Fréttablaðið - 04.11.2008, Síða 18
4. NÓVEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r
Í skammdeginu er ekki úr vegi
að fyrirtæki geri vel við starfs-
fólk sitt með því að lauma
gjafabréfi með dekri og mat í
jólapakkann.
Hjá Gullna hliðinu á Álftanesi er
ekki boðið upp á hefðbundin jóla-
hlaðborð en þar geta gestir notið
taílenskrar matargerðar eftir
dekur og nudd.
„Við ákváðum að vera ekki með
neitt sérstakt jólatengt því við
höfum orðið vör við það síðustu ár
að fólki finnst svo gott að fá eitt-
hvað annað en hefðbundið jóla-
hlaðborð. Það andvarpar bara af
létti þegar það kemur hingað inn,“
segir Bogi Jónsson, annar eigenda
Gullna hliðsins. Þar er boðið upp á
gjafabréf bæði fyrir einstaklinga
og hópa í jurtagufubað og sjópott
eða nudd, jurtagufubað og sjópott
og hópar geta svo bætt við mat á
eftir. „Við tökum bara einn hóp á
dag þannig að fólk fær alveg að
vera í friði út af fyrir sig. Stund-
um hefur það jafnvel smá fund
fyrst og fer svo í dekur og mat á
eftir.“
Í Japanska baðinu og veitinga-
húsinu Gullinský á Skúlagötu 40
geta einstaklingar og fyrirtæki
keypt gjafabréf í dekur og góðan
mat á eftir. Ylfa Carlsson eigandi
segir gjafabréfin vinsæl af fyrir-
tækjum.
„Jólatilboðið köllum við Fulla
meðferð og mat, en þá fer fólk í
skrúbb og er þvegið og skrúbbað
frá toppi til táar upp úr sápum og
söltum. Svo fer það í heitan pott til
að slaka á og þenja út vöðvana og
fer í klukkutíma nudd á eftir. Eftir
þessa meðferð er matur og meira
að segja hægt að leggja sig uppi í
sófa eftir hann.“
Ylfa segir fólk hafa þörf fyrir
að slaka á og hafi eftirspurnin
eftir dekri aukist síðustu vikur.
„Það koma alls konar hópar til
okkar og þetta er vinsæl gjöf, sér-
staklega núna á þessum síðustu
tímum. Oft var þörf en nú er það
nauðsyn.“ - rat
Slökun og matur í jólagjöf
Bogi Jónsson og Narumon Sawangjaitham bjóða upp á dekur og góðan mat fyrir hópa. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Slakað á þreyttum vöðvum í heitum
potti fyrir nudd í Japanska baðinu á
Skúlagötu.
Eftir heitan pott og nudd er gott að slaka á yfir góðum málsverði í Japanska baðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fólki er þvegið og skrúbbað frá toppi til
táar upp úr sápum og söltum í Japanska
baðinu.
Bækur hafa notið mikilla vin-
sælda í gegnum tíðina á íslenskum
heimilum og því gæti gjafaáskrift
í bókaklúbb verið kjörin jólagjöf í
ár.
„Við erum með bókaklúbb
sem kallast Hugur, líkami og
sál,“ segir Hildur Þormóðsdóttir,
framkvæmdastjóri bókaforlags-
ins Sölku. „Við sendum út bækur
fjórum sinnum á ári og erum með
verðið um það bil 30 prósentum
lægra en í bókabúðunum. Flestar
bækurnar eru á 2.000 krónur og er
sendingarkostnaðurinn innifalinn
í því.“
Að sögn Hildar geta allir skráð
sig í bókaklúbb Sölku. Ekkert árs-
gjald er í bókaklúbbinn, en greitt
er fyrir hverja bók sem send er
heim til viðskiptavina. Hildur
bendir enn fremur á að fólk geti
afþakkað og endursent bækurn-
ar líki þeim ekki pakkinn. „Hægt
er að skipta bók út eða fá bækur
endurgreiddar innan tíu daga eftir
að þær hafa verið sendar heim,“
bendir hún á.
