Fréttablaðið - 02.11.2008, Side 33
SUNNUDAGUR 2. nóvember 2008 17
sport@frettabladid.is
Undank. EM í handbolta
Noregur-Ísland 31-31(16-13)
Mörk Íslands: (skot) Logi Geirsson 13/5 (16/5),
Arnór Atlason 6 (11), Þórir Ólafsson 3 (5), Ásgeir
Örn Hallgrímsson 2 (6), Guðjón Valur Sigurðsson
2 (4), Róbert Gunnarsson 2 (2), Vignir Svavars
son 1 (1) , Einar Hólmgeirsson 1 (5), Ragnar
Óskarsson 1 (1), Ingimundur Ingimundarson (1).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 11, Hreiðar
Guðmundsson 3.
Enska úrvalsdeildin
CHELSEA-SUNDERLAND 5-0
1-0 Alex (26.), 2-0 Nicolas Anelka (29.), 3-0
Nicolas Anelka (45.), 4-0 Frank Lampard (50.),
5-0 Nicolas Anelka (52.).
EVERTON-FULHAM 1-0
1-0 Louis Saha (86.).
MANCHESTER UNITED-HULL 4-3
1-0 Cristiano Ronaldo (2.), 1-1 Daniel Cousin
(22.), 2-1 Michael Carrick (28.), 3-1 Cristiano
Ronaldo (43.), 4-1 Nemanja Vidic (56.), 4-2
Bernard Mendy (68.), 4-3 Geovanni (81.).
MIDDLESBROUGH-WEST HAM 1-1
0-1 Hayden Mullins (20.), 1-1 Mido (83.).
PORTSMOUTH-WIGAN 1-2
0-1 Amr Zaki (45.), 1-1 Niko Kranjcar (81.), 1-2
Emile Heskey (91.).
STOKE-ARSENAL 2-1
1-0 Ricardo Fuller (10.), 2-0 Seyi Olofinjana (72.),
2-1 Gael Clichy (93.).
TOTTENHAM HOTSPUR-LIVERPOOL 2-1
0-1 Dirk Kuyt (2.), 1-1 Sjálfsmark (69.), 2-1
Roman Pavlyuchenko (90.).
WEST BROMWICH-BLACKBURN 2-2
0-1 Benni McCarthy (12.), 1-1 Roman Bednar
(54.), 1-1 Roman Bednar (55.), 2-1 Ishmael
Miller (61.), 2-2 Keith Andrews (89.)
N1-deild kvenna
Haukar-Fram 25-22 (12-10)
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 11/1, Tatanja
Zukovska 5, Hanna G. Stefánsdóttir 5, Ester
Óskarsdóttir 2, Þórdís Helgadóttir 1, Nína Kristín
Björnsdóttir 1.
Varin skot: Bryndís Jónsdóttir 28 (47/3, 60%),
Heiða Ingólfsdóttir 0 (af 3/1, 0%)
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 10/3, Sara Sig-
urðardóttir 3, Þórey Rósa Stefánsdóttir 2, Marthe
Sördal 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Hildur
Knútsdóttir 1, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, Paula
Nevarilova 1.
Varin skot: Gabriela Cristescu 15/1 (40/2, 38%).
HK-Fylkir 27-18 (8-11)
Mörk HK: Jóna Sigríður Halldórsdóttir 9, Pavla
Kulíková 6, Arna Sif Pálsdóttir 5, Brynja Magnús-
dóttir 2, Elín Anna Baldursdóttir 2, Elísa Ósk
Viðarsdóttir 1, Elva Björg Arnarsdóttir 1, Erna
Davíðsdóttir 1.
Mörk Fylkis: Rebekka Rut Skúladóttir 6, Hanna
Rut Sigurjónsdóttir 3, Katrín Andrésardóttir 2,
Sunna Jónsdóttir 2, Kristín Kara Collins 2, Ásdís
Rut Guðmundsdóttir 1, Sunna María Einarsdóttir
1, Nataly Sæunn Valensia 1.
Grótta-Valur 14-33 (7-15)
Mörk Gróttu: Harpa Baldursdóttir 5, Laufey Ásta
Guðmundsdóttir 4, Tinna Laxdal Gautadóttir 3,
Ragna Karen Sigurðardóttir 1, Elsa Rut Óðins-
dóttir 1.
Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 9, Íris Ásta
Pétursdóttir 6, Dagný Skúladóttur 5, Hildigunnur
Einarsdóttir 5, Eva Bjarna 3, Drífa Skúladóttir
2, Soffía Gísladóttir 1. Guðrún Drífa Hólmgeirs-
dóttir 1, Hafrún Kristjánsdóttir 1.
