Tíminn - 13.02.1982, Blaðsíða 8
Andn Árnason
Bifreidaeigendur hvattir til ad sýna
gætni vid bifreiðasölur:
„Aukist að
menn kaupi
reiðar al-
farið á víxlum”
— segir Andri Árnason, starfsmaður
lögfræðiþjónustu FÍB
■ „Nú siðustu mánuðina hafa vixlaviðskipti samfara bifreiðasölum
aukist verulega, jafnvel þannig að menn greiði alfarið fyrir bifreiðarn-
ar meðvixlum. Gjalddagar vixianna cru þá jafnan reglubundnir á all-
nokkru timabili eftir að afsal hefur veriö gefið út fyrir viðkomandi bif-
reið. Þetta þýðir hins vegar i reynd, að seljandi afhendir kaupanda bif-
reiðina til fullrar eignar og frjálsrar ráðstöfunar, án þess að kaupandi
hafi að fullu greitt fyrir viðkomandi bifreið.
í langflestum tilfellum ganga viðskiptin þannig fyrir sig, að kaup-
andinn greiðir viðkomandi vixla á gjalddaga, og seljandi verður þá I
sjálfu sér ekki fyrir neinum sérstökum óþægindum af þessu greiðslu-
fyrirkomulagi. Þó kemur við og við upp sú staða að kaupandi og aörir
þeir sem cru ábyrgðamenn á vixilskuldbindingu reynast ekki vera
borgunarmenn fyrir þeim vixlum, sem voru hluti af greiðslu kaup-
verðsins. Undanfarnar vikur hafa komið hingað til mln einstaklingar
sem illa hafa orðiö úti vegna þessa viöskiptamáta, þar sem bifreiðin
hefur umsvifalaust verið seld þriðja manni, þannig að seljandi stendur
uppi slyppur og snauður með verðlausa vixla i höndunum. t viðskiptum
sem þessum verða seljendur að sýna scrstaka varkárni og gera viðeig-
andi tryggingarráðstafanir til að hafa ekki fjárhagslegt tap af kaupun-
Þetta sagði Andri Arnason
starfsmaður lögfræðiþjónustu
FIB, i samtali við Timann, en fé-
lagið hefur um árabil haldið úti
lögfræðiþjónustu fyrir félags-
menn innan FtB. Til hans geta
félagsmenn leitað, ef þeir t.d.
telja sig hafa verið svikna i bif-
reiðaviðskiptum, eða ef upp kem-
ur ágreiningur um tjónabætur
vegna ákeyrslu o.fl. Björn Jósef
Arnviðarson, lögfræðingur, hefur
tekið að sér aö veita félagsmönn-
um samskonar lögfræðiaðstoð á
Norðurlandi, með aðsetur á
Akureyri.
„Til að tryggja seljanda sem
bestréttsinn til skilvisra og skað-
lausra greiðslna getur verið
nauðsynlegt fyrir hann að kanna
fjárhagsstööu samþykkjanda, út-
gefanda og ábekinga vixla”,
sagði Andri Arnason. ,,Ef kaup-
andi er sjálfur hvorki samþykkj-
andi né útgefandi vixils, er jafn-
framt nauðsynlegt að hann riti
nafn sitt aftan á vixilinn, en með
árituninni ábyrgist hann greiöslu
vixilsins.
Til þess að tryggja vixilábyrgð
annarra en samþykkjanda þarf
að afsegja vixil innan tveggja
daga frá gjalddaga hans. Af þeim
sökum er æskilegt að vixlar séu
til innheimtu i þeirn banka sem
telst greiðslustaður og sér bank-
inn þá um afsagnargerð, ef vixill-
inn er ekki greiddur. Til þess að
tryggja rétt sinn enn frekar er sá
möguleiki alltaf fyrir hendi að
kaupandi setji sérstaka verö-
tryggingu fyrir greiðslunni.
