Fréttablaðið - 02.11.2008, Page 2
2 2. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
VERSLUN Allar verslanir BT voru
lokaðar um helgina og óvíst hvort
þær opni aftur. Engum hefur
verið sagt upp að sögn Sverris
Berg Steinarssonar eiganda
Árdegis ehf. sem rekur verslanir
BT. Hann segir nú unnið allan
sólarhringinn við að leita lausna
til bjargar rekstri þeirra fyrir-
tækja sem tengjast Árdegi en það
eru, auk BT, verslunin Next og
Noa Noa.
„Við kláruðum sölu á Skífunni á
föstudag og erum að vinna að
lausnum fyrir BT en það er
ekkert komið á hreint hvort við
þurfum að loka einhverjum
verslananna alveg.“ - rat
Árdegi í björgunarleiðangri:
BT var lokað
um helgina
UMFERÐIN Rannsóknarnefnd
umferðarslysa fer fram á að
ökuleyfisaldur verði hækkaður í
18 ár. Umferðarlög eru nú í
endurskoðun og vill rannsóknar-
nefndin að auk hækkunar
ökuleyfisaldurs verði settar
takmarkanir á réttindi öku-
manna með bráðabirgðaskír-
teini, til dæmis á afl bíla sem
þeir aka.
Tillögurnar byggir nefndin á
niðurstöðum rannsókna á
tveimur umferðarslysum fyrr á
árinu. Í öðru tilfellinu lést ungur
maður og annar slasaðist mikið
og í hinu tilfellinu lést ökumaður
vélhjóls eftir að hafa misst
stjórn á hjóli sínu í kappakstri.
- rat
Ökuleyfisaldur hækki:
Bílprófið 18 ára
EFNAHAGSMÁL Sú leið sem Finnar
notuðu út úr efnahagsvanda sem
gekk yfir þjóðina á níunda
áratugnum gæti gagnast
Íslendingum nú.
Stefán Ólafsson prófessor við
Háskóla Íslands hefur rannsak-
að finnsku leiðina og flytur um
það erindi á opnum borgara-
fundi framtíðarhóps Samfylk-
ingarinnar í Iðnó í dag klukkan
15.
Finnar endurskipulögðu
samfélagið í heild sinni og
standa nú meðal þeirra þjóða
sem sterkastar eru í alþjóðlegri
samkeppnishæfni og lífsgæðum.
- rat
Lausn á efnahagsvanda:
Finnar fundu
leið úr kreppu
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
fengi aðeins 22,3 prósent
atkvæða ef gengið yrði til
kosninga nú, samkvæmt könnun
sem Capacent Gallup gerði fyrir
Morgunblaðið.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur
því hrunið en í síðustu kosning-
um fékk flokkurinn 37 prósent
atkvæða.
Samfylkingin er samkvæmt
könnuninni stærsti stjórnmála-
flokkur landsins og fengi tæp 37
prósent atkvæða.
Vinstri hreyfingin grænt
framboð fengi tæp 27 prósent
atkvæða ef kosið yrði nú og
Framsóknarflokkurinn tæp átta
prósent. Frjálslyndi flokkurinn
fengi 4,4 prósent og Íslands-
hreyfingin 1,5 prósent.
Capacent Gallup gerði
könnunina dagana 27. - 29.
október og voru 1.200 manns í
úrtakinu. Svarhlutfallið var 58,7
prósent. - kh
Könnun Capacent Gallup:
Fylgi Sjálfstæð-
isflokks hrynur
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur maður
hefur verið dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir hótanir og ofbeldis-
verk gegn lögreglumönnum við
störf, þjófnaði, tilraun til fjársvika
og fleiri brot. Samanlagðir ákæru-
liðir ríkissaksóknara og lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu
eru tuttugu og þrír talsins.
Maðurinn beit lögreglumann
sem var við skyldustörf í fingur.
Þá hrækti hann í andlit annars lög-
reglumanns á lögreglustöð. Hann
sparkaði í sköflung þriðja lög-
reglumannsins.
Maðurinn margbraut umferðar-
lög, bæði með því að aka réttinda-
laus sem og undir áhrifum áfengis
og fíkniefna. Hann stal ýmsu úr
verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu, bæði matvörum, snyrtivörum
og fatnaði. Þá stal hann ítrekað
áfengi úr vínbúðum.
Stórtækastur var hann þó þegar
hann stal í félagi við annan mann
úr vörugámum Byko við Skarfa-
garða í Reykjavík. Mennirnir stálu
fimm sinnum úr gámunum. Þeir
höfðu tuttugu og tvö sjónvarps-
tæki upp úr krafsinu, auk 7,5 lítra
af pallaolíu.
Maðurinn á langan sakaferil að
baki. - jss
Maður á fertugsaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjölmörg brot:
Beit lögreglumann við störf
og hrækti framan í annan
LÖGREGLUSTÖÐIN Maðurinn lét öllum illum látum eftir að hann hafði verið færður á
lögreglustöð.
ATVINNULÍF „Hljóðið í bæjarbúum
er ansi þungt,“ segir Aðalsteinn
Baldursson, formaður verkalýðs-
félags Húsavíkur. Undirbúningi
nýs álvers á Bakka hefur verið
frestað í ljósi efnahagsaðstæðna
og viljayfirlýsing milli Alcoa og
Landsvirkjunar um rannsóknar-
boranir var ekki endurnýjuð um
mánaðamót.
„Vissulega vorum við hrædd um
að þetta gæti gerst en engu að
síður eru þetta gífurleg vonbrigði.