Stjarnan-FH 30-29 (14-11)
Markahæstar: Alina Petrache 10/2, Sólveig Lára
Kjærnested 6, Birgit Engl 5, Elísabet Gunnarsdótt
ir 4 - Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 11/5,
Hildur Þorgeirsdóttir 7.
Iceland Express kvenna:
KR-Haukar 53-72 (29-47)
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 16, Sigrún
Ámundadóttir 11 (16 frák., 5 stoðs.), Guðrún Ósk
Ámundadóttir 8, Helga Einarsdóttir 4, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir 4, Guðrún Arna Sigurðar-
dóttir 4, Heiðrún Krismundsdóttir 3, Kristín Björk
Jónsdóttir 2, Rakel Viggósdóttir.
Stig Hauka: Kristrún Sigurjónsdóttir 26 (9 frák., 8
stoðs., 8 stolnir), Helena Hólm 11, Ragna Margrét
Brynjarsdóttir 10 (10 frák.), Slavica Dimovska 8,
Telma Fjalarsdóttir 6, Sara Pálmadóttir 4, Bryndís
Hreinsdóttir 3, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, María
Lind Sigurðardóttir 2.
ÚRSLITIN Í GÆR
> Risaleikir í fyrstu umferð
Tvö efstu lið Landsbankadeildar karla og kvenna mætast
í fyrstu umferð Íslandsmótsins á næsta ári en dregið var í
töfluröð undir lok fundar formanna og framkvæmdastjóra
í höfuðstöðvum KSÍ í gær. Keflavík og FH mætast hjá körl-
unum og KR og Valur hjá konunum. Aðrir
leikir í fyrstu umferð kvenna eru:
Keflavík-Fylkir, Afturelding-Stjarnan,
Breiðablik-Þór/KA og ÍR-GRV. Aðrir
leikir í fyrstu umferð karla eru: Fram-
ÍBV, Breiðablik-Þróttur, Stjarnan-Grinda-
vík, KR-Fjölnir og Fylkir-Valur. Valur og KR
mætast í lokaumferðinni hjá körlunum en
Íslandsmeistarar FH spila aftur síðsta leik
sinn á Fylkisvellinum.
Haukakonur héldu áfram sigurgöngu sinni í N1-deild
kvenna í handbolta í gær þegar liðið vann Fram,
25-22. Þetta var fimmti sigurleikur liðsins í röð en
Haukar hafa unnið alla leiki síðan liðið tapaði á
móti toppliði Stjörnunnar í fyrsta leik.
„Ég er mjög ánægð með þetta og þetta var góð
afmælisgjöf sem þær gáfu mér í dag,“ sagði
Díana Guðjónsdóttir, þjálfari liðsins, sem
varð 35 ára á föstudaginn. „Þetta lítur ágæt-
lega út. Ég var ánægð með markvörsluna
og varnarleikinn. Við erum búin að fá á
okkur 22 mörk í síðustu tveimur leikjum.
Sóknarlega erum við enn þá svolítið
villtar og við þurfum að laga það,“ segir
Díana en Guðrún Bryndís Jónsdóttir stóð sig
mjög vel í markinu í gær, varði 19 skot í fyrri
hálfleik og alls 28 skot í öllum leiknum. „Hún
hlýtur að fara að banka á einhverjar dyr. Hún
er búin að vera að verja í kringum tuttugu
bolta í öllum leikjum og er að standa sig vel. Hún var
varamarkvörðurinn okkar í fyrra en ég byrjaði í maí að
byggja hana upp í að vera markvörður númer eitt. Það
hefur gengið mjög vel,“ segir Díana en Ramune Pek-
arskyte átti líka frábæran dag og skoraði 11 mörk þrátt
fyrir að vera tekin úr umferð stóran hluta leiksins.
„Mér finnst allt annar bragur á Ramune núna og hún
er að spila miklu betur hjá mér núna en hún gerði til
dæmis í fyrra. Hvað veldur því hef ég ekki hugmynd
um. Við erum að minnsta kost að ná betur
saman og skilja hvor aðra betur og það kemur
fram í okkar leik,“ segir Díana.
Díana segist ætla bara að taka einn leik fyrir
í einu. „Þetta er samstilltur hópur og mjög
skemmtilegar stelpur. Það er ýmislegt
hægt að gera með svona hóp. Þetta er
samt bara byrjunin og það er bara enn þá
1. nóvember,“ sagði Díana að lokum.