Ef verulegt fé er lánað af kaup-
veröi bifreiöar getur verið nauð-
synlegt að krefjast fasteignaveð-
tryggingar. Slikt er hægt að gera
með þvi móti, að kaupandi gefur
út fasteignaveðtryggt skuldabréf,
þar sem hann lofar greiðslu
ákveðinna afborgana, og bréfið er
tryggt með veði i tiltekinni fast-
eign. í sumum tilfellum getur
veriðnægilegt að taka tryggingu i
hinniseldu bifreið. Kaupandi gef-
ur þá út veðskuldabréf eða trygg-
ingarbréf, þar sem hann veðsetur
bifreið þá sem hann kaupir, til
tryggingar alborgana eða
greiðslu vixla þeirra sem hann
greiðir með hluta kaupverðs.
Til þess að tryggja réttarstöðu
sina, þarf kaupandi að láta þing-
lýsa tryggingarbréíinu i þvi um-
dæmi sem biíreiðin er skráð, inn-
an þriggja vikna frá þvi aö þaö
var gefið út. Kostnaðinn á selj-
andi að greiða.”
En löglræðiráðgjöfin einskorð-
ast ekki viö aðstoö viö kokkálaöa
bifreiðaseljendur. Langflest
þeirra mála sem koma inn á borð
Andra, eru vegna meintra galla
við sölu á notuðum bifreiðum,
sem upp koma þá fyrr en senna.
„Við reynum aö leiða i ljós
hvort um raunverulega og leynda
galla sé að ræða. E1 okkur sýnist
raunin vera sú, aðstoðum viö
kaupandann við það að reyna að
ná samkomulagi við,seljanda bif-
reiöarinnar um meðferö málsins,
ef um smávægileg atriöi er aö
ræöa en visum þvi ellegar til lög-
manna,” sagði Andri.
„Einnig höfum viö beitt okkur
fyrir þvi að gildandi reglum um
ökutæki yröi breytt að ýmsu leyti.
1 dag leggjum við þyngsta
áherslu á að reglum um sam-
ábyrgð tryggingarfélaganna á
óskráöum og óvátryggðum öku-
tækjum verði breytt. Eins og
málum er háttað i dag þarf tjón-
þoli i þessum tilfellum að fá dóm
fyrir kröfu sinni gegn tjónvaldi,
og reyna árangurslaust að inn-
heimta hana hjá honum, áður en
hægt er að krefja tryggingarfé-
lagið. Við viljum fá þessari for-
gangsröð snúið við, þannig að
tryggingafélagið taki að sér
málavafstrið, en tjónþoli fái sinar
bætur greiddar strax út refja-
laust,” sagði Andri Arnason.
— Kás
ALDAR AFMÆL
Laugardagur 13. febrúar 1982.
Laugardagur 13. febrúar 1982.
Nina og Þórunn starfsmenn á skrifstofu FtB
■ Félag ísienskra bifreiðaeigenda er orðinn rótgró-
inn félagsskapur hér á landi. í maimánuði næstum
heldur félagið upp á merk timamót á iifsferli sinum,
þegar það minnist hálfrar aldar afmælis sins.
Félagið var stofnaðfi. mai árið 1932, og eru nú félag-
ar þess rúmlega tiu þúsund talsins.
í gegnum árin hefur það veitt félagsmönnum sin-
um þjónustu og aðstoð af ýmislegu tagi, auk þess
sem það hefur barist fyrir hinum ýmsu baráttu og
réttlætismálum bifreiðaeigenda hérlendis. Á þess-
um merku timamótum hefur tekið til starfa ferða-
skrifstofa á vegum FiB. Það hefur verið draumur
forsvarsmanna félagsins i mörg ár að koma á stofn
slikri ferðaskrifstofu, en sú hugmynd hefur ekki náð
fram að ganga fyrr en nú.
Einbeitum okkur að ein-
staklingsferðum á bif-
reiðum
„Undanfarin tvö ár hefur FIB
átt ágætis samvinnu við Hafskip
og Útsýn um afslátt til handa
félagsmönnum á fargjöldum og
flutningi bifreiða til Evrópu.
