Fréttablaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 20
MARKAÐURINN 5. NÓVEMBER 2008 MIÐVIKUDAGUR4
Ú T T E K T
H
luti af því að endur-
vekja traust á hag-
stjórn landsins er að
bankastjórn Seðla-
banka Íslands víki.
Þetta er samdóma álit skugga-
bankastjórnar Markaðarins, en
hana skipa Ásgeir Jónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar
Kaupþings, Edda Rós Karlsdótt-
ir, hagfræðingur hjá Landsbank-
anum, Ólafur Ísleifsson, lekt-
or við Háskólann í Reykjavík,
og Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands.
Það er meðal annars vegna
óvissu um framvindu efnahags-
mála, meðan beðið er þess að
birt verður aðgerðaáætlun sú
sem lögð hefur verið fyrir Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF),
sem skuggabankastjórnin segir
ekki hægt að mæla með breyt-
ingu á vöxtum nú.
Seðlabanki Íslands hækkaði
stýrivexti í 18 prósent 28. októb-
er síðastliðinn á viðbótarvaxta-
ákvörðunardegi. Þar áður var
vöxtum einnig breytt utan hefð-
bundinnar dagskrár 15. októb-
er þegar þeir voru lækkaðir í 12
prósent, úr 15,5 prósentum.
SEÐLABANKINN OG FJÁR-
MÁLAEFTIRLIT SÆTI ÁBYRGÐ
Ólafur Ísleifsson bendir á að
vextir séu nú ákveðnir í sam-
ráði stjórnvalda og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. „Deila má um rétt-
mæti hækkunar stýrivaxta í 18
prósent en markmiðin sýnast
skýr: Að skjóta stoð undir gengi
krónunnar og koma áleiðis þeim
skilaboðum til sjóðsins og ann-
arra lánveitenda að stjórnvöld
hiki ekki við að grípa til erfiðra
aðgerða til að ná markmiðum í
efnahagsmálum.“
Ólafur segir að endurreisa
þurfi traust á Íslandi á alþjóðleg-
um vettvangi. „Efnahagsáætlun
með gæðastimpli Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins er mikilvægt skref
í þá átt. Birta þarf hana opinber-
lega um leið og hún hefur hlot-
ið staðfestingu sjóðsins,“ segir
hann.
„Annað skref er að leita eftir
því við Evrópusambandið að á
grundvelli aðildarumsóknar fáist
aðild að evrópska myntsamstarf-
inu svo fljótt sem verða má og
Íslendingar eignist um leið bak-
hjarl í Evrópska seðlabankan-
um. Þriðja skrefið er að þeir
sem bera ábyrgð axli hana og
umheiminum verði sýnt að hér
ríki vestrænar lýðræðishefðir í
þessu efni. Byrja verður á yfir-
stjórn Seðlabanka og Fjármála-
eftirlits og sameina svo þessar
stofnanir.“
Fjórða skrefið segir Ólafur svo
vera að gangast fyrir óháðri rann-
sókn á íslenska efnahagshruninu
með atbeina erlendra aðila.
„Verja þarf heimili og fyrir-
tæki eftir því sem frekast er
kostur. Hagfræðingarnir Gylfi
Zoëga og Jón Daníelsson hafa
lagt fram um þetta markverð-
ar tillögur sem stjórnvöld verða
að taka mið af,“ segir Ólafur og
bætir við að kveikja verði ljós
sem vísi þjóðinni veginn til auk-
innar hagsældar. „Umsókn um
aðild að Evrópusambandinu er
fyrsti neistinn því það verður
ekkert traust reist á krónunni,“
segir hann.
ÓÐS MANNS ÆÐI AÐ
BREYTA VÖXTUM NÚ
Þórður Friðjónsson segir
skemmst frá því að segja að við
núverandi aðstæður séu ekki for-
sendur til að breyta vöxtum. „Það
vantar einfaldlega yfirlit um
stöðu og horfur í þjóðarbúskapn-
um eftir fall fjármálafyrirtækj-
anna og þær ráðstafanir í efna-
hagsmálum sem áformaðar eru í
samstarfi við IMF. Að mínu mati
væri óðs manns æði að breyta
vöxtum nú án þess að tengja
slíka breytingu við heildaráætlun
í efnahagsmálum,“ segir hann og
bendir á að fyrir viku síðan eða
svo hafi Seðlabankinn hækkað
stýrivexti um sex prósentustig.