DÍANA GUÐJÓNSDÓTTIR, ÞJÁLFARI HAUKA: FÉKK FIMMTA SIGURINN Í RÖÐ Í AFMÆLISGJÖF FRÁ SÍNUM STELPUM
Við Ramune erum farnar að skilja hvor aðra betur
GÓÐAR Í GÆR Guðrún Bryndís
Jónsdóttir (til vinstri) varði 28
skot í markinu og Ramune Pek-
arskyte fór á kostum í sókninni
og skoraði 11 mörk.
HANDBOLTI Íslenska hand-
boltalandsliðið náði mikilvægu
stigi í hús eftir dramatískan leik
og 31-31 jafntefli við Noreg í und-
ankeppni EM í Drammen í gær.
Þórir Ólafsson var hetja íslenska
liðsins á lokamínútunni en maður
leiksins var þó Logi Geirsson sem
tók af skarið í sókninni eins og
honum er einum lagið. Íslenska
liðið lék án lykilmanna í leiknum
og missti síðan fyrirliðann meidd-
an útaf í upphafi seinni hálfleiks.
„Þetta var svakalegur leikur. Ég
er mjög ánægður með stigið. Það
vantar mjög sterka leikmenn frá
því á Ólympíuleikunum og svo
misstum við fyrirliðann okkar út.
Liðið sýndi alveg svakalega góðan
karakter,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari eftir
leikinn. Hann var hás enda mikið
búið að ganga á. „Það þurfti að
koma mikið af skilaboðum inn á
völlinni og þetta var náttúrulega
svakaleg spenna,“ sagði Guð-
mundur.
Útlitið var ekki bjart í fyrri hálf-
leik þegar Norðmenn voru komnir
sex mörkum yfir en íslenska liðið
gafst ekki upp og náði að koma
muninum niður í þrjú mörk fyrir
hálfleik.
„Þetta leit ekki vel út á tímabili
en við misstum aldrei trúna, Fyrri
hálfleikurinn var okkur erfiður
þar sem að við spiluðum ekki
nægilega vel í vörninni. Við vorum
líka að henda boltanum frá okkur
og misnota hraðaupphlaup og við
ræddum það í hálfleik að við
ættum helling inni,“ segir Guð-
mundur og bætir við: „Ég talaði
sérstaklega um að bæta vörnina
og fara að keyra hraðaupphlaupin.
Það tvennt gekk eftir og það var
frábært að vera komnir yfir. Það
var ótrúleg seigla hjá liðinu.“
Íslenska liðið lék síðan mjög vel
fram eftir öllum seinni hálfleik og
var tveimur mörkum yfir þegar
tíu mínútur voru eftir. Þá kom
slæmur kafi þar sem Norðmenn
skoruðu fimm mörk í röð og kom-
ust í 29-26 þegar aðeins 4 mínútur
voru eftir. Íslenska liðið sýndi þá
mikinn karkater og náði að vinna
lokamínúturnar 5-2 og tryggja sér
afar dýrmætt stig.
„Logi átti stórkostlegan leik í
sókninni og vítin hans voru eftir-
minnileg,“ sagði Guðmundur en
Logi Geirsson var engum líkur í
þessum leik og þá munaði einnig
um innkomu félaga hans í Lemgo,
Vignis Svavarssonar, í vörnina
eftir að Sverre Jakobsson hafði
fengið tvær brottvísanir í fyrri
hálfleik. Arnór Atlason stýrði líka
íslensku sókninni vel og skoraði
líka mikilvæg mörk.
Ísland og Noregur er nú jöfn
með þrjú stig en það er nóg af
leikjum eftir ennþá. „Við megum
ekki misstíga okkur og það bíða
okkar mjög erfiðir leikir,“ sagði
Guðmundur að lokum en það má
segja að liðið hafi unnið pínulítinn
sigur þrátt fyrir jafntefli.
Liðið var án lykilmanna eins og
Ólafs Stefánssonar, Snorra Steins
Guðjónssonar, Alexanders Peters-
sonar og Sigfúsar Sigurðarssonar
og það hefðu fáir veðjað á að liðið
myndi ná í stig vitandi síðan að
Guðjón Valur Sigurðsson myndi
meiðast. Logi Geirsson sýndi hins
vegar að hann getur tekið liðið
upp á sína arma og hann á mikið í
þessu stigi í gær. ooj@frettabladid.is
Sýndu svakalegan karakter
Þórir Ólafsson tryggði Íslandi jafntefli gegn Norðmönnum í Drammen með því
að skora tvö mörk á síðustu hálfu mínútu leiksins. Logi Geirsson átti stórleik og
skoraði þrettán mörk. Guðjón Valur Sigurðsson meiddist illa á ökkla.
