Fréttablaðið - 02.11.2008, Side 38

Fréttablaðið - 02.11.2008, Side 38
22 2. nóvember 2008 SUNNUDAGUR HVAÐ SEGIR MAMMA? „Hún er mjög fjölhæf og hefur alltaf verið svo sjálfstæð, ábyrgðarfull og dugleg. Sem krakki var hún alltaf að horfa á matreiðslu- þætti í sjón- varpinu og valdi það frekar en annað sjónvarpsefni þegar hún var sex, sjö ára. Hún gat horft á sömu þættina aftur og aftur og svo útbjó hún rosalega flotta rétti úr nánast engu,“ Sigrún Sætran um dóttur sína, Hrefnu Rósu Jóhannsdóttur Sætran. Hrefna á og rekur Fiskmarkaðinn og lenti í 10. sæti á Ólympíumóti matreiðslumeistara með íslenska kokkalandsliðinu. „Ég er að passa sex herbergja hús fyrir vin minn. Fæ að vera hérna í einhvern smá tíma,“ segir leikkonan Halla Vilhjálmsdótt- ir. Hún hefur átt erfiðar stundir í London að undanförnu en eins og Fréttablaðið hefur greint frá stakk leigusali hennar af frá öllum sínum skuldbindingum og Höllu var hent út úr íbúðinni af fulltrúum fógetans í London. „Ég fékk loks að ná í dótið mitt í gær. Var að frá morgni til kvölds að pakka saman. Ég mátti ekki fá lykil að íbúðinni svo að þetta varð að klárast í einum rykk. Var alveg gjörsamlega búin á því eftir þetta,“ segir Halla og jánkar því að á köflum hafi hún alveg verið við það að bugast. „Það féllu tár á köflum,“ segir hún og ljóst að húsnæðismálið hefur tekið sinn toll. Höllu hefur þar að auki ekki gefist tækifæri til að fara í prufur sem eru lífsnauðsynlegar fyrir leikara í atvinnuleit. Leikarinn sem sá sig aumur á Höllu heitir Michael Klesic. Og er nokkuð þekktur í Bretlandi. Lék meðal annars lítið hlutverk í Children of Men og leikur um þessar mundir í Law & Order: London. Halla og hann eru gömul skólasyst- kini og hafa auk þess sama umboðsmanninn. Leikkonan seinheppna segist þó ekki vera á þeim buxunum að gefast upp en hyggst aftur á móti koma heim til Íslands um jólin og dveljast hér á landi um stundarsakir. „Ég ætla að njóta þess að eiga einhvers staðar heima.“ - fgg Halla komin með húsaskjól HRAKFARIR HÖLLU Fyrst greindi Frétta- blaðið frá því að henni hefði verið hent út úr íbúð sinn. Svo að leigusalinn væri stunginn af. Nú er Halla hins vegar komin með húsaskjól. Hvað er að frétta? Hjá mér er helst fréttum að íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hafi verið að vinna sér inn þátttökurétt í lokakeppni Evrópumóts- ins. Augnlitur: Blár. Starf: Ég stunda nám í fjármála- hagfræði við Háskóla Íslands en hef starfað hjá SP-Fjármögnun undanfarin sumur. Fjölskylduhagir: Kærastinn minn heitir Tómas Árni Ómarsson. Foreldrar mínir eru Hildigunnur Sigurðardóttir og Lárus Ögmundsson. Systkini mín eru Lilja Karítas Lárusdóttir og Sigurður Egill Lárusson. Hvaðan ertu? Fæddist í Vesturbænum en hef búið frá átta ára aldri í Fossvogi. Ertu hjátrúarfull? Ekkert að ráði. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Fóst- bræður, Friends og Stelpurnar. Uppáhaldsmaturinn: Allt sem kemur úr höndunum á mömmu en jólamat- urinn stendur upp úr. Fallegasti staðurinn: Hlíðarendi. iPod eða geislaspilari: iPod. Hvað er skemmtilegast? Vera með fjölskyldu, kærasta og vinum. Leiðist reyndar ekkert að vera ein með sjálfri mér heldur. Hvað er leiðinlegast? Vakna snemma á morgnana og þurfa að skafa af bílnum. Helsti veikleiki: Ég á það til að vera svolítið löt. Helsti kostur: Mér finnst erfitt að dæma um það sjálf en ég legg alla- vega mikið upp úr því að vera heiðar- leg, sjálfstæð, traust og tillitssöm. Helsta afrek: Komast á lokakeppni EM í knattspyrnu. Mestu vonbrigðin? Núverandi staða Íslands í efnahagsmálum. Hver er draumurinn? Komast á verð- launapall á EM. Hver er fyndnastur/fyndnust? Ég get ekki gert upp á milli Sigga bróður, og Kjartans og Ilmar í Stelpunum. Jón Gnarr, Þorsteinn Guðmundsson og Helga Braga eru algjörir snillingar líka. