Tíminn - 13.02.1982, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. febrúar 1982.
fréttir
HEIMILA EKKI FLEIRI
SKEMMTANIR A BROADWAY
TT
V
— eða öðrum skemmtistöðum sem Ólafur Laufdal á eða rekur
segir Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskólans
■ ,,Mér fannst bara takast svo illa til með þetta og
Ólafur Laufdal taka það illa i að koma þessu til betri
vegar, þegar ég talaði við hann, að ég sá ekki annað
fært en hafa þetta svona,” sagði Þorvarður Elias-
son, skólastjóri Verzlunarskóla íslands, þegar
blaðamaður Timans spurði hann út i bréf það sem
hann ritaði í siðasta fréttabréfi Nemendafélags
Verzlunarskólans,
1 áðurnefndu bréfi segir Þor-
varður m.a. „Vegna þessarar
slæmu reynslu tilkynnir skóla-
stjóri hér með að hann fyrir sitt
leyti mun ekki heimila fleiri
skólaskemmtanir á Broadway
eða á öðrum skemmtistöðum sem
Ólafur Laufdal á eða rekur, nema
fyrir liggi skriflegur samningur,
milli nemenda og áður nefnds
Ólafs.”
Þorvarður sagði að upplausn
hefði rikt fyrir utan skemmti-
staðinn Broadway, 4. febrúar sl.
en það kvöld var Verzlunar-
skólinn með hóf þar. Hefðu bæði
nemendurog kennarar oröið fyrir
meiðslum og skemmdum á fatn-
aði i þrengslunum fyrir utan
skemmtistaðinn, og heföi öng-
þveiti þetta myndast, vegna þess
að fjöldi fólks streymdi að, á
sama tima, um kl. 23.30, en dyra-
verðirnir hefðu leitað svo vand-
lega á nemendum, i vinleit sinni,
að það hefði litið gengiö við að
hleypa fólkinu inn.
Þorvarður sagði að þá hefði
ekki bætt Ur skák, að þetta kvöld
var slagviðri og rigning, þannig
að þeir sem entust i biðröðinni,
voru niðurrigndir þegar inn var
komið, en aðrir gáfust upp á bið-
inni og fóru heim, þrátt íyrir að
þeir væru búnir að kaupa rándýra
inngangsmiða. Sagði hann aö þeir
sem lengst helðu beðið lyrir utan
Broadway hefðu staöið þar i 1 1/2
tima.
Þorvarður sagði að þegar
honum hefði tekist að ryöja sér
leið gegnum þvöguna og inn i
húsið, hefði hann íariö þess á leit
við dyraverði hússins, að þeir
hröðuðú eítir löngúm þvi að
hleypa fólkinu inn, en þeir hefðu
alfarið neilað þvi og visað honum
á Ólaf Lauldal. Hefði hann þá
farið á fund Ólafs, og beðið um
það sama, en svörin sem hann
hefði fengiðhefðu verið á þá lund,
aðekki kæmi til greina að hleypa
fólkinu inn án vinleitar.
„Ég l'ékk hins vegar ekki annað
séð, en að hann myndi allt græða
á þvi að hleypa íólkinu inn. Nem-
endurnir voru sjálíir með yfir 40
manns viö gæslustörf i húsinu,
þannig að það var hægt á stund-
inni að hleypa fólki þvi út, sem
hefði gert sig liklegt til þess að
vera með læti, eða draga upp vin.
Mér þykja það nú öllu skynsam-
legri aðfarir að hleypa lólki inn,
og týna það svo heldur út, ef það
gerir eitthvað al' sér, heldur en að
taka svona á móti þvi, æsa það
upp og eyðileggja fyrir þvi
skemmtunina,” sagði Þorvarður.
„Hvaö eru'ði að glápa inn í annarra manna bíla",
gæti snáðinn verið að hugsa þar sem hann gjóar aug-
unum illilega i átt til Ijósmyndarans. — Timamynd:
Ella.
„Skólastjórinn
ekki alsgáður”
— segir Ólafur Laufdal, eigandi Broadway
■ „Skólastjóra Verzlunarskólans
er á engan hátt heimilt að stöðva
vinleit á nemendum, þegar nem-
endaféiagið sjálft var búið að
gera samkomulag um að vinleit
yrði framkvæmd. Auk þess vil ég
taka það fram að umræddur
skólastjóri var ekki alsgáður
þegar hann kom á minn fund hér i
Broadway, og fór þess á leit við
mig að ég léti flýta vinleitinni,
eða stöðva hana algjörlega. Slika
framkomu tel ég engan veginn til
fyrirmyndar fyrir skólastjóra
skóla, sem er að halda vinlausa
skemmtun,” sagði Ólafur Lauf-
dal, eigandi Broadway, þegar
blaðamaður Timans spurði hann i
hverju ósamkomulag hans og
skólastjóra Verzlunarskólans
hefði vcrið fólgið 4. fcb. sl.
Ólafur sagði að nemendaráð
Verzlunarskólans helöi ekki
viljað eiga þaö á hæltu aö ia á sig
háa bakreikninga, vegna
skemmda sem hugsanlega yrðu
unnar á húsakynnum.
,,Að öðru leyti visa ég til Bjarka
Eliassonar, yfirlögregluþjóns, og
til skýrslna þeirra fjögurra eftir-
litsmanna með vinveitinga-
húsum, sem hér voru v ið eftirlits-
störf þetta kvöld. Einn eftirlits-
maðurinn var m.a.s. vitni að
samræðum þeim sem fóru fram á
milliminogskólastjórans,” sagði
Ólaíur.
Ólafur sagðist vilja taka það
skýrt fram að hann væri mjög
ánægður með framkvæmd dans-
leiks þess sem Nemendafélag
Verzlunarskólans heföi staðiö
fyrir þetta kvöld, og sagöi hann
að hann hefði verið til mesta
sóma sér fyrir þá sem stóðu íyrir
skemmtuninni, þá Guðbjörn Guð-
björnssonog Jón Axel Pétursson.
Timin haföi samband við
Bjarka Eliasson, yfiriögreglu-
þjón, en hann sagöi aö hann fengi
ekki skýrslu eftirlitsmannanna
sem voru að störlum i Broadway
4. febrúar fyrr en nk. mánudag.
—AB
BMW518
BMW315
BMW mest seldi bíllinn hér á landi 1981
frá Vestur-Þýskalandi.
Á síðasta ári hafa verið seldar meir en 400 BMW bifreiðar og sýnir það best hinar miklu vinsaeldir BMW.
Þar sem BMW verksmiðjurnar hafa ekki getað annað eftirspurn höfum við átt í erfiðleikum með
að fullnægja þeim pöntunum sem okkur hafa borist að undanförnu. Tekist hefurað fá viðbótarsendingu
BMW bifreiðaog getum við því afgreitt flestar gerðir BMW nú þegar. Grípið tækifærið og festið kaup á
BMW á föstu verði með því að gera pöntun strax. Vandið valið,
BMW gæðingurinn er varanleg eign, sem alltaf stendur fyrir sínu. Komið og reynsluakið
BMW 315 og 518.
BMW 518 Verð kr. 186.000 BMW-ánægja í akstri. BMW 315 Verð kr. 142.700
Gengi 8. fefa. DM: 4.0721
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633