Fréttablaðið - 02.11.2008, Síða 28

Fréttablaðið - 02.11.2008, Síða 28
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög NÓVEMBER 2008 Á VEIÐUM Vefsíðan www. thecoolhunter.co.uk er algjör snilld fyrir forvitna ferðalanga sem hafa unun af fallegri hönnun, góðum veitingastöð- um, áhugaverðum sýningum og nýjum verslunum um heim allan. Það er hægt að verða áskrifandi að fréttabréfi nu með tölvupósti og ætti það að verða skyldulesning fyrir alla sem eru að leita að fegurð í heiminum. Ritstjóri vefsins, Bill Tikos, er svo að gefa út bók sem heitir The World‘s Coolest Hotel Rooms og er væntanleg með vorinu. FERSK SÝN Á WARHOL Um þessar mundir stendur yfi r áhugaverð sýning um föður popplistarinnar, Andy Warhol, í London. Á sýningunni, sem er í The Hayward Gallery, eru þekkt málverk, myndbönd og sjónvarpsþættir sem gefa góða yfi rsýn yfi r fjölhæfni lista- mannsins. Einnig eru sýndar frægustu kvikmyndir Warhols, meðal annars Sleep, Empire og Chelsea Girls, auk Fifteen Minutes þar sem stjörnum eins og Jerry Hall og Debbie Harry bregður meðal annars fyrir. Sjaldgæfar prufuupptök- ur sem Warhol gerði af Salvad- or Dali, John Cale og Marcel Duchamp eru einnig til sýnis ásamt öllum 42 þáttum úr sjónvarpsseriunni Fashion: Andy Warhol‘s TV sem hann gerði á níunda áratugnum. Sýningin stendur til 18. janúar. BSÍ , 101 Reykjavík , 562-1011, main@re.is, www.flybus.is Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll Alltaf laus sæti www.flybus.is NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT ÞÚ KEMST ÞANGAÐ MEÐ OKKUR!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.