Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.11.2008, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 04.11.2008, Qupperneq 14
14 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Í dag ganga Bandaríkjamenn að kjörborði og velja sér nýjan forseta. Á lokasprettinum hefur Barack Obama haft nokkra forystu í skoðanakönnunum og eru það mikil tíðindi. Lengi hefur verið haft fyrir satt að Banda- ríkjamenn væru of forpokaðir til þess að blökkumaður geti orðið forseti. Framboð Obama ögrar viðtekn- um sannindum á fleiri sviðum. Repúblikanar hafa hamrað á því að hann sé of vinstrisinnaður og hallur undir félagshyggju. Því er oft haldið fram að frambjóðendur verði að gera allt sem þeir geta til að forðast slíkan stimpil – sérstaklega í Bandaríkjunum. En Obama hefur ekki verið í neinni vörn í kosningabaráttunni og eflaust hafa skoðanakannanir eflt í honum kjarkinn. Því hafa forsetakosningar í Bandaríkjun- um ekki verið jafn spennandi síðan 1980. Bandarísk stjórnmál eru á ný farin að snúast um innihald og átök hugmynda. Kreppan er mál málanna Mál málanna í Bandaríkjunum er það sama og á Íslandi. Fjármála- kreppan sem skekur heimsbyggð- ina á upptök sín þar og áfram- haldandi þróun hennar mun ráðast af því hvernig stjórnvöld þar í landi bregðast við. Þær ráðstafanir sem þegar hefur verið gripið til hafa verið gagnrýndar af flestöllum vegna þess að þær ganga of skammt. Ríkisstjórn George W. Bush er að hverfa frá völdum og óvissa ríkir um næstu skref – hvort þau verða stigin til hægri eða til vinstri. Úr því fæst skorið í dag. Að sumu leyti eru átakalínur í bandarískum stjórnmálum skýrari en þær eru núna á Íslandi og víða í Evrópu. Það er vegna þess að stjórþjóðir vita það að þær verða að bjarga sínum málum sjálfar og því flækist umræðan ekki út í deilur um það hvort ímynduð líflína eigi að koma frá Norðurlöndum, Rússlandi eða Evrópusamband- inu. Bandaríkjamenn stjórna Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en þeim dettur ekki í hug að láta Alþjóðagjaldeyrissjóðinn stjórna sér. Í Bandaríkjunum er þingið þar að auki óháð framkvæmda- valdinu og getur veitt því raunverulegt aðhald. Ríkisstjórn Bandaríkjanna getur því ekki reynt að leiða stórmál til lykta í reykfylltum bakherbergjum eins og nú er að gerast á Íslandi. Það er kjósenda að ráða því hvert skal stefna og hvernig eigi að bregðast við kreppunni. Í dag hafa þeir tækifæri til að móta framtíðina þar sem frambjóðendur bjóða upp á mjög ólíka stefnu. Gefið upp á nýtt Orðræða kosningabaráttunnar hefur þróast á athyglisverðar brautir þar sem vísanir til ársins 1932 fara stöðugt vaxandi. Stuðningsmenn Obama tala um að stokka verði spilin og gefa upp á nýtt og vísa þar með til stefnu Roosevelts Bandaríkjafor- seta á 4. áratugnum. Fyrir repúblikönum er Roosevelt aftur á móti vítið sem þeir vilja varast. Á hans dögum var skattkerfinu umbylt á kostnað hinna ríku og við tók 50 ára tími jafnaðar- stefnu sem hélst raunar lengst af í hendur við aukinn hagvöxt. Roosevelt var mjög í mun að kenna sig við frjálslyndi fremur en jafnaðarstefnu, en tekjujöfn- un í Bandaríkjunum var eigi að síður mjög svipuð og í löndum þar sem jafnaðarmenn voru við völd. Af þessari braut var snúið á 9. áratugnum og síðan þá hefur ójöfnuður farið vaxandi í Bandaríkjunum. Stefna stjórn- valda hefur verið sú að láta markaðinn stjórna sér sjálfan á meðan reglum og eftirliti hefur verið hafnað. Þetta er í raun sama stefnan og hefur verið fylgt á Íslandi frá stjórnarmynd- un Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks vorið 1991. Þessari stefnu hefur fylgt mikill hræðsluáróður í garð allra annarra valkosta sem heita þá einu nafni sósíalismi. Þetta hefur verið leiðarstefið í kosningabar- áttu repúblikana í Bandaríkjun- um. Þeir hafa nokkuð til