Fréttablaðið - 04.11.2008, Síða 34
22 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Guðmundur Benediktsson hlakkar til þess að klæðast svörtu
og hvítu treyjunni á nýjan leik en hann þekkir vel til hjá
Vesturbæjarfélaginu eftir að hafa leikið með KR í tíu sumur
frá árinu 1995 til árins 2004.
„Ég hafði vissulega leitt hugann að því annað
slagið að snúa aftur í KR en það varð engin alvara
úr því fyrr en möguleikinn bauðst mér núna um
síðustu helgi og ég er ánægður með að þetta
sé gengið í gegn. Ég þekki vel til félagsins og
hlakka til þess að vinna með Loga [Ólafssyni,
þjálfara KR] sem og öllum þeim sem koma
að þessu ágæta félagi,“ segir Guðmundur
sem var einkar sigursæll á tíma sínum hjá KR
og varð fjórum sinnum Íslandsmeistari, árin
1999, 2000, 2002 og 2003. Þar að auki varð
hann bikarmeistari með Vesturbæjarfélaginu
árin 1995 og 1999.
Framherjinn knái lék svo fjögur síðustu sumur
með Valsmönnum og varð bikarmeistari þar árið
2005 og átti svo stóran þátt í því að tryggja þeim Íslandsmeistara-
titilinn árið 2007, eftir tuttugu ára bið Hlíðarendafélagsins.
„Það var sérstaklega ánægjulegt að vinna Íslandsmeistaratitilinn
með Val, þar sem félagið var ekki búið að vinna hann í fjölda ára.
Síðasta tímabil olli mér hins vegar vonbrigðum, sem og öðrum
leikmönnum Vals og öllum í kringum félagið. Það voru eflaust
margir samverkandi þættir sem urðu til þess að svo fór sem
fór. En það þýðir þó lítið að spá í það núna, heldur verður
maður bara að horfa fram á veginn og ég hlakka til að tak-
ast á við komandi áskoranir með KR,“ segir Guðmundur.
Hinn 34 ára gamli Guðmundur skrifar undir eins
árs samning við KR en ætlar svo að taka stöðuna á
málum í lok næsta sumars.
„Í fyrsta lagi vonast ég til þess að vera heill
heilsu og í öðru lagi vonast ég til þess að
hjálpa KR að vinna titla. Ef mér líður þannig
næsta haust að mér finnist í lagi með líkamann þá
mun ég halda áfram. Maður á aldrei að hætta of
snemma því sem maður elskar að gera,“ segir Guðmundur.
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON: HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ SNÚA AFTUR Á FORNAR SLÓÐIR OG SPILA MEÐ KR
Vonast til þess að hjálpa KR að vinna titla
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson gekk
í gær endanlega frá þriggja ára
samningi við danska C-deildarlið-
ið AG Håndbold. Hann mun flytja
búferlum ásamt fjölskyldu sinni
til Kaupmannahafnar næsta
sumar og spila með félaginu frá
og með næsta vetri.
„Þetta var bara að gerast. Ég
var að fá pappírana í hendurnar
og það er allt klappað og klárt. Ég
skrifaði undir fyrir nokkrum
dögum síðan og var að bíða eftir
því að þeir skrifuðu líka undir og
samþykktu samninginn. Ég er því
á leið til Danmerkur og fótboltinn
verður að bíða betri tíma,“ sagði
Ólafur kátur þegar Fréttablaðið
náði tali af honum í gær og aug-
ljóst að hann var mjög ánægður
með niðurstöðu mála. Ólafur hafði
talað um það áður að hann langaði
að spila með knattspyrnuliði Vals
áður en hann hættir íþróttaiðkun
en sá draumur er nú kominn aftur
á hilluna.
„Þetta er ákaflega spennandi
verkefni sem bíður í Danmörku.
Þetta félag ætlar sér að komast
upp í úrvalsdeild næsta vetur og
vinna Meistaradeildina eftir þrjú
ár. Það er háleitt markmið og stór
gulrót. Það væri virkilega gaman
að ná því að vinna Meistaradeild-
ina með þriðja félaginu,“ sagði
Ólafur en hann segir fjölskylduna
vera spennta að flytja til Kaup-
mannahafnar.
Vill frekar rafmagnsbíl en Ferrari
Aðalstyrktaraðili AG Håndbold er
skartgripasalinn Jesper Nielsen
en hann hefur verið yfirlýsinga-
glaður í dönskum fjölmiðlum.
Meðal annars talað um að Ólafur
muni fá að búa í húsi sínu og svo
muni hann láta Ólaf fá Porsche
eða Ferrari er hann kæmi til Dan-
merkur.
„Hann þekkir mig nú ekkert sér-
staklega vel ef hann heldur að ég
vilji fá Ferrari. Ég myndi frekar
kjósa rafmagnsbíl eða eitthvað
álíka,“ sagði Ólafur léttur. „Annars
hef ég nú aldrei hitt þennan Jesper.