„Þessi ákvörðun var byggð á þrí-
hliða samkomulagi ríkisstjórn-
arinnar, Seðlabanka og IMF. Að
baki þessu samkomulagi liggja
útreikningar og áætlanir sem
ekki hafa verið birtar opinber-
lega. Að svo stöddu er því afar
erfitt að hafa rökstudda skoðun
Á FUNDI SKUGGABANKASTJÓRNAR Á meðan ekki er allt uppi á borðinu varðandi aðgerðir í efnahagsmálum og aðkomu Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (IMF) eru ekki forsendur til að breyta hér stýrivaxtastigi, að mati skuggabankastjórnar Markaðarins. MARKAÐURINN/GVA
Óbreyttir vextir á óvissutíma
Skuggabankastjórn Markaðarins segir vexti þurfa að vera óbreytta enn um sinn. Ekki eru forsendur
til að leggja mat á þróun efnahagsmála. Skipta verður um bankastjórn Seðlabankans. Óli Kristján
Ármannsson og Björn Ingi Hrafnsson settust niður með skuggabankastjórninni.
S K U G G A B A N K A S T J Ó R N M A R K A Ð A R I N S
Stjórn Seðlabankans víki
Í því vandasama verkefni sem fram undan er verða Seðlabanki
og ríkisstjórn að ganga í takt. Kreppan er grafalvarleg og við
þurfum fumlaus vinnubröð. Sú staða mun koma upp að grípa
þurfi til aðgerða sem þykja óþægilegar í bráð, en eru nauð-
synlegar fyrir framtíðarvelferð þjóðarinnar. Misvísandi skilaboð
Seðlabanka og ríkisvaldsins eru óásættanleg. Trúverðugleiki er
nauðsynlegur. Því er eðlilegt að yfirstjórn Seðlabankans víki.
Vextir verða óbreyttir þar til heildaráætlun í efnahagsmálum
verður lögð fram. Klúðrið í síðustu viku kann hins vegar að
valda því að vextir þurfi enn að hækka þegar gjaldeyrismarkað-
ur opnar að nýju. Ný og trúverðug yfirstjórn í Seðlabankanum myndi minnka þörfina
á slíkri aðgerð.
Óðs manns æði að breyta nú
Skemmst er frá því að segja að það eru ekki forsendur til að
breyta vöxtum við núverandi aðstæður. Það vantar einfald-
lega yfirlit um stöðu og horfur í þjóðarbúskapnum eftir fall
fjármálafyrirtækjanna og þær ráðstafanir í efnahagsmálum
sem áformaðar eru í samstarfi við IMF. Að mínu mati væri
óðs manns æði að breyta vöxtum nú án þess að tengja slíka
breytingu við heildaráætlun í efnahagsmálum […] Trúverðugar
aðgerðir nú í samvinnu við IMF gætu leitt til þess að forsendur
sköpuðust skjótt til vaxtalækkana.
N I Ð U R S TA Ð A : Ó B R E Y T T I R S T Ý R I V E X T I R
Vestrænar lýðræðishefðir ráði
Endurreisa þarf traust á Íslandi á alþjóðlegum vettvangi.
Efnahagsáætlun með gæðastimpli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er
mikilvægt skref í þá átt. Birta þarf hana opinberlega um leið
og hún hefur hlotið staðfestingu sjóðsins. Annað skref er að
leita eftir því við Evrópusambandið að á grundvelli aðildarum-
sóknar fáist aðild að evrópska myntsamstarfinu svo fljótt sem
verða má […] Þriðja skrefið er að þeir sem bera ábyrgð axli
hana og umheiminum verði sýnt að hér ríki vestrænar lýðræð-
ishefðir í þessu efni. Byrja verður á yfirstjórn Seðlabanka og
Fjármálaeftirlits og sameina svo þessar stofnanir.
N I Ð U R S TA Ð A : Ó B R E Y T T I R S T Ý R I V E X T I R
E D D A R Ó S K A R L S D Ó T T I R
Ó L A F U R Í S L E I F S S O N
Vextir styðji við gjaldeyrismarkað
Eins og staðan er nú er fátt annað í stöðunni en að halda
vöxtum óbreyttum. Nú er beðið eftir samþykkt Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins á láni til Íslendinga samhliða því að sameiginleg
efnahagsáætlun sjóðsins og ríkisstjórnarinnar birtist. Mál mál-
anna er að koma gjaldeyrismarkaðinum í lag – og þar verða
vextirnir að styðja við. En það er nauðsynlegt að koma í veg
fyrir fjármagnsflótta út úr hagkerfinu. Síðan um leið og krónan
hefur komist á flot og betra jafnvægi hefur náðst á gjaldeyris-
markaði er nauðsynlegt að lækka vexti eins hratt og hægt er.
N I Ð U R S TA Ð A : Ó B R E Y T T I R S T Ý R I V E X T I R
Á S G E I R J Ó N S S O N
Þ Ó R Ð U R F R I Ð J Ó N S S O N
N I Ð U R S TA Ð A : Ó B R E Y T T I R S T Ý R I V E X T I R