Menn hafa verulegar áhyggjur af
atvinnuástandinu, sérstaklega iðn-
aðarmenn sem sjá fram á erfiðan
vetur og undirverktakar sem hafa
verið að þjónusta Jarðboranir hf.,“
segir Aðalsteinn en boranir á
Þeistareykjum og við Kröflu hafa
verið slegnar af.
Bergur Elías Ágústsson, sveitar-
stjóri Norðurþings, segir að tugir
manna starfi við undirbúning
álversframkvæmdanna. „Það er
enginn vafi á því að einhverjir
munu missa vinnuna. Við höfum
haft miklar væntingar til þessara
framkvæmda og mörg störf hafa
skapast í kringum undirbúninginn
á síðustu misserum bæði fyrir
verkafólk, iðnaðarmenn og alls
kyns fagfólk. Það er ekkert laun-
ungamál að við höfum sett mesta
okkar orku og fjármuni í þetta
verkefni því það er mjög atvinnu-
skapandi. Við erum í erfiðri stöðu
núna en gerum bara eins og önnur
sveitarfélög og metum okkar burði
til að fjármagna önnur verkefni og
halda hjólunum gangandi,“ segir
Bergur sem efast þó ekki um að
allt fari vel að lokum.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, iðn-
aðarráðherra, ákvað í sumar að
heildstætt mat skyldi fara fram á
umhverfisáhrifum vegna fyrir-
hugaðs álvers á Bakka. Bergur og
Aðalsteinn eru sammála um að
staðan væri önnur nú hefði
úrskurður skipulagsstofnunar um
að sameiginlegt mat skyldi ekki
fara fram verið látinn standa.
„Þórunn ber töluverða ábyrgð á
því hvernig staðan er hjá okkur
núna. Ákvörðun hennar varð til
þess að allt tafðist,“ segir Aðal-
steinn. Þessu vísar Þórunn á bug
og bendir á að Landsvirkjun,
Þeistareykir ehf. og Alcoa hafi
gefið yfirlýsingu um frestun und-
irbúnings vegna aðstæðna á alþjóð-
legum fjármálamarkaði. „Þetta er
ákvörðun þessara þriggja fyrir-
tækja og hefur ekkert með
umhverfismat að gera. Allar full-
yrðingar um annað eru fráleitar og
úr lausu lofti gripnar,“ segir
Þórunn.
thorgunnur@frettabladid.is
Búast við að afleidd-
um störfum fækki
Húsvíkingar óttast að störfum á svæðinu fækki nú þegar undirbúningi álvers á
Bakka hefur verið frestað. Umhverfisráðherra segir fráleitt að ákvörðun hennar
um heildstætt umhverfismat hafi orðið til þess að seinka verkefninu.
SLYS Tíu ára drengur slasaðist talsvert þegar hann
féll fram af klettabrún um átta til tíu metra ofan í
urð í gærdag.
Drengurinn var á veiðum með föður sínum í
Svínadal í Reyðarfirði. Drengurinn var fluttur frá
Egilsstöðum með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Önnur rjúpnaskytta slasaðist einnig töluvert
þegar hún hrapaði í hlíð við Hafursstaði í Hnappa-
dal seinni partinn í gær. Björgunarsveitin Elliði fór
á slysstað en þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hinn
slasaða.
Þyrlan fór svo eftir þriðju rjúpnaskyttunni sem
slasaðist í gær en þá fótbrotnaði maður illa í
Sanddalstungu í Norðurárdal. - rat
Þrjár rjúpnaskyttur slösuðust á veiðum í gær þar af einn drengur alvarlega:
Féll tíu metra fram af kletti
ÞEISTAREYKIR Rannsóknarboranir fyrir fjóra milljaðra króna voru fyrirhugaðar á
næsta ári við Kröflu og á Þeistareykjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDURRFV
ÞÓRUNN SVEIN-
BJARNARDÓTTIR
AÐALSTEINN
BALDURSSON
BERGUR ELÍAS
ÁGÚSTSSON
KÍNA Yfirvöld í Kína hafa hafið
refsiherferð gegn matvælafram-
leiðendum sem bættu melamíni
út í vörur sínar. Búist er við að
einhverjir forstjórar matvæla-
fyrirtækja verði dregnir fyrir
dóm.
Fyrir rúmu ári var dauði fjölda
gæludýra í Bandaríkjunum
rakinn til melamínmengunar í
kínversku dýrafóðri. Þúsundir
ungbarna hafa síðan veikst vegna
melamínmengunar í þurrmjólk
en matvælaframleiðendur bæta
efninu út í svo varan sýnist
innihalda meira prótín.
Orðspor Kínverja hefur beðið
hnekki vegna málsins og er
stjórnvöldum mikið í mun að
sýna að þau taki hart á málinu.
- rat
Melamín í matvörum:
Framleiðend-
um refsað
Ölvuð á vesturlandsvegi
Lögreglan í Borgarnesi tók unga konu
fyrir ölvunarakstur á Vesturlandsvegi
aðfaranótt laugardags og reyndist
konan mjög ölvuð.
LÖGREGLUMÁL
Í NÓGU AÐ SNÚAST Þyrla Landhelgisgæslunnar hafði í nógu
að snúast í gær enda rjúpnaveiðitímabilið hafið.
Geiri, tryggir þetta okkur
lánið?
„Pottþétt. Nú erum við með Pútín í
vasanum.“
Ásgeir Davísson veitingamaður, betur
þekktur sem Geiri á Goldfinger, bauð
fjörutíu rússneskum sjómönnum í mat
en þeir eru strandaglópar á Íslandi og fá
ekki launin sín frá Rússlandi.
SPURNING DAGSINS