„Við bjóðum upp á gjafakort í
bókaklúbbinn. Er þá algengast að
fólk borgi fyrirfram fyrir tvær
sendingar, eða sem samsvarar
sex mánaða áskrift,“ segir Hildur
og bætir við að hægt sé að kaupa
ársáskrift, sem samsvarar fjórum
bókum. „Það eru ákveðnar bækur
sem við sendum út, en hægt er
að skipta bókinni sem send er
heim fyrir aðra bók hjá Sölku ef
sú er löngunin. Við erum aðallega
með sjálfsræktarbækur í þessum
klúbbi eins og nafnið Hugur, lík-
ami og sál ber með sér. Þetta eru
allt uppbyggilegar bækur, heilsu-
bætandi bæði fyrir líkama og sál,“
segir hún.
Kristinn Arnarson, fram-
kvæmdastjóri Eddu útgáfu, telur
gjafaáskrift í bókaklúbb tilvalda
jólagjöf og skemmtilega leið til
að gefa gjöf sem lifir dálítið leng-
ur. Edda starfrækir fimmtán mis-
munandi bókaklúbba. Skuldbind-
ing við þá er að öllu jöfnu þrír
mánuðir, en það er þó mismunandi
eftir klúbbum.
„Við erum með bóka- og áskrift-
arklúbba fyrir alla fjölskylduna.
Kiljurnar eru sendar út sex sinn-
um á ári, eða annan hvern mánuð,“
segir Kristinn og bætir við að
sumir klúbbarnir sendi einu sinni
í viku.
Bókaklúbbsáskrift Eddu er
greidd mánaðarlega eða greitt er
fyrir hverja sendingu líkt og hjá
Sölku.
- aóv
Gjafir sem lifa lengur
Hildur Þormóðsdóttir mælir með gjafa-
korti í bókaklúbb Sölku.
Kristinn Arnarson hjá Eddu telur gjafa-
áskrift tilvalda jólagjöf.
Bækur eru vinsælar gjafir á Íslandi og því ekki úr vegi að gefa áskrift í bókaklúbba.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Jólakúlur eftir listakonuna Ólöfu Erlu Bjarnadóttur eru sniðug-
ar í jólapakkann og tilvalið að styrkja innlenda framleiðslu.
Íslenskt handverk á alltaf vel við í jólapakkann og
ekki úr vegi að fyrirtæki styrki innlenda framleiðslu
þegar kemur að vali jólagjafa handa starfsfólki.
Vandinn liggur helst í því að finna eitthvað sem
flestum gæti líkað. Jólaskraut er bæði sniðug og nyt-
samleg fyrirtækjagjöf en flest fyrirtæki afhenda
jólagjafir til starfsmanna eitthvað fyrir jól. Íslenskt
handverksfólk og listamenn sýndu vörur sínar í Ráð-
húsi Reykjavíkur um helgina og þar mátti meðal
annars finna handgerðar jólakúlur eftir leirlistakon-
una Ólöfu Erlu Bjarnadóttur. Kúlurnar eru látlausar
og ættu að falla í kramið hjá flestum og alltaf er
pláss fyrir fallegt jólaskraut í gluggann.
Á heimasíðu Handverks og hönnunar, www.hand-
verkoghonnun.is, er að finna upplýsingar um lista-
menn og vörur þeirra. Einnig má finna skemmtileg-
ar íslenskar gjafir á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar
Íslands, www.honnunarmidstod.is. - rat
Jólaskraut í pakkann
Ó
! ·
1
2
0
8
0
Hringhellu 2
220 Hafnafirði
Hrísmýri 5
800 Selfossi
Sími 4 400 400
www.mest.is
Malarhöfði 10
110 Reykjavík
Haltu þér
á floti
Frábært gólfefni
Verð frá:
1.990kr.
Góð lausn frá
Steypustöðinni MEST