Ég er samt að leita mér að húsi og
ef hann vill lána mér húsið sitt er
aldrei að vita nema ég þiggi það.“
Mikið hefur verið skrifað um að
Ólafur verði einn launahæsti leik-
maður heims færi hann til AG og
framkvæmdastjóri AG Håndbold
staðfesti við Fréttablaðið að Ólaf-
ur yrði í það minnsta einn launa-
hæsti leikmaður Dana. „Auðvitað
skipta peningarnir líka máli. Þeir
eru að bjóða mér fínan samning,
eða svipaðan og ég er með hjá Ciu-
dad núna. Svipað þýðir minna eða
meira en ég segi ekki meir um
það,“ sagði Ólafur sem hefur verið
efni kjaftasagna hjá fólki eftir að
það spurðist út að hann ætlaði í
neðrideildarlið í Danmörku.
„Ég hef heyrt eitthvað af því en
ég get alveg eytt þeim sögum að
ég sé gjaldþrota. Ég er með allt
mitt meira og minna hér úti þar
sem ástandið er betra.“
Ólafur segir þessa hugmynd
hafa verið á lofti í rúmt ár en
hann hafi aldrei spáð alvarlega í
það að fara til þessa félags fyrr
en eftir Ólympíuleikana.
Verð að reyna að gleyma aldrinum
„Ég hitti Klavs Bruun Jörgensen
úti í Peking en hann er að taka við
liðinu ásamt núverandi þjálfara.
Við töluðum þá um þetta meira í
gríni en alvöru en eftir að ég sat
fund með forráðamönnum félags-
ins sá ég að full alvara var á bak
við hugmyndir félagsins.
Ég hlakka til að takast á við
þetta verkefni, sem er krefjandi.
Það verður sérstakt að leika í
næstefstu deild væntanlega
næsta vetur en þá get ég kynnst
félögunum betur og það verður
áskorun að halda sér í toppformi
fyrir stóru verkefnin og takmörk-
in sem á að ná í kjölfarið. Ég verð
að halda dampi fyrsta árið til að
eiga tvö góð ár eftir. Svo verð ég
að reyna að gleyma aldrinum í
leiðinni,“ sagði hinn 35 ára gamli
Ólafur sem íhugar að gefa aftur
kost á sér í landsliðið þar sem
hann er ekki á þeim buxunum að
leggja skóna á hilluna.
Landsliðið aftur inni í myndinni
„Ég er í raun að framlengja feril-
inn um þrjú ár sem var ekkert
endilega á dagskránni. Það kom
vel til greina að hætta eftir þenn-
an vetur með Ciudad. Það er því
aldrei að vita nema ég gefi kost á
mér í landsliðið eftir næsta sumar
ef landsliðið hefur eitthvað að
gera við neðrideildarspilara í
Danmörku. Ég get kannski verið
varavítaskytta fyrir Snorra,“
sagði Ólafur léttur en hann segir
ekki líklegt að hann gefi kost á
sér fyrr en eftir næsta sumar og
þar af leiðandi ekki í janúar eins
og menn bundu vonir við.
henry@frettabladid.is
Fótboltinn verður að bíða betri tíma
Ólafur Stefánsson gekk í gær frá þriggja ára samningi við danska C-deildarliðið AG Håndbold. Segir verk-
efnið sem bíður í Danmörku afar spennandi og krefjandi. Mun líklega gefa kost á sér í íslenska landsliðið á
ný eftir næsta sumar ef landsliðsþjálfarinn hefur áhuga á neðri deildar spilara í Danmörku.
Á LEIÐ TIL KÖBEN Ólafur Stefánsson flytur ásamt fjölskyldu sinni til Danmerkur næsta
sumar. Hann mun líklega gefa kost á sér í landsliðið á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> Guðjón heill en hélt að allt hefði farið
Betur fór en á horfðist með meiðsli Guðjóns Vals Sigurðs-
sonar. Hann sneri sig illa á ökkla í síðari hálfleik og yfirgaf
völlinn sárþjáður. „Þetta var hrikalega vont og ég hélt að
allt hefði farið í ökklanum. Það voru brak og brestir,“ sagði
Guðjón Valur sem virðist þó ekki vera alvarlega meiddur.
„Ökklinn er mjög bólginn en sjúkraþjálfararnir segja að
þetta sé ekkert alvarlegt. Það er í það minnsta ekkert
brotið. Ég er að vonast til þess að geta æft
á miðvikudag og vonandi spilað á fimmtu-
dag. Sjáum hvað setur með
það,“ sagði Guðjón Valur
brattur en hann segir ekki
um að ræða sömu meiðsli á
ökklanum og hann varð fyrir á
Ólympíuleikunum í Peking.
FÓTBOLTI Ensku félögin Chelsea og
Liverpool verða í eldlínunni
þegar fjórða umferð riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu fer fram
í kvöld.
Chelsea getur farið langleiðina
með að tryggja sig áfram upp í
sextán liða úrslit með sigri þegar
félagið heimsækir Roma á
Ólympíuleikvanginn í Róm í
kvöld.