síns máls þótt Obama verði seint talinn róttækur. Hann vill hins vegar auka skattbyrði tekju- hæstu hópana í samfélaginu og efla velferðarkerfið. Hann vill beita afli hins opinbera til að fjárfesta í stoðkerfinu og stuðla þannig að atvinnusköpun. Þessi stefnumál hafa ekki dregið úr vinsældum hans – þvert á móti. Kreppan hefur dregið fram hversu veikir innviðir banda- ríska fjármálakapítalismans voru og erfiðar ákvarðanir bíða næsta forseta. Það sem laðar fólk að Obama er kannski einkum að hann virðist ekki fastur í orðræðu fortíðarinnar. Hann er tilbúinn að stokka upp á nýtt og róttæk stefnubreyting er það sem Bandaríkin þarfnast. Ef Obama vinnur er von; annars er engin von. Ögurstund vestanhafs SVERRIR JAKOBSSON Í DAG | Bandaríkin Þ örfin á að endurreisa traust Seðlabankans heima og erlendis hefur verið bæði ljós og brýn um hríð. For- ystumenn Samfylkingarinnar hafa ítrekað leyst sjálfa sig undan ábyrgð í þeim efnum með yfirlýsingum. Eftir sem áður er stjórnskipuleg ábyrgð þeirra skýr eftir þingræðisreglunni. Karp um ábyrgðarleysi annars stjórn- arflokks í samsteypustjórn en ábyrgð hins er þekkt frá fyrri tíð. Ætli menn að rjúfa samstarf getur orðaskak af því tagi haft gildi. Það hefur á hinn bóginn litla pólitíska þýðingu ætli menn að halda samstarfinu áfram. Þá eru menn í sama báti og þurfa að koma sér saman um hvert á að stefna. Kosturinn við núverandi stjórnarsamstarf er sá að flokkarnir sem að því standa eiga alla möguleika á að virkja baklönd sín til breiðrar samstöðu. Hennar er þörf. Meðan flokkarnir kjósa að starfa saman hvílir sú ábyrgð á þeim báðum að leita þeirrar samstöðu um bjargráð og framtíðarstefnu sem nú er kallað eftir í þjóðfélaginu. Sterk stjórn þarf við ríkjandi aðstæður að geta gert hvort tveggja. Umræðan um brýna endurreisn Seðlabankans vekur spurn- ingar um hversu skipulag stjórnkerfisins er vel fallið til að tak- ast á við verkefni af því tagi sem nú blasa við. Til álita kæmi að ráða þar bót á með þremur ráðum sem sett yrðu á fót án tafar með löggjöf sem hefði takmarkaðan gildistíma. Mótun samræmdra bjargráðaaðgerða er brýn. Það á bæði við um ráð vegna rekstrarvanda fyrirtækja og eins vegna stöðu margra heimila. Sérstakt ráð sem hefði það verkefni að stýra nauðsynlegum viðfangsefnum á þessu sviði og samræma aðgerðir sem eðli máls falla undir mörg ráðuneyti gæti gert þetta mikilvæga starf hraðvirkara og markvissara en ella. Samtímis bjargráðum fyrir fyrirtæki og heimili þarf að leggja línur um það nýja Ísland sem óhjákvæmilegt er að byggja upp. Eðlilegt væri að fela sérstöku ráði að vinna samræmda stefnu- mörkun um þau efni. Þar er um að ræða viðfangsefni og álitamál sem heyra undir mörg ráðuneyti. Í sumum greinum verður ný stefnumótun ekki dregin á langinn. Um aðrar greinar geta menn tekið lengri tíma. Brýnast er að ákveða framtíðarstefnuna í peningamálum. Það má ekki draga. En hér þarf einnig að huga að nýju regluverki til að auka aðhald og öryggi í viðskiptum. Svara þarf spurningum um hvernig tryggja á samkeppnisstöðu Íslands, hvernig virkja á nýja möguleika í verðmætasköpun og hvernig endurheimta má traust sem kallað getur á innlenda og erlenda fjárfestingu. Að því er peningamálin varðar þyrfti ráð af þessu tagi að endurmeta hagsmuni Íslands að þessu leyti á næstu þremur mán- uðum og leggja síðan fram tillögur. Forsætisráðherra hefur sagt að valið í þeim efnum sé um krónu eða evru. Í því ljósi er líklegast að niðurstaða endurmats yrði aðild að Evrópska myntbandalag- inu og Evrópusambandinu. Þá væri ekki úr vegi að stofna sérstakt hagráð sem hefði það hlutverk að greina efnahagsstarfsemina og koma með ábendingar þegar nauðsyn krefur. Mikilvægast af öllu er að tryggja eins víðtæka pólitíska sam- stöðu og nokkur kostur er um þær stóru ákvarðanir um