Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 35
SUNNUDAGUR 2. nóvember 2008 19 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Sunnudagur 02. nóvember ➜ Kvikmyndir 15.00 MÍR sýnir tvær heimildar- myndir eftir rússneska kvikmynda- gerðarmanninn Júrí Salnikov í húsa- kynnum MÍR, Hverfisgötu 105. Andspyrnubíó - Pólitíst kvik- myndahátíð 31. okt.-2. nóv. í Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23. Nánari upplýsingar www.kaffihljomalind.org ➜ Umræður 11.00 Í kjölfar kreppu á kaffi- húsi Félag áhugafólks um heim- speki, Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri verða með umræður á Bláu könnunni, Hafnarstræti 96, Akureyri. ➜ Fræðsla 10.00 Fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju Katrín Jakobsdóttir ræðir um stöðu kirkjunnar og krist- innar siðfræði í nútíman- um. Fræðslumorgnarnir fara fram í suðursal Hallgrímskirkju. ➜ Sýningar Suðuramerísk menningarhátíð í Kópavogi 15.00 Ekvador að fornu og nýju Leiðsögn verður um sýninguna í Gerðarsafni, Hamraborg 4. ➜ Listamannsspjall 15.00 Draugur á ID LAB Huginn Þór Arason segir frá verki sínu Draugur á Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu. Verkið er hluti af sam- sýningunni ID-LAB. ➜ Uppákomur Leiðsögn og listasmiðja fyrir börn í Hafnarborg í tengslum við sýning- una Tveir Módernistar - Þorvaldur Skúlason og Sigurjón Ólafsson. 14.00 Listasmiðja fyrir börn þar sem listaverkin eru skoðuð og skap- að eitthvað nýtt. 15.00 Gunnar J. Árnason listfræð- ingur verður með leiðsögn um sýninguna. ➜ Leiðsögn 14.00 Ást við fyrstu sýn Þóra Þórisdóttir listfræðingur verður með leiðsögn þar sem hún fjallar um verk Paulu Modersohn-Becker. Listasafn Íslands, Laufásvegi 12, opið alla daga nema mán kl. 11.00-17.00. ➜ Tónlist 14.00 Tónlistardagskrá við kerta- ljós í Fossvogskirkju Fram koma Keith Reeds, Helga Rós Indriðadóttir sópran, Lay Low og Magnús Ragnarsson ásamt kór Áskirkju. 16.00 Kári Friðriksson ten- orsöngvari verður með tónleika til styrktar mæðrastyrksnefnd í Fella- og Hólakirkju, Hólabergi 88. 17.00 Carmina Burana Sex kórar undir stjórn Garðars Cortes, flytja verkið Carmina Burana í Íþróttahúsinu í Varmahlíð í Skagafirðinum. 17.00 Rússneskar perlur Söng- og ljóðadagskrá í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70. Fram koma: Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, Árni Bergmann og sópran- söngkonan Alexandra Chernyshova. 20.00 Guitar Islancio Tónleikar í Akoges-salnum í Vesmannaeyjum. ➜ Jazz Blús- og jazzhátíð Akraness stend- ur yfir í Bíóhöllinni, Vesturgötu 27, um helgina. 21.00 Jazzkvöld Fram koma; Blús og jazzband Toska, Jazzband Andreu Gylfadóttur og JP3 Gítar Tríó. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Tónlistarmaðurinn Einar Töns- berg, eða Eberg, hefur ákveðið að fresta útgáfu plötu sinnar Antid- ode fram yfir áramót. „Það er búið að vera svo mikið að gera. Ég var að gera nokkur lög fyrir Reykjavík Rotterdam, taka upp plötu fyrir breskan listamann, „sándtrakk“ í heimildarmynd og tónlist í fullt af auglýsingum,“ segir Einar, sem gefur plötuna út sjálfur hér heima. „Mér fannst líka vera þannig stemning að það væri ágætt að byrja á nýju ári með nýja plötu. Það er svo mikið brjálæði í gangi alls staðar.“ Breski listamaðurinn sem Einar vann fyrir nefnist Bird og er sell- ó leikari sem hefur unnið með honum áður. Platan þykir nokkuð óvenjuleg því öll lögin eru leikin á selló án þátttöku annarra hljóð- færa. Annað tveggja laga Einars í Reykjavík Rotterdam, Niðurlönd, er sungið á íslensku í myndinni, sem er óvenjulegt því hingað til hefur hann gefið út á ensku. „Óskar var búinn að máta eitt lag á plöt- unni við enda myndarinnar og spurði hvort ég væri til í að hafa það á íslensku sem ég gerði. Þetta var undantekning en það var alveg gaman að þessu,“ segir hann. Tvö ár eru liðin síðan síðasta plata Ebergs, Voff voff, kom út sem skartaði hinu vinsæla Inside Your Head. Vonsviknir aðdáendur hans þurfa því að bíða fram á næsta ár eftir nýju efni í stað þess að ylja sér við tóna hans fyrir þessi jól. - fb Frestar plötu framyfir áramót EBERG Einar Tönsberg gefur plötu sína Antidode út á næsta ári. Tvö ár eru liðin síðan Voff, voff kom út. