, stærri turninn 113 metr-
ar og 27 hæðir. Byggingarnar munu standa hvor sínu
megin við hafnarmynnið og göngubrú í 65 metra hæð
verður á milli þeirra. - drg / sjá síðu 22
Rúnar Halldórsson, annar bræðranna úr The Boys snýr aftur á nýjum vettvangi:
Teiknar skýjakljúf í Kaupmannahöfn
HETJA SEM VEIT HVER
ILLMENNIN ERU
Daniel Craig talar um James Bond,
kæstan hákarl, sem hann smakk-
aði við Jökulsárlón, og hatrammar
deilur Breta og Íslendinga.
VIÐTAL 12
KÚRT Í KULDANUM
Rómantísk næturgisting
í aðdraganda jóla
VÍÐAST ÚRKOMA Í dag verða
SA- 5-13 m/s en SV-lægari síðdegis.
Rigning sunnan til og vestan.
Slydda eða rigning norðan og aust-
an til síðar í dag. Hiti víðast 3-10
stig, þegar kemur fram á daginn.
VEÐUR 4
4 2
1
69
FERÐALÖG Í MIÐJU BLAÐSINS
MÓTMÆLI Á annað þúsund
manns gengu frá Hlemmi niður
á Austurvöll í gær til að
mótmæla ástandinu í efnahags-
málum. Fjórir vörubílar fóru á
undan og þeyttu lúðra.
Þetta er í þriðja sinn sem
mótmælin fara fram en þau
voru þó með öðru sniði en áður.
Fjórir ræðumenn töluðu á
fundinum á Austurvelli. Óskar
Ástþórsson leikskólakennari
frá Kennarasambandinu, Sturla
Jónsson vörubílstjóri, Pétur
Tyrfingsson sálfræðingur og
Lárus Páll Birgisson sjúkraliði.
Kolfinna Baldvinsdóttir, einn
skipuleggjanda mótmælanna
segir þjóðina ekki treysta
ríkisstjórninni lengur né
seðlabankastjórn. Fólk vilji
þær frá og frekari mótmæli séu
fyrirhuguð. „Við hættum ekki
fyrr en skilaboðin komast til
skila,“ segir Kolfinna. Til
stendur að endurtaka leikinn
næsta laugardag.
- rat
Mótmæli í miðbænum:
Á annað þús-
und mótmæltu
Dramatískt jafntefli í Drammen
LOGI GEIRSSON SKORAÐI
ÞRETTÁN MÖRK 17
ENN MÓTMÆLT Á AUSTURVELLI „Ekki meir Geir,“ hrópaði mannfjöldinn á Austurvelli í gær. Fjölmenni var á svæðinu og létu Eyj-
ólfur Eyvindarson rappari og Hallgrímur Helgason rithöfundur sig ekki vanta. Forsprakkar mótmælanna eru hvergi nærri hættir
og segja fleiri mótmælafundi fyrirhugaða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNMÁL Davíð Oddsson er
alfarið í umboði Sjálfstæðis-
flokksins í embætti seðlabanka-
stjóra. Samfylkingin styður hann
ekki í því embætti. Þetta létu ráð-
herrar Samfylkingarinnar nýver-
ið bóka á ríkisstjórnarfundi sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Sjaldgæft er að bókanir séu lagð-
ar fram á ríkisstjórnarfundum.
Sigurður Líndal lagaprófessor
segir bókun sem þessa afar sér-
staka og bera vitni um alvarlegan
ágreining. Þegar slíkur ágrein-
ingur sé uppi sé undarlegt að fólk
sætti sig við slíka stöðu án þess
að krefjast breytinga.
Mikill styr hefur staðið um
störf Davíðs Oddssonar síðustu
vikur. Í Morgunblaðinu í gær
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, formaður Samfylkingar, að
það hafi skaðað orðspor Íslend-
inga erlendis hvernig haldið hafi
verið á umræðunni af hálfu Dav-
íðs Oddssonar, formanns banka-
stjórnar Seðlabankans. Hún sagði
ýmsar aðgerðir og yfirlýsingar
stjórnar bankans á síðustu dögum
og vikum orka mjög tvímælis. „Í
þeirri viðkvæmu stöðu sem þjóð-
in er í núna getur það ekki gengið
til lengdar,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún.
Össur Skarphéðinsson vildi
ekki tjá sig um bókunina þegar
Fréttablaðið leitaði til hans í gær.
„Ég hef það að meginreglu að
ræða það ekki sem ráðherrum
fer á milli á ríkisstjórnarfund-
um,“ sagði Össur.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er talsverð óánægja með
störf Davíðs innan raða sjálf-
stæðismanna. Í Fréttablaðinu í
gær minnti Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, á að hún
hefði sagt að Seðlabankinn hefði
gert mistök þegar hann leyfði
bönkunum ekki að gera upp í
evrum. - kdk/þo
Samfylking bókar að Davíð
starfi ekki í hennar umboði
Ráðherrar Samfylkingarinnar lögðu fram bókun á ríkisstjórnarfundi þar sem þeir segja Davíð Oddsson,
formann stjórnar Seðlabankans, alfarið starfa í umboði Sjálfstæðisflokksins. Sjaldgæft að bókanir séu
lagðar fram í ríkisstjórn. Ber vitni um alvarlegan ágreining, segir Sigurður Líndal lagaprófessor.