Mæltist þessi ráðstöfun vel fyrir,
sem sést e.t.v. best á þvi að árið
1980 fóru um fimm hundruð
mannsutan með um eitthundrað
bifreiöar I þessu sambandi,”
sagði Hafsteinn Vilhelmsson,
framkvæmdastjóri FIB í samtali
við blaðamann Timans.
,,Vegna mikils áhuga ákvað
fulltrúaþing félagsins að fara út i
eigin ferðaskrifstofurekstur, og
tók hún til starfa 1. janúar sl. Viö
komum til með að einbeita okkur,
a.m.k. í fyrstu, aö skipulagi ein-
staklingsferöa á bifreiðum um
Noröurlönd og Evrópu. Þá á ég
við bæði feröir sem einstaklingar
fara i'á eigin bifreiðum, eða bila-
leigubifreiöum sem við sjáum þá
um að útvega. Við munum taka
að okkur aö skipuleggja aksturs-
leiðina ef þess er óskað, jafn-
framt þvi' sem viö pöntum gist-
ingu i sumarhúsum eöa á hótel-
um.
Alla þessa þjónustu getum við
boðið vegna samvinnu og sam-
ninga sem náöst hafa við systra-
félög FIB á hinum Noröurlöndun-
um, í Danmörku FDM, i Noregi
NAF og i Svíþjóð Motormannes
Riksforbund. Meö þessu mótiget-
um við boðið upp á allar feröir og
alla þá þjónustu sem þessi félög
láta í té með alveg sérstökum af-
sláttarkjörum. Gildir það hvort
sem um eraö ræöa skipulagningu
feröa á bifreið þar sem gist er á
tjaldstæðumog sumarhúsum eða
dvöl á fyrsta flokks hótelum. 1
ofanálagþá eru þessirsamningar
gagnkvæmir, þannig aö viö get-
um átt von á auknum ferðalögum
félaga innan systrafélaga okkar á
hinum Norðurlöndunum, og þá
njóta þeirnáttúrulega sömu þjón-
ustu og sömu afslátta og félags-
menn okkar hérlendis,” sagði
Hafsteinn.
,,Letter of credit”
Nafndi Hafsteinn sem dæmi aö
leiga á bifreið af Opel Kadett gerö
á þeirra vegum, annað hvort á
Norðurlöndunum eða i Evrópu, i
þrjár vikur kostaöi rúmar sex
þúáund krónur. Er þá trygging og
ótakmarkaður kilómetrafjöldi
innifalinn. Samsvarandi verð
fyrir tværvikureru tæpar4500 kr.
Er þetta hagstæða verð tilkomið
vegna þessað félagiö hefur fengið
45% afslátt á upphaflegri leigu.
,,Ef við tökum sem dæmi ferða-
lag fjögurra einstaklinga til
Luxemburg er tækju sig saman
og leigðu eina bifreið i þrjár vikur
með fyrrgreindum kjörum, þá
myndi kostnaður a hvem ein-
stakling vera um sjö þúsund
krónur,og er þá innifalið flugfar-
gjald, bilaleigubifreið, og gisting
allan timann i sumarhúsum. Hins
vegar fá börn innan við 10 ára
aldur ókeypis gistingu, þannig ef
að fjögurra manna fjölskylda
væri á ferð, og þar af tvö börn
undir 10 ára aldri, þá myndi
kostnaður slikrar ferðar á hvern
fjölskyldumeðlim nema um 6300
kr.
Þetta er þó bundið þvi að gist-
ing á hverjum stað veröi frá
þremur nóttum upp i viku, allt
eftir þvi hvers óskað er af við-
skiptavininum. Til viöbótar fá
félagsmenn afslátt af ferjuferð-
um, aðallega út frá Danmörku,
annað hvort til Scandinaviu eöa
Þýskalands.