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þann 10. nóvember er von á tvöfaldri safnplötu með lögum Péturs Kristjánsson- ar. Pétur, sem um áratuga- bil var holdtekja rokksins sjálfs á Íslandi, lést sviplega árið 2004 og hefur verið sárt saknað í bransanum síðan. Á plötunni verða 42 lög frá öllum tímabilunum á ferli Péturs, allt frá fyrstu smáskífunum sem hann gerði með Einari Vilberg árið 1970 og til tökulagaplötunnar Gamlar myndir með Kim Larsen-lögum, en sú plata kom út eftir andlát Pét- urs. Þarna á milli eru rokk- og popplög með Svanfríði, Pelican, Start og öllum hinum böndunum. Pétur var langt kominn sjálfur með að velja lög á plötuna þegar hann andaðist. Því er þessi safn- plata nánast alveg eins og hann hefði viljað hafa hana. Stór hluti laganna er að koma út í fyrsta skiptið á geislaplötu og einnig eru á safnplötunni átta lög sem ekki hafa verið gefin út áður. Allir þeir sem koma að útgáfu safnplöt- unnar unnu með Pétri á sínum tíma. Steinar Berg skrif- ar inngang, Örn Smári Gíslason hannaði umslag og umsjón með útgáfu safnplötunnar var í höndum Höskuldar Höskuldssonar. Höskuldur hefur að undanförnu verið aðaldriffjöðr- in í velheppnuðum endurútgáfum Senu, til dæmis stóð hann á bak við kassana með Sálinni og Þursunum. Nafn safnplötunnar, Algjör sjúkheit, er mjög í anda Péturs. Hann var á sínum tíma innsti koppur í búri plötuútgáfu Steinars og kokkaði upp safnplötunöfn á borð við Algjört skronster og Grimm dúndur. Stefán Hilmars- son kom með nafnið á safnplötuna eftir mikla yfirlegu. Hann grús- kaði mikið í orðaforða Péturs á sínum tíma og spann úr honum hinn ódauðlega texta lagsins „Krókurinn“. drgunni@frettabladid.is Algjör sjúkheit Péturs 34 ÁRA FERLI GERT SKIL Í 42 LÖGUM Umslag safnplötu Péturs Kristjánssonar, Algjör sjúkheit Samuel L. Jackson óttast um líf Baracks Obama, verði hann kos- inn næsti forseti Bandaríkjanna. Samkvæmt síðustu skoðanakönn- unum hefur demókratinn Obama forskot á repúblikanan John McCain og Obama nýtur mikils stuðnings stórstjarna á borð við leikarann Samuel L. Jackson. Jackson óttast að Obama verði skotmark rasista um leið og hann sest í forsetastólinn á næsta ári, ef ekki fyrr. Hann segir að fyrr en síðar muni einhver setja út á að þeldökkur maður sé við völd í Hvíta húsinu og segir fólk óttast það, þó svo að margir láti eins og ekkert sé. Óttast um Obama STYÐUR OBAMA Samuel L. Jackson óttast að Obama verði skotmark rasista verði hann kosinn næsti forseti Bandaríkjanna. í samstarfi við Borg arleikhúsið kynnir: Höfundar og flytjendur: Margrét Sara Guðjónsdóttir Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Jared Gradinger Sýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins Tryggðu þér miða núna! 568 8000 / midi.is PRIVATE DANCER www.panicproductions.is MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Lokasýning í kvöld, sunnudag, kl. 20 Skilaboðaskjóðan Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson Geysivinsælt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sun. 2/11 örfá sæti laus Macbeth William Shakespeare sun. 2/11 örfá sæti laus Síðustu sýningar Klókur ertu, Einar Áskell Bernd Ogrodnik Heillandi og krúttleg brúðusýning sun. 2/11 örfá sæti laus, sýningum að ljúka www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Þjóðleikhúsið Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Hart í bak Jökull Jakobsson Ástsælt verk sem hittir okkur öll í hjartastað þri. 4/11 kl. 14 uppselt Sá ljóti Marius von Mayenburg Fimm sýningar á Smíðaverkstæðinu í nóvember. Tryggið ykkur sæti í tíma Utan gátta Sigurður Pálsson Snarskemmtileg sýning. JVJ, DV lau. 1/11 örfá sæti laus

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.