Fréttablaðið - 04.11.2008, Síða 20
4. NÓVEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r
Fyrirtæki sem vilja láta gott af
sér leiða geta keypt gjafabréf
af Hjálparstarfi kirkjunnar. Þau
er hægt að skoða á síðunni
gjofsemgefur.is.
„Það er tvennt sem sker sig úr á
gjafabréfasíðunni hvað vinsældir
varðar, það eru brunnar og geitur,“
segir Bjarni Ólafsson, verkefna-
stjóri hjá Hjálparstofnun kirkj-
unnar. „Hægt er að gefa hlutdeild
í brunni með 5.000 króna fram-
lagi. Síðan hafa eitt og eitt fyrir-
tæki gefið heilan brunn. Starfs-
fólkið fær jólakveðju þess efnis
að fyrirtækið hafi í nafni starfs-
manna gefið brunn sem gerð-
ur verði í Malaví eða Mósambík.
Hann kostar um 190.000 krónur.
Við hjálpum fjölskyldum að
hjálpa sér sjálfar og það virkar
mjög vel að gefa búfé. Hugsum
okkur fjölskyldu sem fær tvær
geitur sem síðan fjölga sér hratt.
Þá fær fólkið bæði mjólk og kjöt.
Sú kvöð fylgir með að fjölskyldan
gefi síðan eina geit af sínum stofni
til einhvers sem þarf hennar
með.“
Það er líka þakklátt að frelsa
börn úr ánauð á Indlandi að sögn
Bjarna. „Þeir lægst settu á Ind-
landi fá stundum lán hjá atvinnu-
rekendum sínum út úr neyð. Veðin
í þeim lánum eru börnin á heimil-
inu. Þau fara að vinna hjá atvinnu-
rekandanum en launin eru svo lág
að þau geta aldrei borgað lánið.
Við erum í tengslum við mann-
réttindasamtök sem aðstoða fjöl-
skyldurnar við að frelsa börnin og
koma þeim í skóla. Það kostar að
meðaltali 5.000 krónur og þetta er
falleg gjöf.
Við erum líka með innanlands-
aðstoð á gjafabréfasíðunni. Það
er framtíðarsjóðurinn sem styrk-
ir efnalitla unglinga á Íslandi til
að ljúka framhaldsskóla og hefja
lánshæft nám. Allt þetta hentar
vel fyrirtækjum sem vilja gefa
gjöf sem gefur.“ - gun
Að láta gott af sér leiða
Brunnar og búfénaður á borð við geitur
og hænur eru vinsælar gjafir að sögn
Bjarna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVAGeiturnar koma sér vel fyrir fátæka í Afríku.
Viðbúið er að fleiri kjósi að ferð-
ast innanlands á næstu
mánuðum og því eru
ferðahandbækur, með
léttu og skemmtilegu
fræðsluívafi, tilvaldar í
jólapakkann í ár.
101 Ísland: Áfanga-
staðir í alfaraleið er vega-
handbók sem hentar fyrir
ferðalanga nútímans. Þar
eru lesendur kynntir
fyrir stöðum sem eru
annaðhvort á fárra vit-
orði eða að vinsælir og
jafnvel heimsfræg-
ir áfangastaðir eru
sýndir í nýju ljósi.
Þá er ljósi brugðið á
þjóðarsöguna og sér-
kenni þjóðarsálar-
innar. Eins og heiti
bókarinnar gefur
til kynna eiga stað-
irnir sameiginlegt að vera í alfara-
leið við þjóðvegi landsins.
Í Ferðahandbók fjölskyldunn-
ar er sagt frá stöðum sem eru í
senn áhugaverðir og fjölskyldu-
vænir, þar sem börn
geta unað sér í guðs-
grænni náttúrunni og
kostar jafnframt ekk-
ert að upplifa. Mark-
mið höfundanna, Tóm-
asar Guðmundssonar
og Bjarnheiðar Halls-
dóttur, er að fá fólk
til að skoða, upplifa
og njóta og slaka á.
Helstu sögustað-
ir landsins frá land-
námsöld til vorra daga
eru til umfjöllunar í end-
urbættri útgáfu af Sögu-
stöðum Íslands eftir Örn
Sigurðsson. Sögustaðirn-
ir, sem eru rúmlega 280
talsins, eru ýmist stað-
ir þar sem sögulegir eða
voveiflegir atburðir hafa
átt sér stað og er vísað til
þeirra á kortum. Bókin er
prýdd fjölda ljósmynda og
teikninga sem gaman getur verið
að fletta í gegnum á ferðalaginu
og lesmálið er á íslensku, ensku
og þýsku.
Ný sýn á náttúru landsins
Ferðahandbækur getað varpað nýju og skemmtilegu ljósi á áfangastaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Heitasta spilið í heiminum nú
er Rubik Revolution-töfratening-
urinn, sem talar íslensku, er raf-
rænn og var kosinn leikfang árs-
ins í Bandaríkjunum í fyrra. Hann
er loks fáanlegur hér heima, en á
hverri hlið er einn leikur og ljós í
miðju teningsins sem maður eltir
til að leysa ákveðið dulmál til að
geta brotið kubbinn upp,“ segir
Guðjón Guðmundsson, eigandi
Nordicgames, sem flytur inn og
gefur út á íslensku flest af vin-
sælustu spilum ver-
aldar fyrir fullorðna, börn og alla
fjölskylduna til að spila saman.
„Það spil sem við höfum mest
selt af í gegnum tíðina er Sequ-
ence, en það er mest selda spil í
heiminum án nokkurra auglýs-
inga og hefur eingöngu spurst út
á milli manna. Það sameinar að
vera einfalt, mjög skemmtilegt
og krefjast hugsunar. Þá stopp-
ar Partý & Co Extreme-spilið
aldrei við, enda kallað besta spil
allra tíma af mörgum og samein-
ar öll skemmtilegustu spil heims í
einu,“ segir Guðjón sem býst við
miklum vinsældum nýútgefinna
spila í ár.
„Trans Europa og Cartagena
eru ný og spennandi fjölskyldu-
spil og nú bætist við þriðja spil-
ið í Ticket to Ride-seríunni sem
heitir Norðurlöndin. Það geng-
ur út á að safna lestarleiðum á
milli borga á Norðurlönd-
um og er feikivinsælt.
Ticket to Ride fékk verð-
laun sem besta spil árs-
ins í fimmtán löndum
fyrstu árin sem það
kom á mark-
að.“
Sjá nánar á
www.nordicga-
mes.is. - þlg
Partí og töfrateningar
Rubik Revolu-
tion-töfratening-
urinn er rafrænn
og talar íslensku.
Ticket to
Ride er frábært fjöl-
skylduspil, en nýjasta
útgáfan snýst um
lestarleiðir á Norður-
löndunum.