Ef menn vilja hins vegar fara
meö eigin bifreiö erlendis til
ferðalaga, þá sjáum viö um að
flytja hann út meö Eimskip til
allra þeirra hafna sem það félag
hefur ferðir til. Þessum félögum
býöstauðvitað að öðru leyti sömu
kjör og ég lýsti hér aö framan”,
sagöi Hafsteinn Vilhelmsson.
„Þeim félagsm önnum, sem
fara meö bifreiðar sinar erlendis
gefst nú einnig kostur á að fá með
sér skuldaviðurkenningar
„Letter of Credit”. Skuldaviður-
kenningar þessar eru greiðslu-
seölar, sem útnefndir eru i
ákveðnum upphæðum, sem hægt
er að nota erlendis til greiöslu á
viögerðum auk slysa- og lögfræði-
aðstoðar.semþörfkann að vera á
vegna tjóna. Reikningar eru
siðan sendir til skrifstofu FIB i
Reykjavik og þeir innheimtir i
ekki verður hafist handa fljót-
lega. Þetta miðar þvi i rétta átt
nú, og viö ætlum ekki að láta
deigansiga að herma loforð upp á
þá aðila sem gefiö hafa þau i
þessu sambandi.
Annað baráttumál okkar og
reyndar allra öifreiðaeigenda er
ört hækkandi bensinverð, sem viö
viljum fá lækkað. Þá baráttu höf-
um við hins vegar háö fyrir dauf-
um eyrum stjórnvalda. Við höf-
um bent á það ranglæti að á sama
tima og bensinverð fer lækkandi
erlendis.skuli þaö fara hækkandi
hérlendis. 1 ofanálag þá eru
skattar lagöir ofaná skatta þegar
bensinverðið er reiknað út, sem
er náttúrulega enn ein vitleysan.
Okkur væri i sjálfu sér ekki svo
sárt um þetta háa bensinverð, ef
við uppskærum betri vegi fyrir
vikið, en þvi' er fjarri. Aðeins
21.7% af þeim fjármunum sem
rikið hefur af skattiagningu af
bensi'ni fer til vegaframkvæmda,
en afgangurinn fer til alls ó-
skyldra framkvæmda,” sagði
Hafsteinn Vilhelmsson að lokum.
—Kás.
Þjónustubifreiö FtB, framan viö skrifstofu félagsins aö Nóatúni
■ Hafsteinn Vilhelmsson, framkvæmdastjóri FtB
gegnum banka. Ef óvænt útgjöld
koma upp á geta skuldaviður-
kenningarnar bjargað farar-
eyrinum, þótt að skuldadögum
komi siðar, þegar heim er kom-
ið,” sagði Hafsteinn.
Þörfin fyrir vega-
b.iónustuna minnkað
Tilgangurinn meö stofnun FIB
fyrirtæpum 50árumsiðan var sá,
að leitast við að sameina alla þá
menn hér á landi, sem áhuga
höföu fyrir bifreiðarekstri og bif-
reiðanotkun, til þess að gæta
sameiginlegra hagsmuna þeirra
og stuðla að þvi, að öll umferð
yrði sem öruggust og greiðust
fyrir alla vegfarendur.
„Segja má að markmið félags-
ins i dag sé það sama og það var
fyrirtæpum 50árumsiðan, þósvo
að starfsemin hafi færst inn á
nýjar brautir. Siaukin bifreiða-
eign landsmanna krefst aukinnar
þjónustu við félagsmenn”, sagði
Hafsteinn.