MIKILVÆG MÖRK Þórir Ólafsson skoraði
2 af 3 mörkum sínum á síðustu 30
sekúndum leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STÓRKOSTLEGUR Logi Geirsson skoraði 13
mörk úr aðeins 16 skotum í Drammen í
gær. Norðmenn reyndu líka að taka hann úr
umferð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Haukakonur unnu afar
sannfærandi 19 stiga sigur á KR,
52-73, í DHL-höllinni í Iceland
Express deild kvenna í körfu.
Kristrún Sigurjónsdóttir,
fyrirliði Hauka, átti frábæran
leik og gældi við fjórfalda tvennu
með því að skora 26 stig, taka 9
fráköst, senda 8 stoðsendingar og
stela 8 boltum. Helena Hólm og
Ragna Margrét Brynjarsdóttir
áttu báðar ágætan leik en það
háði ekki mikið Haukaliðinu að
Slavica Dimovka var í villuvand-
ræðum og skoraði aðeins 8 stig.
Haukar hafa unnið 3 af 4 leikjum
sínum og eru í 2. sæti ásamt Val
og Keflavík.
KR-liðið hefur tapað þremur
leikjum í röð og liðið hefur líka
skorað færri stig með hverjum
leik. Sigrún Ámundadóttir og
Hildur Sigurðardóttir voru að
reyna en vandamálið er liðsheild-
in og stemningin sem er ekki
þeirra megin þessa dagana. -óój
Iceland Express kvenna:
Kristrún frábær
AÐ SPILA VEL Kristrún Sigurjónsdóttir
kemur vel undan sumri. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FORMÚLA 1 Úrslitin í formúlu eitt
ráðast í dag í lokakeppni ársins
sem fram fer í Brasilíu.
Heimamaðurinn Felipe Massa á
Ferrari er á ráspól en hann er sjö
stigum á eftir Lewis Hamilton í
baráttunni um heimsmeistaratitil-
inn. Hamilton ræsir fjórði en á
milli þeirra verða Jarno Trulli og
Kimi Raikkönen.
Hamilton nægir fimmta sætið í
kappakstrinum í dag til að verða
yngsti heimsmeistari sögunnar en
lokabaráttan verður í beinni á
Stöð 2 Sport kl. 16.00 í dag. - óój
Úrslitastund í formúlu 1 í dag:
Massa á ráspól
FÓTBOLTI Það urðu óvænt úrslit í
ensku úrvalsdeildinni í gær þegar
botnlið Tottenham varð fyrsta
liðið til að vinna Liverpool í vetur
og Stoke vann 2-1 sigur á Arsenal.
Manchester United var nærri
búið að missa sinn leik á móti í
Hull í jafntefli en vann að lokum
4-3 og komst upp í 3. sætið. Chel-
sea er hins vegar komið á toppinn
eftir 5-0 stórsigur á Sunderland
þar sem Nicolas Anelka skoraði
þrennu.
Harry Redknapp hefur byrjað
frábærlega með Tottenham-liðið
sem hefur náð í sjö stig í fyrstu
vikunni undir hans stjórn. Liðið
náði 4-4 jafntefli á móti nágrönn-
um sínum í Arsenal í vikunni með
því að skora tvö mörk í blálokin
og í gær tryggði Rússinn Roman
Pavljutsjenko liðinu 2-1 sigur
með marki á 90. mínútu.
Liverpool átti leikinn
fyrsta klukktímann og
átti meðal annars þrjú
stangar- eða sláarskot en
sjálfsmark Jamie Carrag-
her stuðaði liðið sem missti
völdin og sá síðan á eftir
öllum stigunum.
Það voru fleiri óvænt úrslit.
Tvö löng innköst Rory Delap skil-
uðu tveimur mörk- um og
lögðu grunninn
að óvæntum 2-
1 sigri Stoke á Arsenal en
Manchester United komst fyrir
vikið upp í 3. sætið eftir 4-3 sigur
á Hull þar sem spútniklið deildar-
innar skoraði tvö mörk í lokin og
pressaði meistarana á þeirra
eigin heimavelli.
Chelsea hefur ekki grátið mikið
tapið fyrir Liverpool því tveir
öruggir sigrar með markatölunni
8-0 hafa komið í liðinu í toppsætið
á ný. Frakkinn Nicolas Anelka
skoraði þrennu í 5-0 sigri Chelsea
á Roy Keane og lærisveinum
hans í Sunderland en öll mörk
liðsins komu á fyrstu 53 mín-
útunum. - óój
Botnlið Tottenham vann topplið Liverpool og Chelsea komst á toppinn með 5-0 sigri á Sunderland:
Ótrúleg fyrsta vika hjá Harry Redknapp
MAGNAÐUR Harry Redknapp er
búinn að ná í 7 stig í fyrstu 3 leikj-
unum sem stjóri Tottenham. NORDICPHOT-