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Óheiðarleiki. Hvað er mikilvægast? Góð heilsa. HIN HLIÐIN DÓRA MARÍA LÁRUSDÓTTIR KNATTSPYRNUKONA Dreymir um að komast á verðlaunapall á EM Langt er liðið síðan Rúnar og Arnar Halldórssynir slógu í gegn sem dúettinn The Boys. Síðasta platan þeirra kom út árið 1995 og ekki er von á kombakki. Strákarnir láta nú til sín taka á öðrum vettvangi. Í föstudaginn var tilkynnt með viðhöfn um úrslit í einni stærstu arkitektasam- keppni sögunnar í Danmörku. Rúnar er í sigurliði arkitektastofu Stevens Holls í New York, sem hannaði tvo skýjakljúfa sem munu rísa á Norðurhöfn (Nordhavn) og verða eins konar hlið að Kaup- mannahöfn. „Við unnum fimm saman að þessu á stofunni en Steven Holl gekk svo sjálfur frá verkinu, eins og vaninn er,“ segir Rúnar. „Ste- ven Holl er einn af frægustu arki- tektum heims í dag og ég fór á stofuna hans í verknám eftir að ég hafði verið í skóla í Danmörku. Eftir verknámið réði hann mig í vinnu og ég er búinn að vera hér í ár. Ég ætla reyndar að klára skól- ann í Danmörku, fer þangað aftur í febrúar, og svo veit maður ekk- ert hvað tekur við.“ Vinningstillaga Rúnars og félaga verður hæsta íveru-bygg- ingin í Danmörku, stærri turninn 113 metrar og 27 hæðir. Bygging- arnar munu standa hvor sínu megin við hafnarmynnið og göngubrú í 65 metra hæð verður á milli. „Það standa fjársterkir aðil- ar á bak við þetta en maður veit svo aldrei í þessu efnahagsástandi hvenær þetta verður tilbúið,“ segir Rúnar. „Þetta gæti tekið mörg ár í byggingu. En það mun sjást til Svíþjóðar úr turninum!“ Rúnar, sem nú er 28 ára, kann gríðarlega vel við sig í New York. „Ég bý í Williamsbourg og maður er hálfgerður hipster hérna. Er mikið í loft-partíum og hitti alls konar lið. Það er mikil deigla í listalífinu hérna. Ég á eftir að sakna borgarinnar rosalega.“ Hinn Boys-bróðirinn, Arnar, er nú 26 ára, býr á Íslandi og er graf- ískur hönnuður hjá Saga Film. „Við erum í miklu sambandi,“ segir Rúnar. „Hann er enn að dútla í tónlistinni og ég líka. Ég var í hljómsveit úti í Danmörku og við munum eflaust taka upp þráðinn þegar ég flyt þangað aftur. Það er nú bara eitthvað til að hafa gaman að. Ég held maður verði ekki atvinnupoppari úr þessu!“ drgunni@frettabladid.is RÚNAR HALLDÓRSSON: THE BOYS ORÐNIR FULLORÐNIR MENN Barnastjarna teiknar fyrstu skýjakljúfana í Danmörku „Mér finnst svolítið fyndið að fara með verk sem heitir þessu nafni í ljósi þess að maður hefur heyrt að fólki hafi meðal annars verið hent út úr búðum í Danmörku,“ segir Margrét Bjarnadóttir, dansari og danshöfundur. Henni hefur verið boðið að sýna dansverk sitt Strength Through Embarrassment á danshá- tíðinni Junge Hunde í Árósum sem fer fram 6. til 14. nóvember næst- komandi. Verkið var útskrifarverk Margrétar úr ArtEZ listaháskólan- um í Hollandi 2006, en titill verks- ins hefur kannski aldrei átt jafn vel við og einmitt núna, ekki hvað síst fyrir Íslending í Danmörku. „Allt í einu hafði þetta miklu meira vægi þegar þetta var komið í þetta samhengi. Við Íslendingar höfum verið þekkt fyrir tónlist, listir, skapandi og frjótt samfélag svo mér finnst mikilvægt að lista- menn haldi áfram að fara út. Mér finnst að sá þáttur samfélagsins megi alls ekki grotna niður þó svo að bankarnir geri það,“ segir Mar- grét sem hefur verið boðið á dans- hátíðir vítt og breitt um Evrópu eftir að verk hennar var valið á danshátíðina Resolution! í London í fyrra. „Það er lúmskt mikil vinna að ferðast með svona verk. Með mér fara Jón Þorgeir Kristjánsson ljósa- hönnuður, bandaríski dansarinn Daniel Brown og þriggja manna hljómsveit. Við þjálfum svo sex manna hóp á hverjum stað fyrir sig því það væri erfitt að flytja alltaf sama hópinn, en hann kallast The Embarrassed Army og ræður í raun framvindu verksins,“ segir Margrét að lokum. -ag Danshöfundur á fleygiferð um Evrópu EFTIRSÓTTIR DANSHÖFUNDUR Margrét er höfundur og einn af dönsurum verksins Strength through embarrassment sem hefur verið sýnt vítt og breitt um Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BOYS-BRÆÐURNIR ARNAR OG RÚNAR LÁTA NÚ TIL SÍN TAKA Á NÝJUM SVIÐUM Arnar er grafískur hönnuður en Rúnar lagði fyrir sig arkitektúr. Hann var í teimi hjá Steven Holl stofunni í New York sem sigraði í samkeppni um fyrstu skýjakljúfa Kaupmannahafnar. Þeir nefnast Langelinie og Marmorm- olen og rísa sitthvoru megin í hafnar- mynni Nordhavn. 24.07.1985

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.