Sá þáttur þjónustu FIB sem
allur almenningur hefur orðið
hvað mest var viö i gegnum árin
er vegaþjónustan. „Þörfin hefur
minnkað geysimikið á undanförn
um árum fyrir þessa þjónustu,
aðallega vegna nýrri bifreiða og
minni bilanatiðni. Engu aö sföur
erum við með á milli átta og tiu
bifreiða á sumrin i þessu, þar af
eina sem er i eigu félagsins, en
hinar leggja félagsmenn til. A
siðasta sumrivoru framkvæmdar
42 viðgerðir á 65 úthaldsdögum,
þannig aö það segir sig sjálft að
verulegt tap er af þessari
þjónustu. Við ætlum þó ekki að
láta deigan siga, og munum halda
henni áfram, eins og við höfum
gert undanfarin 3040 ár með litl-
um hléum. I framtiðinni munum
við þó ieggja áherslu á að nýta
talstöövar betur við þessa þjón-
ustu, til að koma upplýsingum á
milli manna, og höfum reyndar
átt ágætt samstarf við farstöðva-
eigendur i þessu sambandi, enda
fjöldi FIB-manna innan þeirra
vébanda.
Nú FIB veitir félagsmönnum
sinum ýmsa aðra þjónustu. Auk
lögfræðiþjónustunnar sem getið
erhér til hliðar, þá er starfandi á
okkar vegum og Bilgreinasam-
bandsins sáttaþjónusta sem innt
er af hendi af viðurkenndum bif-
vélavirkjameistara. Sáttamaöur-
innyfirfer verkstæðisreikninga ef
félagsmönnum finnst þeir hafa
verið hlunnfarnir af bifreiðaverk-
stæðum, en einnig sker hann úr
um ágreiningsatriði er upp koma
varðandi ábyrgðir á nýjum bif-
reiðum. Þessimaður gefureinnig
tæknilegar leiðbeiningar til
félagsmanna sem litið þekkja til
tæknilegrar uppbyggingar bif-
reiðarinnar.og ýmsa ráðgjöf iþvi
efni.
Nú gefst félagsmönnum einnig
tækifæri á aðfá bifreiðar þær, er
þeir hyggjast kaupa eða selja
yfirfarnar af fagmönnum á
ýmsum verkstæðum gegn vægu
gjaldi. Við bjóðum einnig upp á
þjónustu af öðru tagi. sem eru af-
slættir hjá viðgerðarverkstæðum
af öllu tagi ca. 10-20%, afsláttur á
hótelum í borginni frá 20-30%
fyrir félagsmenn, og jafnframt
8% afslátt á öllum Eddu-hótelun-
um hringinn i kringum landið á
sumrin. Einnig aðstoðum við
utanbæjarmenn við leit og útveg-
un á varahlutum, sem þá vantar.
Auk þess höldum við úti frétta-
bréfi sem kemur til félagsmanna
4-5 sinnum áári.og gefum útbíla-
blaöið Öku-Þór i samvinnu viö
Frjálst framtak.”
Miðar i rétta átt f vega-
málum
FIB hefur löngum látið vega-
mál til sín taka, og hefur ekki þótt
mikið til koma framkvæmda á
þvi sviði. „Þetta hefur verið mik-
ið baráttumál okkar um áratuga-
skeið að vegiryrðu bættir. Lengst
af höfum viö talað fyrir daufum
eyrum, eða þar til á sfðasta ári
þegar við fengum sérstakan
mann til að vinna að-þessum mál-
um meö viðtölum við ráðherra,
þingmenn o.fl. Hvort sem það
er okkur að þakka eða öðrum
þá sýnist okkur þetta miða i rétta
átt nú, og höfum loforð ráöherra
fyrir þvi að nú verði gert átak i
þessum efnum. Er stefnt aö þvi
ao leggja slitlag á 130-180 kiló
metra á ári héðan i frá. Það hefur
verið talið aö nær 900 kilómetrar
séu tilbúnir undir slitlag, en þá
vinnu þarf að taka upp aftur, ef
— FÍB stofn-
setur ferða-
skrifstofu.
„Einbeitum
okkur að
skipulagi
bifreiðaferða
einstaklinga
um Norður-
lönd og
Evrópu”,
segir
Hafsteinn
Vilhelmsson,
fram-
kvæmda-
stjóri
félagsins