fram- tíð Íslands sem taka þarf á næstu vikum. Þjóðin á rétt á að vita hvert stefnt er áður en kosið verður. Bjargráð, framtíðarstefna og skipulag: Stórar ákvarðanir ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR UMRÆÐAN Steinunn Rögnvaldsdóttir skrifar um Varnarmálastofnun Mikil aukning hefur verið í framlögum ríkisvaldsins til svokallaðra „varnar- mála“ síðustu ár. Framlög hafa farið úr 350 milljónum árið 2007 í rúmar 1.400 milljónir á fjárlögum fyrir næsta ár. Þrátt fyrir þessi miklu fjárútlát standa Íslendingar varnarlausir gagnvart hörmungum efnahagskreppunnar. Gæluverkefni formanns Samfylkingarinnar, Varnarmálastofnun, er ráðalaus gagnvart því sem nú ógnar Íslendingum mest, þ.e.a.s. atvinnuleysi, fátækt, auknu heimilis- ofbeldi í kjölfar efnahagsþrenginga og fleiru. Ljóst er að Varnarmálastofnun getur ekki tryggt öryggi almennings og er einfaldlega gagnslaus peninga- hít. Þær fréttir úr utanríkisráðuneytinu að nú sé leitað allra leiða til að draga úr kostnaði voru því ánægjulegar. Nærtækasta leiðin er líklega að leita ráða hjá okkur í Ungum Vinstri grænum, enda höfum við ítrekað ályktað gegn dýrri hernaðar- væðingu í utanríkisráðuneytinu. Í sérstakri sparnaðaráætlun UVG, sem hreyfingin samþykkti nýlega, eru tillögur um sparnað í utanríkisráðuneytinu upp á 3,3 milljarða á næsta ári. Þessi sparnaður myndi nást með því að leggja niður Varnarmálastofn- un, segja okkur úr NATO, hætta við loftrýmiseftirlit og heræfingar erlendra herja, hagræða í rekstri sendiráða og draga úr alls konar bruðli, svo sem einkaþotuferðum á herráðsstefnur eins og þá sem farin var til Búkarest fyrr á þessu ári. Við verðum að leggja áherslu á samfélagslegt öryggi í stað þess að einblína á hernaðarlegt öryggi. Okkur stafar ekki hætta af erlendum fólum og hryðjuverkamönnum, heldur af innlendum skemmdarvörgum sem spila rússneska rúllettu með peninga skattborgara, og duglausum ráðamönnum sem skjóta sér undan ábyrgð þegar allt er komið í strand. Við verjum okkur best með því að skipta út fólkinu sem klúðraði málunum, setja skýrar leikreglur fyrir þá sem höndla með almannafé og það sem mikilvægast er: styðja við velferðarkerfið, sameiginlegt öryggisnet þjóðarinnar. Höfundur er formaður Ungra vinstri grænna. Gagnslaus peningahít STEINUNN RÖGNVALDSDÓTTIR Nýr fulltrúi Nýr fulltrúi Samfylkingarinnar í bankaráð Seðlabankans verður kjörinn á Alþingi í dag í stað Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur sem sagði sig úr ráðinu fyrir tæpum mán- uði. Sagði hún ástæðuna vera þá að Seðlabankinn hafi gerst sekur um alvarleg mistök við stjórn fjármálakerf- isins og nauðsynlegt væri að skipta um stjórn Seðlabankans til að skapa sátt um hann. Enn fremur baðst Sigríður Ingibjörg afsökunar á því að hafa ekki axlað ábyrgð fyrr. Vantraustið vex Síðan þetta var hefur gagnrýnin á Seðlabankann aukist ef eitthvað er; Samfylkingin lýst vantrausti á seðla- bankastjórana þrjá en hinn fulltrúi flokksins í bankaráðinu, Jón Sigurðs- son, situr samt sem fastast. Varamenn Samfylkingarinnar í bankaráðinu eru Guðný Hrund Karlsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir. Ekkert hefur heyrst um traust þeirra á bankastjórun- um né heldur hvort önnur þeirra verður bankaráðs- maður. Hver vill og verður? Að ofangreindu er ljóst, að það má sæta tíðindum, miðað við það sem á undan er gengið, ef Sam- fylkingin finnur nokkurn innan sinna vébanda sem er reiðubúinn að vinna við aðstæður sem flokk- urinn hefur lýst slíkri vanþóknun á. bergsteinn@frettabladid.is Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun Skuggabankastjórnin fjallar um stýrivaxtaákvörðun næsta fimmtudag. Jeffrey Sachs skrifar um mistök Alans Greenspan í Markaðnum Í Markaðnum á morgun

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.