Topplið D-riðils, Liverpool og
Atletico Madrid, mætast á
Anfield í kvöld og meiri líkur en
minni eru á því að Fernando
Torres snúi aftur í lið Liverpool
eftir meiðsli og geti þar með
mætt sínum gömlu liðsfélögum.
- óþ
Meistaradeild Evrópu:
Torres líklega
með Liverpool
LEIKFÆR? Meiri líkur en minni eru taldar
á því að Torres verði með Liverpool á ný
í kvöld. NORDIC PHOTOS/AFP
LEIKIR KVÖLDSINS
A-riðill:
CFR Cluj-Bordeaux
Roma-Chelsea Stöð 2 Sport 3
B-riðill:
Anorthosis-Inter Stöð 2 Sport 4
Werder Bremen-Panathinaikos
C-riðill:
Sporting-Shakhtar
Barcelona-Basel
D-riðill:
Liverpool-A. Madrid Stöð 2 Sport
Marseille-PSV
Iceland Express-deild karla
Breiðablik-ÍR 75-71
Stig Breiðabliks: Nemanja Sovic 31, Rúnar
Erlingsson 16, Daníel Guðmundsson 10, Halldór
Halldórsson 5, Emil Jóhannsson 5, Kristján
Sigurðsson 4, Loftur Einarsson 3.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 27, Ómar Sævarsson
19 (23 fráköst), Sveinbjörn Claessen 10, Steinar
Arason 9, Þorsteinn Húnfjörð 6.
Snæfell-Keflavík 62-67
Stig Snæfells: Atli Hreinsson 15, Hlynur
Bæringsson 13, Jón Ó. Jónsson 11, Sigurður
Þorvaldsson 11, Magni Hafsteinsson 9.
Stig Keflavíkur: Hörður Vilhjálmsson 29, Sigurð-
ur Þorsteinsson 14, Gunnar Stefánsson 9, Elvar
Sigurjónsson 8, Sverrir Þór Sverrisson 3.
FSu-KR 92-122
Stig FSU: Árni Ragnarsson 21, T. Viglianco 19,
Tyler Dunaway 13, Vésteinn Sveinsson 13, Björg-
vin Valentínusson 12. Nicholas Mabbutt 8.
Stig KR: Jón Arnór Stefánsson 27, Jakob Örn
Sigurðarson 23, Fannar Ólafsson 19, Darri
Hilmarsson 17, Jason Dourisseau 13, Pálmi Freyr
Sigurgeirsson 8, Helgi Már Magnússon 6.
Enska úrvalsdeildin
Newcastle-Aston Villa 2-0
Obafemi Martins (60.) & (82.)
ÚRSLIT
www.takk. is
Kíktu á heimasíðuna okkar
KÖRFUBOLTI Breiðablik vann góðan
75-71 sigur á spútnikliði síðasta
vetrar, ÍR, í Smáranum í gær-
kvöldi. Liðin skiptust á að taka
forystu í fyrsta leikhluta en heima-
menn tóku svo öll völd á vellinum
í öðrum leikhluta og sigldu jafnt
og þétt fram úr gestunum.
ÍR-ingar voru þá algjörlega
heillum horfnir í sókninni og trekk
í trekk misnotuðu þeir opin skot-
um undir körfunni. Blikarnir
kunnu að nýta sér það og leiddu
leikinn örugglega þegar flautað
var til hálfleiks, 33-18.
ÍR-ingar voru líkari sjálfum sér
í þriðja leikhluta og skoruðu þá
meira en í fyrstu tveimur leikhlut-
unum samanlagt eða 20 stig. Stað-
an var orðin 54-48 fyrir lokaleik-
hlutann og spennan því mikil.
Blikarnir héldu hins vegar haus
í fjórða leikhlutanum þrátt fyrir
að ÍR-ingar næðu að minnka mun-
inn niður í tvö stig þegar um þrjár
mínútur lifðu leiks og unnu að
lokum verðskuldaðan sigur, 75-71.
„Við töluðum um það á undir-
búningstímabilinu að við brotnuð-
um of auðveldlega niður við
minnsta mótlæti og mér finnst við
vera að taka stórstígum framför-
um við það að halda áfram á fullu
þótt barið sé hressilega á okkur,“
sagði Einar Árni Jóhannsson,
þjálfari Breiðabliks, í leikslok í
gærkvöldi.
Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari
ÍR, sá ýmislegt jákvætt í leik sinna
manna þrátt fyrir tapið.
„Við áttum erfitt uppdráttar
sóknarlega í fyrri hálfleik en varn-
arvinnan var allan tímann nokkuð
ásættanleg. Framlag Sovic fyrir
þá vó ansi þungt og hann fékk
heldur of mikla virðingu upp við
körfuna og það var munurinn á
þessum liðum í leiknum,“ segir
Jón Arnar en ÍR lék án Hreggviðs
Magnússonar og munar um minna.
- óþ
Breiðablik lagði lánlaust lið ÍR af velli, 75-71, í Kópavogi í gærkvöldi:
Nýliðar Blika áfram á sigurbraut
BARÁTTA ÍR-ingar börðust en uppskáru
ekkert. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON