Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 10
10 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL „Eitt af skilyrðum fyrir því að fólk komist í gegnum áföll og krísur af þessu tagi án verulegra andlegra erfiðleika eru upp- lýsingar,“ segir Sigurður Guðmundsson, for- seti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrverandi landlæknir, en vandlega hefur verið farið yfir það ástand sem nú ríkir í efna- hagsmálum innan Landlæknisembættisins með hliðsjón af æskilegum aðgerðum í heil- brigðisþjónustu. Sigurður vísar í erlendar rannsóknir máli sínu til stuðnings. „Lendi fólk í jarðskjálfta vill það fá að vita hvort slys hafi orðið á fólki, hvort einhver hafi farist, hve miklar skemmdir hafi orðið, hve- nær það geti snúið heim, hve mörg stig skjálftinn hafi verið og svo framvegis, fólki er nauðsynlegt að fá upplýs- ingar til að takast á við vand- ann og huga að framtíðinni,“ segir hann. Sigurður segist sjá að fólk sem starfar innan heilbrigð- iskerfisins sem og lands- menn allir velti því sífellt fyrir sér hvað verði um starf þess í þeim þrengingum sem fram undan eru. Menn vita að það eru ekki til sömu pen- ingar og áður og fjöldi starfs- manna sem áður starfaði í byggingariðnaði, í bönkum auk vísindafólks sé farið að huga að því að flytjast til útlanda. Á meðan óvissan er ríkjandi má skiljanlega búast við óróa,“ segir Sigurður. Hann leggur þó auk þess áherslu á að ekki megi byggja upp óraunhæfar væntingar hjá fólki. Mannskepnan búi yfir mikilli aðlögunarhæfni og geti aðlagast breytingum en verði um leið að búa sig undir að lægðin geti staðið í þó nokkurn tíma en lagist ekki fljótlega. Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjarta- deild, segir að veruleg aukning hafi orðið á hjartadeild í upphafi mánaðarins sem og brjóstverkjamóttöku. Það kunni líklega að hafa orðið vegna skyndilegs aukins álags í samfé- laginu. Honum finnist þó sem starf deildanna sé að nálgast eðlilegt horf. Sigurður tekur undir orð Gests og segir þær deildir sem mest mæddi á í byrjun október nú að róast. Hann ítrekar að ekki hafi orðið vart fjölgunar á sjálfsvígum eða áfengis- og ofbeld- istengdum vandamálum. Það kunni að skýrast af aukinni samkennd fólks sem skapist oft þegar glímt sé við erfiðar aðstæður. Ekki megi þó búast við að allt sé gengið yfir, enn eigi margvísleg áföll eftir að reyna á sam- félagið. Hann minnir enn á að mikilvægt sé að reyna að draga sem mest úr óvissu og huga að grunnstoðum velferðarkerfisins með því mark- miði að reyna að koma í veg fyrir mikla fólks- flutninga ungs fólks úr landi. karen@frettabladid.is Draga þarf úr óvissu hjá fólki og óraunhæfum vonum Upplýsingar eru fólki nauðsynlegar til að komast í gegnum vanda, að sögn landlæknis. Reyna verður að draga úr óvissu en óraunhæfar væntingar eru óæskilegar. Huga verði að grunnstoðum velferðarkerfisins. HJARTADEILD Mikið mæddi á starfsfólki hjartadeildar í upphafi mánaðarins og er ástæðan talin vera álag í sam- félaginu. Þar er þó að komast á ró sem og á öðrum deildum sem mikið reyndi á í upphafi efnahagshamfaranna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GESTUR ÞORGEIRSSON SIGURÐUR GUÐMUNDSSON MENNTUN 5.060 nemendur brautskráðust af framhaldsskóla- stigi skólaárið 2006 til 2007. Það var 242 nemendum fleira en árið áður, eða fjölgun um fimm prósent. Aldrei hafa svo margir nemendur útskrifast á framhalds- skólastigi á einu skólaári, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Aðeins fleiri konur en karlar voru meðal brautskráðra, eða rúm 54 prósent. Alls 3.038 brautskráðust úr starfsnámi á framhaldsskólastigi, þar af 644 nemendur með sveinspróf. 2.561 útskrifuðust með stúdentspróf á skólaárinu og fjölgaði frá 109 frá fyrra ári. Mun fleiri konur en karlar luku stúdentsprófi, 77,4 prósent tvítugra kvenna, en 43,7 prósent tvítugra karla. - ss Nemendur á framhaldsstigi: Fimm þúsund stúdentar 2007 FLUGSÝNING Í KÍNA Indverskir herflugmenn æfðu sig í að sýna listir sínar í Kína í gær, daginn áður en alþjóðleg flugsýning hófst. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 4 41 24 1 1. 20 08 www.toyota.is BETRI NOTAÐIR BÍLAR ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Prius Hybrid 1500 bensín, sjálfsk. Á götuna: 07.05 Ekinn: 55.000 km Verð: 2.550.000 kr. Skr.nr. OU-719 Tilboð 2.350.000 kr. Toyota RAV4 2000 bensín, sjálfsk. Á götuna: 05.05 Ekinn: 64.000 km Verð: 2.540.000 kr. Skr.nr. UG-561 Tilboð 2.190.000 kr. Toyota Corolla 1400 bensín, 5 gíra Á götuna: 06.07 Ekinn: 56.000 km Verð: 1.960.000 kr. Skr.nr. NF-871 Tilboð 1.730.000 kr. BNB-sölugreining Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar bjóðum við þér hann ekki. Núna bjóðum við 6 betri notaða bíla með 12 mánaða viðbótarábyrgð. Toyota Corolla W/G Sol 1600 bensín, sjálfsk. Á götuna: 10.03 Ekinn: 79.000 km Verð: 1.330.000 kr. Skr.nr. RU-587 Tilboð 1.090.000 kr. Toyota Yaris Sol 1300 bensín, 5 gíra Á götuna: 05.07 Ekinn: 43.000 km Verð: 1.650.000 kr. Skr.nr. MF-035 Tilboð 1.490.000 kr. SUMIR NOTAÐIR BÍLAR ERU EINFALDLEGA BETRI EN AÐRIR Toyota Avensis W/G EXE 18" felgur, dráttarbeisli 2000 bensín, sjálfsk. Á götuna: 10.07 Ekinn: 14.000 km Verð: 4.150.000 kr. Skr.nr. GSD70 Tilboð 3.890.000 kr.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.